Morgunblaðið - 18.05.2000, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2000 41
fHétgtuMnfeifc
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MIKILVÆG
YFIRLÝSING
STURLA Böðvarsson, samgönguráðherra^ gaf mikil-
væga yfirlýsingu á aðalfundi Landssíma íslands hf. í
fyrradag. A fundinum kom fram, að daginn áður hefði fyr-
irtækið lagt inn formlega umsókn um leyfi til þess að reka
svokallaða þriðju kynslóð farsímakerfa, UMTS-kerfið.
Samgönguráðherra sagði á fundinum, að ekki væri frá-
leitt að selja aðgang að rekstrarleyfum fyrir slíkt farsíma-
kerfi og sagði að ráðuneyti sitt mundi láta skoða þá kosti,
sem væru í stöðunni.
Á fundinum lýsti Friðrik Pálsson, stjórnarformaður
Landssíma Islands hf., þeirri skoðun, að færa mætti sterk
rök fyrir því, að leyfum til rekstrar UMTS-farsímakerfa
yrði ekki úthlutað án endurgjalds og eðlilegt væri að inn-
heimt yrði eitthvert gjald fyrir takmarkaða auðlind á borð
við tíðnisvið fyrir farsímaþjónustu.
Jafnframt sagði stjórnarformaður Landssímans: „Hins
vegar er ljóst, að sé tekjuöflun ríkissjóðs höfuðmarkmið
með úthlutun leyfa er hætta á, að það komi niður á út-
breiðslu, gæðum, þróun og að sjálfsögðu verði nýrrar þjón-
ustu. Slíkt óttast nú einmitt margir að muni gerast í Bret-
landi, þar sem farsímafyrirtækin buðu ótrúlegar fjárhæðir
í leyfin í mörgum tugum umferða.“
Sturla Böðvarsson hefur áður gefið til kynna, að hann
gæti verið opinn fyrir því að taka gjald fyrir farsímarásir
en hann hefur ekki fyrr gengið jafn langt í yfirlýsingum um
þetta efni og nú. Þess vegna verður að líta svo á, að ummæli
hans á aðalfundi Landssímans marki ákveðin þáttaskil í
umræðum um gjaldtöku fyrir farsímarásir og vonandi ná
þau sjónarmið ráðherrans einnig til útvarps- og sjónvarps-
rása. Með ummæium Sturlu Böðvarssonar verður að líta
svo á, að ríkisstjórnin sé að nálgast þá stefnumörkun að
gjald skuli taka fyrir svo takmörkuð hlunnindi, sem hér um
ræðir. Það hefur þýðingu á fleiri sviðum en þeim, sem
varða farsímarásir því að svipuð sjónarmið eiga við um
takmarkaðar auðlindir og hlunnindi á öðrum vettvangi.
Það skiptir líka miklu máli, að stjórnarformaður Lands-
símans hefur lýst þeirri skoðun að slík gjaldtaka væri eðli-
leg þar sem um takmarkaða auðlind sé að ræða. Það skiptir
máli, að Landssími íslands, þetta öfluga fyrirtæki, snúist
ekki gegn þessum hugmyndum.
Það eru margvísleg rök, sem mæla með gjaldtöku vegna
farsímarása. í fyrsta lagi eru þau rök, að hér er um tak-
mörkuð en mjög verðmæt hlunnindi að ræða. Það er eðli-
legt að þeir, sem fá leyfi til slíks rekstrar, greiði gjald fyrir
enda ljóst, að þau rekstrarleyfi verða ekki mörg.
I öðru lagi verður ekki séð, hvernig stjórnmálamenn eða
embættismenn eiga að geta úthlutað slíkum leyfum án þess
að endurgjald komi fyrir. Það er alveg sama, hvernig staðið
yrði að slíkri úthlutun ef hún byggðist á mati örfárra
manna. Alltaf yrði litið svo á, að þeir sem leyfin fengju
hefðu fengið úthlutun á grundvelli pólitískra tengsla.
Ur því, að samgönguráðherra ætlar að láta fara fram
sérstaka athugun á þessu máli í ráðuneyti sínu er eðlilegt
að samhliða verði rökin fyrir því, að taka upp gjald vegna
úthlutunar sjónvarps- og útvarpsrása, einnig tekin til með-
ferðar. Það eru þess vegna allt önnur sjónarmið, sem liggja
að baki, en þau, að afla þurfi ríkissjóði aukinna tekna.
