Morgunblaðið - 07.06.2000, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Finnskar eldvarna- og öryggishurðir á betra verði
Gler - Messing - Stál - Sérsmíði og lagervara.
Eldvarnahurðir í hús, skip og báta.
Sérlega vandaðar hurðir og veggir fyrir kröfuharða.
Hafðu samband og við finnum lausnina fyrir þig.
I umboðs- og heildverslun
Pósthólf 24 - 602 Akureyri - Sími 461 4025 - Fax 461 4026 - GSM 894 8063
Tölvupóstfang: gagni@centrum.is_____________________________
1.000 metra djúp rannsóknarhola boruð í landi Sigtúna í Eyj afj arðarsveit
S j ómannadaff urinn á Akureyri
Verulegur ávinn-
ingur hitti
borinn á gæfar
vatnsæðar
BORANIR eru nýhafnar á vegum
Hita- og vatnsveitu Akureyrar í landi
Sigtúna í Eyjafjarðarsveit og hefur
jarðborinn Sleipnir verið settur þar
upp í því skyni. Verktaki er Jarðbor-
anir hf.
Magnús Finnsson tæknifulltrúi
Hita- og vatnsveitu Akureyrar sagði
að þetta væri fyrsta holan sem boruð
er í innanverðum Eyjafirði í um 20 ár
og þá væri þetta líka fyrsta holan í
alllangan tíma sem menn hafa trú á
að möguleikar séu á að nýtist til
vinnslu.
Ætlunin er að sögn Magnúsar að
bora allt að 1000 metra djúpa holu í
landi Sigtúna og er þetta fyrsta holan
af þeirri dýpt sem boruð er þar.
Rannsóknir hafa staðið yfir þarna
um nokkurt skeið, en markmið
þeirra var að finna upptök svo-
nefndrar Gi-ýtulaugar. Rannsóknirn-
ar fólu m.a. í sér bonm á 21 grunnri
hitastigulsholu, segulmælingar og
boranir á 5 millidjúpum rannsóknar-
holum, en samtals voru boraðir 2.453
metrar. Svo virðist að tekist hafi að
staðsetja uppstreymissvæðið sem
fæðir Grýtulaug. Heitt jarðhitavatn
berst upp á við á mjóum kafla með-
fram tveimur göngum sem ná til yfir-
borðs við eina holuna. Ofan við 200
metra dýpi leitar vatnið út í blandaða
basaltsyrpu og berst þaðan upp jarð-
lagahallann um 500 metra leið og
kemur loks fram í Grýtulaug.
Hitamælingar í rannsóknarholun-
um gefa til kynna að vænta megi yfir
80°C á 800 metra dýpi. Með svarf-
greiningu og jarðlagatengingum hef-
ur fengist skýr mynd af efstu 400
metrum berggrunnsins við Sigtún.
Nú á að freista þess að bora allt að
1000 metra djúpa rannsóknarholu
með það að markmiði að hitta á
ganga sem taldir eru veita vatninu í
átt til yfirborðsins. Hitti borinn á
gæfar vatnsæðar er talið að af því
geti orðið umtalsverður ávinningur,
en hann fer eftir því hversu greitt
sambandið við Laugaland reynist.
Þegar lokið hefur verið við borun
holunnar í Sigtúnum verður Sleipnir
fluttur að Þelamörk þar sem hann fer
í holu sem boruð var fyrir um 8 árum
og er 900 metra djúp. Magnús sagði
að borað yrði út úr holunnni og reynt
að hitta á sprungu sem er á 1.200 til
1.300 metra dýpi, en alls verður hol-
an dýpkuð niður í 1.500 metra.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Starfsmenn Jarðborana vinna nú allan sólarhringinn við það að bora
1.000 metra djúpa rannsóknarholu í landi Sigtúna í Eyjafjarðarsveit, en
20 ár eru frá því síðast var borað á þessum slóðum. Talið er að ef holan
hittir á gæfar vatnsæðar geti ávinningurinn orðið umtalsverður.
Frjáls afgreiðslu-
tími talinn hafa
óæskileg áhrif
í TILLÖGUM starfshóps um vímu-
efnavarnir á Akureyri, sem sagt var
frá í blaðinu í gær, er komið inn á
opnunartíma veitingahúsa sem verið
hefur frjáls síðastliðið ár. Það er
skoðun starfshópsins að hverfa beri
frá hinu algera frjálsræði. Er þetta
gert í forvarnarsjónarmiði, en fag-
aðilar sem sinna félagslegri þjónustu
og starfshópurinn ræddi við, töldu
áhrif ótakmarkaðs opnunartíma vín-
veitingahúsa alvarlegri en í fyrstu
kann að virðast. Einnig lagði hópur-
inn þunga áherslu á að lausn fyndist
á ósamræmi því sem viðgengst í
lágmarksaldri til dvalar á vínveit-
ingastað, sem er 18 ár, og áfengis-
kaupaaldri, en hann miðast við 20 ár.
Starfshópurinn leggur til að frá 1.
sept. til 31. maí verði veitingastöðum
heimilt að hafa opið frá kl. 7 til 3 að-
faranótt laugardags og sunnudags
eða almenns fridags, en til kl. 24 á
virkum dögum. Starfshópurinn tek-
ur fram að hafa beri í huga að Akur-
eyri er skólabær og fjöldi unglinga
og ungs fólks dveljist hér að vetrar-
lagi fjarri heimahögum.
