Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Prestastefnan fagnar Kristnitöku hátíð á Lögbergi 7”^ Morgunblaðið/Golli Formaður bankaráðs Búnaðarbankans ásamt styrkþegum og einu afmælisbarna dagsins, f.v.: Pálmi Jónsson, formaður bankaráðs, Magnús Jóhannsson, formaður Skógræktarfélags íslands, Jón Loftsson skógræktarstjóri, Sigrún Jóhannsdóttir, 70 ára afmælisbarn dagsins, Marsibil Sæmundsdóttir frá Götusmiðjunni, Einar Kr. Jóns- son, formaður Þrastarskógarnefndar og Pétur Sveinbjamarson sem tók við styrknum f.h. Sólheima í Grímsnesi. 70 ára afmæli Búnaðarbanka fslands er í dag Fjölbreyttir viðburðir út árið PRESTASTEFNA íslands kom saman á Lögbergi í gær. Af því til- efni var samþykkt ályktun þar sem glaðst er yfir því tækifæri sem þjóð og kirkju veitist til að fagna helgri minningu og vonbjartri framtíðar- sýn í tilefni 1000 ára kristni á ís- landi. í ályktuninni segir enn fremur: Prestastefna þakkar Alþingi og ríkisstjórn fyrir að efna til Kristni- tökuhátíðar á Þingvöllum með þátt- töku alþjóðar og þakkar jafnframt allt það góða undirbúningsstarf sem unnið hefur verið til að sú há- tíð verði til sóma, gleði og upp- byggingar. Prestastefna Islands hoi-fir til Kristnihátíðar með: Þökk tii Guðs sem hefur gefið þjóð vorri sitt heilaga orð og sam- fylgd frelsarans, Jesú Krists, í þús- und ár. Þökk fyrir gengnar kynslóðir sem nærðust af orði og sakrament- um og gáfu niðjum sínum það veg- anesti til lífsferðar. Þökk fyrir traust heimili þar sem tryggð og umhyggja ræður lífi og dagfari. Þökk fyrir trúfesti foreldra sem Fimm milljónir veittar úr pokasjóði í AFMÆLISHÓFI Skógrækt- arfélags Islands á Þingvöllum á dögunum voru félaginu afhent- ar ýmsar gjafir og meðal ann- ars fimm milljóna króna fram- lag úr svonefndum pokasjóði verslunarinnar. Bjami Finnsson afhenti Magnúsi Jóhannessyni, for- manni Skógræktarfélagsins, fjármunina en í pokasjóð fer hagnaður af sölu innkaupapoka í versiunum. Hefur sjóðurinn lagt fram umtalsvert fé og af- henti Bjami fimm milljónir króna í aímælishöfinu. kenna börnum sínum að biðja í Jesú nafni og leggja með því traustan gmnn að lífsgæfu þeirra. Þökk konum og körlum, leikum og lærðum, sem hlynna að kirkju sinni, bera uppi bæn hennar, boðun og þjónustu. Þökk öllum sem taka virkan þátt í lífi kirkjunnar og leitast við að vaxa í trú á Jesú Krist. Þökk þeim sem biðja fyrir komu Guðs ríkis og leitast við að veita því brautargengi með vitnisburði sín- um og góðu fordæmi. Þökk öllum sem tjá kristna trú í leik og starfi, önnum og hvíld, sem góðir vinir, nágrannar, vinnufélag- ar, þjóðfélagsþegnar, með fyrirbæn sinni og umhyggju fyrir hag náung- ans, stuðla að friði og sátt í samfé- laginu og framtíð lífs á jörðu. Þökk þeim sem stuðla að velferð sköpunar Guðs í umhverfi og eigin lífi með virðingu fyrir gæðum jarð- ar, hófsemi og hollustu, heilbrigðu líferni og lífsgleði. Þökk öllum sem með æðruleysi og von bregðast við erfiðleikum og áföllum lífsins og dýpka vitund vora um dýrmæti heilsu og lífs og mátt- inn sem fullkomnast í veikleika. Þökk því fólki sem gefur af tíma, hæfileikum og fjármunum til kirkju og samfélags, styður líknarfélög og góðgerðarstofnanir og tekur þátt í sjálfboðastarfi á sviði mannúðar- og björgunarmála Þökk skólum, kennurum og öðr- um uppeldisstéttum og öllum sem með einum eða öðrum hætti virða kristinn sið, rækta hann og miðla. Þökk öllum sem biðja fyrir og vinna að sátt og einingu meðal kristinna safnaða og stuðla að virð- ingu fyrir lífsskoðunum og trúar- brögðum annarra. Þökk fyrir lög og rétt í landinu, réttlát stjórnvöld, frelsi og mannúð, trausta, almenna menntun og gróskumikið menningarlíf, öfluga vísindaiðkun, þróttmikið viðskipta- líf