Morgunblaðið - 18.05.2000, Side 31

Morgunblaðið - 18.05.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 31 REKSTRARAÐItl:' Verðb'éfamarkaðúí bJandsbanka hf. Kirkj'usandi '55 Revkiav-A Símr: 560-8900 «Veffang: vib.is * Netfang: vib@víb”is FERÐALÖG Apótekin Hestaferðir fyrir grænmetisætur I SUMAR mun ferðaþjónustufyrir- tæki Óla Flosa á Breiðabólstað í Reykholtsdal að venju bjóða upp á hestaferðir. Meðal nýrra ferða er nú ein fyrir grænmetisætur. Óli Flosa hefur í mörg ár verið leiðsögumaður 1 hestaferðum. Hann segir að með tímanum hafi ýmsar ferðir fest í sessi en svo bæt- ast nýjar ferðir við eins og gerist og gengur. I ár verður bryddað upp á nýjung, boðið upp á sérstaka ferð fyrir grænmetisætur og fyrir þá sein vilja huga að heilsunni. „Okkur fannst vanta þennan val- kost. Kjötætur eru að sjálfsögðu velkomnar með en þær verða að gera sér grænmeti að góðu. Eldað- ir verða grænmetisréttir og lögð áhersla á ferskt, íslenskt hráefni. Farið verður í að minnsta kosti eina svona ferð sem stendur í sex daga og síðan verður ferðin endur- tekin ef hún heppnast vel. Við leggjum í hann frá Breiða- bólstað í Reykholtsdal og ríðum að Arnarstapa á Snæfellsnesi. Boðið verður upp á nudd í lok dags og ýmislegt annað verður á boðstólum sem miðar að því að gera ferðina ánægjulega. Til dæm- is stendur til að hafa leikfimiæfing- ar og teygjur á morgnana sem sænsk kona mun hafa umsjón með en hún hefur sérhæft sig í því sem kallast „bodywork". Ovissuferðin árviss viðburður Óvissuferðin er ein þeirra ferða sem alltaf er farin árlega. „Upp- haflega fór einn Finni með mér í þá ferð fyrir um ellefu árum og hann hefur komið á hverju sumri sfðan. Þá förum við í um 12 daga ferð á hestum og iðulega liggur leiðin um svæði sem ég hef ekki farið á áður. Með árunum hefur fólk verið að bætast við og nú förum við á bilinu 10-12 í þessa ferð, iðulega sami kjarninn og síðan einhverjir nýir.“ En það eru ekki bara vanir hestamenn sem fara með Óla í hestaferðir. Þær henta öllum, jafnt þeim sem hafa bara séð hesta á Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir myndum og þeim sem eru orðnir sjóðaðir í ferðum sem þessum. Hann segist vera með allskonar ferðir í boði og sérsniðnar ef því er að skipta. Fólk kemur á eigin hestum Óli segir að það hafi færst í vöxt að fólk sem á 2-3 hesta nýti þjón- ustu hans og komi með eigin hesta í ferðirnar. „Það er auðvitað skemmtilegast að ríða eigin hest- um og fá að kynnast þeim á ferða- lagi og horfa á þá hlaupa lausa ásamt öðrum hrossum." Aukin starfsemi hjá Leið- arljósi á Hellnum Hellissandi. Morgnnbladið. Ferðaþjónusta Leiðarljóss á Helln- um í Snæfellsbæ er nú að auka og bæta starfsemi sína. Framkvæmdir standa yfir við Gistiheimilið í Brekkubæ þar sem verið er að byggja við núverandi húsnæði. Þar verða sex tveggja manna herbergi með baði og tengibygging þar sem verður setustofa. Einnig hefur fyrri aðstaða og húsnæði verið end- urbætt. Allt er þetta byggt sam- kvæmt þekktum vistvænum stöðl- um um húsbyggingar. Fyrirtækin innan Snæfellsás- samfélagsins á Brekkubæ vinna samkvæmt vel skilgreindri um- hverfisstefnu