Morgunblaðið - 01.07.2000, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 1 9
Aukning fískeldis, erfðamengun og notkun tilbúins fóðurs úr mjöli og lýsi
Varað við
slæmum áhrif-
um á lífrflrið
Nokkrir vísindamenn vara við því í grein í
tímaritinu Nature að varasamt sé að nota
uppsjávarfísk, sem víða sé þegar ofnýttur,
sem mikilvægt hráefni í fóður fyrir dýrari
eldisfísk.
BRESKA tímaritið Nature birti í
síðasta tölublaði sínu grein eftir tíu
vísindamenn þar sem fjallað er um
aukinn þátt fiskeldis í heildarfram-
leiðslu á fiski í heiminum. Benda
þeir m.a. á að í sumum tilfellum þurfi
allt að fimm kílógrömm af fóðri, sem
unnið sé úr öðrum fisktegundum, til
að framleiða eitt kfló af verðmætum
matfiski á borð við lax. Sé gengið á
hráefnið í fóðrið, einkum ýmiss kon-
ar uppsjávarfisk neðarlega í fæðu-
keðjunni, sem lítið eða ekkert sé not-
aður milliliðalaust til manneldis,
minnki m.a. æti fyrir villtar fiskteg-
undir sem lifi á uppsjávarfiskinum.
Vísindamennimir sem rituðu
greinina eru frá Bandaríkjunum,
Filippseyjum, Svíþjóð og Bretlandi.
í fyrstu er lýst þeirri miklu aukn-
ingu sem orðið hafi í fiskeldi víða um
heim, ekki síst í skelfiski. Fram-
leiðslan hafi meira en tvöfaldast sl.
15 ár og nú séu meira en 220 tegund-
ir beinfiska og skelfisks framleiddar
með eldi. Ekki er fjallað um eldi
sæþörunga í greininni.
Um 90% af öllu fiskeldi fer fram í
Asíu og Kínverjar einir framleiða
tvo þriðju af öllum eldisfiski í heim-
inum. Vestrænar þjóðir neyta á hinn
bóginn þorra þess sem selt er á al-
þjóðlegum mörkuðum.
„Vöxtur í fiskeldi er á hinn bóginn
vafasamur ávinningur hvað varðar
eflingu hefðbundinna veiða á höfun-
um. A sumum sviðum eldis, þ.á m. í
rækju- og laxeldi, er hugsanlegt að
tjón á auðlindum í höfunum og við
strendurnar vegna skemmda á líf-
rfld, mengunar frá úrgangi, innrása
framandi tegunda og hættulegra ör-
vera og mikillar notkunar á lýsi og
fiskimjöli til að fóðra eldisfiskinn
geti valdið því að enn frekar en ella
verði gengið á veiðistofna villtra teg-
unda.“
Úrgangur og smithætta
Skelfiskur, þ.e. kræklingur o.fl.,
sé oftast ræktaður við strendur þar
sem eldisdýrin lifi algerlega á dýra-
og jurtasvifi. Beinfiskur sé hins veg-
ar ýmist ræktaður í tjömum, kerum
eða kvíum þar sem hann fái tilbúið
fóður. Vatnafiskur eins og karpi,
sem mikið er ræktaður í Kína, lifi þó
oft að mestu á ýmiss konar náttúru-
legum gróðri, sama eigi við um
krabbadýr eins og rækju. En þaul-
ræktun af þessu tagi, þar sem safnað
er saman miklum fjölda einstaklinga
af sömu tegund, valdi því meðal ann-
ars að mikið verði tfl af úrgangi á af-
mörkuðu svæði og smithætta aukist
mjög.
Greinarhöfundar segja að mark-
aðslögmálin hafi afar mismunandi
áhrif á eldið eftir því hvaða tegundir
sé um að ræða.
