Morgunblaðið - 17.08.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913
186. TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Fanney Gunnarsdóttir
Ekkert lífsmark í rússneska kafbátnum Kúrsk í tvo sólarhringa
Rússar biðja Breta og
Norðmenn um aðstoð
Giftusam-
legbjörgun
úr Jökulsá
á Fjöllum
ÞRETTÁN manns biðu björgunar í
liðlega þrjá tíma á þaki rútu sem
festist í vaði á Lindaá þar sem kvísl-
ar úr Jökulsá á Fjöilum flæða i hana.
Úrhellisrigning og rok var meðan
fólkið beið á þakinu.
Fjórtán manns voru í rútunni og
synti bílsljóri hennar í land ásamt
tveimur farþeganna til að sækja
hjálp. Um 45 manna hópur lögreglu
og björgunarsveitir komu á vett-
vang og tók aðeins um 25 mínútur
að bjarga fólkinu með bát. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var einnig til-
tæk og flutti hún hluta hópsins til
Húsavíkur. Þar var fólkinu veitt
andleg og líkamleg aðhlynning enda
talsvert hrakið eftir lífsreynsluna.
■ Slysið/40 og baksíða
RÚSSNESK stjórnvöld þekktust í
gær boð erlendra ríkja um aðstoð við
að bjarga áhöfn rússneska
kjarnorkukafbátsins Kúrsk sem legið
hefur á botni Barentshafs síðan um
helgina með 118 manna áhöfn innan-
borðs. Fóru Rússar fram á aðstoð
Breta og Norðmanna við björgunina.
Sendi breski flotinn í gærdag björg-
unarkafbát, sem lýst hefur verið sem
„neðansjávarþyrlu," flugleiðis til
flugvallarins í Værnes í Noregi og
þaðan landleiðina til Þrándheims. I
dag mun hann verða fluttur sjóleiðina
á slysstað. Samkvæmt frétt AFPvar
Værnes fyrir valinu vegna lengdar
flugbrautar og tiltæks tækjabúnaðar.
Þá tilkynnti norska stjórnin að sér-
útbúið norskt köfunarsldp með 12-15
manna sérsveit kafara hafi þegar
haldið á staðinn. Köfunarskipið mun
að öllum líkindum komast á slysstað
annað kvöld en ekki er von á skipinu
er flytja mun breska kafbátinn fyrr
en seinni hluta laugardags. Hafa
Rússar sagt að ekkert lát verði á
björgunartilraunum. Talsmaður
breska flotans sagði í gær að
Bretarnir, sem fara með björgunar-
kafbátinn, myndu vinna með Rússun-
um og láta þá um að stjóma björgun-
araðgerðunum.
Tvísýnt er um líf áhafnar Kúrsk og
kann hjálparbeiðni Rússa að hafa
borist of seint. I gær hafði ekkert
lífsmark greinst um borð í Kúrsk í
tvo sólarhringa. Samkvæmt heimild-
um CNN innan bandaríska varnar-
málaráðuneytisins era fregnir af því
að menn kunni að vera á lífi um borð í
Kúrsk dregnar í efa. Segja heimildar-
menn CNN að upplýsingar banda-
ríska flotans bendi til að „stórslys"
hafi orðið um borð í Kúrsk og nær
engar líkur séu á að nokkur hafi lifað
það af. Þrír kafbátar bandaríska flot-
ans vora nærri flotaæfíngum Rússa í
Barentshafi á laugardag áður en
þeim var stuggað í burtu.
Allar björgunartifraunir Rússa til
þessa hafa mistekist enda slæm skil-
yrði til björgunar bæði ofansjávar og
neðan. Smærri kafbátar og
björgunarhylki sem áttu að ná festu í
Kúrsk hafa orðið frá að hverfa vegna
hafstrauma og aðeins nokkurra
sentímetra skyggnis þar sem bátur-
inn liggur, á um 108 metra dýpi.
