Morgunblaðið - 31.08.2000, Page 2

Morgunblaðið - 31.08.2000, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hvalur á reki í Hrútafirði BÚRHVAL rak á land í Hrútafirði, í landi Valdasteinsstaða í Bæjar- hreppi, á sunnudagskvöld og hefur hann verið á reki í fjöruborðinu og um fjörðinn síðan. „Hann var búinn að vera að svamla þama í firðinum í viku, tíu daga,“ sagði Máni Laxdal bóndi á Valdasteinsstöðum í samtali við Morgunblaðið, „svo synti hann upp að landi á sunnudagskvöld og hefur sennilega fest sig þar.“ Máni fór strax og skoðaði hvalinn sem þá var enn þá lifandi en sagði að næsta morgun hefði ekkert lífsmark verið með honum. Hann sagði að mjög margir þeirra sem hefðu átt leið þama hjá, hefðu gert sér ferð niður í fjöra til að skoða hvalinn, enda sé hann stór skepna og mikilfengleg sjón. Birgir Stefánsson sem starfar á hvaladeild Hafrann- sóknastofnunar fór í gær til að rannsaka hvalinn en þegar hann kom að Valdasteinsstöðum um hádegi hafði hvalurinn rekið aftur út í fjörð- inn. Birgir komst því ekki að honum til að mæla hann og taka úr honum sýni. Máni sagði að hvalurinn hefði aldrei tekið almennilega niðri í fjör- unni og þess vegna hefði hann rekið aftur út þegar flæddi að í gær. Hann hefði reyndar líka færst til þegar flæddi að á mánudag og þriðjudag en endað í fjöraborðinu aftur. í gær hefði hins vegar verið hvassara og því hefði hann rekið írá landi og er hann nú fastur í giynningum úti í miðjum firðinum. Hressing á Eystra- saltseyju OPINBER heimsókn Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra og Ástríðar Thorarensen eiginkonu hans til Eistlands hélt áfram í gær og fóru þau þá í fylgd Mart Laar for- sætisráðherra Eistlands til eyjar- innar Hiiumaa á Eystrasalti. Þar búa um 10 þúsund manns og við Hi- iumaa eru nokkrar smáeyjar með fjölbreyttum gróðri og dýralífi. Forsætisráðherrarnir og fylgdarlið þeirra sigldu frá Hiiumaa út í eina af þessum eyjum og nutu veitinga undir berum himni og á myndinni eru Ástríður, Davíð, Mart Laar og Marek Harjak, einn af fram- kvæmdastjórum Hiiu Kalur, að bragða reyktan ál og annað hnoss- gæti sem borið var fram. Heim- sókninni til Eistlands lýkur í dag. Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Júlíus Bifreiðin kastaðist upp á vegrið og hafnaði á göngustíg um 6 m neðar. Bíll steyptist fram af brú BIFREIÐ steyptist yfir vegrið á brúnni yfir Kársnesbraut í Kópa- vogi eftir árekstur við aðra fólks- bifreið um hádegi í gær. Bíllinn rann því næst niður brekku og stað- næmdist loks á göngustíg um 5-6 metram neðar. Eldur kviknaði í bif- reiðinni sem var fljótlega slökktur af vegfaranda. Þrennt var flutt á slysadeild en meisli reyndust minniháttar. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi er rannsókn á slysinu ekki lokið og tildrög þess því ekki með öllu ljós. Talið er að slysið hafi orðið með þeim hætti að bfl var ekið út af bið- stöð strætisvagna sem er á brúnni. Bifreið sem var ekið á vinstri ak- rein Hafnarfjarðarvegar lenti þá á bílnum. Við áreksturinn hafnaði bíllinn uppi á vegriði og rann á því skamman spöl þar til hann steyptist niður brekku og lenti loks á göngu- stíg um 6 m neðar. Skömmu síðar lenti önnur bifreið á þeirri sem ekið hafði verið út af biðstöðinni en sá árekstur var ekki harður. Eldur kviknaði í bifreiðinni sem fór út af brúnni en starfsmaður Króks hf., sem er með aðsetur skammt frá, kom fljótlega aðvífandi með slökkvitæki og slökkti eldinn en þá hafði ökumanni og farþega tekist að losa sig úr bflnum. Þeir vora báðir fluttir á slysadeild ásamt ökumanni bifreiðarinnar sem ók út af biðstöð- inni. Ökumaður þriðju bifreiðarinn- ar meiddist ekki við áreksturinn. Lögreglan í Kópavogi varð að loka Hafnarfjarðarvegi til norðurs í um hálftíma og beindi umferðinni í stað þess um Reykjanesbraut. Quarashi gerir útgáfusamning Morgunblaðið/Ásdís Quarashi hefur gert sex platna útgáfusamning við Timebomb. ÍSLENSKA rappsveitin Quarashi hefur gert útgáfusamning við bandaríska fyrirtækið Timebomb, sem er undirfyrirtæki útgáfurisans BMG. Samningurinn hljóðar upp á gerð 6 hljómplatna og kemur sú fyrsta út í byrjun næsta árs. Sölvi Blöndal og Höskuldur Ól- afsson, liðsmenn sveitarinnar, segja að aðdragandi samningsgerðarinn- ar hafi verið nokkuð langur. „Við fórum til New York í febrúar, spil- uðum fyrir hina og þessa og gerð- um útgáfuréttarsamning við EMI. í kjölfarið ákváðum við að semja við Timebomb-fyrii-tækið,“ segir Sölvi. Platan tekin upp hér í haust í New York léku þeir félagar á tvennum tónleikum. Ferðin átti rætur í Airwaves-hátíðinni sem Flugleiðir héldu í samvinnu við EMI sl. haust, en þá komust þeir Quar- ashi-piltar í samband við útsendara EMI. Hann hafði frumkvæði að því að EMI gerði við þá útgáfuréttar- samninginn og að þeim var boðið út. Höskuldur segir að platan verði tekin upp að mestu leyti hér heima, en fullunnin vestra. „Fyrst kemur út smáskífa í janúar, en platan í framhaldi af því,“ segir hann. Að- spurður segir Sölvi að efnið á plöt- unni verði nýtt, í bland við eldri lög. „Þróunin hjá okkur er sú að tónlist- in er að verða meira rokkskotin, án þess að um neina u-beygju sé að ræða,“ segir hann. Þeir félagar segja að platan verði unnin að ein- hveiju leyti í samstarfi við DJ Muggs, sem hefur t.a.m. unnið með Cypress Hill og Tricky. Einnig muni Brendan O’Brien vinna með sveit- inni, en hann var m.a. upptökustjóri á plötu Red Hot Chili Peppers, „Blood Sugar Sex Magik“. Plötunni verður dreift í Banda- ríkjunum og Kanada til að byrja með og svo væntanlega í Evrópu í kjölfarið. Sölvi segir að samningurinn færi meðlimum sveitarinnar ekki mikil auðævi. „Það ætti að vera augljóst hverjum sem er að bandarískt fyrir- tæki er ekki að fara að láta okkur fá einhverjar milljónir dollara. Við gerðum þennan samning til að kom- ast í Séð og heyrt,“ segir hann. Lýst eftir manni LÖGREGLAN í Reykjavík lýs- ir eftir Elfari Erni Gunnars- syni, Reykjavík. Síðast er vitað um Elvar Örn hinn 6. ágúst sl. en þá var hann staddur við JL-húsið við Hring- braut. Elvar var þá klæddur í svartar buxur, bláa úlpu og í brúnum skóm. Elvar er grann- vaxinn, um 175 cm á hæð með dökkt, stuttklippt hár. Þeir sem telja sig hafa orðið Elvars varir frá 6. ágúst sl. eða geta gefið upplýsingar um hvar hann er niðurkominn eru beðn- ir um að láta lögregluna í Reykjavík vita. Sérblöð í dag www.mbl.is Með Morgun- blaðinu í dag fylgir blað frá Samvinnu- ferðum- Landsýn, „Spennandi haust og vetur“. Með Morg- unblaðinu f dag er dreift auglýsinga- bæklingi frá „Noa Noa“. ; Hugsanleg þjálfaraskiptí ; hjá Fram /C1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.