„Ef hugað er að laxinum sést að
auknu eldi hefur ekki fylgt sam-
dráttur í veiðum þótt markaðsverð á
fjórum af fimm mikilvægustu teg-
undum af villtum laxi hafi hrapað um
30-50% á tíunda áratugnum. Lax-
veiðar jukust um 27% á árunum
1988-1997. Og þrátt fyrir hraðan
vöxt í eldi á beitarfiski og fleiri teg-
undum hefur magnið af villtum haka
og ýsu verið tiltölulega svipað und-
anfarinn áratug.“
Karpinn og t.d. vatnasteinbítur,
sem mikið er ræktaður í Bandaríkj-
unum, fá einkum tilbúið fóður úr
sojabaunum og öðrum prótínríkum
jarðargi’óðri. Bent er á að við eldi á
stórum ránfiski og sjávarrækju sé
talið nauðsynlegt að nota fiskimjöl
og lýsi í fóðrið vegna þess að þessar
fisktegundir þurfi mjög á amínósýr-
um í lýsinu að halda, sýrum sem ekki
finnist í jurtaolíu.
I greininni er sagt að hlutur fiski-
mjöls og lýsis í fóðrinu valdi því að
margar eldistegundir éti meira af
fiski en sjálft eldið gefi af sér. „Um
tíu algengustu eldistegundirnar
gildir að nota þarf 1,9 kíló af villtum
fiski til að framleiða eitt kíló af eldis-
fiskinum. Aðeins þijár af tegundum
tíu - vatnasteinbítur, mjólkurfiskur
og karpi - þurfa minna af fiski en
eldið gefur á endanum af sér.“
Fjallað er um arðsemi af eldinu
með tilliti til fóðursins og samanburð
Sjóeldiskvíar við Noreg en Norðmenn er nú umsvifamestir á þessu sviði fiskeldis í heiminum. Kínveijar fram-
leiða á hinn bóginn meirihlutann af öllum eldisfiski, aðallega vatnafisk.
við veiðar á villtum fiski og sagt að
hann sé afar flókinn. Of lítið sé enn
vitað um samspil milli hinna ýmsu
stiga fæðukeðjunnar í sjónum til að
hægt sé að fullyrða, eins og sumir
talsmenn fiskeldis geri, að afrakst-
urinn af eldinu sé meiri en af veiði-
stofnum í hafinu.
„En hvað sem líður þeim arðsemi-
stuðlum sem menn nota getur fisk-
eldið sem vaxandi atvinnugrein ekki
haldið áfram að treysta á takmark-
aða stofna af villtum fiski sem menn
veiða, stofna sem margir hafa þegar
verið skflgreindir sem fullnýttir, of-
nýttir eða blóðmjólkaðir. Ef menn
láta röksemdir um afrakstur og
mestu hagkvæmni hafa sinn gang -
segja að veiða skuli sífellt meira af
litlum uppsjávarfiski til að nota í fóð-
ur fyrir eldisfisk og auka þannig
heildarframboð af seljanlegum fiski
- er ljóst að niðurstaðan yrði skelfi-
legt áfall fyrir lífríki hafsins. Slík
stefna myndi einnig setja öflugar
skorður við langtímavexti fiskeldis."
Sagt er að áherslan á fiskeldi geti
dregið úr afrakstri veiðistofna sem
ef til vill mætti gera að matfiski.
„Sem dæmi má nefna að í Suðaust-
ur-Asíu eru litlar uppsjávarfiskteg-
undir eins og makrfll, ansjósur og
sardínur mikilvægar prótínupp-
sprettur fyrir fólk. Þótt sumar teg-
undir sem notaðar eru í framleiðslu
á mjöli og lýsi, til dæmis meinhadd-
ur, smakkist illa er líklegt að þörfin
fyrir smávaxinn uppsjávarfisk til
manneldis aukist eftir því sem fólki
fjölgar í þróunarríkjunum."
