Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 60
Cisco Systems P A R T N E R SILVER CERTIFIED Tæknival D0LE + Borðtölvur + Fartölvur + Netþjónar 563 3000 + www.ejs.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6691100, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK. Þróun verðs á bensíni með fullri þjónustu frájan. 1999 6» Bensínlítr inn yfír 100 krónur Sjóvá-Almennar gera breytingar á ökutækjatryggingum sínum Boða umtalsverða hækkun iðgjalda TILKYNNT verður um nýja gjald- skrá með umtalsverðri hækkun ið- gjalda í lögboðinni ábyrgðartrygg- ingu hjá Sjóvá-Almennum trygg- ingum á mánudag, að sögn Einars Sveinssonar, framkvæmdastjóra fé- lagsins. Hann vildi í gær ekki gefa upplýsingar um hve mikilla hækk- ana væri að vænta. „Það er Ijóst að við erum að tala um umtalsverðar hækkanir. Þetta er mikið alvörumál," sagði Einar. Sjóvá-Almennar tilkynntu í gær að gerð yrði breyting á uppbygg- ingu iðgjaldaútreikninga á þann veg að landinu verður skipt upp í þrjú áhættusvæði. Til þessa hefur landinu verið skipt upp í tvö áhættusvæði. „Breytingin sem nú á sér stað er sú að Akranes og byggðin fyrir austan fjall, þ.e. Hveragerði, Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Þorlákshöfn, færast á áhættusvæði 1. Þetta veldur því að það verður dýrara að tryggja á þessum svæðum," sagði Einar. Á svæði 2 verða helstu þéttbýlis- staðh-, utan svæðis 1, svo sem Vest- mannaeyjar, Húsavík, Sauðárkrók- ur, Isafjörður og Stykkishólmur, en einnig smærri svæði svo sem Gríms- ey og Kópasker; allt á grundvelli tölfræðigreiningar á tíðni umferðar- slysa. Á þriðja svæðinu, sem er mestallt dreifbýli á landinu, er stefnt að því að iðgjöld hækki ekki, að sögn Einars enda þykir tölfræði- greiningin ekki gefa tilefni til þess. Einnig verður tekin upp ný áhættusvæðaskipting vegna kaskó- ti’ygginga. Þar eru formerki öfug við ábyrgðartrygginguna því kaskó- trygging er dýrari á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu milli Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar. Gunnar Felixson, forstjóri Trygg- ingamiðstöðvarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að félagið mundi taka upp sambærilega breytta svæðaskiptingu og Sjóvá- Almennar. „Við munum einnig end- urskoða iðgjaldaskrána,“ sagði Gunnar en vildi ekki tjá sig nánar um það mál. Áxel Gíslason, forstjóri Vátrygg- ingafélags íslands, sagði að félagið mundi væntanlega einnig endur- skoða skiptingu í áhættuflokka eftir byggðarlögum enda byggist þeir á tölfræðivinnslu gagna frá þeim sex tryggingafélögum, sem hafa um 90% markaðshlutdeild í ábyrgðar- tryggingum ökutækja. Hann sagði að iðgjöld ökutækjatrygginga væru til endurskoðunar en niðurstaða lægi ekki fyrir. ■ Fleiri/lO VERÐ á bensínlítra hækkaði á miðnætti um 3,80 kr. hjá Olíufélagi Islands hf. Sömu hækkanir urðu hjá hinum olíufélögunum. Einn lítri af 95 oktana bensíni kostar nú 98,30 kr. en lítrinn af 98 oktana bensíni hækkar úr 99,20 kr. í 103 kr. Dísilolía hækkar um 2,10 krónur og kostar lítrinn nú 40,20 krónur. Þetta er í fyrsta sinn frá því myntbreytingin var gerð 1981 að bensinlítrinn fer yfir 100 krónur. 24. desember 1980 var verð á 92 oktana bensíni, sem framleitt var í Rússlandi, 595 krónur. Við mynt- breytinguna fór verðið í 5 krónur og 95 aura. Miklar hækkanir á heimsmark- aðsverði valda hækkuninni innan- lands að sögn talsmanna olíufélag- anna en jafnframt hefur gengi Bandaríkjadollars hækkað veru- lega á undanförnum mánuðum. 1. júlí í fyrra kostaði lítrinn af 95 okt- ana bensíni 79,70 kr. -------------------- Sleipnisdeilan Fundað fram á nótt FUNDUR stóð enn á milli samn- inganefnda Samtaka atvinnulífsins og Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis í húsakynnum ríkissáttasemjara þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt. Að sögn Þóris Einarssonar sáttasemjara var á fundinum í gær einkum farið yfir atriði sem varða önnur mál en launaliði kröfugerða deilenda. Hafði heldur mjakast í þeim efnum undanfarna tvo daga en Þórir sagði að enn bæri þó mik- ið í milli hvað varðaði launakröfur. MITSUBISHI CRRI5MR Morgunblaðið/Þorkell Frá slysavettvangi í Hveradalabrekkunni á Suðurlandsvegi, þar sem fólksbfll og jeppi rákust saman. Að sögn læknis á slysadeild er stúlkan sem ók fólksbflnum ótrúlega litið slösuð miðað við atvik. Tvö umferðarslys við upphaf ferðahelgar - demantar i umferb TVÖ umferðarslys urðu á þjóðvegum í gær við upphaf annarrar mestu ferða- helgar sumarsins. Stúlka um tvítugt slasaðist í árekstri á Suðurlandsvegi. 