Morgunblaðið - 01.07.2000, Síða 6
6 LAUGARDAGUK i. JUiA í;uuu
FRETTIR
MGRGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Þorkell Morgunblaðið/Þorkell
Þórey Steinarsdóttir hafði í nógu að snúast á bensmstöð Skeljungs á Ólafur Stefánsson og Soffía Sigurjónsdóttir voru á ferð með Helga
Vesturlandsvegi í gærkvöld. Hrólfí, bróður Soffíu, og barnabarni sínu, Degi Sölva Sigurjónssyni.
Margir á faraldsfæti í einmuna veðurblíðu um helgina
Einstefna verður á umferðinni
um Mosfellsheiði báða dagana.
Til austurs til kl. 16.00 og
til vesturs frá kl. 17.00
Mosfellsheiði
ifellsbær
Hafnarfjörðufv
lisheiði
Hafravatnsvegur verður
lokaður fyrir almennri
umferð báða dagana
Hveragerði
telfoss
Þorlákshöfn
3kipuiag umterdar a
Kristnihátíð á Þingvöllum 1. og 2. júlí
Þung umferð frá höfuð-
borg’inni í gærkvöld
Þung umferð var frá
höfuðborginni í gær en
hafín er önnur mesta
ferðahelgi ársins, næst
á eftir verslunarmanna-
helginni. Umferðin
jókst verulega þegar
leið á daginn og um
kvöldmatarleytið var
nánast bíll við bíl á
helstu vegum frá
höfuðborginni. Virtist
straumurinn liggja bæði
austur og norður.
Elín Möller, Þóra Jónsdóttir, Smári Daníei Eggertsson, Viggó Pétur Pétursson og Elín Björg Pétursdóttir voru
á leiðinni í sumarbústað í Norðurárdal.
LJÓST er að verkfall Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis setti ein-
hvern strik í reikninginn en á hinn
bóginn gerði einmuna blíða um
landið allt það að verkum að marg-
ir hugsa sér til hreyfings um helg-
ina.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Reykjavík mátti ekki á
milli sjá hvort umferðin væri meiri
austur Hellisheiði eða á norðurleið
á Vesturlandsvegi enda sama
hvert litið var, alls staðar var blik-
andi sólskin og bjart yfir að litast.
Slæmt umferðarslys við skíðaskál-
ann í Hveradölum um kl. 19.30 olli
að vísu töfum en þá var umferðar-
þungi einmitt í hámarki. Lög-
reglan var á varðbergi á helstu
akstursleiðum en ekki mun þó hafa
verið efnt til sérstaks umferðar-
átaks að þessu sinni af hennar
hálfu.
Ákveðið að hafa fíkniefna-
hunda tiltæka í Þórsmörk
Hjá lögreglunni í Borgarnesi
fengust þær upplýsingar að um-
ferðin gengi nokkuð vel en stöðug
umferð var að sunnan frá því um
miðjan dag í gær. Þegar í Borgar-
fjörð var komið dreifðist hún síð-
an, bæði héldu menn vestur á
Snæfellsnes og norður í land, en
margir voru einnig á leið í sumar-
bústaði í héraðinu.
Þung umferð var einnig um Sel-
foss og um kvöldmatarleytið var
bíll við bíl á þjóðveginum austur,
að sögn lögreglunnar á Selfossi. GERT er ráð fyrir mikilli umferð út úr höfuðborg- vegna umferðarþungans og á kortinu má sjá hvað
Taldi vaktmaður líklegt að allir inni í tengsium við kristnihátíð á Þingvöiium sem ferðalangar verða að hafa í huga þegar af stað er
sumarbústaðir í Grímsnesi og ná- hefst í dag. Sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar haldið.
Akranes
Sunnudaginn 2. júlí
verður Vesturlandsvegi
norðan Hvalfjarðar- /
ganga og á
Kjalarnesi lokað
milli kl. 18.00 og 22.00
Einstefna til vesturs
til kl. 16.00 og til
austurs fráki. 17.00
Lauas'rvatn
REYKJAVÍK
vatnsviksvegur,
Grafningsvegur og
Nesjavallavegur verða
einungis opnir fyrir
hópferðabíla, öryggis-
bíla og sérmerkta bíla
báða dagana
Ráðstafanir vegna umferðar til Þingvalla
grenni væru fullir um þessa helgi
og að alls yrðu um tíu þúsund
manns á svæðinu.