og allt sem unnið er landi og lýð til þarfa til sjávar og sveita. Prestastefnan þakkar órofa sam- heffgi í trú og sið í þúsund ár. Tök- um höndum saman um að sá grund- völlur íslensk samfélags styrkist meðan Guðs náð „lætur vort láð lýði og byggðum halda“. AFMÆLISFAGNAÐUR Búnaðar- banka Islands í tilefni sjötíu ára af- mælis bankans þann 1. júlí hófst með veglegum veislum í öllum úti- búum bankans í gær. Var við- skiptavinum boðið upp á veitingar auk þess sem hin fjölbreyttustu dans-, söng- og leiklistaratriði voru flutt í tilefni dagsins. Dagurinn í gær markaði þó að- eins upphafið að afmælishaldinu sem standa mun með margvíslegum hætti fram eftir árinu. Á afmælisfundi í gær afhenti Pálmi Jónsson, formaður banka- ráðs Búnaðarbankans, meðal ann- ars sérstaka styrki úr Menningar- og styrktarsjóði bankans í tilefni af- mælisins. Samtals nema styrkirnir 12 milljónum króna og þeir sem þá hlutu eru: • Skógræktarfélag íslands sem hlýtur 6,1 miHjónar króna styrk vegna verkefnisins Aldamótaskóga. • Götusmiðjan á ÁrvöIIum sem fær styrk til reksturs á einu með- ferðarplássi í eitt ár. • Þrastarskógarnefnd Ung- mennafélags íslands og Ung- mennafélags Vesturhlíðar sem fékk 1,5 milljóna styrk til merkinga og lagningar gangstíga í Þrastar- skógi. • Skógrækt rikisins hlaut 1 milljón króna til uppbyggingar fræðsluseturs í Fossvogsdal. • Sólheimar í Grímsnesi fengu 1 milljón króna til uppbyggingar á starfsemi sinni. Afmælis- og vöggugjafír 8 íslendingar eiga sama afmælis- dag og Búnaðarbankinn, þ.e. verða sjötugir í dag, l.júlf. Einn þessara einstaklinga, Sigrún Jóhannsdóttir, var viðstödd fundinn í gær og fékk bókagjöf frá bankanum í tilefni dagsins. Einnig skýrði Pálmi frá því að hvert barn sem fæðist á land- inu í dag fær 10.000 krónur í vöggugjöf frá bankanum sem að sjálfsögðu verða lagðar inn á bók í vörslu bankans. Fjölbreyttir viðburðir verða í boði á vegum bankans í tilefni af- mælisins fram eftir árinu. Má þar nefna sýningu á verkum Tryggva Ólafssonar í Gerðarsafni 4. til 19. nóvember og sýningu á Iistaverkum í eigu bankans í Hafnarborg dag- ana 21. október til 6. nóvember. Verk í eigu bankans verða einnig sýnd í svokölluðum listglugga á vef bankans en fþeim sjötíu árum sem bankinn hefur starfað hefur hann safnað að sér merku safni verka eftir í'slenska listamenn. Á vef bankans verður einnig hægt að taka þátt í afmælisleik sem byggir á fróðleiksmolum úr sögu bankans. Á afmælisárinu mun bankinn einnig taka þátt í sýningnnni BÚ 2000 auk þess sem hann er einn af styrktar- aðilum Reykjavíkur menningar- borgar. Þá var ákveðið á hátíðar- bankaráðsfundi í gær að láta rita sögu bankans frá 1930 til þessa dags. Það má því með sanni segja að Búnaðarbanki íslands komi víða við í lista- og menningarstarfi á sjötíu ára afmælisári sínu. Kári Stefánsson segir kortlagningu erfðamengis þýðingarmikinn áfanga Styttir margfalt þann tíma sem tekur að fínna sjúkdómsgen KÁRI Stefánsson, forstjóri ís- lenskrar erfðagreiningar, segir að yfirlýsing vísindamanna sl. mánu- dag um að búið sé að kortleggja nær allt erfðamengi mannsins sé geysilega þýðingarmikill áfangi og hafi margskonar þýðingu, m.a. fyrir rannsóknarstarf Islenskrar erfða- greiningar. Kári sagði að sér þætti áhuga- verðast að meta þennan áfanga í víðara samhengi við sögu lífsins á jörðinni. „Þessi jörð sem viðþúum á var einu sinni glóandi hnöttur, hann fer svo að kólna og það fellur út vatn á yfirborði jarðarinnar. Annað hvort fyrir tilverknað Guðs eða af hreinni tilviljun, fara síðan nítur- basarnir að tengjast saman og mynda kjarnasýrur. Það eiga sér svo stað slembibreytingar í röð af þessum bösum og síðan á sér stað val vegna þess að sumar þessara