Fjallað er um ýmis slæm áhrif
sem fiskeldi geti haft á lífríkið og þá
ekki síst villtar fisktegundir. í Asíu
hafi mörg hundruð þúsund hektarar
af mangrove-skógum og votlendis-
gróðri við strendurnar vikið fyrir
tjörnum fyrir mjólkurfisk og rækju.
Nokkrir stjórnarþingmenn
krefjast afsagnar Mugabe
Harare. AFP.
NOKKRIR af þingmönnum stjórn-
arflokksins í Zimbabwe hafa hvatt
Robert Mugabe forseta til að segja
af sér vegna fylgishruns flokksins í
þingkosningunum um síðustu helgi.
Þingmennirnir hafa hótað að ganga
til liðs við stjórnarandstöðuna gefi
Mugabe kost á sér til endurkjörs í
forsetakosningunum eftir tvö ár.
„Við guldum afhroð í kosningun-
um vegna þess að fólk hefur fengið
sig fullsatt á Mugabe sem leiðtoga
flokksins og stjórnarinnar," hafði
óháða vikublaðið Financial Gazette
eftir ónafngreindum þingmanni
ZANU-PF, flokks forsetans.
Stærsti stjórnarandstöðuflokkur-
inn, MDC, sem var stofnaður fyrir
níu mánuðum, fékk 57 þingsæti í
kosningunum, aðeins fimm færri en
ZANU-PF. Stjórnarandstaðan var
aðeins með þrjú þingsæti fyrir kosn-
ingarnar en er nú með nógu marga
þingmenn til að geta komið í veg fyr-
ir að ZANU-PF breyti stjórnar-
skránni.
Financial Gazette sagði að a.m.k.
átta þingmenn stjómarflokksins
hygðust ganga til liðs við MDC ef
Mugabe reyndi að halda völdunum
og byði sig fram í næstu forsetakosn-
ingum. Blaðið hafði eftir nokkrum
þingmönnum að þeir myndu snúast á
sveif með stjórnarandstöðunni á
þinginu ef Mugabe og dyggir stuðn-
ingsmenn hans hindruðu umbætur.
Nokkrir af forystumönnum
ZANU-PF hafa einnig kennt Mug-
abe um fylgishrun flokksins. Chenj-
erai Hunzvi, sem stjómaði umdeildu
jarðanámi stuðningsmanna ZANU-
PF fyrir kosningamar, viðurkenndi
Þessi breyting á umhverfinu hafi ör-
lagarík áhrif á hrygningarstöðvar
fyrir villtan fisk við strendurnar,
tempmn flóða, setlög og vatnsbú-
skap.
Annars staðar hafi verið gengið
um of á stofna ýmissa uppsjávar-
fiska með ofveiði. „í Norðursjónum
hafa menn til dæmis ofveitt ýmsa
stofna loðnu, sandsflis og spærlings,
er hafa aðallega verið notaðir í fiski-
mjöl, og talið að ofveiðin hafi átt þátt
í að sumir aðrir stofnar af villtum
fiski eins og þorski hafi minnkað.
Einnig hafi ofveiðin valdið breyting-
um á útbreiðslu, fjölda og æxlunar-
tíðni ýmissa tegunda sela og sjó-
fugla.“
Blöndun laxastofna
Minnt er á að fiskeldi geti valdið
líffræðilegri mengun í fiskstofnum.
„Mest er framleitt af Atlantshafslaxi
í laxeldisstöðvum og hann sleppur
oft úr kvíunum. Allt að 40% af
Atlantshafslaxi sem sjómenn á norð-
urhluta Atlantshafs veiða er ættaður
úr fiskeldisstöðvum. Á norðurhluta
Kyrrahafs er talið að yfir 255.000
laxar af tegundinni Atlantshafslax
hafi sloppið síðan í upphafi níunda
áratugarins og laxinn er veiddur af
skipum frá Washington-ríki til
Alaska.