10 ára telpa og maður um áttrætt meiddust í bílveltu í Norðurárdal. Öll þijú voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík en voru ekki talin alvarlega slösuð, sam- kvæmt heimfldum blaðsins. Þung umferð var úr borginni í gærkvöld og virt- ist dreifast nokkuð jafnt austur Hellisheiði og norður Vesturlandsveg. Slysið á Suðurlandsvegi varð í brekkunni við Skíðaskálann í Hveradölum á áttunda tímanum í gærkvöld. Stúlkan, sem slasaðist, ók fólksbíl á leið suður og, að sögn lögreglunnar á Selfossi, er talið að óhappið hafi borið þannig til að bíll hennar hafi leitað yfir á öfugan veg- arhelming þar sem hann rakst á jeppa á leið austur íýrir fjall. Lög- reglan biður sjónarvotta að slysinu að hafa samband við lögreglustöð- ina á Selfossi. Ökumann og farþega í jeppanum sakaði ekki, að sögn lögreglu, en stúlkan var meðvitundarlaus þegar að var komið og lék grunur á að hún hefði fótbrotnað. Sjúkrabíll úr HEKLA — íjorystuánýrriöldl Reykjavík kom á staðinn, sem og áhöfn tækjabíls slökkviliðs Reykja- víkur. Þegar stúlkan hafði verið los- uð úr flakinu var hún flutt á slysa- deild. Að sögn Ólafs Ingimars- sonar, læknis á slysadeild, var hún lögð inn í nótt til eftirlits en líðan hennar er talin ágæt miðað við at- vik. Tíu ára gömul stúlka og tæplega áttræður karlmaður slösuðust þeg- ar bíll valt við Laxfoss í Norður- árdal um klukkan hálfþrjú í gær. Annað barn sem í bílnum var slapp ómeitt. Talið er að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í lausa- möl í krappri beygju. Stúlkan og maðurinn voru flutt með sjúkrabíl á spítala í Reykjavík en samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu í Borgarnesi eru þau ekki tal- in alvarlega slösuð. Bíllinn er gjör- ónýtur. ■ Þung umferð/6 Mál og menning og Vaka- Helgafell sameinast Nýja bóka- forlagið skírt Edda SAMRUNAÁÆTLUN Máls og menningar hf. og Vöku-Helgafells hf„ tveggja stærstu útgáfufyrirtækj- anna á íslenskum bókamarkaði, var undirrituð í gær af stjórnum félag- anna. Hið sameinaða íyrirtæki verð- ur alhliða miðlunar- og útgáfufyrir- tæki og hlýtur nafnið Edda - miðlun og útgáfa hf. en stefnt er að skrán- ingu þess á Verðbréfaþing íslands. Samrunaáætlun nýja fyrirtækis- ins er undirrituð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar hjá Vöku- Helgafelli og félagsráðsfundar hjá Máli og menningu, en hvort móður- félaganna mun eignast 50% í nýja fyrirtækinu og allur rekstur þeirra fer inn í það. Hlutafé nýja fyrirtækisins 120 milljónir króna Bókaútgáfa Máls og menningar og Vöku-Helgafells verður í aðskildum deildum og henni haldið áfram undir merkjum forlaganna tveggja og þeirra bókaforlagsdeilda sem starfa á vegum þeirra hvors um sig. Ólafur Ragnarsson, núverandi stjórnarfor- maður Vöku-Helgafells, verður stjórnarformaður Eddu - miðlunar og útgáfu hf. en Þröstur Ólafsson, sem verið hefur formaður stjómar Máls og menningar hf„ verður vara- formaður. Hlutafé nýja fyrirtækisins er 120 milljónir króna og heildarvelta þess er áætluð um 1.700 m. kr. á þessu ári. ■ Útgáfufélagið/18 ----------------- Svifflugvél hlekktist á MAÐUR var fluttur á slysadeild seint í gærkvöld eftir að svifflugvél hans hlekktist á í lendingu og hvolfdi á flugvellinum á Sandskeiði. Að sögn lögreglu barst tilkynning um slysið kl. 23.52 og var þá sendur lögreglu- bíll á vettvang. Maðurinn var með meðvitund þegar hann var fluttur á slysadeild en ekki var meira vitað um líðan hans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.