Segja heimildir innan rússneska flot-
ans að björgunarmenn hafi nánast
tapað einu björgunarhylkjanna
vegna afar sterkra strauma og hefur
sandur byrgt mönnum sýn.
Heimildaraienn innan rússneska
ílotans sögðu við ITAR-TASS frétta-
stofuna í gær að af myndum af Kúrsk
að dæma væri líklegt að sprenging í
fremsta hluta bátsins hafi valdið slys-
inu. Þá er talið líklegt að fjögur rými
bátsins hafi verið lokuð af vegna leka.
Rennir það frekari stoðum undir
þessa kenningu að bæði bandarísk og
norsk herskip greindu sprengingu
nærri þeim stað þar sem Kúrsk hvíl-
ir.
Misvísandi upplýsingar
Afar misvísandi upplýsingar hafa
borist frá Rússlandi vegna slyssins. I
gærmorgun greindu Rússar frá því
að súrefnisbirgðir myndi þrjóta eftir
tvo daga og Vladimír Pútín, forseti
Rússlands, lýsti ástandinu sem afar
tvísýnu en síðar um daginn greindi
Vladimír Kuroyedov, aðmíráll og
yfirmaður rússneska flotans, frá því
að líklegt væri að súrefnið í Kúrsk
dygði til 25. ágúst. Þá sögðu rúss-
neskir ráðamenn í gær að lengi hefði
ekkert heyrst til sjóliðanna um borð í
Kúrsk en talsmenn flotans áréttuðu
að merkjasendingar sjóliða hefðu að-
eins heyrst er björgunarhylki eða
smákafbátai- hafi verið þétt upp að
Kúrsk. Önnur skýring geti enn frem-
ur verið að áhöfn hafi verið skipað að
halda kyrru fyrir og spara þannig
súrefni. Þá var fjöldi áhafnarmeðlima
leiðréttur í gær, án skýringa, og sagt
að 118 en ekki 116 sjóliðar væru um
borð.
Rússnesk stjómvöld hafa sætt
mikilli gagnrýni heima fyrir vegna
tregðu til að leyfa erlendum ríkjum
að aðstoða við björgun kafbátsins.
Hafa sérfræðingar leitt að því líkum
að skýringin geti að hluta til verið
fólgin í því að um borð í Kúrsk, sem
borið getur 24 meðaldræg flugskeyti,
er að öllum líkindum herbúnaður, s.s.
ný gerð af SS 19 flugskeytum sem
vestrænfr hermálasérfræðingar hafa
aldrei barið augum.
Talið er að um borð í Kúrsk sé
hópur afar háttsettra höfuðsmanna
úr rússneska flotanum sem hafi
gegnt hlutverki eftirlitsmanna með
flotaæfingum á Barentshafi sl. helgi.
■ Aðstæður á/28
MORGUNBLAÐIÐ17. ÁGÚST 2000
Norsk Hydro
stækkar álver
Ósld. Morgunbladið.
NORSK Hydro tilkynnti í gær að
fyrirtækið myndi stækka og
endurbæta álverksmiðju sína í
Sunndal í Noregi fyrir 5,4 millj-
arða norskra króna eða sem svar-
ar rúmum 48 milljörðum íslenskra
króna.
Verður þetta ein stærsta fjár-
festing sem gerð hefur verið í iðn-
aði á fastalandinu í Noregi. Með
stækkuninni sem á að vera lokið
2004 verður verið í Sunndal
stærsta álver í Evrópu, að því er
Aftenposten greinir frá. Stjórn-
endur Norsk Hydro segja að þessi
fjárfesting breyti engu um fyrir-
ætlanir fyrirtækisins um að
byggja nýtt álver á íslandi.
Elstu hlutar verksmiðjunnar í
Sunndal eru 56 ára gamlfr. „Nýja
verið í Sunndal mun ekki duga til
að fullnægja þörfum Hydro,“ seg-
ir Eivind Reiten forstjóri. „Þess
vegna mun fyrirtækið halda áfram
að leggja drög að aukinni fram-
leiðslu, meðal annars á íslandi."