Morgunblaðið - 01.07.2000, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 01.07.2000, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Jim Smart Krakkarnir í Vinnuskólanum nudduðu axlir hvers annars. Vinnuvernd í Vinnuskólanum Heiðmörk VINNUEFTIRLIT ríkisins og Vinnuskóli Reykjavíkur standa nú fyrir vinnuvemdar- verkefni þar sem gerð verður markviss tilraun með kennslu í líkamsbeitingu og vinnu- tækni. Samstarfið er í tilefni Vinnuverndarvikunnar 2000, Bakverkinn burt, sem haldin verður dagana 23.-27. nóvem- ber. í gærdag var starfs- mðnnum Vinnuskóla Reykja- víkur sem starfa í Heiðmörk kynnt mikilvægi réttrar lík- amsbeitingar. Morgunblaðið var á staðnum og fylgdist með kennslunni. Vinnuverndarvikan 2000 er sameiginlegt átak Evrópu- þjóða. Áhersla verður lögð á mikilvægi forvama gegn at- vinnutengdum álagseinkenn- um og atvinnusjúkdómum. Sérstök áhersla verður lögð á bakverki og forvarnir gegn þeim. Þó átakinu hafi verið helguð ákveðin vika er það þegar hafið og undirbúningur í fullum gangi. Vinnuskóli Reykjavíkur hyggst í samvinnu við Gáska- vinnuvernd kynna tíu hópum Vinnuskólans betri vinnu- tækni og líkamsbeitingu. Metið verður hvemig til tókst og hvaða aldurshópur er mót- tækilegastur fyrir fræðslunni. Vel hefur gengið og ánægju gætt bæði meðal unglinganna og stjórnenda. Gert er ráð fyrir að boðið verði upp á kennslu af þessu tagi árlega fyrir ákveðinn aldurshóp Vinnuskólans samkvæmt upplýsingum Berglindar Helgadóttur, sjúkraþjálfara hjá Vinnueftirlitinu. í Heiðmörk ræddi Valgeir Sigurðsson, sjúkraþjálfari hjá Gáska, við ungmennin, sem sýndu kynningunni mikinn áhuga. í Vinnuskólanum em fyrstu skref unglinganna á vinnumarkaðinum gjaman stigin. Því er mikilvægt að kenna þeim strax góða vinnu- tækni og líkamsbeitingu til að minnka hættuna á álagi á stoðkerfi líkamans. Valgeir brýndi fyrir starfs- mönnunum ungu sérstöðu lík- ama barna og unglinga. Mikl- ar breytingar verða á líkama unglinga á stuttum tíma, kvað Valgeir, bein stækka, vöðva- massi eykst og þurfa liðfletir því að bera meiri þunga. Því er rétt líkamsbeiting ung- mennunum mikilvæg. Álagseinkenni sem ung- mennin í Heiðmörk könnuð- ust velflest við vom einkum eymsl og stífleiki í hálsi, herð- um og mjóbaki. Ástæður vinnutengdra álagsvanda- mála sagði Valgeir einkum óæskilega vinnutækni og ranga likamsbeitingu. Einnig gæti bágborið líkamlegt ástand sem og slæmt vinnu- umhverfí aukið á vanlíðan. Valgeir lagði áherslu á að unglingarnir gerðust meðvit- aðir um mikilvægi réttrar líkamsbeitingar áður en það væri um seinan og ýmis vandamál tækju að gera vart við sig. Einnig fór fram verkleg kennsla í Heiðmörkinni og var þá farið yfir æskilegar vinnustöður og vinnutækni. Morgunblaðið tók nokkur ungmennanna tali að kynn- ingu lokinni. Þau Daníel Guð- jónsson, Áki Jónsson, Vala Gunnarsdóttir og Guðrún Einarsdóttir sögðu kennsluna hafa komið að góðum notum. Þau könnuðust öll við einhver álagseinkennanna sem fylgja rangri líkamsbeitingu. Þau kváðust nú meðvitaðri um mikilvægi réttrar líkamsstöðu og hugðust nýta sér það sem þeim var kennt við leik og störf. Þau mæltu með að fleir- um yrði gefinn kostur á fræðslu sem þessari. Nauðsynlegt er að baki sé beitt rétt við bæði leik og störf. Hér skoða unglingar Vinnuskél- ans stöðu hryggjarins í ýmsum stellingum. Daníel, Áki, Vala og Guðrún fræddu blaðamann Morgunblaðsins um hvers þau urðu vísari á kynningnnni. Öska viðræðna um sameiningu sveitarfélaga Bessastadahreppur HREPPSRÁÐ Bessastaða- hrepps samþykkti á fundi á fimmtudag að leita eftir því við bæjarráð Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Kópavogs að þau skipi fulltrúa í við- ræðunefnd um hugsanlega sameiningu þessara fjögurra sveitarfélaga. í tillögunni, sem meirihluti hreppsráðs stóð að, segir enn fremur að stefnt verði að því að viðræðunefndin hefji störf sem fyrst og að fyrstu niður- stöður nefndarinnar liggi fyr- ir á haustdögum 2000. í fundargerð