Raunar væri hægt að hugsa sér að tekjur af slíkum gjöld-
um og öðrum auðlindagjöldum rynnu í sérstakan sameigin-
legan sjóð þjóðarinnar, sem rekin yrði á svipuðum grund-
velli og olíusjóður Norðmanna, sem er eins konar
sparnaðar- og fjárfestingarsjóður norsku þjóðarinnar
allrar.
Nú blasir það við, að þriðja sjónvarpsstöðin er að festa
sig í sessi. Augljóst er að hún nýtur ekki jafnræðis í sam-
keppni við hinar sjónvarpsstöðvarnar tvær, nema hún fái
úthlutað rás, sem Ríkissjónvarpið hefur rétt á en notar
ekki. Það er eina ónotaða sjónvarpsrásin af því tagi. Hvaða
réttlæti er í því, að þær tvær sjónvarpsstöðvar, sem fyrir
eru, hafi afnot af beztu rásunum án endurgjalds, sem máli
skiptir, þegar keppinautur er kominn til sögunnar, sem
þarf á sambærilegri rás að halda en hefur ekki fengið
vegna þess, að engin slík rás er á lausu? Þetta er auðvitað
óviðunandi samkeppnisaðstaða. En jafnframt má spyrja,
hvernig opinberir aðilar eigi að geta úthlutað svo takmörk-
uðum hlunnindum, þegar margir sækjast eftir þeim án
þess, að rekstraraðilum gefist kostur á að bjóða í þær?
Það er tímabært, að stjórnvöld taki þetta mál til alvar-
legrar meðferðar og yfirlýsing samgönguráðherra bendir
til þess, að það verði gert nú. Vonandi fylgir ráðherrann
þeim áformum fast eftir.
Einkaframkvæmd rædd á ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Hættuleg
freisting
eða hag-
kvæm lausn?
Er einkaframkvæmd bjargvættur eða böl-
valdur? Samband íslenskra sveitarfélaga
efndi í gær til umræðna um einkafram-
kvæmd þar sem fram komu sjónarmið
fylg;jenda þessarar leiðar, andstæðinga
og Akureyrar, bæjarfélagsins,
sem valið hefur þriðju leiðina.
Morgunblaðið/Ásdís
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga,
ávarpar ráðstefnu sambandsins í Hafnarfirði í gær. Við hlið honum sitja
fjórir ræðumenn á ráðstefnunni (f.v.), Stefán Þórarinsson, Magnús Gunn-
arsson, Ásgeir Magnússon og Gunnar I. Birgisson.
Kvikmynd Lars von Triers, Dancer in the Dark, frumsýnd í Cannes
Fékk mj ög mikla
athygli á hátíðinni
Dancer in the Dark var frumsýnd í gær og
fékk frábærar viðtökur, jafnt á hátíðarsýn-
ingunni um kvöldið, sem og hjá blaðamönnum
um morguninn. Þetta er myndin sem er á
allra vörum, ekki síst vegna frammistöðu
Bjarkar Guðmundsdóttur í myndinni. Pétur
Blöndal sat blaðamannafund með leikstjóran-
um Lars von Trier, leikkonunni Catherine
Deneuve og öðrum aðstandendum
myndarinnar.
Leikkonunarnar Björk Guðmundsdóttir, Catherine Deneuve koma til
frumsýningar myndarinnar.
SAMBAND íslenskra sveit-
arfélaga efndi í gær til ráð-
stefnu um kosti og galla
einkaframkvæmda á veg-
um sveitarfélaga þar sem
komu fram fulltrúar eins bæjarfélags,
sem hefur tekið þetta fyrirkomulag
upp á arma sína, annars, sem hefur
hafnað þessari leið, ogþess þriðja, sem
hefur ákveðið að fara sína eigin leið.
Það eru Akureyringar, sem telja að
þeir hafi fundið leið til að eiga kökuna
og éta hana líka.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formað-
ur Sambands íslenskra sveitarfélaga,
sagði í upphafsávarpi að það væri hlut-
verk opinberra stjórnvalda að leita á
hverjum tíma ýtrustu hagkvæmni í op-
inberum framkvæmdum og rekstri og
í því samhengi hefði einkaframkvæmd
verið töluvert til umfjöllunar að und-
anfömu á vegum sveitarfélaga.
