Morgunblaðið - 07.06.2000, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lág laun valda
erfiðleikum við
sumarafleysingar
Leitað
eftir
aðstoð
aðstand-
enda?
ERFIÐLEGA hefur gengið að
fá sumarfólk til starfa við
hjúkrunardeildir Hrafnistu í
Reykjavík og hefur aðstand-
endum verið sent bréf um að
hugsanlega verði leitað til
þeirra um aðstoð. Að sögn
Sveins H. Skúlasonar for-
stjóra Hrafnistu hafa horfur
aldrei verið jafn slæmar og
nefrtdi hann að þetta mætti
rekja til lágra launa.
Horfir illa með
sumarstarfsmenn
„Það horfir mjög illa með
sumarstarfsmenn, bæði ófag-
lærða og faglærða," sagði
Sveinn. „Starfsfólkið okkar á
sitt lögbundna sumarfrí og við
þurfum að reikna með að það
vilji taka það. Reyndar hefur
aðeins ræst úr síðustu daga
með starfsfólk þó svo staðan
sé alls ekki nægilega góð. Við
sjáum það fyrir okkur að á
nokkrum hjúkrunardeildum
gæti orðið alvarlegt ástand í
verstu stöðu. Við vildum láta
aðstandendur vita að þetta
gæti komið upp og gera fólki
grein fyrir stöðunni. Að sjálf-
sögðu er stefnt að því að að-
standendur þurfi ekki að koma
inn í starfsemina.“
Lág laun
Sveinn sagði að staðreyndin
væri sú að ófaglært fólk og
ungt sumarstarfsfólk gæti
fengið mun hærri laun annars
staðar. „Ástandið hefur aldrei
litið jafn illa út hjá Hrafnistu í
Reykjavík en hins vegar
sleppur Hrafnista í Hafnar-
firði alveg,“ sagði hann.
„Sennilega er það vegna þess
að það heimili er í grónu hverfi
og starfsmenn búa margir í
nágrenninu. í Reykjavík er
meiri hreyfing á fólki.“
Sveinn sagði að ef ástandið
héldist óbreytt yrði einungis
tekið inn fólk sem þyrfti minni
þjónustu og að um helgar þeg-
ar verst gengur að fá fólk til
starfa yrði ef til vill óskað eftir
að aðstandendur tækju heimil-
ismenn til sín eða aðstoðuðu
við umönnun inni á deildum.
„Það er ekki ljóst hvernig
þetta verður en við vildum láta
aðstandendur vita í tíma þann-
ig að vandamálið væri ljóst,“
sagði hann.
Ákvörðun háskólarektors að veita prófessor við læknadeild lausn frá störfum
Hafði ekki fullnægt nauð-
synlegum lagaskilyrðum
PÁLL Skúlason, rektor Háskóla
íslands, hafði ekki fullnægt laga-
skilyrðum er hann ákvað að veita
Gunnari Þór Jónssyni, prófessor í
læknadeild, lausn frá störfum um
stundarsakir í desember 1999.
Þetta er álit nefndar sem skipuð
var skv. 27. gr. laga um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins til að
rannsaka meðferð málsins en
Gunnari var veitt lausn frá störfum
í kjölfar þess að honum hafði verið
vikið úr starfi yfirlæknis við slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Hæstiréttur dæmdi þá uppsögn
ógilda 18. maí síðastliðinn á þeirri
forsendu að háskólinn hefði hús-
bóndavaldið, ekki sjúkrahúsið.
Þar sem Gunnari Þór hafði verið
vikið úr starfi yfirlæknis við
Sjúkrahús Reykjavíkur hafði hann
ekki lengur starfsaðstöðu fyrir
læknanema og var því talið að for-
senda fyrir starfi prófessorsins
væri brostin. Áður hafði háskóla-
rektor, ásamt forseta og varafor-
seta læknadeildar háskólans, und-
irritað áipinningu á hendur
Gunnari Þór og var lagt til grund-
vallar áminningunni að prófessor-
inn hefði ekki sýnt fullnægjandi
rannsóknarvirkni.
Áminning uppfyllti
ekki lágmarksskilyrði
Það er mat rannsóknarnefndar-
innar, sem skipuð var lögmönnun-
um Dögg Pálsdóttur, Gunnari Ár-
mannssyni og Gunnari Jóhanni
Birgissyni, að málsmeðferð í und-
anfara áminningar þeirrar sem
Gunnari Þór var veitt 30. apríl
1999 hafi ekki verið í samræmi við
almenn sjónarmið stjórnsýslurétt-
ar. Segir nefndin að andmælarétt-
ur Gunnars Þórs hafi ekki verið
virtur í raun því ákvörðun um að
veita áminningu hafi legið fyrir
þegar honum var veittur andmæla-
réttur.