Starfshópurinn telur einnig mikil-
vægt að gæta sjónarmiða ferða-
mannabæjarins Akureyi'ar, og legg-
ur til að veitingastöðum verði á
tímabilinu 1. júní til 31. ágúst heimilt
að hafa opið til kl 4 um helgar en til
kl. 1 á virkum dögum. Mælt er með
að tillögumar verði sendar til um-
sagnar hjá hagsmunaaðilum áður en
þær verða afgreiddar í bæjarstjórn.
Ósamræmi torveldar eftirlit
Misræmið milli áfengiskaupaald-
urs og heimildar til aðgangs að vín-
veitingastöðum torveldar, að mati
starfshópsins, eftirlit með neyslu og
kaupum unglinga undir tvítugu á
áfengi. Nú mega sveitarstjórnir ekki
setja ákvæði um annan lágmarksald-
ur, til aðgangs að vínveitingastöðum,
en 18 ár, samkvæmt áfengislögum.
Hópurinn telur að eigi ekki að lækka
áfengiskaupaaldur, en í nýrri
skýrslu dómsmálaráðherra eru færð
rök með og á móti lækkun hans,
verði að teljast eðlilegt að hækka
lágmarksaldur inn á vínveitinga-
staði. Samræmi verði að ríkja.
Morgunblaðið/Kristján
Þessir duglegu krakkar söfnuðu á dögunum dósum og flöskum til styrktar
Rauða krossi íslands og varð afraksturinn 775 krónur. Þau heita Júlía
Ingvarsdóttir, Ægir Ingvarsson og Anna Bárðardóttir.
Forsetinn tók þátt
í hátíðarhöldunum
FORSETI íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, var gestur sjó-
mannadagsins á Akureyri og tók
hann ásamt heitkonu sinni Dorrit
Moussaief þátt í hátíðarhöldum
dagsins sem fram fóru í blíðskap-
arveðri.
Forsetinn var viðstaddur sjó-
mannamessu í Glerárkirkju og
lagði að henni lokinni blómsveig
að minnisvarða um týnda og
drukknaða sjómenn. Þá flutti
hann hátíðarræðu dagsins við há-
tíðarhöld sem fram fóru á Odd-
eyrartanga og heiðraði að því
loknu tvo aldna sjómenn, Helga
Sigfússon og Hörð Björnsson.
Meðal þess sem hr. Ólafur Ragnar
gerði einnig í heimsókn sinni til
Akureyrar var að skoða sig um
um borð í Harðbak EA, einu skipa
Útgerðarfélags Akureyringa.
Morgunbiaóió/tsr n
Rauðhöfðinn fitnar af flugunni.
Mikið ryk-
mý við
Mývatn
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
ÞRÁTT fyrir kalda veðráttu að und-
anförnu og jafnvel frost um nætur
hefur verið óvenju mikið rykmý við
vatnið en langmest hefur borið á
toppflugu sem þrátt fyrir að vera
stærsta mýið er meinlaust grey. Nú
um helgina var flugnamergðin með
allra mesta móti og staðfestu það
bæði Sigurveig í Syðri Neslöndum
og Héðinn á Strönd að leita þyrfti
nokkuð aftur í tímann til að finna
samjöfnuð.
í hitasólskini og hægviðri á
sunnudaginn var tilkomumikið að
horfa á flugnastrókana sem líkja
mætti við þokuslæðu yfir Langanesi
á Neslandatanga og víðar við vatnið.
Að upplifa slíkt, vera sjálfur í ná-
lægð við þessa stróka og hlusta á
klið milljóna flugna allt um kring er
nokkuð sem er ógleymanlegt og
ættu þeir sem áhuga hafa á töfrum
mývetnskrar náttúru endilega að
kynnast slíku.
Á spegilslettum vatnsfletinum
suður frá Brekku voru flekkir af
flugum á yfirborðinu. Allt þetta vek-
ur vonir um góða afkomu andanna
og feitan silung á þessu sumri. Á
mánudag gerði golukalda og lyfti sér
mistur yfir landið þannig að síðdegis
sá ekki til kennileita í sveitinni fyrir
móðu, enda bar þá lítið á flugu.
Uppsveifla á mý-
stofninum í hámarki
Arnþór Garðarsson, prófessor í
dýrafræði við Háskóla íslands, segir
að uppsveifla sé nú á mýstofninum á
Mývatni. Hann segir reglubundnar
sveiflur vera á stofninum og að upp-
sveifla nálgist nú hámark.
Mælingar á mýstofninum hafa
verið gerðar síðan 1977 og á þeim
tíma hafi verið merktar nokkrar
uppsveiflur og niðursveiflur. Amþór
segir sveiflurnar afar reglulegar og
því sé ekkert óvenjulegt við ástand
stofnsins nú. Hann segir ekki vitað
hvað þessi uppsveifla eigi eftir að
vara lengi. Þær standi yfirleitt í
nokkur ár og segir hann þær nokkuð
lengri en niðursveiflumar.
Morgunblaðið/Rúnar í>ór
Forseti Islands var gestur við hátíðahöld sjómannadagsins á Akur-
eyri en meðal annars skoðaði hann sig um um borð í Harðbak EA,
skipi Útgerðarfélags Akureyringa.