Vilhjálmur vitnaði til stefnuyfirlýs-
ingar ríkisstjórnarinnar frá árinu 1999
er segði að stefna ætti að meiri hag-
kvæmni við opinberar framkvæmdir
og að kostir einkaframkvæmdar yrðu
nýttir í auknum mæli.
„Þannig hefur ríkisstjórnin markað
sér þá pólitísku stefnu að auka gerð
einkaframkvæmdarsamninga á sviði
framkvæmda og rekstrar í þeim til-
gangi að færa fleiri verkefni ríkisins til
einkaaðila,“ sagði Vilhjálmur. „Sveit-
arfélögin á íslandi hafi ekki markað
sér sameiginlega pólitíska stefnu varð-
andi gerð einkaframkvæmdarsamn-
inga með sama hætti og ríkisstjórnin.
Það þýðir þó ekki að einkaframkvæmd
og gerð einkaframkvæmdarsamninga
hafi ekki verið til umfjöllunar í sveitar-
stjórnum."
Lægra verð og bætt þjónusta
Stefán Þórarinsson, stjórnarfor-
maður Nýsis hf. ráðgjafarþjónustu,
aðili að einkaframkvæmdarsamning-
um vegna Iðnskólans í Hafnarfirði,
leikskóla í Grindavík, leikskóla í Há-
holti í Hafnarfirði, og hefur lagt inn til-
boð vegna fleiri slíkra verkefna, hélt
því fi'arn að vaxandi markaðsvæðing
viðskipta og þjónustu
hefði tryggt viðskiptavin-
um lægra verð og bætta
þjónustu.
„í nútímasamfélagi er
ekki þörf á að hið opin-
bera sinni sjálft allri þeirri þjónustu og
uppbyggingu, sem það ákveður að al-
menningur njóti,“ sagði hann. „Marg-
víslegri þjónustu, sem hið opinbera
fjármagnar og veitir, geta einkaaðilar
sinntjafnvel."
Stefán sagði að annmarkar væru á
því hjá hinu opinbera að lækka rekstr-
arkostnað til að auka ráðstöfunarfé í
nýframkvæmdir og í nágrannalöndun-
um hefðu opinberir aðilar í auknum
mæli nýtt sér kosti einkafram-
kvæmdar.
Stefán sagði að flokka mætti einka-
framkvæmd í þrennt eftir eðli og gerð
samninga. Þar væri um að ræða fjár-
hagslega sjálfstæð verkefni þar sem
einkafyrirtæki tæki að sér að annast
tiltekna þjónustu gegn notendagjöld-
um til að standa undir rekstrarkostn-
aði og væru jarðgöng þar sem greidd-
ur væri tollur dæmi um það. Annað
fyrirkomulagið væri þjónusta seld
hinu opinbera. Þar tæki einkafyrir-
tæki að sér að annast þjónustu, sem
hið opinbera væri eitt kaupandi að, og
kostnaði verktakans væri mætt með
endurgjaldi hins opinbera fyrir veitta
þjónustu, til dæmis að reisa og reka
skólamannvirki. Þriðja leiðin væri
hlutaþátttaka hins opinbera þar sem
einkafyrirtæki tæki að sér að annast
þjónustu, sem að hluta til væri greidd
af ríkinu, en að hluta með sjálfsaflafé,
en forræði verkefnisins væri að öllu
leyti hjá einkafyrirtækinu. Með þessu
móti væri hægt að tryggja nauðsyn-
lega þjónustu, sem ekki væri að fullu
markaðshæf, til dæmis rekstur knatt-
spyrnuhúss.
„Samningur um einkaframkvæmd
felur í sér hvata fyrir einkaaðilann til
að veita góða þjónustu í samræmi við
verklýsingu yfir allan samningstím-
ann,“ sagði Stefán. „Fyrir opinbera
aðila - og raunar allan almenning -
eru áhrifin þau að það er hægt að auka
þjónustuna fyrir sama fé eða veita
sömu þjónustu fyrir minni kostnað en
ef henni væri sinnt af hinu opinbera.“
Ásgeir Magnússon, bæjarfulltúri á
Akureyri, var ekki jafn afdráttarlaus í
fyrirlestri, sem bar titilinn „Einka-
framkvæmd er tískuorðið í dag“.
Hann sagði að oft þegar ný hugtök og
nýjar aðferðir kæmu fram yrðu skoð-
anaskipti skýr og ákveðin og umræðan
um einkaframkvæmd væri „dálítið
svart-hvít“.
