Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 21 ERLENT Reuters Veikindi í kjölfar mj ólkur drykkj u STARFSSTÚLKA matvöruverslun- ar í Osaka tekur hér úr hillum versl- unar fernur af léttmjólk en hundruð Japana í Kansai-héraði sýndu í vik- unni merki matareitrunar eftir að hafa neytt mjólkur frá stærsta mjólkurframleiðanda Japans, Snow Brand. Þrír hafa verið lagðir inn á sjúkrahús en eru ekki sagðir í lífs- hættu. Veikindin lýsa sér með upp- köstum, niðurgangi og magaverkj- um. Snow Brand og yfirvöld í Osaka og nágrenni kanna nú ástæðu mat- areitrunarinnar en ekki hafa enn fundist nein merki um, að sýkill eða eiturefni leynist í mjólkinni. Ríkisstjórn ír- lands hélt velli RÍKISSTJÓRN Berties Aherns á Irlandi hélt velli í atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu sem tekin var til umræðu á írska þinginu í gær. Tryggðu fjórir óháðir þingmenn minnihlutastjórn Fianna Fáil og Framsækinna demókrata (PD) sig- ur en niðurstaða atkvæðagreiðsl- unnar var 84-80. Umræður um vantrauststillöguna stóðu í alls sex og hálfa klukkustund og gerðu stjórnarandstöðuflokkarn- ir harða hríð að stjórninni sem átt hefur undir högg að sækja að und- anförnu vegna fjölda hneykslismála. Bertie Ahern, forsætisráðherra og leiðtogi Fianna Fáil, varði frammistöðu stjórnar sinnar í um- ræðunum og benti á að efnahags- málin hefðu sjaldan staðið betur á írlandi og að mjög horfði til betri vegar á Norður-Irlandi, þar sem unnið hefði verið hörðum höndum að því að tryggja varanlegan frið. „I þingkosningunum eftir tvö ár mun almenningur nefnilega vilja vita hvaða árangri við höfum náð,“ sagði Ahern í þinginu en hann lagði áherslu á að stjórnin hygðist sitja út kjörtímabilið. Tony Blair ræðir Evrópusamrunann Helmingi hraðvirkari örgjörvi lítur dagsins ljós Vill að Bretland sé jafnvirkt Frakk- landi o g Þýzkalandi Berlfn, Tiibingcn. Reuters, AFP. BREZKI forsætisráðherrann Tony Blair sagði í Þýzkalandi í gær að Bretar ættu að líta á Evrópusam- vinnuna sem tækifæri en ekki ógn. Var hann með þessu að bregðast við gagnrýni heiman frá um að Bretland væri á góðri leið með að lenda á hlið- arspori í Evrópu, sem Þjóðverjar og Frakkar réðu mestu um hvert stefndi. „Eg er ekki í neinum vafa um að það er mikilvægt fyrir Bretland að vera virkur og leiðandi aðili að Evrópusambandinu," sagði Blair í ræðu við Tiibingen-háskóla í Suður- Þýzkalandi, en á fimmtudagskvöld átti hann viðræður við Gerhard Schröder kanzlara yfir kvöldverði í Berlín. Blair sagði viðræðumar hafa verið „stórgóðar". „Það er kominn tími til að við Bret- ar höfum sjálfstraust til að gera okk- ur grein fyrir að við getum mótað og haft áhrif á atburði í Evrópu og ger- um það líka. Evrópa er ekki samsæri gegn okkur, heldur tækifæri," sagði Blair. Fyrr í þessari viku hvatti Jacques Chirac til þess að Frakkland og Þýzkaland, „driffjaðrir Evrópusam- runans“, til að fara í fararbroddi nán- ari samruna ásamt þeim ESB-ríkjum öðrum sem tilbúin eru til þess. End- urspeglaði ræða Chiracs að nokkru leyti stefnumótandi ræðu um framtíð Evrópusamrunans sem Joschka Fi- scher, utanríkisráðherra Þýzkalands, flutti í maí sl. Ræða Chiracs í Ríkisþinghúsinu í Berlín kallaði á viðbrögð í Bretlandi, sem að miklu leyti