Morgunblaðið - 31.08.2000, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Arndís Jóhannsdóttir hannaði þessa
svokölluðu dropatösku.
Hún er unnin úr fiskiroði.
Þetta er lampi eftir Margréti Guðnadótt-
ur. Hann minnir á fannhvítan jökultind.
Fyrirlestur
Margrétar
Adolfsdótt-
ur textíl-
hönnuðar
MARGRÉT Adolfsdóttir textil-
hönnuður heldur fyrirlestur um
störf sín í Tjarnarsal ráðhúss
Reykjavíkur í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 20.30.
Margrét hefur ásamt manni
sínum, Leo Santos-Shaw, sérhæft
sig í leyserskurði efna. Þau hafa
tekið þátt í fjölda sýninga á und-
anfórnum árum og hlotið marg-
víslegar viðurkenningar fyrir
störf sín, m.a. verið valin tii
kynningar í „The International
Design Year Book 2000“ og
„Design For the 21st Century“.
bendir á hlutina sem verða á sýn-
ingunni til útskýringar. Þar er að
finna leikföng, skartgripi, fatnað,
töskur, lampa, sjöl, blómavasa og
margt fleira sem augljóslega telst
til nytjalistar. „Við reynum að
sýna það besta í ýmsum greinum,
s.s í skartgripagerð, leður- og
roðvinnu, leirgerð, glervinnu, tré
og textíl."
Birna bendir á að hér á landi sé
mikið af hæfileikaríku fólki sem
ætti að gera meira af því að fram-
leiða nytjahluti. „Þessir einstakl-
ingar hafa ekki fengið tækifæri til
að blómstra og því teljum við
nauðsynlegt að gera þeim hærra
undir höfði en verið hefur. Með
sýningunni viljum við kynna ís-
lenska hönnun styrkja
gæðameðvitund og stuðla
að nýsköpun innan hand-
verksgreinarinnar."
Samtvinna hönnun,
hugvit og handverk
Verkefnið Handverk og
hönnun hefur frá 1994
verið rekið með fjárhags-
legum stuðningi frá for-
sætisráðuneyti. Frá 1998
hefur það síðan verið rek-
ið sameiginlega af forsæt-
isráðuneyti, félagsmála-
ráðuneyti og Framleiðni-
sjóði landbúnaðarins og
þessir aðilar skipa stjórn
verkefnisins. Fjárveiting-
in er til ársloka 2002 og
þá verður verkefnið end-
urmetið. Sunneva bendir
á að markmið þess séu
m.a. að stuðla að eflingu
handverks. „Með því að
halda sýningu af þessu
tagi komum við verkum
þessa hæfileikafólks á
framfæri," segir hún og
Birna bætir við: „Ef ein-
staklingar þurfa sjálfir að
sjá um skipulagningu og
kynningu getur það
komið niður á vinnunni.
Við viljum að fólk hafi
tíma og orku til að ein-
beita sér að listsköpun.
Það er einnig kominn
tími til að hampa þeim
sem vinna að nytjalist og
því var þremur hönnuð-
um veitt verðlaun frá
hundrað þúsund krónum
upp í þrjú hundruð þús-
und krónur."
Handverksmennirnir
sem taka þátt í sýning-
unni hafa ekki allir hlot-
ið listmenntun og bendir
Sunneva á að það sé síð-
ur en svo skilyrði fyrir
þátttöku. „Hér skiptir
hluturinn sjálfur máli en
ekki bakgrunnur lista-
mannsins. Dómnefndin
metur hvernig til hefur
tekist við að samtvinna
hönnun, hugvit og gott
handverk," segir hún.
Flestir sýnendur eiga fleiri en
eitt verk á sýningunni og segir
Birna að sumir hafi skilað inn allt
að þremur hugmyndum.
Fyrirlestur um handverk
Þema sýningarinnar er vatn og
hafa sýnendur hannað munina með
það fyrir augum. Þeir meðhöndla
viðfangsefnið með ákaflega ólíkum
hætti og gefur það sýningunni
mikla breidd. I verkum þeirra má
til dæmis má sjá vísun í jökla,
dropa, brot úr ísjaka, hringiðu,
speglunaráhrif vatns og margt
fleira.
I tengslum við sýninguna verður
fyrirlestur 31. ágúst í Tjarnarsal
sem höfða á til handverks- og
listiðnaðarfólks sem og annarra
áhugamanna. Þar mun Margrét
Adolfsdóttir fjalla um störf sín í
Bretlandi en hún á jafnframt
nokkur textílverk á sýningunni.
