Morgunblaðið - 31.08.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Ráðstefna um miðlun
þekkingar á miðöldum
STOFNUN Sigurðar Nordals
gengst fyrir alþjóðlegri ráðstefnu
um miðlun þekkingar í hinum ensku-
mælandi heimi á landafundum nor-
rænna manna á miðöklum, vestur-
förunum og landnámi Islendinga í
Ameríku. Ráðstefnan hefst í Þjóð-
menningarhúsinu við Hverfisgötu á
morgun, fimmtudag, kl. 9 og verður
fram haldið í Norræna húsinu 1.-2.
september. Viðfangsefni ráðstefn-
unnar verða: a) fræðsla í skólum og á
Netinu; b) safnasýningar; c) þýðing-
ar á fombókmenntum; d) skáldskap-
ur um landafundi og vesturferðir; e)
ljósmyndir frá Islendingabyggðum
og kvikmyndir um landafundi og
vesturferðir.
Farið á söguslóðir
Fyrirlesarar verða: Anna H. Yat-
es, Böðvar Guðmundsson, Carin
Omling, Daisy Neijmann, David
Arnason, Elisabeth Ward, Gísli Sig-
urðsson, Guðjón Arngrímsson, Guð-
mundur Ingólfsson, Gunnar Karls-
son, Haraldur Bessason, Hjörleifur
Stefánsson, Inga Huld Hákonardótt-
ir, Joan Clark, Joel Berglund, John
Tucker, Jóhanna Karlsdóttir, Jón
Egill Bergþórsson, Jónas Kristjáns-
son, Judith Jesch, Kári Schram,
Keneva Kunz, Rafn Rafnsson, Rögn-
valdur Guðmundsson, Sigrid John-
son, Sigurjón Jóhannsson, Valgeir
Þorvaldsson og Ömólfur Thorsson.
Leikhúsið 10 fingur sýnir Leif the
Lucky one eftir Helgu Amalds í leik-
stjórn Þórhalls Sigurðssonar.
Þátttakendum gefst kostur á að
skoða sýningu um landafundina, sem
nú stendur yfir í Þjóðmenningarhús-
inu, og taka þátt í ferðalagi um sögu-
slóðir í Dölum 3. september.
Ráðstefnan er styrkt af Landa-
fundanefnd.
Heimasíð ráðstefnunnar er http://
www.nordals.hi.is.
Ljóðaverðlaun og borg-
fírsk menningarverðlaun
LJÓÐAVERÐLAUN Guðmundai-
Böðvarssonar og borgfirsk menning-
arverðlaun verða veitt í þriðja sinn í
Logalandi í Reykholtsdal á morgun,
föstudag. Það er minningarsjóður
Guðmundar Böðvarssonar, skálds og
bónda á Kirkjubóli, og Ingibjargar
Sigurðardóttur, konu hans, sem
verðlaunin veitir, en að honum
standa erfíngjar, Rithöfundasam-
band Islands, Ungmennasamband
Borgarfjarðar, Samband borgfirskra
kvenna og Búnaðarsamband Borgar-
fjarðar. Aður hafa hlotið ljóðaverð-
laun Guðmundar Böðvarssonar ljóð-
skáldin Hannes Sigfússon og Þuríður
Guðmundsdóttir. Borgfirsk menn-
ingarverðlaun hafa áður hlotið Ari
Gíslason, fyrir störf að borgfu-skum
fræðum, Bjarni Backmann, fyrir
störf að borgfirskum safnamálum, og
Orgelkaupasjóður Reykholtskirkju,
sem var stofnaður til að kaupa og
setja upp í nýju kirkjunni í Reykholti
orgelið sem áður var í Dómkirkjunni
í Reykjavík.
A samkomunni verður m.a. lesið úr
verkum Guðmundar Böðvarssonar
og nýr verðlaunahafi mun lesa úr eig-
in verkum. Samkoman hefst kl. 20.
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 35
Jivöld
//
• . • • • •
Sigurður B.
Stefánsson
Hlutabréfarabb
Kvöldkaffi meðVÍB og Súfistanum bókakaffi í Máli og menningu, Laugavegi 18.
[ kvöld: 31. ágúst kl. 20:30 - 21:30
Heimslistinn - dæmi um 15 farsæl fyrirtæki
fyrir hagsýna fjárfesta.
Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri VÍB.
VlB
Sjáumstl
VÍB er hluti af Íslandsbanka-FBA hf.