voru á þá leið að brezka stjómin sæti aðgerðarlítil hjá, er Frakkar og Þjóðverjar legðu lín- una varðandi framtíðarþróun Evrópusambandsins. Ræða Fischers vakti með sama hætti ótta í Bretlandi um að ætlunin væri að gera Evrópu að sambandsríki. Blair kallaði ræðu Chiracs „athygl- isverða og mikilvæga", en tók fram að sín ræða nú væri ekki svar við henni. Næstu stefnuræðu sína um Evróp- umál myndi hann flytja í haust. Yfir 70% hafna evrunni En tilraun Blairs til að gefa já- kvæða mynd af stöðu Bretlands í Evrópu fékk strax í gær smáskell, er birtar vora niðurstöður nýrrar skoð- anakönnunar um afstöðu Breta til Efnahags- og myntbandalags Evrópu, EMU. Samkvæmt könnun- inni, 'sem birtist í The Times, eru nú 71% brezkra kjósenda andsnúnir því að Bretland taki upp evrana, sameig- inlega Evrópugjaldmiðilinn. Einung- is 29% munu eins og sakir standa vera því fylgjandi. Fyrir tveimur ár- um vora hlutföllin milli andstæðinga og fylgjenda EMU-aðildar 60-40. Sýnir þessi könnun svo ekki verður um villzt, að Evrópumálin era ríkis- stjórn Blairs eftir sem áður erfiður baggi. Þingkosningar verða boðaðar í Bretlandi í seinasta lagi í maí árið 2002 og íhaldsflokkurinn hefur nú þegar sett af stað áróðursherferð „til bjargar sterlingspundinu". Þjóðverjar og Frakkar hafa ítrek- að bent Bretum á að með myntbanda- laginu, sem 11 af 15 aðildarríkjum ESB taka þátt í, er „tveggja hraða Evrópa" nú þegar orðin veraleiki. Styrkur pundsins ógnar brezkri framleiðslu Formælendur japanska bílafram- leiðandans Nissan tilkynntu í gær að þeir myndu brátt eiga viðræður við brezk stjórnvöld til að lýsa áhyggjum þeirra af gengisþróun pundsins. Haldist gengið áfram hátt kunni það að knýja fyrirtækið til að flytja fram- leiðslu sína frá verksmiðjum þess í Sunderland á Englandi. Þá segir Reuters ennfremur frá því, að Blair stæði frammi fyrir nýj- um vandamálum innan eigin ríkis- stjórnar þar sem ráðherrar hliðhollir EMU-aðild vildu þrýsta á um að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um hana á fyrsta árinu eftir næstu þing- kosningar. Blair hefur sagzt styðja inngöngu Bretlands í myntbandalagið eftir næstu kosningar, að því gefnu að efnahagslegar kringumstæður séu hagstæðar og brezkir kjósendur samþykki það í þjóðaratkvæða- greiðslu. Hann hefur hins vegar til þessa ekki viljað nefna neinar tiltekn- ar tímasetningar í þessu sambandi. IBM kynnir nýja ofurtölvu Washington. AP. INTEL fyrirtækið hefur tilkynnt um að i haust hefjist sala á nýjum, hraðvirkari örgjörva, sem er sagður 50% hraðvirkari en hraðvirkasti ör- gjörvinn sem fyrirtækið hefur hing- að til framleitt. Hraði nýja örgjörvans, Pent- ium-4, er 1,5 gígaherts eða 1,5 mill- jarðar aðgerða á sekúndu. Bæði Int- el og helsti keppinautur þess á örgjörvamarkaðnum, AMD, settu á markað í mars sl. örgjörva sem eru 1 gígaherts. 