Eignadeild stofnuð á Akureyri
Hann sagði að raunveruleikinn væri
ekki svona einfaldur og það kæmi
fram í því hvernig bæjarstjórn Akur-
eyrar hygðist taka á þessum málum.
„Við ætium að fara þá leið að nýta
okkur kosti þess að bærinn fær hag-
stæðari lán en einkaaðilar, en á sama
tíma að nýta okkur það vinnulag, sem
bent er á í sambandi við skipulagningu
og samningana um einka-
framkvæmdir," sagði hann.
, ,Við höfum skoðað þessi mál
að ég tel vandlega og komist
að þeirri niðurstöðu að það
sé betra íyrir okkur við okk-
ar aðstæður að fara aðrar leiðir.“
Þetta sagði Ásgeir að bærinn hygð-
ist gera með því að stofna sérstaka
eignadeild, sem annast ætti nýfram-
kvæmdir, umsjón og viðhald bygginga
í eigu bæjarsjóðs og gera leigusamn-
inga um allt húsnæði, sem bærinn tæki
á leigu eða endurleigði, þar á meðal
íbúðarhúsnæði. Stefnt er að því að
eignadeildin hafi sjálfstæðan fjárhag.
Standa einkaframkvæmdir
landsbyggðinni til boða?
Ásgeir rakti ýmsa kosti og galla
einkaframkvæmdar í máli sínu og gat
þess að ein forsendan væri öflugt sam-
keppnisumhverfi. Hann velti fyrir sér
hvort einkaframkvæmdir stæðu sveit-
arfélögum á landsbyggðinni til boða og
bætti við: „Ég á erfitt með að sjá það
fyrir mér því þar skortir að minnsta
kosti annan þeirra þátta, sem ég tel
forsendu fyrir því að einkafram-
kvæmd komi til greina, en það er öfi-
ugt samkeppnisumhverfi.“
Hann benti á að í fasteignum sveit-
arfélaga, hverju nafni, sem þær nefnd-
ust, væru miklir fjármunir bundnir:
„Því er okkur nauðsyn að skoða allar
þær leiðir, sem fram koma til að ná
sem bestum tökum á þessum útgjalda-
lið. Sum sveitarfélög hafa valið þá leið
að láta einkaaðila um framkvæmdirn-
ar. Á Akureyri höfum við ákveðið að
fara þá leið að tileinka okkur verklag
einkaframkvæmdanna, en vinna verk-
ið sjálf.“
Næstur sté í pontu Magnús Gunn-
arsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, þar
sem sennilega hefm' verið gengið
einna lengst í að fara einkafram-
kvæmdarleiðina. Magnús benti á að
Hafnarfjarðarbær hefði fyrstur sveit-
arfélaga á Islandi undirritað samninga
við einkaaðila um byggingu og rekstur
skólamannavirkja, annars vegar
samning við FM-hús ehf. um byggingu
og rekstur grunnskóla og leikskóla í
Áslandi og hins vegar við Nýsi hf. og
ístak hf. um byggingu og rekstur leik-
skóla við Háholt. Að auki er Hafnar-
fjarðarbær þátttakandi með ríkinu í
byggingu nýs iðnskóla í Hafnarfirði
þar sem gerður var samningur við
einkaaðila til 25 ára um að byggja, eiga
og reka starfsemi skólans.
400 milljóna sparnaður
Magnús á von á að sparnaðurinn
fyrir bæjarsjóð Hafnarfjarðar af því
að semja við FM-hús um byggingu og
rekstur grunnskólans i Áslandi verði
um 400 milljónir króna. Þessari niður-
stöðu komst hann að með því að bera
saman samningsniðurstöðuna við FM-
hús og áætlun um kostnað bæjarsjóðs
við að byggja og reka sambærilegt
skólahúsnæði, en samtals væri gert
ráð fyrir því að árlegur kostnaður
vegna samningsins yrði 95 milljónir
króna, en samkvæmt áætl-
un hefði hann orðið 111
milljónir. Sparnaðurinn
væri um 15% samanborið
við hefðbundna aðferð og
hefðu endurskoðendur
bæjarins farið yfir þessa útreikninga
og forsendur þeirra.
,Að fenginni reynslu ... tel ég engan
vafa leika á að þjónustusamningur um
einkaframkvæmd geti í vissum tilvik-
um reynst sveitarfélögum góð leið til
að mæta óskum íbúa og lögboðnum
skyldum um þjónustu,“ sagði hann.