Kirkjusandi • Sími 560-8900 • www.vib.is • vib@vib.is
AUGLYSINGADEILD
Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110
Netfang: augl@mbl.is
vfymbl.is
-SU-LTAf= eiTTH\SAÐ NÝTT~
Fornkort og
gamlar
ljósmyndir
SÝNINGIN „Vörðuð leið“ þar sem
sýnd eru fornkort og gamlar ljós-
myndir í eigu Landmælinga Islands
verður opnuð á morgun, föstudag, í
Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi.
Um er að ræða 50 kort frá árunum
1547-1901 og ljósmyndir sem dansk-
ir landmælingamenn tóku hér á landi
á ferðum sínum á tímabilinu 1900-
1910. Myndirnar voru teknar víða
um landið og eru merkar heimildir
um mannlíf og aðstæður til sjávar og
sveita á þeim tíma. Jafnframt eru á
sýningunni nokkur myndverk byggð
á loftmyndum.
Sýningin er haldin í tengslum við
menningarárið á Akranesi, í tilefni af
því að á þessu ári eru hundrað ár lið-
in frá þeim tímamótum sem mörk-
uðu upphafið að starfsemi Landmæl-
inga íslands. Um þessar mundir er í
byggingu nýtt safnahús við Byggða-
safnið að Görðum á Akranesi sem
mun hýsa þrjú sérsöfn, þar á meðal
verður safn muna og gagna úr starf-
semi stofnunarinnar.
Stór hluti þess efnis sem er á sýn-
ingunni „Vörðuð leið“ mun verða
hluti af hinu nýja safni.
Sýningin stendur yfir á tímabilinu
1.-17. september og er opin frá kl.
15-18 alla daga nema mánudaga.
--------------------
Irena Zvirblis
sýnir í Listhúsinu
IRENA Zvirblis opnai' mynd-
listarsýningu í Gallerí Listhússins
Laugardal á morgun, föstudag. Sýn-
ingin ber heitið „Lijepi Pejsazi". Hún
hafði tekið þátt í fimmtán samsýning-
um og haldið sjö einkasýningar áður
en hún kom til Islands. Hér á landi
hefur hún haldið fimm einkasýningar
á Höfn í Homafirði og í Reykjavík.
Sýningin stendur til 1. október. og
er opin alla daga nema sunnudaga frá
kl.9-22.
Innköllun hlutabréfa í Húsasmiðjunni hf.
Stjóm Húsasmiðjunnar hf. kt. 520171-0299, Súðarvogi 3-5,104 Reykjavík, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga um
hlutafélög, nr. 2/1995, hefúr það tekið ákvörðun um að hlutabréf í félaginu verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Verðbréfaskráningar
íslands hf. Rafræn skráning tekur gildi þann 4. desember 2000 kl. 9.00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast áþreifanleg hlutabréf í félaginu
í samræmi við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga
nr. 32/2000, um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignarskráningar á verðbréfum og reglugerð nr. 397/2000, um
rafræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Nánar tilgreint verða öll eftirfarandi hlutabréf Húsasmiðjunnar hf. tekin til rafrænnar skráningar. Bréfin eru öll í einum flokki,
auðkennd nr. 1-15 og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er ekki getið á bréfunum.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkum vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í
hlutaskrá Húsasmiðjunnar hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspum til hluthafaskrár Húsasmiðjunnar hf. að Súðarvogi 3-5, 104
Reykjavík. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu
innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar.
Ennfremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi í ofangreindum hlutabréfum, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri
við fullgilda reikningsstofnun, sbr. 10. gr. laga nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, innan þriggja mánaða frá síðari
birtingu innköllunar þessarar. Gæta skal þess að viðkomandi reikningsstofnun sem haft er samband við af þessu tilefni hafi gert
aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Islands hf.
Stjóm Húsasmiðjunnar hf. hefur ákveðið að eftir að innköllunarfrestur er liðinn og rafræn skráning á ofangreindum hlutabréfum hefur
átt sér stað í kerfi Verðbréfaskráningar íslands hf. skuli arðgreiðslur til hluthafa einungis fara fram í gegnum kerfi Verðbréfaskráningar
íslands hf, sbr. heimild í 4. tölul. 54. gr. reglugerðar nr. 397/2000.
Við rafræna útgáfu ofangreindra hlutabréfa er nafnverð hlutafjár Húsasmiðjunnar hf. kr. 280.702.640 og skiptist í jafn marga hluti
að fjárhæð 1 króna eða margfeldi þar af.
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands
hf. umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Hluthafar munu fá sendar tilkynningar og reikningsyfirlit í samræmi við ákvæði reglugerðar
nr. 397/2000.
...allt frá gmnrd að góðu heimili
HÚSASMIÐJAN
Sími 525-3000 • www.husa.is