Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ERLENDAR
Þráinn Árni Baldvinsson,
gítarleikari Kalk,
fjallar um Crush, áttundu
plötu Bon Jovi og þá
fyi’stu í fímm ár.
★★★1/2
Ekki gamlir,
bara eldri
Á PLÖTUNNI Crush hverfa Bon
Jovi aftur til uppruna síns og koma
til skila á næstum óaðfínnanlegan
hátt sínu melódíska rokki sem ein-
kenndi fyrstu plötur sveitarinnar.
Hér höfum við lagið „It’s my
life“ sem er öflugt lag og minnir
um margt á smellinn þeirra „Liv-
ing on a prayer", viðlag þar sem
allir vilja syngja með og „talkbox“-
gítar Ritchie Sambora.
Lítillega örlar þó á breskum
nýbylgjutöktum en ástæðan er ef-
laust langtímadvöl söngvarans Jon
Bon Jovi þar í landi vegna kvik-
myndaleiks síðustu ár.
Eitt lag pirrar mig þó mjög mik-
ið og er það lagið „Two story town“
en þar fá þeir óþarflega mikið lán-
að frá fröken Joan Osborne og lag-
inu hennar „One of us“ af plötunni
Relish. Áberandi gott er þó lagið
„Next 100 years“ og einnig „Just
Older" en það lag hefur heillað
gagnrýnendur beggja vegna Atl-
antshafsins. í því syngja þeir um
það að þeir séu ekki gamlir, bara
eldri! Nokkuð til í því, en þeir eru
virkilega að gera plötu frá hjartanu
og eru ekki með neinn leikaraskap
eða vælukjóahátt eins og á plötun-
um „These Days“ eða „Keep the
Faith“ sem var þó aðeins skárri en
sú fyrrnefnda.
Jon Bon Jovi og Ritchie Samb-
ora hafa báðir gefið út plötur sjálf-
stætt frá bandinu og virðist það
skila sér því hér virkar ekkert
þreytt og enginn pirringur virðist
vera þeirra á milli. Bandinu tekst
virkilega vel upp og maður nýtur
þess í botn að hlusta á lög eins og
„Mystery train“ og „Save the
world“, virkilega afslappaðar tón-
smíðar.
Strákarnir réðu aftur til sín tón-
skáldið Desmond Child en sá
skaust upp metorðastigann eftir að
Paul Stanley úr KISS fékk hann til
að semja með sér lagið „I was
made for loving you“ árið 1979.
Eftir það samdi hann fyrir Aero-
smith á þeirra „comeback" árum og
einnig var hann mikið tengdur Bon
Jovi á þeirra fyrstu plötum. Hér er
hann kominn aftur og er það vel.
Sýnt aftur vegna fjölda áskorana!
föS. 7. Júlf
fös. 14. Júlí
lau. 15. júlí
fös. 21. Júlí
Sýningar hefjast kl: 20.30
Gamansöngleikur byggður á
lögum Michael Jackson
www.landsbanki.is
Tilboð til klúbbfélaga
Landsbanka íslands hf.
Rex________________________________
Tveir fyrir einn á kvöldverði á Rex.
Tilboðið gildir frá sunnudegi til fimmtudags.
Afsláttur í golf___________________
Félagsmenn Vörðunnar, Námunnar,
Sportklúbbs og Krakkaklúbbs
Landsbankans njóta 25% afsláttar af
vallargjöldum hjá GR.
Orlando----------------------------
Vörðufélagar fá ferð til Orlando í 8 eða 15
daga á einstökum kjörum 6. nóv. og til
baka 14. eða 21. nóv.
Hundar étnir í Kína________________
Vörðufélagar fá afslátt á myndina Hundar
étnir í Kína (I Kina spiser de hunde) í
Háskólabíói - miðinn á 450 kr.
Oll tilboðin fást gegn framvísun debet-
korts/félagskorts í viðkomandi klúbbi.
Ýmiss önnur tilboð og afslættir bjóðast
klúbbfélögum Landsbanka íslands hf. sem
finna má á heimasíðu bankans,
www.landsbanki.is
L
Landsbankinn
| Opiö'frá 9 til 19
Vestur-lslendingar
leita ættingja sinna hér
heima.
Sjá: www.kristur.net
TJEIKFÉLAG ÍSLANDS
lÍAsTflÍjNb 552,3000
THRIUUER
frumsýning fös. 7/7 kl. 2030
nokkur sæti laus
fös. 14/7 kl. 20.30 laus sæti
lau. 15/7 kl. 20.30 laus sæti
fös. 21/7 kl. 20.30 laus sæti
530 3030
Hádegisleikhús meö stuðningi
Símans — BJÖRNINN
fim. 6/7 kl. 12 laus sæti
fös. 7/7 kl. 12 nokkur sæti laus
lau. 8/7 kl. 12 nokkur sæti laus
Miðasalan er opin frá kl. 12-18 I Loftkastalanum
og frá kl. 11-17 I Iðnó. Á báðum stöðum eropið
fram að sýningu sýningarkvöld og um helgar þegar
sýning er. Miðar óskast sóttir I viðkomandi leikhús.