og leggja metnað í sjálfbæra þróun í tengslum við starfsemi sína. Endurbætur fara nú einnig fram á tjaldsvæðinu og verið er að bæta salernisaðstöðuna og setja upp sturtur og koma fyrir þvottavél fyrir tjaldstæðagesti. Þá fara fram endurbætur á sal þar sem boðið er upp á svefnpoka- plássgistingu. Rekstraraðilar eru Guðrún og Guðlaugur Bergmann, Guðríður Hannesdóttir, Jóhann Þóroddsson, Sveinbjörg Eyvindsdóttir, Ketill Sigurjónsson og Bryndís Sigurðar- dóttir. Alþjdðleg vottunarsamtök í mars síðastliðnum gerðust öll ferðaþjónustufyrirtækin innan Snæfellsássamfélagsins á Brekku- bæ að Hellnum aðilar að Green Globe 21 vottunaráætluninni, fyrst allra ferðaþjónustufyrirtækja á ís- landi. Fyrirtækin sem hér um ræð- ir eru Gistiheimilið Brekkubær, Ferðaþjónusta Leiðarljóss og Tjaldstæðið á Brekkubæ. Umer að ræða alþjóðleg vottun- arsamtök sem bjóða upp á alþjóð- lega umhverfisáætlun fyrir sjálf- bæra ferðaþjónustu fyrir 21. öldina, sem á að vera til hagsbóta fyrir neytendur, fyrirtæki og sam- félög. Þátttaka í þessari vottunar- áætlun er í beinu framhaldi af þeirri mótun umhverfisstefnu og uppbyggingu á sjálfbærum líffstíl innan Snæfellsássamfélagsins sem átt hefur sér stað frá því að samfé- lagið var stofnað árið 1995. Betri leiðir að sólbrúnni húð ESTÉE LAUDER Sunless Fáðu fallegan sólgullinn lit á húðina án sólar - og án nokkurs skaða af hennar vðldum. Sérstök ávaxtasýrublandan í Self-Action SuperTan gerir húðina eðlilega „sólbrúna". Þú gætir líka prófað Go Bronze litaða brúnku- kremið okkar, sem fæst ekki aðeins fyrir andlit og háls heldur fótleggina líka og þú getur notað til að sveipa þig sólarljóma frá toppi til táar. Uppgötvaðu hversu auðvelt og skemmtilegt það getur verið að fá fallega sólbrúna húð - strax í dag. Með hjálp ESTÉE LAUDER. Sérfræðingur frá ESTÉE LAUDER verður j versluninni í dag frá kl. 13-18. 6ara Bankastræti 8, sími 551 3140. Ljósmyndari/Hrefna Magnúsdóttir AÐALFUNDIR 2000 Hlutabréfamarkaðuriun hf. 25. maí 2000, kl. 17:15 Kirkjusandi, 155 Reykjavík MARK Nýmarkaðurixui M. 25-maí 2000, kl. 17:15 Kirkjusandi, 155 Reykjavík Dagskrá: Dagskrá: 1. Veryuleg aðalfimdarstörf, sbr. 14. grein samþykkta félagsins. 1. Veryuleg aðalfundarstörf, sbr. 14. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga um samruna Hlutabréfa- markaðsins M. og félagsins. 3. Önnur mál, löglega upp borin. 2. Tillaga um samruna Nýmarkaðsins M. og félagsins. 3. Tillaga til breytinga á 4. gr. samþykkta félagsins um aukningu hlutafjár með áskrift nýrra Muta 4. Tillaga um heimild til stjómar félagsins um kaup á hlutabréfiun félagsins skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 5. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrár og samrunaáætlanir ásamt þeim gögnum sem um getur í 5 mgr. 124 gr. hlutafélagalaga og tillögur til breytinga á samþykktum félaganna, liggja firammi á skrifstofu þeirra að Kirkjusandi, Reykjavík. Einnig liggja ársreikningar félaganna frammi á skrifstofu þeirra viku fyrir aðalfund, hluthöfum til sýnis. Hluthafar eru hvattir til að mœtOL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.