„Það er mitt mat að hagkvæmni einka-
framkvæmdar sé hvað mest þegar um
er að ræða heildarlausn á stórum
verkefnum."
Freistingin og refsingin
Gunnar I. Birgisson, þingmaður og
bæjarfullti'úi í Kópavogi, tók næstur
til máls og sagði að vissulega væru ný-
ir kostir við fjármögnun og rekstur op-
inberra verkefna gleðiefni, en þeim
fylgdu freistingar, sem gætu stefnt
fjármálum ríkis og sveitarfélaga í
óefni ef ekki væri farið varlega í sak-
irnar og arðsemin höfð að leiðarljósi.
„Undanfarið hefur mildð verið rætt
og ritað um þungan rekstur sveitarfé-
laga og aukna skuldsetningu þeirra,“
sagði Gunnar. „Við slíkar aðstæður,
þegar hlutfall rekstrarkostnaðar og
skatttekna er hátt, rekstrarafgangur
til framkvæmdar er lítill og skuldir
sliga sveitarfélagið, freistar einka-
framkvæmdin mest. Ástæðan er sú að
við þessar aðstæður hefur sveitarfé-
lagið ekkert fjárhagslegt svigrúm til
framkvæmda. Hins vegar býður
einkaframkvæmdin ... upp á fullfrá-
gengið mannvirki gegn árlegu fram-
lagi, sem rúmast ágætlega á rekstrar-
reikningi og er að öðru leyti fyrir utan
bókhald bæjarsjóðs. Við þessar að-
stæður er freistingin mest, en að sama
skapi refsingin verst.“
Hann sagði að fyrir því væru ýmsar
ástæður. Þrýstingur kjósenda á fram-
kvæmdir væri tilfinnanlegri gagnvart
stjómvöldum þegar rekstrarforsend-
ur og skuldabyrði leyfði ekki viðun-
andi framkvæmdastig í náinni framtíð.
Viðleitnin til að kaupa nú og greiða síð-
ar kynni þá að verða örvuð með einka-
framkvæmd. I stað þess að sætta sig
við sársaukafulla hagræðingu í rekstri
til að auka svigrúm til framkvæmda
væri annarra leiða leitað. Ef einka-
framkvæmd yrði fyrir valinu yrði
gjaldfærsla hennar á rekstrarreikn-
ingi og minná afgangs til niðurgreiðslu
skulda og eignabreytinga hjá sveitar-
félaginu.
Eftir að Gunnar hafði lokið máli sínu
voru fyrirspurnir og kom þar fram
nokkur gagnrýni á einkaframkvæmd-
ir. Jóhannes Geirdal, bæjarfulltrúi í
Reykjanesbæ, gagnrýndi harðlega
einkaframkvæmd við íþróttahöllina,
sem þar var reist í vetur, sagði að
ábyrgðin væri öll hjá sveitarfélaginu,
en það myndi ekki einu sinni eignast
húsið að loknum samningstíma.
Tryggvi Harðarson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, hafnaði því
mati bæjarstjórans að
bæjarfélagið sparaði 400
milljónir króna á því að
fara með grunnskólann í
Áslandi í einkaframkvæmd
og sagði að samkvæmt tölum minni-
hlutans yrði framkvæmdin nú 10%
dýrari, en hefði bæjarfélagið sjálft
annast framkvæmdina. Hann benti
einnig á að öndvert við iðnskólann
væri grunnskóli snar þáttur í bæjar-
skipulagi og því hefði verktakinn
kverkatak á bæjarfélaginu þegar
kæmi að því að endurnýja leigusamn-
inginn og því ekki einfaldlega hægt að
hætta að leigja húsnæðið.
Ráðstefnu Sambands íslenskra
sveitarfélaga sóttu um hundrað
manns, flestir af suðvesturhorninu, en
einnig komu fulltrúar frá Akureyri,
ísafirði, Akranesi, Fjarðabyggð, Vest-
mannaeyjum og Skagaströnd, svo eitt-
hvað sé nefnt.
