Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 25
ÚRVERINU
Strandeldisstöð Islandslax við Grindavík skoðuð.
Bandaríkjunum þar sem við erum
ekki að selja hrogn heldur eingöngu
þekkingu. Við setjum upp kynbóta-
verkefni fyrir viðkomandi aðila í
Maine og þjónustum þá síðan á allan
hátt.“
Vilja setja kvíar í sjó
Að lokinni heimsókn í Stofnfisk
var haldið til Grindavíkur þar sem
eldisstöð íslandslaxs var skoðuð. Ól-
afur Vemersson, framkvæmdastjóri
íslandslaxs, sýndi gestum stöðina,
en rekstur hennar undir núverandi
merkjum hófst 1994. „Áætluð fram-
leiðsla í ár er 1.100 tonn. Við höfum
jafnframt verið að vinna að því að
bæta seiðaframleiðsluna okkar og
stefnum að því að framleiða fyrir
næsta ár 600.000-900.000 gönguseiði
með það fyrir augum að setja þau í
sjó.“ Ólafur segir að á þeim tíma sem
stöðin hafi verið rekin hafi gengið
upp og ofan en segir að bjartara sé
fram undan hjá íslenskum eldis-
mönnum.
Ólafur segir að vonir manna séu að
geta sett kvíar í sjó og hafið þar með
skiptaeldi. „Við stefnum ótrauðir á
það. Ef af því verður getum við fram-
leitt um 2.000-3.000 tonn en við von-
umst til þess að af því verði næsta
vor.“
Sæeyra og Silungur
Því næst var haldið í húsakynni
Sæbýlis hf. í Vogum en þar fer fram
eldi á sæeyrum. Jón Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sæbýlis, og Örn
Ólafsson stöðvarstjóri tóku á móti
hópnum og leiddu hann í allan sann-
leikann um sæeyru. Sæbýli seldi í
fyrra 8 tonn af sæeyrum en reiknað
er með því að salan í ár verði um 20
tonn. Áætlanir Sæbýlis eru að árið
2005 verði árssalan orðin 200 tonn og
ef það næst verður Sæbýli stæsti al-
andi sæeyrna í heiminum.
Ferðinni lauk síðan á því að eldis-
stöð Silungs ehf. í Vogum var sótt
heim en þar er alinn bleikja auk þess
sem fyrirtækið hefur hafið tilrauna-
skiptaeldi á laxi. Jónatan Þórðarson,
framkvæmdastjóri Silungs, segir að
400-500 tonn af bleikju séu fram-
leidd árlega í stöðinni auk þess sem
1.000 tonn af laxi séu einnig alin bæði
í stöðinni sem og í sjó.
Guerlain
PARIS
Kynning
Fimmtudag: Andorra Hafnarfirði
Föstudag: Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
Föstud. og laugard.: Clara, Kringlunni.
Aðrir útsölustaðir
Snyrtistofan Gueriain Óðinsgötu, Snyrtivömverslunin Oculus Austurstræti, Snyrtivöruverslunin
Stella Bankastræti, Hjá Maríu, Amaro Akureyri, Keflavíkurapótek, Farðinn Vestmannaeyjum
www.mbl.is
20-50% afsláttur. Takmarkað magn.
Skeifunni 11 • Sími 588 9890 ■ orninn.is
Opið frá kl. 9-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaga