Morgunblaðið - 17.08.2000, Side 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Þrettán manns bjargað
úr r ú tu í j ökulflj óti
ÞRETTÁN manns var bjargað af þaki rútu frá
Vestfjarðaleið í beljandi jökulfljóti þar sem
Lindaá og Jökulsá á Fjöllum renna svo til samsíða
skammt norðan Herðubreiðarlinda laust fyrir há-
degi í gær. Bíllinn festist í ánni eftir að vegkantur
gaf sig og gróf áin undan honum á skömmum tíma.
Bílstjórinn synti í land eftir hjálp og hafði öllum
verið bjargað af þaki rútunnar kl. 15.15.
Veginum hafði verið lokað í gærmorgun en
vöxtur hefur verið í Jökuslá á Fjöllum og kvíslar
úr henni flætt yfir í Lindaá. Var fjallvegur 88 frá
hringveginum að norðan í Herðubreiðarlindir því
ófær en vaðið á Lindaá er venjulega vel jeppafært.
.^giihannes Ellertsson, eigandi Vestfjarðaleiðar,
segir að bílstjóri sinn hafi ekki átt annan kost en
synda í land eftir hjálp og hafi hann sýnt mikið
hugrekki. Hann hafi metið aðstæður þannig að
vegurinn væri fær öflugum bílum. Var hann
nýverið á ferð á sömu slóðum og vegurinn þá fær
þrátt fyrir lokunarskiltið. Hann hafi séð veginn en
kanturinn síðan skyndilega brostið, bíllinn oltið út
í ána og straumurinn hrifið hann. Vildi hann ekki
ræða málið að öðru leyti í gærkvöld.
í rútunni voru 12 farþegar frá Austurríki auk
leiðsögumanns og bílstjóra. Fólkið hafði verið á
ferð frá því á laugardag og var ætlunin að gista í
skála í Drekagili í gærkvöld og halda síðan á
Sprengisand.
Tveir landverðir komust út x rútuna
Bflstjórinn og tveir farþeganna syntu í land,
nokkra tugi metra í jökulvatninu. Komst bflstjór-
inn í skálann í Herðubreiðarlindum til að láta vita
en þangað hafði einnig erlendur ferðamaður kom-
ið og gert viðvart. Tveir landverðir héldu á slys-
staðinn og sigldu á báti að rútunni. Honum hvolfdi
áður en þeir náðu rútunni og urðu landverðirnir að
bíða björgunar á þaki hennar ásamt farþegunum.
Neyðarlínan og lögreglan á Húsavík fengu til-
kynningu um slysið um kl. 12.25 svo og Landhelg-
isgæslan. Auk lögreglunnar voru um 45 björgun-
arsveitarmenn kallaðir til með sérhæfðan búnað
og tvo björgunarbáta. Þá voru Almannavarnir
virkjaðar. Þyrla Landhelgisgæslunnar hélt frá
Reykjavík kl. 13.01 og var komin á vettvang í þann
mund sem björgunarsveitarmönnum tókst að ná
þeim síðustu af þaki rútunnar. Um tvöleytið héldu
tvær þyrlur varnarliðsins frá Reykjavík með
greiningarsveitir og viðbótarbúnað og þriðja þyrl-
an og Herkúles-vél skömmu síðar. Þeim var snúið
við þegar ljóst varð að fólkið var ekki slasað, að-
eins kalt og hrakið.
TF-LÍF flutti 9 manns til Húsavíkur en aðrir
voru fluttir með bflum. Eftir skoðun á sjúkrahús-
inu og áfallahjálp fengu allir nema öldruð kona að
fara á hótelið á Húsavík þar sem hópurinn gisti sl.
nótt.
Loks
sigur á
Svíum
ÍSLENDINGAR unnu sinn fyrsta
sigur á Svíum í 49 ár í gærkvöldi á
Laugardalsvellinum. Leikurinn end-
aði 2:1 og skoruðu Ríkharður Daða-
son og Helgi Sigurðsson mörk Is-
lands. Hér að ofan hefur Hermann
Hreiðarsson yfirhöndina og nær
skalla að marki. Eyjdlfur Sverrisson
og Ríkharður Daðason eru einnig
með í baráttunni gegn sterkri vörn
Svía.
Svíamir byrjuðu betur í leiknum
og skoruðu fyrsta mark leiksins. Is-
lendingar sóttu í sig veðrið og spil-
uðu geysilega gdða knattspymu í
síðari hálfleik fyrir þá rúmlega 5.000
áhorfendur sem hvöttu þá til dáða.
Sigurinn er gott veganesti fyrir
næsta leik liðsins gegn Dönum sem
fram fer 2. september og er liður í
undankeppni heimsmeistaramdtsins.
■ Þolinmæði/C4
Afkoma Flugleiða versnar á milli ára
Launaliður fé-
' lagsins hækkar
um 600 milljdnir
LIÐLEGA 1,2 milljarða tap varð af
reglulegri starfsemi samstæðu Flug-
leiða eftir skatt á fyrra helmingi árs-
ins en á sama tímabili í fyrra var tap-
ið 797 milljónir króna. Tap sem
hlutfall af veltu nemur hátt í 8% á
tímabilinu. Heildarniðurstaða
» Skortur á
smiðum við
Vatnsfells-
virkjun
VIÐ framkvæmdir við Vatnsfells-
virkjun starfa nú 15 sænskir smiðir
og á næstu dögum er að vænta 10 til
viðbótar. Jóhann Bergþórsson, stað-
arstjóri ÍAV-Ísafls, sem er dóttur-
fyrirtæki íslenskra aðalverktaka,
segir mikinn skort á smiðum hér á
landi og því hafi þeir þurft að leita út
. ^fvrir landsteinana.
Jóhann segir að einnig hafi verið
mjög erfitt að fá tæknimenn, véla-
menn og mælingamenn. Jóhann seg-
ir að enn skorti tækni- og mælinga-
menn. Ekki þurfi þó að flytja inn
vinnuafl til að leysa þann vanda.
rekstrarreiknings versnaði hins veg-
ar meira en sem þessu nam vegna
þess að á fyrri hluta árs 1999 féll til
nærri 1,4 milljarða króna hagnaður
af sölu eigna sem ekki var til að
dreifa nú.
Heildarniðurstaða rekstrarreikn-
ings var tap að fjárhæð 1.196 millj-
ónir en á sama tímabili í fyrra var
595 milljóna króna hagnaður af
rekstrinum.
Að sögn Sigurðar Helgasonar for-
stjóra var hækkun eldsneytisverðs
félaginu þung í skauti á fyrri helm-
ingi ársins. Ekki sjái fyrir endann á
þeirri þróun. Þá hafi laun hækkað
mun meira hér en í samkeppnislönd-
unum og launaliður Flugleiða hafi til
að mynda hækkað um 600 milljónir.
Aðspurður segir Sigurður að launa-
hækkunin { heild nemi um 16% en
þess beri þó að geta að starfsfólki
hafi fjölgað lítið eitt. Mjög erfitt sé
fyrir Flugleiðir að velta þeirri aukn-
ingu út í verðlag í harðri alþjóðlegri
samkeppni en þó verðið skoðað
hvaða möguleika félagið hefur til
hækkana.
Vegna þessara þátta segist Sig-
urður búast við að reksturinn verði í
járnum á árinu í heild og jafnvel
megi búast við einhverju rekstrar-
tapi.
■ Umtalsverðir/B2
Morgunblaðið/Ásdís
Kaupþing ætlar á
V erðbréfaþing
HLUTHAFAFUNDUR Kaupþings
hf. hefur samþykkt að óska eftir
skráningu félagsins á Verðbréfaþing
íslands.
Aðspurður segir Sigurður Einars-
son, forstjóri Kaupþings, að unnið sé
að samningu útboðslýsingar fyrir fé-
lagið en hlutafé Kaupþings verður
aukið samhliða skráningu á VÞÍ.
Ekki liggur fyrir hversu mikið nýtt
hlutafé verður boðið út né heldur á
hvaða gengi bréfin verða seld. Að
sögn Sigurðar liggur ákvörðun þar
að lútandi fyrir fljótlega.
Sigurður segir markmiðið með
skráningu á almennan hlutabréfa-
markað vera að auka enn frekar eig-
ið fé Kaupþings og takast á við frek-
ari vöxt fyrirtækisins.
Starfsmönnum Kaupþings verður
boðið að gerast hluthafar í félaginu
sem og Sparisjóði Færeyja en Kaup-
þing er í samstarfi við hann í Fær-
eyjum. Utboð til almennings fer
fram á Netinu.
Kaupþing var stofnað árið 1982.
Árið 1986 urðu breytingar á eignar-
haldi Kaupþings og eignuðust spari-
sjóðimir nærri helmings hlut í fyrir-
tækinu og árið 1990 eignuðust
sparisjóðirnir fullan helmingshlut í
Kaupþingi og Búnaðarbankinn varð
jafn eignaraðili. Árið 1996 eignuðust
sparisjóðirnir fyrirtækið að fullu og
sama ár stofnaði Kaupþing, fyrst ís-
lenskra verðbréfafyrirtækja, dóttur-
fyrirtæki erlendis, Kaupthing Man-
agement Company í Lúxemborg.
Áiið 1998 stofnaði Kaupþing ann-
að dótturfyrirtæki í Lúxemborg,
Kaupthing Luxembourg S.A. I fyrra
stofnaði Kaupþing Kaupthing Bank
Luxembourg S.A. I ár hefur Kaup-
þing opnað skrifstofur í Stokkhólmi
og New York auk þess sem Kaup-
thing Föroya Virðisbrævameklara-
felag P/F var stofnað í maí á þessu
ári.