Morgunblaðið - 31.08.2000, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Mjólkurfræðingar MSKEA segja upp störfum í kjölfar skipulagsbreytinga
Efasemdir um að nýtt
stj órnskipulag- gangi upp
ALLIR mjólkurfræðingar sem starfa hjá MSKEA
ehf. sögðu upp störfum í gærmorgun í kjölfar þess
að fjórum mjólkurfræðingum hjá félaginu var sagt
upp störfum nú nýverið í tengslum við
sidpulagsbreytingar og nýtt stjómskipulag hjá
MSKEA og MSKÞ, en félögin munu, ásamt félagi í
eigu mjólkurbænda, Grönum ehf., renna saman í
eitt félag á haustdögum. Breytingarnar eru liður í
því að undirbúa væntanlega sameiningu fyrirtækj-
anna og félags mjókurframleiðenda að því er fram
kemur í frétt frá MSKEA.
Geir Jónsson formaður Mjólkurfræðingafélags-
ins sagði að málið ætti sér nokkuð langan aðdrag-
anda, en í júlí síðastliðnum hefði 5 milli-
stjómendum, mjólkurfræðingum, verið sagt upp
stöfum hjá félaginu og fyrir síðustu helgi hefði 4
mjólkurfræðingum að auki verið sagt upp. Félaginu
var þá tilkynnt um að breytingar væm framundan
og var í framhaldinu boðað til fundar með stjóm-
endum KEA. Geir sagði að þá hefði verið ljóst að
verið væri að brjóta á félagsmönnum, sem ættu
ákveðin forgangsrétt að störfum í mjólkursamlög-
um. „Það kom strax upp að ekki væri hægt að rétt-
læta uppsagnir miðað við þær breytingar sem boð-
aðar voru. Við gerðum kröfú um að þær yrðu
afturkallaður, en því var hafnað,“ sagði Geir.
Líta á breytingarnar sem móðgun við sig
Hann sagði að þegar fyrirhugaðar skipulags-
breytingar hefðu verið kynntar hefði allt spmngið,
fólk hefði séð að fyrirtækið gæti ekki gengið, yrðu
boðaðar breytingar að veruleika. „Okkar félags-
mönnum var gjörsamlega ofboðið," sagði Geir og
bætti við að framkoma stjómenda KEA vegna
þessa máls væri fyrir neðan allar hellur.
„Fólk h'tur á þessar fyrirhuguðu breytingar sem
móðgun við sig, því menn em að halda því fram að
hægt sé að halda fyrirtækinu gangandi á helmingi
minni mannskap en nú er. I hinu orðinu er boðað að
vinna verði aukin vegna sammnans við KÞ. Með
þessu er verið að gera htið úr fólki, sérstaklega þeg-
ar haft er í huga að það hefur þurft að vinna tals-
verða yfirvinnu til að ljúka störfum dagsins. Niður-
staðan er sú að fólkið vill koma heiðarlega fram og
það segir hreint út að það geti ekki gert það sem
stjómendur félagsins em að fara fram á og því
sagði það upp,“ sagði Geir, en margir þeirra sem
sagt hafa upp störfum eiga að baki langan starfs-
aldur.
Hann sagði það sitt mat á stöðunni að meira en
htið þyrfti til að koma svo málin leystust og nefndi
m.a. að fólki hefði fundist farið á bak við sig við und-
irbúning að fyrirhuguðum skipulagsbreytingum.