hreppsráðs- fundarins kemur fram að felld hafi verið tillaga minnihlutans um að fela skyldi sveitarstjóra að kanna fjárhagslegan, fé- lagslegan og skipulagslegan ávinning fyrir sveitarfélagið og íbúa þess af sameiningu við Kópavog, Garðabæ og Hafn- arfjörð eða Garðabæ og Hafn- arfjörð eingöngu. Frekari við- ræðum um sameiningarmál verði frestað þar til þessar niðurstöður liggja fyrir. Meirihlutinn felldi tillögu minnihlutans og bókaði að ekki væri talið tímabært að leggja í þá vinnu sem fælist í tillögunni en samþykkti að óska eftir viðræðum á fyrr- greindan hátt þegar í stað. Kjarrhólmi Öryggi aukið á þessu ári Kópavogur GUNNAR I. Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs, segir að úr- bætur verði gerðar í umferðarmálum við Kjarrhólma á þessu ári en endanlegur frágang- ur bíði næsta árs. „Við eigum eftir að setjast aðeins betur yf- ir þetta,“ sagði Gunnar í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Það verð- ur eitthvað gert núna á þessu ári en lokið við það á næsta ári.“ Hann sagði að það sem snýr að umferðar- öryggi íbúa yrði látið ganga fyrir og haft að leiðarljósi. „Við ætlum að láta það ganga fyrir en fagurfræðina fara þar á eftir,“ sagði Gunnar. Merkingum fyrir ferðamenn ábótavant Reykjavík MIÐBORGARSTJÓRN telur að merkingum fyrir ferða- menn sé ábótavant í miðborg- inni. Málið var rætt á síðasta fundi miðborgarstjómar. Kristín Einarsdóttir, fram- kvæmdastjóri miðborgar- stjómar, segir að vissulega þurfi að bæta merkingar fyrir ferðamenn. Ekki er þó búið að gera áætlun um hvernig best megi að því standa. Rætt hefur verið innan miðborgarstjómar að merkja þurfi opinberar byggingar og gönguleiðir inn- an miðborgarinnar. Einnig þyrfti að koma upp eins konar vegvísum. Að sögn Kristínar mætti til dæmis koma merkingum fyrir á stöðum eins og við höfnina þar sem skemmtiferðaskip leggjast að og á Lækjartorgi þar sem umferð ferðamanna er miki]. Þar gætu ferðamenn nálgast upplýsingar um stað- setningu opinberra bygginga og annarra áfangastaða sem vert er að heimsækja. Gjaman hefur verið kvartað undan því að ferðamenn eigi jafnvel í erfiðleikum með að komast að því hvar þeir geti nálgast veitingastaði, að sögn Kristínar. Samvinna opin- berra aðila og einkaaðila er því nauðsynleg til að bæta aðgengi ferðamanna að miðborginni. Samráð mætti hafa við eigend- ur veitingahúsa og hótela í þessum efnum. Einnig bæri að merkja gönguleiðir að miðborginni betur en gert hefur verið, seg- ir Kristín. Algengt er að ferða- mennimir gangi frá dvalarstað sínum í miðborgina. Væri því við hæfi að koma upp merking- um sem sýna helstu gönguleið- ir við hótel og gistiheimili. Hvenær hugsanlegar úr- bætur yrðu gerðar er ekki hægt að segja til um að svo stöddu. Kristín vonar þó að það verði fljótlega, jafnvel í sumar. Tölvumynd/Guðmundur Jónsson Aldamótahús undir lok árs Grafarvogur ALDAMÓTAHÚSIÐ við Barðastaði mun rísa, segir Eyjélfúr Pálsson, formaður félags áhugamanna um alda- métahús, lfldega undir lok þessa árs. Eyjélfur segir húsið verða byggt til að velqa athygli á að vanda beri teikningar og hönnun húsa sem þessa. Hann segir gjaman mega vanda betur til forvinnu en hún sé einkar mikilvæg. Fé- lag áhugamanna um alda- métahús er fimm manna hép- ur sem vildi vekja athygli á að betri vinnubrögð við und- irbúning bygginga séu æski- leg. Mismunur á kostnaðar- verði hússins og söluverði þess fer í sjéð sem ætlað er aðefla arkitektúr og hönnun á íslandi að sögn Eyjélfs. Aldamétahúsið sem Guð- mundur Jénsson arkitekt hefur hannað byggir á hug- myndinni um samruna tveggja túnabila í fslenskri byggingarhefð. Annars veg- ar er horft til ársins 1200 og hins vegar til áttunda ára- tugar þessarar aldar. Á myndinni að ofan getur að líta þá útlitsteikningu Guð- mundar Jénssonar af húsinu sem send var borgaryfír- völdum vegna meðferðar skipulags- og byggingaryfir- valda á umsékninni en þvf ferli er nú lokið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.