Morgunblaðið - 18.05.2000, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heilbrigðisráðuneytið og Sameinaði lífeyrissjoðurinn gera þjónustusamning
Ætla að auðvelda öryrkj-
um leið út í atvinnulífíð
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
undirritar í dag þjónustusamning
við Sameinaða lífeyrissjóðinn um
tilraunaverkefni til endurhæfingar
öryrkja. í verkefninu, sem valið
hefur verið til þátttöku í keppni í
Brussel, er unnið á sviði heilbrigð-
is- og menntakerfis með það að
markmiði að aðstoða örorkulífeyr-
isþega til að gerast þátttakendur í
atvinnulífinu. Samkvæmt þjón-
ustusamningnum veitir heilbrigðis-
ráðuneytið tilraunaverkefninu 8,5
milljóna króna fjárstyrk á þessu
ári.
Einn þegar fengið vinnu
Verkefninu var hrint af stað í
janúar síðastliðnum og stendur til
loka ágúst á næsta ári. Þátttak-
endur í verkefninu eru einstakling-
ar yngri en 60 ára sem glíma við
stoðkerfisvanda. Á annan tug ein-
staklinga hefur hafið endurhæf-
ingu, fiestir þeirra félagsmenn
Sameinaða lífeyrissjóðsins og Líf-
iðnar sem lent hafa í vinnuslysum.
Einn hefur þegar fengið vinnu í
kjölfar endurhæfingar en sækir
enn stuðningsfundi. Ráðherra var
kynnt starfsemin í gær.
Kristín Hanna Siggeirsdóttir
iðjuþjálfi er verksefnisstjóri til-
raunaverkefnisins. Hún tók ásamt
Jóhannesi Siggeirssyni, fram-
kvæmdastjóra Sameinaða lífeyrir-
sjóðsins, á móti ráðherra og leiddi
hann um starfsstöðvar verkefnis-
ins í Vörðuskóla og Iðnskólanum í
Reykjavík.
Litlar
birgðir í
Blóðbank-
anum
LITLAR birgðir eni til af blóði
hjá Blóðbankanum um þessar
mundir. Sveinn Guðmundsson,
yfirlæknir hjá bankanum, segir
að oft dragi úr blóðgjöfum á
vorin vegna prófa hjá ungu
fólki og íþróttaiðkunar sem taki
frítíma fólks. f næstu viku er al-
þjóðlegi blóðgjafadagurinn, 23.
maí.
Sveinn segir að enn sé skort-
urinn ekki mjög alvarlegur,
birgðirnar séu um 200-300 ein-
ingar, en þyrftu helst að vera
um 400 einingar.
Á hverjum degi þarf um 50-
70 blóðgjafa til að viðhalda
birgðunum. „Það er í raun ekki
hægt að halda betur upp á Al-
þjóðadag blóðgjafa en með því
að eiga nóg af blóði á lager til að
sýna að við getum staðið undir
væntingum heilbrigðisþjónust-
unnar,“ segir Sveinn.
Hús brann á
Hellissandi
TVÍLYFT íbúðarhús á Hellis-
sandi brann á fimmta tíman-
um í fyrrinótt. Húsið var
mannlaust, en ekki hafði verið
búið í því í nokkurn tíma. Allt
brann sem brunnið gat í hús-
inu, þar á meðal húsgögn og
aðrir innanstokksmunir sem
þar voru.
Húsið sem stendur við Hell-
isbraut 9 var læst þegar
slökkvilið kom að og þurfti það
því að brjóta sér leið inn. Ekki
er vitað hvað olli brunanum.
Morgunblaðið/RAX
Heilbrigðisráðherra óskar Kristjáni Guðbjartssyni, sem fengið hefur vinnu í kjölfar endurhæfingar, til ham-
ingju með þann áfanga. Aðstandendur endurhæfingarverkefnisins fylgjast með.
Kristín greindi frá því að iðju-
þjálfar, læknir, sjúkraþjálfari, sálf-
ræðingur og kennarar koma að
endurhæfingunni. Verklegi þáttur
hennar, svo sem tölvukennsla, fer
fram í Iðnskólanum.
Endurhæfingin er löguð að þörf-
um hvers og eins og reynt að
hjálpa fólki að ná þeim markmið-
um sem það setur sér í samráði við
fagfólk. Unnið er að því að styrkja
sjálfstraust þeirra sem endurhæf-
ingarinnar njóta og þeim hjálpað
við atvinnuleit. Þá verður þeim
fylgt eftir eftir að út í atvinnulífið
er komið.
Kristín segir verkefnið hafa vak-
ið mikla athygli víða erlendis, enda
algjört einsdæmi að unnið sé að
endurhæfingu með þessum hætti.
„Heilbrigðis- og menntakerfi eiga
og geta unnið saman. Það er mjög
mikilvægt í endurhæfingunni,“
sagði Kristín.
Lyfjafræðingar semja við SV
Samið um mark
aðslaunakerfi
Vottunarstofan Tún og Baugur gera samning
Samstarf um kynningu
á lífrænni framleiðslu
Morgunblaðið/Golli
Ólafur Gunnarsson, stjómarformaður Túns ehf., og Finnur Árnason,
framkvæmdastjóri Nýkaups, ganga frá samningi um kynningu á líf-
rænni framleiðslu.
LYFJAFRÆÐINGAFÉLAG ís-
lands og Samtök verslunarinnar,
FIS, hafa undirritað nýjan kjara-
samning þar sem samið er um
markaðslaunakerfi. Samningurinn
nær til lyfjafræðinga sem starfa hjá
lyfjaheildsölum og lyfjadreifingar-
fyrirtækjum. Samningurinn gildir
til loka febrúarmánaðar árið 2004.