106 tonna ofurtölva Tölvuframleiðandinn IBM hefur tilkynnt að hann hafi smíðað öflug- ustu ofurtölvu í heimi og geti hún framkvæmt 12,3 billjúnir (milljún milljúnir) aðgerða á sekúndu. Er hún þá þrisvar sinnum öflugri en næstöflugasta tölva í heimi. Fyrri gerð þessarar tölvu bar sigurorð af heimsmeistaranum í skák fyrir þremur árum. Með nýju tölvunni á að þokast nær því markmiði að tölvur komist jafnfætis og síðan fram úr reiknig- etu mannsheilans. Nýja tölvan ber nafnið Advanced Strategic Comput- ing Initiative White (ASCI Hvítur) og tekur hún 921 fermetra gúlfpláss og vegur 106 tonn. IBM mun afhenda bandaríska orkumálaráðuneytinu tölvuna nú í sumar. Samkvæmt samkomulagi um ASCI mun ráðuneytið greiða 110 milljúnir BandaríkjadoIIara, um 7,8 milljarða krúna, fyrir smíði á tölvu sem getur líkt eftir prúfun kjarnorkuvopna. Markmiðið, segja fulltrúar IBM og ráðuneytisins, er að gera kjarnorkutilraunir úþarfar. I stað kjarnorkusprenginga? Á síðasta ári hafnaði öld- ungadeild bandariska þingsins sátt- mála um bann við kjarnorkutilraun- um í heiminum, og hélt Bandaríkjastjúrn þvíþá fram að með því að nota tölvulíkan í stað raunverulegra kjarnorkuspreng- inga væri hægt, með áreiðanlegum hætti, að meta kjarnorkugetu Bandaríkjanna. Andstæðingar stjúmarinnar drúgu í efa afkastagetu tölvulikana og sögðu að sáttmálinn myndi tefla í tvísýnu aðgerðum sem tryggja eigi öryggi og áreiðanleika kjarnorku- vopnabúrs Bandaríkjanna. Til þess að herma fullkomlega AP Tæknimaður hjá IBM í Poughkeepsie í Bandarikjunum við ofurtölvuna ASCI Hvítan. Tölvan tekur gúlfpláss á við tvo körfuboltavelli. eftir kjarnorkutilraun 1985 liefði þáverandi hraðvirkasta tölva er til var þurft 60 þúsund ár, að sögn Davids Schwoeglers, talsmanns ráð- uneytisins. Þegar tölva nær 100 bil- ljúnum aðgerða á sekúndu er hægt að líkja eftir kjarnorkutilraun á ein- um mánuði. Er þess vænst að það verði hægt eftir fjögur ár. Brutu lögmál Moores Með byggingu ASCI White braut IBM eina af grundvallarreglum tölvuheimsins, lögmál Moores. Kveður sú regla á um að tölvuafl muni tvöfaldast á eins árs til eins og hálfs árs fresti. Höfundur reglunnar er Gordon Moore, stofnandi örgjör- vaframleiðandans Intel, og setti hann regluna fram í byrjun tölvu- aldar. Sú tölva sem hingað til hefur ver- ið öflugust í heiminum er ASCI Haf- bláinn, einnig framleidd af IBM, en hún var fyrst sýnd opinberlega fyrir 21 mánuði. Hún getur framkvæmt 3,87 billjúnir aðgerða á sekúndu. Samkvæmt samningi var IBM skylt að gera nýju tölvuna þannig úr garði að hún gæti framkvæmt 10 billjúnir aðgerða á sekúndu. ASCI Hvítur hefur 8.192 örgjörva og er þúsund sinnum öflugri en Djúpbláminn svonefndi, tölvan sem sigraði Garrí Kasparov í skák 1997. Talið er að mannsheilinn reikni um það bil þúsund sinnum hraðar en ASCI Hvítur. Haldi IBM uppteknum hætti eru tíu ár í að fram komi tölva sem er öflugri en mannsheilinn að þessu Ieyti. Eins og staðan er núna tæki það mann með reiknivél tíu milljúnir ára að framkvæma allar þær aðgerðir sem ASCI Hvítur framkvæmir á einni sekúndu. „Þetta er mjög spennandi, sér- staklega þar eð við erum að nálgast getu mannsheilans," sagði Nicholas DOnfrio, aðalvaraframkvæmdast- júri tækni- og framleiðslusviðs IBM. „Við sögðum að Djúpbláminn væri á við eðluheila. [Hvítur] hefur svipaða reiknigetu og músarheili." Þér býðst framhlið með iþróttafélaginu þínu á eina krónu ef þú kaupir Nokia 5110 eða 3210ÍTAL12* <m - Nokia 5110 kostar 1,- krónu og Nokia 3210 kostar 3.210,- krónur ITAL12. *12 mánaða GSM áskrift greidd með greiðslukorti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.