Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Presturinn, hljóðfæraleikarar og hluti þátttakenda í messunni. Messað á Jónsmessunótt Hellissandi-Hinn nýkomni sóknar- prestur á Hellissandi, sr. Lilja Krist- ín Þorsteinsdóttir, stóð fyrir mið- næturguðsþjónustu í trjágarðinum Tröð á Jónsmessunótt. Ekki var um hefðbundið messu- form að ræða heldur fór presturinn með guðsorð milli þess sem að sungnir voru sálmar og spilað undir á tvo gítara, harmoniku og munn- hörpu. Sæmundur Kristjánsson flutti leikmannsþanka um undur náttúrunnar og guðdóminn. Trjágarðurinn Tröð var stofnaður af Kristjóni Jónssyni fyrir um hálfri öld. í garðinum er töluvert af gróskumiklum trjám og er þar einn sérstaklega skjólgóður lundur og fór athöfnin þar fram. Veðrið var yndislegt og sólin um það bil að setjast við Látrabjargið og roðaði himininn og Snæfellsjökul sem yfir öllu vakti. Fjöldi fólks kom og tók þátt í söngnum. Fuglakliður- inn frá umhverfinu og birkiilmurinn gerði stundina enn hátíðlegri. Gleymdi að hún hefði átt lamb Barðaströnd- Bræðurnir Pétur Ámi og Alex Þór halda hér á lambi sem fannst móðurlaust úti á hlíð. Var það orðið mjög svangt en þeg- ar það var búið að fá einn pela af mjólk hresstist það. Var þá farið að leita að móðurinni og fannst hún en var þá búin að gleyma því að hún ætti lambið en áttaði sig svo á því og var henni sleppt á fjall. Nýtt hús Vesturfarasetursins opnað Sýning um ferðir íslenskra mormóna FYRIRHEITNA landið, sýning um ferðir íslenskra mormóna til Utah, verður opnuð í Vesturfarasetrinu á Hofsósi mánudaginn 3. júlí næst- komandi klukkan 15. Sýningin verður í Frændgarði, nýju húsi sem reist hefur verið við höfnina. Sýningin er samstarfsverkefni Vesturfarasetursins, Byggðasafns Skagfirðinga og íslendingafélags- ins í Utah. Frá Utah koma ýmsir merkilegir gripir, segir í fréttatil- kynningu frá Vesturfarasetrinu. Sýningin er einnig samstarfsverk- efni Reykjarvíkur - menningar- borgar Evrópu árið 2000. 300 daga ferðalag Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, opnar sýninguna. Við- staddur verður fjöldi gesta, meðal annars sextíu manna hópur frá Utah. Á sýningunni segir af ferðum ís- lendinga til Utah þar sem þeir námu land á slóðum mormóna um miðja 19. öld. Rakin er saga af erf- iðu ferðalagi fyrstu íslensku Utah- faranna yfir sjó og land og lífi þeirra og afkomenda þeirra fram til þessa dags. Fyrstu íslensku Utah-fararnir voru 300 daga að komast frá Islandi til Utah, leið sem tekur um sjö klukkustundir að fara nú. Á mánudaginn mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, fyrir hönd Sjómannadagsráðs, Listasafns Einars Jónssonar og Reykjavíkurborgar, afhenda Vest- urfarasetrinu til varðveislu í eitt ár styttu Einars Jónssonar af Þorfinni karlsefni. Þorfinnur var frá Höfða á Höfðaströnd og hefur líklega lagt upp frá Hofsósi, að því er fram kemur í fréttatilkynningunni, þeg- ar hann sigldi til Vínlands þar sem Guðríður Þorbjarnardóttir, kona hans, ól Snorra, „fyrsta Vestur-ís- lendinginn“. Morgunblaðið/Sveinn J. Þórðarson Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Gönguhópurinn við ratsjárstöðina á Bolafjalli. Jónsmessuganga á Bolafjall Bolungarvík-Hátt í áttatíu manns tóku þátt í Jónsmessugöngu upp á Bolafjall s.l. laugardag, sem var enn einn viðburðurinn í heilsubæjarátak- inu Bolungarvík heilsubær á nýrri öld. Lagt var upp frá Skálavíkurheiði klukkan 11 um kvöldið og tók það hópinn um einn klukkutíma að ganga upp á fjallið efir veginum sem liggur upp að ratsjárstöðinni en þeir sem treystu sér í erfiðari leið fóru beint upp fjallið sem er að sjálfsögðu styttra. Þátttakendur í þessari Jóns- messugöngu voru á öllum aldri, frá ungabörnum sem borin voru á baki foreldra sinna og upp í fólk á áttræð- isaldri. Er upp á fjallið kom var staldrað við um stund og útsýnisins notið og hinnar miklu litadýrðar sem skapað- ist er sólin við sólsetur varpaði geisl- um sínum á vestfirsku fjöllin, en af Bolafalli er afargott útsýni til allra átta. Að lokinni Jónsmessugöngu á Bolafjall var gönguþreyttum boðið að láta líða úr sér í heitu pottunum í Sundlaug Bolungarvíkur sem opin var til kl. 3 um nóttina af þessu til- efni. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Á Dyrhólaey fannst æðakollu- hreiður þar sem einn ungi var skriðin úr egginu og annar um það bil. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Tóin á Dyrahólaey. Dyrhólaey opnuð fyrir ferðamenn Fagradal - Bændurnir í Dyrhóla- hverfi, Guðjón Þorsteinsson frá Litlu-Hólum og Þorsteinn Gunnars- son frá Vatnsgarðshólum, stóðu fyr- ir skoðunarferð um Dyrhólaey ítil- efni af opnun hennar nú í lok júní og segja frá því starfi sem hefur verið unnið þar síðan eyjan var friðlýst 1978. Þá var eyjan orðin í mjög bág- bornu ástandi eftir áralangan átroðning og ofbeit. Eyjunni er lok- að á vorin og hefur það verið gert frá árinu 1983 til að hlífa fuglalífí og gróðri á viðkvæmasta vaxtartíman- um. Þess má einnig geta að við Dyr- hólaey er eina umtalsverða æðar- varpið við suðurströndina Töluverður fjöldi fölks mætti í gönguna enda er fugla- og plöntulíf nijög fjölbreytt á eyjunni svo ekki sé talað um náttúrufegurðina. Gunnar Ágúst Gunnarsson, sem er fæddur og uppalinn á Vatnsgarðshólum, var leiðsögumaður um eyjuna. Sagði hann frá merkilegri sögu jarð- myndunar og mannvistar á eyjunni. Á Dyrhólaey er náttúrufar firnafjöl- breytt og ágætt útsýni til stórbrot- inna jökla, fjalla og gróskumikilla sveita Mýrdals og Ejjafjalla. Aðals- merki eyjunnar er þó hið fjölbreytta lífríki hennar, sjávarhamrar og Tóin með gatinu heimskunna. í lok göngu var boðið upp á létta hressingu, kaffi, kakó og ástar- punga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.