Nefndin telur að áminningin hafi
ekki uppfyllt þau lágmarksskilyrði
sem gera þarf til forms áminninga
því hún hafi ekki borið ineð sér
hvaða afleiðingar það myndi hafa
ef Gunnar Þór bætti ekki ráð sitt í
framhaldi af henni. Ennfremur hafi
jafnræðisregla verið brotin með því
að slök rannsóknarvirkni var gefin
upp sem meginástæða áminningar
þar sem háskólinn hafi ekki sýnt
fram á að rannsóknarvirkni
prófessorsins skæri sig úr í saman-
burði við rannsóknarvirkni annarra
prófessora sem enn eru í starfi.
Löngu ákveðið að veita
Gunnari Þór lausn?
Loks segir í úrskurði nefndar-
innar að meðalhófsregla hafi ekki
verið virt við meðferð á beiðni
Gunnars Þórs um rannsóknaleyfi
og að telja verði óheimilt að krefj-
ast þess í áminningu að starfsmað-
ur skili ítarlegri greinargerð sem
síðan hafi átt að vera grundvöllur
mats um það hvort sá hinn sami
hafi bætt ráð sitt £ starfi vegna
áminningarinnar.
Telur nefndin málsmeðferð há-
skólans strax frá upphafi bera það
með sér að 28. desember 1998 hafí
í raun verið búið að ákveða að veita
skyldi Gunnari Þór lausn um
stundarsakir með lausn að fullu í
huga. Málsmeðferðin beri öll merki
þess að henni hafi verið ætlað að
uppfylla formskilyrði sem starfs-
mannalög gera vegna lausnar um
stundarsakir.
Segist nefndin ekki taka afstöðu
til þess hvort efnisleg skilyrði
kunni að hafa verið fyrir hendi til
að veita Gunnari Þór lausn um
stundarsakir vegna þeirra ann-
marka sem á formhlið málsins séu.
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson
Lambið Trítill nýtur sömu umönnunar og hvert annað mannsbarn.
Sérkennileg ættleiðing
Flateyri - Lambið frá Hóli í Önundarfirði átti ekki
lífvænlega framtíð þegar það leit dagsins ljós. Lítill
ræfilslegur fyrirburi sem mamman vildi hvorki
heyra né sjá.
Umhyggjusemina skorti þó ekki hjá systrunum
Katrínu og Huldu Guðjónsdætrum á Flateyri sem
tóku að sér að koma munaðarleysingjanum á legg.
Má segja að orðið mannkind hafi þar öðlast dálít-
ið sérstaka merkingu því Katrín sem er sjö ára elur
lambið upp eins og hvert annað mannsbarn. Eftir að
hafa gefið því af pela fer hún með það út að ganga
um götur bæjarins í dúkkuvagninum sínum. Og ekki
er annað að sjá en „mannkindin" kunni bara vel við
hlutskipti sitt í lífinu.
Komust á
tind Mount
McKinley
FIMM íslenskir fjallgöngumenn
náðu á tind Mount McKinley, hæsta
fjalls Norður-Ameríku, á fimmtudag
í síðustu viku en hópurinn hélt á fjall-
ið 20. maí síðastliðinn. Hópurinn var
í gær kominn til Anchorage í Alaska
og beið eftir því að fá flug heim til 16-
lands.
Fjallgöngumennirnir fimm, Ás-
mundur Ivarsson, Friðjón Þórleifs-
son, Magnús Aðalmundsson og
Bjami Garðar Nicolaison úr Flug-
björgunarsveitinni í Reykjavík og
Haukur Parelius úr Hjálparsveit
skáta í Garðabæ héldu utan 17. maí
síðastliðinn til að takast á við Mount
McKinley. Þegar á hólminn kom tók
það félagana ekki nema rúmar tvær
vikur að ná markmiði sínu.
„Veðrið vai- mjög hagstætt þannig
að þeir urðu ekki fyrir neinum áföll-
um að ráði,“ sagði Anný Aðalsteins-
dóttir, unnusta Magnúsar, í samtali
við Morgunblaðið. Gekk leiðangur-
inn að hennar sögn eins og í sögu, ut-
an smálasleika eins fimmmenning-
anna.
Þar var þó ekki um alvarleg veik-
indi að ræða og komust þeir allir á
hæsta tind Mount McKinley, sem er
6.194 metrum fyrir ofan sjávarmál.
Sagði Anný að fimmmenningarnir
hefðu fengið afar gott veður á tindi
fjallsins og að þeir hefðu staldrað
þar við í tæpa klukkustund.
Leiðangurinn vai’ tileinkaður
fimmtíu ára afmæli Flugbjörgunar-
sveitarinnar í Reykjavík, 24. nóvem-
ber á þessu ári. Nokkrir íslenskir
leiðangrar hafa klifið fjallið síðan
Arnór Guðbjartsson kleif það fyrst-
ur í slendinga 21. júní 1979.
A MWVIKUDÖGUM
4 S*§i
► Teiknimyndasögur
► Myndir
► Þrautir
► Brandarar
► Sögur
► Pennavinir
Fylkir eltir KR sem skuggi
í meistarabaráttu / B2
Erfið rútuferð íslenska kvenna-
landsliðsins frá Róm / B1
Sérblöð í dag
www.mbi.is