Morgunblaðið - 31.08.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 25
Svenska Dagbladet breytir í smærra útgáfuform
Svar við kalli nú-
tímans og lesenda
AKVEÐIÐ hefur verið að breyta út-
gáfuformi hins rótgróna sænska
dagblaðs Svenska Dagbladet (SvD)
úr hinu hefðbundna breiðformi, sem
flest „alvarleg" dagblöð heimsins
hafa haldið sig við, í smærra og
handhægara form, sem víðast hvar
er kennt við æsifréttablöð („tabloid“-
form).
Samkvæmt ákvörðun blaðstjórn-
arinnar frá í fyrradag verður blað-
inu skipt upp í þrjá hluta - fyrir
fréttir (þar á meðal íþróttafréttir),
menningar- og viðskiptalífsumfjöll-
un.
„Svenska Dagbladet á að vera
blað sem maður getur lesið þægilega
við morgunverðarborðið, samhliða
því að meðlimir fjölskyldunnar geta
deilt blaðinu á milli sín,“ segir
Hannu Olkinoura, aðalritstjóri
blaðsins. Segir í frétt SvD í gær, að
blaðið eigi að koma út með hinu nýja
sniði fyrir áramót. Aður en af því
verður á þó að gera nokkrar les-
endakannanir. Endanleg ákvörðun
verður tekin í kjölfar þessara kann-
ana eftir u.þ.b. mánuð.
„I þeim forkönnunum sem við höf-
um gert hafa á bilinu 70 og 80 af
hundraði aðspurðra sagzt jákvæðir í
garð breytts útgáfuforms," er haft
eftir Gunnari Strömblad, aðstoðar-
framkvæmdastjóra SvD.
Aðspurður, hvort blaðið hafí eitt-
hvert „plan B“ ef lesendur skyldu
ekki vilja nýja útgáfuformið, segir
Strömblad að hann og aðrir stjórn-
endur blaðsins séu orðnir svo sann-
færðir um að lesendur taki smærra
útgáfuforminu vel, að ekki sé gert
ráð fyrir öðru en að breytingarnar
komi til framkvæmda.
Aðalröksemdin að baki smækkun
útgáfuformsins er að þar með verði
blaðið handhægara og auðveldi les-
endum að fletta því. Utgáfukostnað-
urinn er ennfremur sagður lækka
lítið eitt við breytinguna. Megin-
markmiðið er þó að lokka nýja les-
endur til blaðsins.
„Það hafa margir lýst óánægju
með það hversu óhöndugt núverandi
útgáfuform blaðsins er. Við þurfum
að laga okkur að þessu,“ segir Olkin-
uora.
Keppinauturinn DN hafði
uppi sams konar áform
Aðalkeppinautur SvD, Dagens
Nyheter, hafði fyrir fáeinum árum
uppi áform um að fara út í smækkun
útgáfuformsins, en þau runnu út í
sandinn af prenttæknilegum ástæð-
um. Breytingin hefði ekki gengið
upp nema að önnur blöð sem gefín
eru út af Bonnier-forlaginu í Sví-
þjóð, aðallega Expressen og Syd-
svenskan, yrðu einnig prentuð í
sama útgáfuformi.
Stærsta hindrunin sem Svenska
Dagbladet hefur þó þurft að yfír-
stíga í þessu sambandi hefur snúið
að auglýsingahliðinni. Auglýsendur
hafa margir lýst sig óviljuga til að
greiða jafnmikið fyrir heilsíðu-
auglýsingu í smærra útgáfuforminu.
„Við teljum þó að ekki sé hætta á
því að verulegt brottfall verði á
auglýsingum. Heilsíðuauglýsing hef-
ur alveg jafnmikil áhrif í „tabloid"-
formi eins og í breiðblaðsformi,“
segir Gunnar Strömblad.
„Við höfum ekki gert neina út-
reikninga á því, við hve mikilli fjölg-
un lesenda við getum búizt við
breytinguna. En auðvitað reiknum
við með því að upplagið vaxi,“ segir
Olkinuora aðalritstjóri.
Jákvæð viðbrögð
„Þegar við breyttum prentformi
viðskiptafréttahluta blaðsins fyrir
hálfu ári voru viðbrögð lesenda mjög
jákvæð. Jafnvel fólk sem aldrei áður
hafði eytt mörgum mínútum í lestur
viðskiptafréttanna sést nú niður-
sokkið í viðskiptafréttahlutann í
strætisvagninum á leið í vinnu,“ segi
jVENSKA DAGBLÁDET
Olkinuora í opnu bréfi til lesenda í
gær. I bréfinu segir ritstjórinn það
kröfu „hins hreyfanlega nútíma-
manns“ að útgáfuformið verði hand-
hægara. SvD leitaði álits ritstjóra
annarra sænskra dagblaða og valin-
kunnra sérfræðinga í útgáfumálum
á breytingaráformunum.
Flestir lýstu áformin skynsamleg,
en Joachim Berner, ritstjóri aðal-
samkeppnisblaðsins Dagens Nyhet-
er, sagði: „Það verða anzi mörg æsi-
fréttablöð í Stokkhólmi.“
Ostankino-turninn
endurbyggður
Moskvu. AP.
OSTANKINO-sjónvarpsturninn í
Moskvu er nógu stöðugur til þess
að hægt sé að gera við þær
skemmdir sem urðu á honum er
eldur logaði í honum í 26 klukku-
stundir. Þrír létust í brunanum.
Yfirmaður embættis bygginga-
meistara ríkisins í Rússlandi sagði
að 25% þeirra 149 stálkapla sem
halda saman hlutum tumsins hafi
eyðilagst í eldinum. Turninn er
alls 540 metra hár. En eftir
tveggja daga rannsókn á vegum
sérfræðinga hafi niðurstaðan orð-
ið sú, að hægt sé að koma turnin-
um aftur í fyrra horf.
Slökkviðliðsstjóri Moskvuborg-
ar sagði í gær að menn sínir hefðu
þurft að bíða í þrjár klukkustund-
ir áður en þeir fengu leyfi til að
skrúfa fyrir rafmagnsstraum til
turnsins. Hafi þurft að fara upp
mörg þrep í valdastiganum áður
en skipun um að skrúfa fyrir kom
beint frá Vladímír Pútín forseta.
Segir slökkviðliðsstjórinn að ef
skrúfað hefði verið fyrir fyrr hefði
líklega tekist að hemja eldinn.
Besta
Húsasmiðju
verðið
Matar- og kaffistell fyrir fjóra
Skráðu þig é)
í vefklúbbinn
www.husa.is
ftj
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.huH.is