„Það verður kjörið tækifæri fyrir
íslenska list- og handverksmenn að
hlusta á hana miðla reynslu sinni
bæði um vinnsluaðferðir og hvern-
ig sé hægt að lifa af þessari iðn.“
Þær stöllur binda miklar vonir
við starfsemi Handverks og hönn-
unar í nýju húsnæði sem er í Aðal-
stræti 12, sem flestir þekkja sem
gamla Isafoldarhúsið. Sunneva
segir að það verði bæði notað sem
skrifstofuhúsnæði og sýningarsal-
ur. „Við ætlum að halda hér að
minnsta kosti þrjár sýningar á ári
til að koma fólki á framfæri. Jafn-
framt verður alltaf hægt að skoða
hér fallegt handverk og listiðnað."
Sýningin Nytjalist úr náttúrunni
stendur til 24. september í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Hún er opin alla
daga frá klukkan 12-18 og aðgang-
ur er ókeypis. Sýningin er hluti af
dagskrá Reykjavíkur - menningar-
borgar Evrópu árið 2000. Nánari
upplýsingar um aðrar sýningar á
vegum Handverks og hönnunar
verður að finna á heimsíðunni
www.handverkoghonnun.is, sem
opnar í september.
Morgunblaðio/Arni Sæberg
Sunneva Hafsteinsdóttir og Birna Kristjánsdóttir í Austurstræti 12.
Nytjalist úr
náttúrunni
Handverk og hönnun
hefur umsjón með sýn-
ingunni „Nytjalist úr
náttúrunni“ sem nú
stendur í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Þar er að
fínna fjölbreytilega
nytjahluti eftir 25 ís-
lenska handverks- og
listiðnaðarmenn og
hlutu þrír þeirra verð-
laun við opnunina. Ey-
rún Baldursdóttir
ræddi við Sunnevu Haf-
steinsdóttur og Birnu
Kristjánsdóttur og
skoðaði munina.
ÞEGAR blaðamaður kom
að máli við þær Sunnevu
Hafsteinsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Hand-
verks og hönnunar, og Birnu
Kristjánsdóttur, formann stjórnar
verkefnisins, voru þær að taka
sýningarmunina upp úr kössum í
Aðalstræti 12, nýjum húsakynnum
Handverks og hönnunar.
Tuttugu og fimm einstaklingar
hönnuðu muni fyrir sýninguna og
voru hugmyndir þeirra valdar úr
hópi fleiri umsókna. Þema sýning-
arinnár er vatn og má á henni sjá
mörg ólík tilbrigði við það við-
fangsefni.
Nytjalistin hefur ekki
fengið að blómstra
En hvað felst í orðinu nytjalist?
„Það er reyndar mjög vítt hug-
tak,“ svarar Sunneva. „Það er
hönnun sem er til þess fallin að
nota, hvort sem þú berð hlutinn á
þér eða hefur inni hjá þér.“ Hún
Þessi hlutur eftir Helgu Kristínu Unnarsdóttur er bæði
blómavasi og skál í senn.
Verðlaun
VEITT voru þrenn verðlaun við
opnun sýningarinnar Nytjalist úr
náttúrunni. Þau hlutu eftir-
farandi einstaklingar:
A) Besta hönnun á nytjahlut,
Helga Kristín Unnarsdóttir , „í
klakaböndum", tvöföld skál, kr.
300.000.
B) Besta hugmynd, Philippe
Ricart, „Vatnsberar“ úr flóka, kr.
200.000.
C) Áhugaverðustu efnistökin,
Georg Hollanders, „Vatnskass-
inn“, gullastokkur úr rekaviði,
kr. 100.000.
Þeir sem sýna eru:
Anna Sigríður Hróðmarsdóttir,
Arndís Jóhannsdóttir, Bergþóra
Guðnadóttir, Brita Kristina Berg-
Iund, Brynja Baldursdóttir, Dýr-
finna Torfadóttir, Elísabet Ás-
berg, Georg Hollanders,
Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir, Guð-
rún Indriðadóttir, Helga Kristín
Unnarsdóttir, Hrönn Vilhelms-
dóttir, Jónas Bragi Jónasson,
Lára Gunnarsdóttir, Ólöf Matt-
híasdóttir, Lydia Jósafatsdóttir,
Margrét Adolfsdóttir og Leo San-
tos-Shaw, Margrét Guðnadóttir,
Margrét Jónsdóttir, Philippe
Ricart, Pia Rakel Sverrisdóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Signý Ormarsdóttir, Sigríður
Anna Sigurðardóttir, Þorbjörg
Valdimarsdóttir.