Vísbendingum fjölgar um að lax
sem sleppur úr eldisstöðvum geti
blandast villta laxinum og breytt
þannig erfðamengi Atlantshafslax-
ins sem er aðlagað náttúrulegum
hrygningarstöðvum hans. Slíkar
erfðabreytingar gætu ýtt enn frekar
undir hnignun margra staðbundinna
stofna villta Atlantshafslaxins sem
nú eru í hættu.
Einnig getur flutningur fiskstofna
með eldi í huga aukið hættuna á því
að sýklar og veirur breiðist út. Sam-
Daily Vits
að stokka þyrfti upp í forystuliði
flokksins. „Bylting hefur augljóslega
átt sér stað. Flokkurinn þarf að
yngjast upp.“
„í gíslingu" stjórnar-
andstöðunnar
Trudy Stevenson, einn af stofn-
endum MDC, sagði að Mugabe væri
„í gíslingu" stjómarandstöðunnar og
þyrfti að gangast undir stefnu henn-
ar vildi hann halda völdunum.
Stevenson er einn fjögurra hvítra
manna sem voru kjörnir á þingið.
Mugabe áréttaði í gær að þrátt
fyrir fylgishrun ZANU-PF væri
stjórnin enn staðráðin í að fram-
fylgja þeirri stefnu sinni að taka
jarðir hvítra bænda eignarnámi og
úthluta jarðnæðislausum blökku-
mönnum jörðunum.
(9
X
w
o
W
3
«
«
C
(B
w
>
X
“>
O)
c
•C
«
w
Q
Inniheldur 29 tegundir af
vítamínum, steinefnum og
Rautt Panax Ginseng.
APÓTEKIIM
Upplýsingar í síma 567 3534.
hengið milli eldisfisks og villta fisks-
ins og útbreiðslu sjúkdóma er flókið
og oft er erfitt að ráða í það. En í
Evrópu hafa menn tengt útbreiðslu
alvarlegra sýkinga á borð við fur-
unculosis og gyrodactylus salaris í
Atlantshafslaxi við flutninga á fiski í
eldisstöðvar og skipti á stofnum í
stöðvunum."
Höfundar segja að stuðla beri að
því að fiskeldisfyrirtæki framfylgi
stefnu sem samræmist umhverfis-
sjónarmiðum og góðri auðlinda-
stjórn. Þótt framfarir hafi orðið sé
víða enn þá langt frá því að búið sé
að hrinda í framkvæmd umbótum.
Setja þurfi strangari reglur eða búa
til fjárhagslega hvata til að hindra
mengun frá fiskeldi við strendurnar
sem m.a. valdi því að umfang
skeldýraeldis sé minna en það gæti
verið.
„Niðurgreiðslur í úthafsveiðum
koma oft í veg fyrir að eldisfiskur sé
notaður í stað villta fisksins, a.m.k.
þar til búið er að ganga af veiðistofn-
inum dauðum. Ef til vill er mesti
óvissuþátturinn, jafnt fyrir einka-
rekstur sem opinberan, hvort nægi-
lega mikið verður af ferskvatni fyrir
fiskeldi. Hörgull á ferskvatnsbirgð-
um gæti hamlað mjög eldi á fiski
eins og karpa og beitarfiski sem lifir
á jurtafæðu. Auknar hömlur á notk-
un ferskvatns gera jafnvel enn
brýnna að þróa aðferðir fyrir sjóeldi
sem ekki valda tjóni á umhverfi eða
samfélagi."
SABiANA
HITABLASARAR
SABIANA hítablásarar eru
hentugir til notkunar fyrir
heitt vatn og gufu.
Hitaelement blásaranna eru
þríggja raða.
SABIANA hitablásara eru bæði
fáanlegir með eins og þríggja
fasa viftumótor með rakavöm.
Leitíð upplýsinga!
*
VATNSVIRKINN ehf.
ÁRMÚU 21 «SlMl 533 2070 • WX 533 2022
- Slöiwjl rmái í 45 ór -