sameinda fjölga sér hraðar en aðrar en smám saman byijar líka að eiga sér stað val á grundvelli annarra eiginleika. Ein afleiðing alls þessa vals er maðurinn. Þetta DNA sem þama breytist er grundvöllur að öllu lífi á jörðinni. Nú erum við allt í einu búin að fá upp í hendurnar röðina á öllum þessum nítur- bösum, eða meirihluta þeirra, sem hefur í sér allar þær upplýsingar sem þarf til að búa til mann. Þetta er í sjálfu sér, án tillits til prakt- ískra afleiðinga, að vissu leyti alveg geysi- lega spennandi myst- ískt og jafnvel pínulítið ógnvekjandi, í augum sumra að minnsta kosti,“ sagði Kári. „Þarna er fyrst og fremst um að ræða röðina á nítur- bösum í erfðamengi mannsins og í mínum huga er þetta bara byrjun. Það sem þarf að gera núna er að kanna hvernig ákveðnir sjúkdómar, hvernig mótstaða gegn ákveðnum sjúkdómum og hvemig ákveðnir eiginleikar mannsins fylgja breyti- leika í erfðamenginu. Það er sú þekking sem kemur til með að gagnast okkur við að byggja upp nýja teg- und heilbrigðisþjón- ustu. Það kemur til með að gagnast okkur við að nýta erfðafræði til þess að búa til skilning á sjúkdómum og á því hvernig við getum komið í veg fyr: ir þá og læknað þá. í mínum huga er þetta því fyrst og fremst mjög spennandi byrj- un. Þó vil ég leggja á það áherslu, vegna þess að það virðist gleymast í þessari um- ræðu að það sem skiptir fyrst og fremst máli er hver við eram, hvert og eitt, hvaða sjúkdóma við fáum og hvernig við höldum okkar heilsu. Það má segja að þarna sé um að ræða sameindalega endurspeglun af þessu og þó svo að sú þekking sem í henni felst sé geysilega mikil- væg og komi til með að hjálpa okk- ur við að bylta heilbrigðisþjónust- unni, þá er það ekki það sem skiptir mestu máli, heldur hver við eram, hvert og eitt,“ sagði hann. Hefur strax bein áhrif á rann- sóknarstarfsemi IE Kári var spurður hvort þessar nýju upplýsingar um genamengi mannsins hefðu beina þýðingu fyrir það rannsóknarstarf sem stundað er á vegum íslenskrar erfðagrein- ingar. „Þetta hefur strax bein áhrif á það. Þetta kemur til með að stytta leiðina. Um leið og við höfum kort- lagt erfðavísa á einhverju svæði þá á samkvæmt þessu að vera til stað- ar raðgreining af því svæði sem við höfum kortlagt genin á. Það þýðir að við þurfum ekki að byrja á því að raðgreina það sjálf, heldur höfum við aðgang að þeim upplýsingum á stundinni. Þetta á að stytta marg- falt þann tíma sem það á að taka okkur að finna sjúkdómsgenin. Ef það sem þessir ágætu menn segja að þeir séu búnir að gera hefur raunveralega verið gert, þá felst í þessu geysilegur ávinningur," sagði Kári. Kári Stefánsson Landbúnaðarráðuneytið Nýr ráðu- neytisstjóri skipaður LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA hefur skipað Guðmund Björgvin Helgason, sendiráðunaut við ís- lenska sendiráðið í París, í embætti ráðuneytisstjóra í landbúnaðar- ráðuneytinu frá 1. september. Guðmundur fæddist 3. desember 1964. Hann er með BA-próf í al- þjóðasamskiptum og masterspróf í stjórnmálafræði. Guðmundur hóf störf í utanríkisþjónustunni árið 1991. Frá 1998 hefur Guðmundur starfað sem sendiráðunautur við ís- lenska sendiráðið í París og er hann jafnframt varafastafulltrúi íslands hjá OECD og varafastafulltrúi hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO). Guðmundur er kvæntur Helgu Jónu Benediktsdóttur lögfræðingi. Aðrir umsækjendur um embætti ráðuneytisstjóra voru: Aðalsteinn Sigurgeirsson, Birkir Þór Guð- mundsson, Guðmundur Birkir Þorkelsson, Guðmundur Sigþórs- son, Gunnlaugur Auðunn Júlíusson, Jóhann Guðmundsson, Kristinn Hugason, Ólafur Guðmundsson, Pétur Þór Jónasson og Þorsteinn Tómasson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.