Ráðinn hefði verið ráðgjafi í sumar og hann kynnt
sig sem slíkur fyrir fólkinu þegar hann átti við það
viðræður, en ekki hefði hðið að langur tími þegar til-
kynnt var að hann hefði verið ráðinn framkvæmda-
stjóri MSKEA og MSKÞ. „Ég held að flestir séu
sammála um að hann hafi komið þama inn á folsk-
um forsendum, komið aftan að fólld.“
Uppsagnir skapa óróleika
Vegna skipulagsbreytinganna var 5 starfsmönn-
um úr Verkalýðsfélaginu Einingu-Iðju sagt upp
störfum hjá MSKEA og sagði Björn Snæbjömsson
formaður þess að allir hefði átt að baki langan
starfsferil í samlaginu. „Þetta er algjört rothögg
íyrir þetta samfélag í mjólkursamlaginu,“ sagði
hann. Hann sagði marga hafa efasemdir um að hið
nýja fyrirkomulag myndi ganga upp, það starfsfólk
sem eftir yrði myndi ekki anna þeim störfum sem
því væri gert að innan af hendi. „Það hefur verið
ákaflega stöðugur vinnukraftur í samlaginu, en
þessar uppsagnir hafa skapað óróleika meðal starfs-
manna. Okkur þykir leitt að til þessara uppsagna
kemur og emm að fara yfir stöðuna," sagði Bjöm.
Prófmál á hagræðingarmöguleika
í greininni
Helstu breytingamar sem verða á starfsemi
mjólkursamlaganna í kjölfar sameiningar eru þær
að tilfærsla verður á verkefnum til að ná fram fram-
leiðniaukningu, óhagkvæmri framleiðslu verður
hætt, lagt verður í fjárfestingar til að auka fram-
leiðni og breytingar á stjómskipulagi eiga að hafa
verulega einföldun í fór með sér.
Agúst Þorbjörnsson framkvæmdastjóri MSKEA
og MSKÞ segir leitt að málið hafi farið í þennan far-
veg, en augljóst sé að Mjólkurfræðingafélag íslands
standi að þessum aðgerðum. Mjólkuriðnaður, líkt
og annar iðnaður í landinu, standi frammi fyrir
auknum innflutningi og kröfur séu gerðar um fram-
leiðniaukningu. Mjólkurfræðingafélagið geri nú
kröfu um forgang að störfum innan samlagsins, en
fram til þessa hafi þau verið unnin af verkafólki.
DeOur um forgangsrétt að vinnu séu alltaf við-
kvæmar, en þau störf sem um ræðir í þessu tilviki
hafi hingað til verið unnin af verkafólld, bæði hjá
mjólkursamlagi KEA og öðmm fyrirtækjum í
mjólkuriðnaði. Telur Ágúst að um sé að ræða próf-
mál á hagræðingarmöguleika innan mjólkuriðnað-
arins, sem ljóst sé að iðnaðurinn þurfi að fara í ef
hann eigi að vera samkeppnisfær við aukinn inn-
flutning og vaxandi samkeppni. Agúst vonar að nið-
urstaða fáist í máhð sem fyrst og segir fullan vilja og
skilning meðal starfsmanna og stjómenda á nauð-
syn þess að nýta þau sóknarfæri sem norðlenskur
mjólkuriðnaður hefur.
Ibúar við Dísarland í Bolungarvík eru ósáttir við bæjaryfírvöld
Óánægð með fyr-
irhugaðan snjó-
flóðavarnargarð
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
íbúar við Dísarland íhuga að ráða lögfræðing og leita réttar síns.
ÍBÚAR við Dísarland í Bol-
ungarvík, íbúðargötuna sem
stendur næst Traðarhyrnu,
fjallinu sem snjóflóðin féllu
úr árið 1997, eru mjög ósátt-
ir við vinnubrögð bæjaryfir-
valda í tengslum við gerð
snjóflóðavarna í bænum og
íhuga nú að ráða sér lög-
fræðing og leita réttar síns.
Stefanía Birgisdóttir, íbúi í
Dísarlandi 10, sem er eitt
þeirra húsa sem snjóflóðin
1997 féllu á og skemmdi,
sagði að bæjaryfirvöld hefðu
ákveðið að reisa vamargarð
rétt fyrir ofan íbúðarhúsin
við Dísarland og að íbúamir
telji sig engu bættari með
þann garð, því þeir þurfi eft-
ir sem áður að rýma húsin
sín líkt og undanfarin ár.