BLAÐAMENN slást á
rauða dreglinum um að
komast á sýninguna sem
er í bítið í Lumiere-kvik-
myndahúsinu og tveimur
tímum síðar um aðgang að blaða-
mannafundinum. Hann reynist sá fjöl-
mennasti á kvikmyndahátíðinni í Cann-
es. Ekki er nóg með að öll sæti séu
skipuð heldur er hver einasti fermetri
troðinn blaðamönnum, sem ýmist
standa, sitja eða jafnvel liggja hver ut-
an í öðrum. Stemmningin íyrir mynd
von Triers „Dancer in the Dark“ er
hreint ólýsanleg og minnir einna helst
á fárið í kringum Reyfara Tarantinos á
sínum tíma. Á blaðamannafundi síðar á
frumsýningardaginn, sem var í gær,
segir framleiðandinn Harvey Wein-
stein aðeins eitt um myndimar í keppn-
inni: „Ég hef heyrt mikið lof um
Dancer in the Dark.“
Björk hvarvetna nálæg
Þegar Lars von Trier kemur inn í
salinn ásamt leikurum og aðstandend-
um myndarinnar, m.a. Catherine De-
neuve og Peter Stormare, mætir hon-
um lófaklapp og húrrahróp. Það vekur
athygli í öUu fárinu að þótt Björk veiti
engin viðtöl er hún hvarvetna nálæg;
myndir af henni prýða forsíður tíma-
rita, flestar spumingar snúast um hana
og margir hafa gengið svo langt að spá
henni verðlaunum fyrir besta leik á há-
tíðinni. Það kemur því ekki á óvart að
fyrsta spurning til von Triers varði
hana; manneskju sem hefur aldrei áður
leikið í kvikmynd en er engu að síður sú
sem ber myndina uppi.
„Það kom aldrei nein önnm- til
greina," segir hann. „Ég hef lítið vit á
tónlist, svo mér fannst tilvalið að hún
sæi um hana. Þótt ég þekkti ekki til
tónlistar hennar hafði ég séð hana í
tónlistarmyndbandi og fundist hún
yndisleg. Hún segir að það hafi tekið
mig langan tíma að sannfæra sig um að
leika í myndinni og ég ætla ekki að
deila við hana um það, en það tók um
tíu sekúndur og þá sagði hún: „Já,
Lars!““ Hann kímir og heldm- áfram:
„Nei, þetta var brandari, - ég man ekki
hvemig þetta kom til. En ég er viss um
að með tíð og tíma muni hún gefa færi á
sér og vera reiðubúin að ræða um
þetta. Eftir tíu ár, eða tuttugu ár, þá
mun hún sitja hér í þessum stól og
segja ykkur sína sögu.“
Upplifði atburðina sjálf
Næsta spuming varðar samvinnu
von Triers og Bjarkar á tökustað.
„Þetta hefur verið hræðilegt," svarai'
hann af innlifun. „Björk er ekki leik-
kona og það kom mér á óvart, því mér
virtist hún vera svo fagmannleg. Það
reyndist fjarri sanni. Raunar er eitt af
því góða við myndina að hún er ekki að
leika. Hún upplifir atburðina sjálf, sem
er ótrúlegt og afar erfitt fyrir hana,
sem og alla aðra. Þetta er eins og að
vera með deyjandi manneskju. Hún
komst að kjama þessarar persónu og
varð samofin örlögum hennar meðan á
tökum stóð. Það tók mikið á hana. Ég
var í þehri ankannalegu aðstöðu að
horfa upp á hverju hún áorkaði, sem ég
var ánægður með, og vera að sama
skapi böðullinn, í þeim skilningi að
draga hana áfram. Svo ég verð að segja
að þessi vinna með Björk hefur verið
mjög árangursrík, en að sama skapi af-
ar sársaukafull fyrir okkur bæði. Eins
og ég met stöðuna í dag gat þetta ekki
farið á annan veg. Mér þykir mjög
vænt um það sem hún hefur afrekað og
vil þakka henni fyrir það.“
„Ég vil ekkert segja um manninn;
það er persónulegt,“ svarar Catherine
Deneuve, aðspurð um manninn og leik-
stjórann Lars von Trier. „Hvað leik-
stjórann varðar gildir hið sama um
hann og aðra erlenda leikstjóra, að
hluti af samskiptum okkar verður ráð-
gáta, eða týnist jafnvel alveg, vegna
þess að við tölum ekki sama tungumál.
