Morgunblaðið - 17.08.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 59
UMRÆÐAN
Síminn, sam-
keppnin og
Sjálfstæðis-
flokkurinn
í GERVALLRI
Vestur-Evrópu er lík-
lega hvergi jafnódýrt
að kaupa sér leigubfl
milli húsa en í Reykja-
vík. Engum kemur þó
til hugar að nota það
sem rök gegn því að
bjóða út akstur fyrir
ríkið, enda hefur það
sparað skattborgurum
vænar summur á seinni
árum. Það er því með
fádæmum að lesa á
baksíðu DV á þriðju-
degi að rökin sem
Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra
Sjálfstæðisflokksins,
notar til að vernda einokunarstöðu
Landssímans gagnvart þjónustu fyr-
ir ríkið, eru einkum að símaþjónusta
Útboðsmál
Það hvarflar að manni
að það sé of erfítt fyrir
ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, segir Össur
Skarphéðinsson, að feta
í fótspor Ingibjargar
Sólrúnar borgarstjóra.
á íslandi sé ódýrari en annars staðar!
Sturla er í reynd æðsti yfirmaður
ríkisfyrirtækisins Landssímans hf
og hann fer með eina hlutabréfið í
fyrirtækinu. Það breytir því ekki að
æðsta skylda hans er ekki gagnvart
fyrirtækinu Landssímanum hf. held-
ur gagnvart skattborgurunum. Eða
rúmast það innan meints frjálslyndis
Sjálfstæðisflokksins að leyfa ríkis-
fyrirtækjum að fitna í einokunar-
skjóli á kostnað neyt-
enda áður en þau eru
seld? Það er engu lík-
ara en það hafi farið
fram hjá samgönguráð-
herranum að á skömm-
um tíma heíur skapast
samkeppnismarkaður á
íslandi um fjarskipti.
Einokun Landssímans
á viðskiptum við ríkið,
sem skapaðist af sögu-
legum ástæðum, á sér
enga réttlætingu leng-
ur. í stað þess að verja
þessa einokun ætti ráð-
herrann að einhenda
umtalsverðu afli sínu í
að brjóta hana niður,
bjóða út alla síma-, fjarskipta- og
gagnaflutninga á vegum nTdsins og
tryggja þannig skattgreiðendum
lægsta hugsanlega verð. Eða eru
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
komnir svo langt frá uppruna sínum
að það þurfi formann stjórnarand-
stöðuflokks til að minna þá á að opin
samkeppni er besta leiðin til að
lækka verð til neytenda?
Reykjavíkurborg gerði tilraun
með útboð á farsímaþjónustu fyrir
eina af stofnunum sínum. Það leiddi í
ljós að útboð á öllum fjarskiptum
borgarinnar er líklegt til að leiða til
marktæks spamaðar. í kjölfarið af-
réð borgin að ráðast í útboð. Ef borg-
in telur sig geta sparað fjármuni með
þessum hætti, hví ekki ríkið? Það
hvarflar að manni að það sé of erfitt
fyrir ráðherra Sjálfstæðisflokksins
að feta í fótspor Ingibjargar Sólrún-
ar borgarstjóra. Hvað sem því líður
þá getur samgönguráðherra að
minnsta kosti ekki skýlt sér á bak við
fáránleg rök eins og þau að útboð eigi
ekki við ef verð er lægra en í útlönd-
um.
Höfundur er formaður
Samfylkingarinnar.
Össur
Skarphéðinsson
17. - 26. ágúst
20-70%
afsláttur
Boltar, íþróttaskór, hlaupaskór, gönguskór, sandalar, hlaupafatnaður,
sundfatnaður, bolir, peysur, flísfatnaður, buxur, jakkar, gallar,
regnfatnaður, golfvörur, stangveiðivörur, Gore-tex jakkar, bakpokar,
svefnpokar, tjöld, prímusar, Fjallraven fatnaður, línuskautar ofl.
UTILIF
#l A-lJý
/'. Nrvi i /<
GLÆSIBÆ
Sími 545 1500 • www.utilif.is
tilboðin slógu í gegn og því höfum við ákveðið að framlengja þeim fram í ágúst
1P „ SONY
Einnig fylgir öllum einbreiðum,
stillanlegum rúmum 20” sjónvarp frá BT í ágúst.
Horft á
sjónvarp
Morgun
matinn
Unnið
Slappað af
Sofið
Lesið
Faxafeni S • 108 Reykjavík • Sími S88 8477
Opib: Mán. - fös kl. 10-18