Hún sagði að síðasta vetur
hefðu íbúarnir þurft að rýma
húsin sín 11 sinnum og að
það væri ástand sem erfitt
væri að sætta sig við.
„Það hefur gífurleg áhrif á
fjölskylduna þegar hringt er
í mann og sagt að nú verði
maður að rýma húsið,“ sagði
Stefanía. „Maður er með
börn og það eru skólar í
gangi og maður þarf að
koma sér inn á einhverja
ættingja - þannig að auðvit-
að er þetta mikið rask, það
er í raun erfitt að lýsa
þessu.“
Ekki varanleg lausn
Ásgerður Jónasdóttir,
íbúi í Dísarlandi 4, sagði að
íbúarnir við götuna vildu
fyrst og fremst fá varanlega
lausn á málinu og að sú lausn
sem bæjaryfirvöld hefðu val-
ið væri ekki varanleg. Hún
sagði að lausn bæjaryfir-
valda þýddi það að hún og
aðrir íbúar í Dísarlandi
byggju enn við sömu hættu
og áður, þeir þyrftu að rýma
húsin sín eins og áður og að
það myndi ekki koma í Ijós
fyrr en stórt snjóflóð félli á
garðinn hvort húsin myndu
sleppa eða lenda í flóðinu.
Þetta sagði hún vera óviðun-
andi ástand.
Viðar Axelsson, íbúi í Dís-
arlandi 8, húsi sem skemmd-
ist í snjóflóðunum 1997,
sagði að bæjaryfirvöld hefðu
ekki hlustað á óskir bæjar-
búa í þessu máli. Hann sagði
að það íbúar Dísarlands
hefðu margsinnis óskað eftir
því að bærinn keypti upp
þau hús sem talin væru í
mestri hættu vegna snjó-
flóða, líkt og gert hefði verið
í Súðavík, Hmfsdal og á
Flateyri, en að aldrei hefðu
fengist nein skýr svör. Hann
sagði að nú væri hins vegar
ljóst að bærinn myndi ekki
kaupa húsin og því stæðu
íbúarnir uppi með verðlaus-
ar eignir, en allir íbúarnir við
götuna stóðu sjálfir í að
byggja húsin, í kringum árið
1980.
Stefanía sagði að það eina
sem íbúamir, sem byggju á
hættusvæðinu efst við rætur
fjallsins, vildu væri húsa-
skjól á öruggum stað í bæn-
um. Hún sagði að svo virtist
sem bæjaryfirvöld væru
hrædd um að þessir íbúar
myndu flytja frá Bolungar-
vík um leið og húsin yrðu
keypt, en hún sagði að þann-
ig hugsaði fólkið ekki, það
vildi búa í bænum, en bara á
öruggum stað.
Viðar sagðist einnig hafa
orðið var við það að bæjaryf-
irvöld óttuðust það að yrðu
húsin við Dísarland keypt af
íbúunum myndu fleiri íbúar
neðar í byggðinni fara fram
á að þeirra hús yrðu keypt.
Viðar sagði hins vegar alveg
ljóst að mun brýnna væri að
losa húsin efst í fjallinu en
hin sem neðar stæðu, því
þau væru í mun meiri hættu
ef snjóflóð félli.
„Mér finnst stundum eins
og bæjaryfirvöld séu bara að
bíða eftir því að við komum
með lyklana að húsunum og
afhendum þeim þau endur-
gjaldslaust," sagði Viðar.
Ákvarðanatakan ætti
ekki að vera í höndum
bæjarstjórna
Viðar sagði að ef húsin við
Dísarland yrðu keypt upp
væri hægt að byggja vamar-
garðinn neðar, sem myndi
auka enn á öryggi íbúa sem
byggju neðar í byggðinni.