Ég hafði mikinn áhuga á að vinna með
Lars, þótt ég væri einnig örlítið hrædd
við það, vegna þess að ég vissi að tök-
urnar myndu standa lengi yfir. Hlut-
verkið var þannig að það krafðist mik-
ils undhbúnings og viðvera; ég er
einskonar vemdarengill Selmu í mynd-
inni og því í mörgum atriðum. Ef við
skoðum bara eitt lítið atriði eins og
dansinn í verksmiðjunni, lá að baki því
ómæld vinna, þótt það væri aðeins
þrjár sekúndur, því það þurfti að þaul-
æfa sönginn og dansinn, þannig að
hann væri trúverðugur. Þetta er í
fyrsta skipti sem ég tók þátt í spuna-
vinnu á ensku og sú reynsla var mér
dýrmæt. Ég dái myndh von Triers og
þá veröld sem hann skapar. Efth að
hafa leikið í jafn mörgum myndum og
raun ber vitni er sjaldgæft að fá að upp-
lifa eitthvað nýtt.
Mér þykir þetta leitt
Þá er von Trier tekinn á beinið af
sænskri blaðakonu, sem spyr hvernig
standi á því að konur séu ávallt fórnar-
lömb í myndum hans. „Mér ...“ svarar
hann og hikar: „Mér þykh þetta leitt.“
Þetta einlæga svar vekur hlátur í saln-
um og von Trier heldur sínu striki: „Ég
vil taka fram að þessar persónur eru
sterkar konui', bæði í Brimbroti og
þessari mynd, og það er ekkert niður-
lægjandi við þeirra tilvera. Vissulega
fóma þær sjálfum sér, en ég hef ekkert
um það að segja. Sögurnar þróuðust
bara þannig. Þetta er ekki ætlað sem
boðskapur, að fólk eigi að fórna sjálfu
sér. Að mínum dómi á það að láta það
vera.“
Var það skírskotun í myndina Sound
of Music að Björk flytti lagið „My Fav-
orite Things". „Ég hef mjög gaman af
Sound of Music,“ svarar von Trier. „í
henni era góð tónlist og lagatextar og
þótt mér finnist hún ekki sérlega vel
gerð þá er hún fyrir mér hápunktur
söngvamynda. Lagavalið var byggt á
persónu Selmu [sem leikin er af Björk]
og hún hélt upp á myndina. Mér fannst
skemmtileg tilviljun að Björk hafði
horft á myndina tuttugu sinnum, eða
eitthvað í þá áttina, ætli þetta hafi ekki
verið eina myndin sem sýnd var á ís-
landi.“
Deneuve er spurð um deilumar á
tökustað og kýs að byrja á því að tjá sig
um myndina. „Ég hef leikið í fjölmörg-
um söngleikjum um ævina. Það að
horfa á söngleik er fyrh mér eins og að
opna töfradyi-; það greiðh leiðina fyrh
átakanlegar sögur, vegna þess að þær
eru studdar af tónlistinni. Hvað varðar
Björk finnst mér ekki við hæfi í viður-
vist svona margra blaðamanna hvaðan-
æva að úr heiminum, að leggja of mikla
áherslu á hvað gerðist bakvið tjöldin.
Ég hef aldrei heyrt um gerð myndar,
þar sem allt hefur gengið eins og í sögu.
Engin kvikmynd er tekin án spennu,
erfiðleika, vandamála og jafnvel tára.
Því meiri sem spennan er, þeim mun
61110314 eru tökurnar.
Björk er yndisleg manneskja, en hún
er afar sérstök. Eins og Lars sagði áð-
an þá getur hún ekki leikið, hún verður
að upplifa. Sumar kringumstæður vora
mjög erfiðar í tökunum, hún upplifði
svo mikinn sársauka að hún náði ekki
að jafna sig fyrh næsta tökudag. Þetta
varð til þess að hún hegðaði sér stund-
um eins og manneskja, eins og barn
sem er búið að fá nóg, sem strýkur úr
skólanum, stundum strauk hún, en
vegna þessarar innlifunar vai' leikurinn
mun betri. Efth á að hyggja vora þetta
allt smámunh. Það er afraksturinn
sem skipth máli. Oftast var yndislegt í
tökum á myndinni, ekki að það væri
eins og í „Sound of Music“, þetta var
heldur ekki eins og í ævintýri, en and-
inn á tökustaðnum var góður og fólkið
samrýnt. Við skulum þvi ekki láta erf-
iðleika Bjarkar vera miðpunkt um-
ræðnanna. Hún er ekki hér með okkur
og getur því ekki tjáð sig um málið.“
Von THer segist ekki hafa alist upp.
við söngleiki. „Það vora engar myndir
sýndar heima hjá mér þar til ég var tíu
ára,“ segh hann. „Fyrstu söngleikhnh
sem ég man efth vora með Gene Kelly
og hann hefur verið í uppáhaldi hjá mér
síðan. En foreldrar mính höfðu engan
áhuga á kvikmyndum, hvað þá söngva-
myndum, sem þeim fundust yfirborðs-
kenndar og ótrúverðugar. Ég skil vel
það sjónarmið, þótt ég sjálfur hafi gam-
anafþeim."
Söngleikjahefðin brotin upp
Robby Muller semur dansana í
myndinni, auk þess að leika í henni, og
segh það ólíkt öllu því sem hann hafi
fengist við áður. „Lars von Trier hefur
brotið upp söngleikjahefðina með þess-
ari mynd. Þegar hann kom fyrst að
máli við mig um að taka að mér verk-
efnið var hún kölluð Taps. Ég sagði við
hann: „Lars, ég hafði mikla ánægju af
því að vinna með þér, en ég kann ekki
steppdans og ekki Björk heldur.“ Ég
lagði því til að hann hugsaði um dans-
atriðin að nýju, þannig að þau yrðu
raunsærri og sérviska hreyfinga
Bjarkar fengi að njóta sín, sem við fór-
um að kalla Björkisma. Enginn í heim-
inum hreyfir sig eins og hún.
Von Trier vildi að dansamh yrðu
ekki eins og í söngvamynd frá Holly*
wood og bað mig um að vinna leið til að
gera þá raunsærri, þannig að í stað
þess að æfa dansatriðin frá sjónarhóli
Vincents, gerði ég það frá sjónarhóli
Selmu. Hún er hugfangin af söngleikj-
um og þegar hún gefur sig á vald hug-
arfluginu, er eins og hún móti hreyfing-
ai- allra í kringum sig í þessum útópíska
heimi, þar sem fantasíurnar eiga sér
stað. Leikuranum, sem margh hverjir
höfðu aldrei dansað á lífsleiðinni,
fannst þetta miklu auðveldaiá nálgun,
því hún kemur frá persónu, sögu og
hjartanu, í stað þess að ég væri að
þvinga hreyfingar upp á persónurnar."
En hvað sló Deneuve mest við von
Trier. „Hversu gífurlegt vald hann hef-
ur yfii’ tökunum og hversu öruggui'
hann er um sjálfan sig. Hann viður-
kennh það jafnvel þegar honum verðm'
á í messunni. Það gaf leikurum mikið
frelsi að notaðar væra myndavélar sem
hægt var að halda á því fyrh vikið var
hægt að taka upp ógrynni af efni og
gera ýmiskonar tilraunh. Maður gat
síðan skoðað frammistöðuna hjá sjálf-
um sér efth hverja töku. Þessi hringiða
von Triers, sem maður kastar sér út í,
er frábragðin öllu öðra sem ég hef unn-
ið að. Hann heldur á upptökuvélinni og
getur því hvenær sem er myndað það
sem honum dettur í hug. Hann notast
varla við neina aðstoðarmenn, þannig
að það er auðvelt að nálgast hann, án
þess að trafla heilt fótboltalið af töku-
mönnum.“ „Við urðum mjög nánar,“
segh Deneuve um samvinnu sína við’
Björk. „Ég gerði allt sem ég gat til að
halda yfir henni vemdarhendi á töku-
stað, enda var hún í vandasömu hlut-
verki. Samræðumar era þéttskilfaðar,
sem er ektó auðvelt í flutningi. Stund-
um lítur þá út fyrh að leikarar séu ekki
að hlusta á sjálfa sig þegar þeh fara
með textann. Við þurftum að prófa
okkur endalaust áfram með hvert at-
riði og þótt ég hafi ekkert á móti Lars
persónulega, þá var hann kröfuharður
og leikaramh vissu ekki alltaf hvað
gerðist næst. Tökumar fóru líka úi'
böndunum og stóðu í heila þrjá mánuðW
Ofan á allt er Björk sér á parti; hún er
mjög feimin, hafði fram að þessu aðeins
komið fram í sjónvai'pi og var óvön því
að stöðugt væri fylgst með henni, - fyr-
h henni jaðraði myndin við að vera eins
og krossfesting. Hún þarfnaðist því
stundum hughreystingar og fyrir mér
er hún umfram allt yndisleg og hrífandi
manneskja." f
Umræða sögð
á svart-hvítum
nótum
Hyggjast nota
kosti hvors
tveggja