Eingöngu er samið um upphafs-
hækkun launa en frekari samnings-
bundnar launahækkanir eru ekki í
samningnum. Viðtöl einstakra
starfsmanna og vinnuveitenda ráða
frekari hækkunum við endurskoðun
EINKAAÐILAR sjá um að gefa út
vottorð um að rafrænum undirskrift-
um sé treystandi, ef frumvarp um raf-
rænar undirskriftir verður að lögum,
en drög að því voru kynnt á fundi iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytis í gær.
Fram kom í máh Birgis Más Ragn-
arssonar lögfræðings, sem situr í
nefnd um rafrænar undirskriftir og
samdi fyrstu drög að frumvarpinu, að
frumvarpið miðar að því að fullnægja
kröfu tilskipunar Evrópusambands-
ins. Samkvæmt henni verður þróuð
rafræn undirskrift, sem studd er af
svokölluðu gæðavottorði og gerð með
öruggum undirskriftarbúnaði, að
vera jafngild handritaðri undirskrift.
Útgáfa hinna svokölluðu gæðavott-
launa. Samningurinn kveður á um
4% upphafshækkun launa, styttingu
vinnuvikunnar í 36 klukkustundir
og 15 mínútur í áföngum á samn-
ingstímanum. Að auki var samið um
framlag vinnuveitenda í séreigna-
sjóð vegna lífeyrissparnaðar og
verður það 2% í lok samningstím-
ans.
Samningurinn er hliðstæður
samningi sem Samtök verslunarinn-
ar gerðu við Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur í janúar, en sá samn-
ingur var fyrsti markaðslaunasamn-
ingur sem gerður hefur verið.
orða er í höndum einkaaðila, en til að
hægt sé að kalla vottorð gæðavottorð
verður það þó að standast ákveðnar
kröfur sem Löggildingarstofa sér um
að hafa eftirlit með. Óheimilt er, sam-
kvæmt tilskipun Evrópusambands-
ins, að gera fyrirfram leyfi að skilyrði
fyrir útgáfu vottorða.
Nefnd um rafrænar undirskriftir
var skipuð á síðasta ári. Gunnar Jóns-
son hæstaréttariögmaður er formað-
ur hennar, en auk hans sitja í henni
fyrmefndur Birgir Már Ragnarsson,
Jakob Falur Garðarsson og Jónas
Þór Guðmundsson. Nefndin fól Birgi
Má að undirbúa setningu laga um raf-
rænar undirskriftir og var afrakstur-
inn kynntur í gær.
VOTTUNARSTOFAN Tún ehf. og
Baugur hf. hafa gert með sér
samning um samstarf við að efla
þekkingu neytenda og starfsfólks í
verslunum á lífrænni framleiðslu.
í samningnum er kveðið á um
samstarf um útgáfu kynningarefnis
fyrir almenning og neytendur,
kynningu á vottunarmerki Túns og
fræðslu meðal starfsmanna versl-
ana Baugs um lífrænar aðferðir og
reglur um meðferð lífrænna afurða.
Samstarf félaganna miðar að því að
auka þekkingu hins almenna neyt-
anda á lífrænum vörum, hvernig
þær eru framleiddar, hvar unnt er
að nálgast þær, hvers vegna þær
eru nokkru dýrari en aðrar vörur
og hvaða þýðingu lífrænar aðferðir
hafa fyrir umhverfí okkar og heil-
brigði.
Mikilvægt að verslanir
taki þátt í kynningu
Ólafur Gunnarsson, fonnaður
stjórnar Túns ehf., og Finnur
Árnason, framkvæmdastjóri Ný-
kaups, undirrituðu samninginn. Við
það tækifæri fagnaði Ólafur því að
Baugur gengi til liðs við fyrirtækið
við kynningu á lífrænni framleiðslu
og sagði að það sýndi framsýni fyr-
irtækisins. Forsvarsmenn' Túns
binda vonir við samkomulagið og
vitna í því efni til niðurstaðna nýrra
rannsókna um stöðu mála á
Evrópska efnahagssvæðinu. Þær
benda til þess að framfarir á sviði
lífrænnar framleiðslu séu mestar
þar sem almenningur er meðvitað-
ur um gildi slíkra afurða og stór-
verslanir taka afgerandi forystu í
markaðssetningu þeirra.
Finnur sagði í samtali við Morg-
unblaðið að Nýkaup hefði haft á
boðstólum lífrænt ræktað græn-
meti, bæði innlent og innflutt,
kryddjurtir og lambakjöt, enda félli
það vel að stefnu verslunarinnar að
leggja áherslu á ferskleika og gæði.
Hann sagði að þessi grein væri í
mikilli þróun erlendis, hjá þeim
verslunarfyrirtækjum sem mestum
árangri næðu, og hægt væri að
merkja aukna eftirspurn einnig hér
á landi. Telur hann að neytendur
og framleiðendur séu að vakna til
vitunar um gildi lífrænnar fram-
leiðslu.
Að sögn Gunnars Á. Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra Túns
ehf., er nú þegar ákveðið framboðið
af flestum eftirsóttustu lífrænu af-
urðunum svo sem inni- og útirækt-
uðu grænmeti, kartöflum, krydd-
jurtum, nýmjólk og AB-mjólk og
lambakjöti. Þó hafi vantað egg en
hann kveðst vonast eftir því að líf-
ræn egg komi á markaðinn í sumar.
Frumvarp kynnt um rafrænar undirskriftir
Byggist á einka-
reknu vottunarkerfí