Viðar sagði að sérfræðing-
ar frá Veðurstofunni hefðu
einmitt bent á þann kost að
byggja garðinn neðar, vegna
þess að þá myndi myndast
meira rennslissvæði fyrh-
hugsanlegt snjóflóð. Hann
sagði að þeir teldu að vam-
argarðurinn, sem bærinn
hefur ákveðið að reisa, stæði
í of miklum halla og að húsin
við Dísarland stæðu of ná-
lægt honum.
Viðar sagði það orka tví-
mælis að ekki væri eining
innan bæjarstjórnar um
jafnviðkvæmt mál og þetta.
Reyndar sagðist hann, eins
og Stefanía og Ásgerður,
vera þeirrar skoðunar að
ákvarðanataka í svona máli
ætti ekki að vera í höndum
bæjarstjórna heldur ein-
hverra sérfræðiaðila, sem
hefðu yfirgripsmikla þekk-
ingu á snjóflóðavörnum og
hugsuðu um hag heildarinn-
ar án þess að láta pólitísk
sjónarmið trufla sig í
ákvarðanatökunni.
Ólympíumótið
í bríds
Mögn-
leikar Is-
lands
minnka
MÖGULEIKAR íslendinga á
að komast í úrslitakeppnina á
Ólympíumótinu í brids minnk-
uðu talsvert í gærkvöldi þegar
íslenska liðið tapaði fyrir
Norðmönnum, 9-21, í 10. um-
ferð riðlakeppninnar. íslenska
liðið er í 7. sæti í sínum riðli
eftir 10 umferðir en fjögur
efstu liðin í hverjum riðli kom-
ast áfram í 16 liða úrslit.
Staðan í riðli Islendinga er
sú að Italir hafa örugga for-
ustu með 218 stig. í 2.-3. sæti
eru Argentínumenn og Norð-
menn með 195 stig, Kínverjar
hafa 186 stig, Suður-Afríka og
Marokkó 172 stig, íslendingar
168 og Nýsjálendingar 167
stig.
Islenska liðið vann La Reun-
ion, 16-14, í 9. umferð í gær og
Úkraínu, 17-13 í 8. umferð. í 7.
umferð á þriðjudag vann liðið
Tyrki, 21-9 en tapaði með
sama mun fyrir Marokkó í 6.
umferð. Á mánudag vann ís-
lenska liðið Kína, 18-12 og
Suður-Afríku, 19-11 en tapaði
fyrir Taílandi, 11-19.
Tveir leikir verða spilaðir í
dag en undankeppninni lýkur á
laugardag.
Byggðastofnun til
Sauðárkróks
Forstöðu-
maður lætur
af störfum
AÐEINS einn af 15 starfs-
mönnum Byggðastofnunar
hyggst starfa hjá stofnuninni
eftir að hún verður flutt til
Sauðárkróks. Meðal þeirra
sem hefur ákveðið að láta af
störfum hjá stofnuninni er
Guðmundur Malmquist, for-
stöðumaður hennar.
„Það er aðeins einn starfs-
maður sem hefur tilkynnt að
hann sé reiðubúinn að flytja.
Aðrir hafa tilkynnt til að þeir
hafi ekki tækifæri til þess, eða
treysti sér ekki til þess,“ segir
Guðmundur í samtali við
Morgunblaðið. „Ég hef svarað
þessu sama til og væntanlega
læt ég af störfum þegar stofn-
unin flytur."
Breska kon-
an laus úr
öndunarvél
BRESKA konan sem slasaðist
í gær þegar hún féll í Skafta-
fellsá er laus úr öndunarvél en
liggur þó enn á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi.
Konan féll í ána ásamt
tveimur börnum sínum þegar
íshella, sem þau stóðu á, gaf
sig.
Líðan pilt-
anna óbreytt
LÍÐAN piltanna sem slösuðust
alvarlega þegar flugvél hrapaði
í Skerjafjörð fyrr í mánuðinum
er að mestu óbreytt. Þeir liggja
á gjörgæsludeild Landspítal-
ans í Fossvogi, tengdir öndun-
arvélum.