(loftkastalinn/lðnó).
Ath. Úsóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
Miðasala S. 555 2222
The Hammer of Thor
A mythological action-comedy
Sun. 2n kl. 20
Rm. 6/7 kl. 20 uppselt
Fös. 7/7 kl. 20
Sýningartími 50 mínútur.
AJœturgalinn sn meoso B
í kvöld stórsöngvarinn Ari Jónsson
ásamt Úlfari Sigmarssyni. _
„Afslöppuð og vel samin lög, keyrslurokk og ballöður; allt sem aðdá-
endur bandsins hafa verið að bíða eftir síðastliðin fimm ár,“ segir Þrá-
inn Árni m.a. í dómnum.
Roberts
veldur usla
LEIKKONAN Julia Roberts oUi tölu-
verðri ringulreið í mexíkóskum smábæ
er hún kom þangað óvænt ásamt um
tuttugu lífvörðum sínum.
Leikkonan fagra er þessa dagana
við tökur nýjustu kvikmyndar sinnar,
The Mexican, í litlum námumannabæ
ásamt mótleikara sínum sem er enginn
annar en hjartaknúsarinn Brad Pitt.
Hann hefui’ hins vegar meiri trú á bæj-
arbúum en Roberts og hefur látið þrjá
lífverði og mann sem líkist sér mikið
nægja til að fæla forvitna bæjarbúana
frá.
„Það er meira að segja búið að senda
eftir lögreglu úr borginni til að tryggja
öryggi hennar," sagði einn bæjarbúa.
„Brad hefur verið hér í mánuð með
þrjá lífverðj og það hefur ekki verið
neitt mál. Eg skil ekki af hverju hún
þarf að hafa mun fleirl. Þetta er smá-
bær og hún jók bara á athyglina með
því að mæta með alla þessa lífverði.“
Þá lét hún sér ekki nægja að mæta
með lífverðina heldur var hótelið henn-
ar girt af svo að enginn mátti koma ná-
lægt því á meðan stjaman var að koma
sér fyrir.
Wahlberg
á meðal apa
LEIKARINN
Mark Wahlberg
mun fara með
eitt aðal-
hlutverkið í
myndinni Apa-
plánetunni,
nokkurs konar
endurgerð hinn-
ar sígildu mynd-
ar frá 1968 og
1973. Þá hefur hann einnig skuld-
bundið sig til að leika í fram-
haldsmyndinni. Aðstandendur
myndarinnar segja að nýju mynd-
irnar verði ekki algjör endurgerð á
þeim eldri heldur muni ný hugsun
liggja að baki.
Mark
Wahlberg
Sem sagt, afslöppuð og vel samin
lög, keyrslurokk og ballöður; allt
sem aðdáendur bandsins hafa verið
að bíða eftir síðastliðin fimm ár.
Leiðinlegt er þó að enginn texti
fylgir skrifaður með og er það mín-
us við annars glæsilega kápu. Mik-
ið er af myndum og er greinilegt að
Bon Jovi gerir mikið úr ímynd
bandsins, töffaraskapur er allsráð-
andi og hér fær maður þá mynd af
þeim að þetta séu harðir naglar,
engan aumingjaskap hér takk fyr-
ir! Hún endurspeglar vel lögin á
plötunni, þessi töffaraímynd sem
okkur er gefin af þeim körlum.
Gaman er að geta þess að mynd-
bandinu við fyrstu smáskífu plöt-
unnar, „Ifs my life“ var leikstýrt af
Wayne Isham sem stjórnaði upp-
tökum á „Cunning Stunts“ videoinu
með Metallica. Ekki er einfalt að
greina einhvern sérstakan boðskap
á plötunni. Jon syngur enn um
stúlkurnar sem hann elskar og um
að bjarga jörðinni en kannski
boðskapurinn samt einfaldlega sá
að lífið er skemmtilegt og sérstak-
lega ef þú ert rokkari. Platan er
tekin upp heima hjá Jon Bon Jovi
og þakkar hann því að platan er
eins afslöppuð og raun ber vitni,
„við gátum labbað inn og út eins og
okkur lysti án þess að hafa áhyggj-
ur af reikningnum". „Crush“ er
skyldueign fyrir alla sem vilja
melódískt rokk og sérstaklega þó
fyrir þá sem söknuðu gömlu góðu
daganna með Bon Jovi. Þeir eru
mættir aftur til leiks og hafa ekki
verið svona góðir síðan á „Slippery
when wet“.
Messufall hjá þjóðinni?
EKKI linnir heldur hráslagaleg-
um skoðanakönnunum um kristni-
hátíð á Þingvöllum, en nú eru þær
taldar sýna að um 20 þúsund
manns ætli að eyða helginni á
Þingvöilum. Fari svo má tala um
messufall hjá þjóðinni meira en
dæmi eru um áður.