Lögreglumenn hvaðanæva að á
landinu hafa verið kallaðir út til að
sinna löggæslu á Þingvöllum um
helgina, þar sem haldin er kristni-
hátíð. Hvolsvöllur er þó undan-
tekning að þessu leyti því þar eru
allir lögreglumenn á sínum stað og
vel það, enda viðhafður sérstakur
viðbúnaður vegna væntanlegs
mannfjölda I Þórsmörk.
Verða alls sjö lögreglumenn að
störfum í Þórsmörk um helgina,
þar af nokkrir frá Fíkniefnastofu
ríkislögreglustjóra og höfðu þeir
meðferðis fíkniefnahunda, en mik-
ill hópur ungmenna safnast ætíð
fyrir í Þórsmörk um þetta leyti
árs. Menn áttu þó ekki von á eins
mörgum núna og undanfarin ár
þar sem menntaskólanemar úr
Reykjavík munu hafa skotið öllum
áformum um Þórsmerkurför á
frest vegna verkfalls Sleipnis-
manna.
Á Umferðarmiðstöðinni var
reyndar nóg um að vera en kunn-
ugir sögðu þó minna að gera en
undanfarin ár. Þar réð Sleipnis-
verkfallið mestu, t.d. væru einung-
is 300 sæti í boði til Þórsmerkur
og ekki um neinar pakkaferðir
þangað að ræða. Landverðir í
Þórsmörk kvörtuðu þó ekki og
sögðust reikna með hátt á annað
þúsund gestum en um þrjú þúsund
manns voru í Þórsmörk fyrstu
helgina í júlí á síðasta ári. Töldu
þeir sennilegt að margir kæmu á
einkabílum.
Ætla ekki að lenda aftur í
bílabiðröð á Þingvöllum
Á Select-bensínstöð Skeljungs
við Vesturlandsveg var nóg að
gera þegar blaðamaður og ljós-
myndari Morgunblaðsins voru þar
á ferðinni um kvöldmatarleytið í
gær. Þórey Steinarsdóttir, sem var
að afgreiða bensín á bensínstöð-
inni, sagði mikið hafa verið að gera
allan daginn og gat hún sér þess
til að bæði hefði fyrirhuguð bens-
ínhækkun þar áhrif og sú stað-
reynd að þessi helgi væri ein
mesta ferðahelgi sumarsins.
Kvaðst hún hins vegar sjálf ætla
að vera heima við og ekki hafði
hún hug á því að halda á kristnihá-
tíð þegar eftir því var innt.
Svo virtist reyndar sem við-
skiptavinir Skeljungs hefðu ekki
minni hug á því að fá sér í gogg-
inn, áður en haldið væri í hann, en
að fylla bensíntankinn. Hjónin
Ólafur Stefánsson og Soffía Sigur-
jónsdóttir höfðu sameinað þetta
tvennt en þau voru á leiðinni í
Skorradal ásamt Helga Hrólfi Sig-
urjónssyni, bróður Soffíu, og
barnabarni sínu, Degi Sölva Sigur-
jónssyni, þar sem þau hyggjast
eyða helginni í sumarbústað sín-
um.
„Við ætlum að gróðursetja, fara
í göngutúra og kannski maður rói
til fiskjar,“ sagði Ólafur þegar
hann var spurður um það hvað þau
ætluðu að gera sér til dundurs.
Hann gerði ráð fyrir að þau yrðu
um eina og hálfa klukkustund að
keyra norður í Skorradal en þau
hyggjast koma aftur í bæinn á
sunnudagskvöld.
Mæðgurnar Elín Möller og Þóra
Jónsdóttir voru hins vegar á leið í
sumarbústað í Norðurárdal þegar
Morgunblaðið bar að garði en á
ferð með þeim voru börn Þóru,
Smári Daníel Eggertsson, Viggó
Pétur Pétursson og Elín Björg
Pétursdóttir. Hafði verið ákveðið
að nærast á grilluðum pylsum áður
en haldið væri út á þjóðveginn.
Elín sagði að þau væru í sam-
floti við tvo bíla til viðbótar og að
alls yrðu þau átta í sumarbú-
staðnum, en þar hyggst hópurinn
halda til fram á þriðjudag. Að-
spurð um það hvort þeim hefði
ekki dottið í hug að halda á
kristnihátíð á Þingvöllum sagði
Þóra að á því hefði ekki verið
áhugi á þessum bæ.
„Eg lenti síðast í bílabiðröðinni
og ætla ekki að lenda í því sama
núna,“ sagði Elín þegar hún var
spurð hvers vegna þær mæðgur
gætu ekki hugsað sér að halda til
Þingvalla.