Ævinlega, þegar
efnt er til hátíðar-
halda á Þingvöllum
bregðast fjölmiðlar við á þann
hátt að heldur er til leiðinda fyrir
hátíðarhaldið sjálft, þótt ekkert sé
verið að gera annað en minnast
merkisatburða úr sögu þjóðarinn-
ar. Forustufólk í þjóðlífmu hefur
vilja til að halda upp á afmælin í
sögu þjóðarinnar, en um leið og
ævinlega rísa einhverjir upp og
finna sér til einhverja kamrapóli-
tík til að veifa vegna útihátíðar-
innar á Þingvöllum. Nú reyna
fjölmiðlar að vekja athygli á hátíð-
inni, þótt þeir séu illa í stakk bún-
ir til að fjalla um nokkurn skapað-
an hlut innanlands annan en
pólitískt rövl í strákum, Eyja-
bakka eða Elton John. Samt sem
áður er kristnihátíð vel fallin til
umfjöllunar í fjölmiðlum, því sögu-
lega séð er kristniferill lands-
manna söguríkur ef til væri eitt-
hvert fólk í landinu, sem gæti
skrifað um annað en Jósef, Abra-
ham, ísak og Pétur. Fjölmiðlai’
hafa þó verið að sækja í sig veðrið
vegna útihátíða á Þingvöllum. Þeir
þögðu mest 1974, lentu í skipuleg-
um umferðarhnút 1994 og ætluðu
ekki að komast af Miklubrautinni
fyrir rauðum ljósum, en stefna nú
í mannþurrð árið 2000, eftir að
búið er að ganga frá Þingvöllum
fyrir mannfjölda. Það er eins og
þjóðin þurfi ekki einu sinni að
e _ _ ' minnast píslarvotta
SJONVARP A sinna úr þúsund ára
LAUGARDEGI kristnisögu.
Ted Turner heitir
maður í Bandaríkjunum, sem ger-
ir m.a. út á sjónvarp og kvikmynd-
ir. Hann er um þessar mundir
giftur kvikmyndastjömu, eins og
vera ber um fjölmiðlamógúl. Það
má segja um Ted Turner eins og
marga aðra mógúla, að hann fær
góðar hugmyndir. Nú er að hans
undirlagi verið að sýna þáttaröð á
Stöð 2, sem nefnist Saga aldanna.
Þeir verða tíu talsins, en sá fjórði
var sýndur á sunnudaginn. Þriðji
þátturinn sýndi yfirreið Mongóla
yfir austanverða Evrópu undir
stjórn Gegnis Khan. Þetta eru yf-
irleitt vel gerðir þættir, þótt þeir
séu yfirgripsmildir - fara svona
fljótt yfir söguna. Það breytir
engu um, að áhorfandinn fær að
skyggnast inn í ríki Gengis Khan
og horfa á Mongólana þeysa fram
á hestum sínum yfir sléttur
Rússlands og Litlu-Ásíu. Kemur
þá í hugann, að uppmna þjóða
mætti eflaust ráða af hestakyni
þeirra. fslenski hesturinn er
áreiðanlega ekkert skyldur hest-
um Skandinavíu, heldur nákominn
ættingi hrossastóðs Gengis
Khans, sem bendir til að við séum
ættuð austan af sléttum Rúss-
lands og Litlu-Asíu. En engum
sem sinnir því göfuga hlutverki að
athuga ættir manna dettur í hug
að leita lyklanna í ættum mera.
Fjórði þáttur Sögu aldanna fjall-
aði um útbreiðslu Svarta dauða,
einhverrar hryllilegustu farsóttar,
sem herjaði á Evrópu á fjórtándu
öld. Svarti dauði kom með áhöfn
skips til Eyrarbakka árið 1402, en
hafði þá grasserað meira en hálfa
öld í Evrópu. Komu Svarta dauða
er lýst þannig í heimildum, að
hann hafi lagt eins og bláa slæðu
upp frá skipinu. Smitberar vom
rottur og pestin var svo öflug, að
hún felldi hvern einasta mann á
sumum stöðum í Litiu-Asíu. Það-
an barst hún til Messina á suður-
enda Ítalíu og hóf að stráfella fólk.
Þangað kom hún 31. desember
1347 með kaupmönnum á þremur
skipum, sem höfðu ætlað með
farminn til Feneyja. Þeim var vís-
að frá Feneyjum vegna veikinda
um borð. Þrítugasta júní árið eftir
var Svarti dauði kominn til
Almeriu á Spáni. Það fór ekki illa
á þvi að fiytja þátt um plágui-
framtíðarinnar í ríkiskassanum á
mánudag, þar sem skírt var frá
því að mannkynsins bíður barátta
við veimr ónæmar fyrir öllum
meðulum.
Indriði G. Þorsteinsson
rNESTISKÖRFUR------------------
2ja og 4ra manna körfur
frá kr. 14.900-24.900
líl) PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 3614 I
Aðsendar greinar á Netinu
/§> mbl.is
_ALLTAfz GITTHISAG tVÝTT