Morgunblaðið - 31.08.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUÐAGUR-31-. ÁGÚST 2000- 49
r
I
um unglingsárum af því að hann bar
út Morgunblaðið. Og svo fór hann
eins nálægt því og hægt var að vita
deili á öllum bæjarbúum. Hann var
ungur ákveðinn í því að komast
áfram á eigin spýtur. Fyrst ók hann
sendibíl sem jafnframt vai- notaður
til fólksflutninga en brátt keypti
hann verslunina Brekku uppi á
Brekku. Það var upphafið að því
mikla ævintýri sem hófst með bygg-
ingu Kaupangs þegar loksins tókst
að rífa bæjarbúa frá kaupfélagsvald-
inu. Fram að þeim tíma höfðu það
verið óskráð lög að kaupfélagið
skyldi sitja fyrir öllum lóðum fyrir
matvöruverslanir í nýjum hverfum.
En nú tóku ungir kaupmenn og at-
hafnamenn sig saman og sóttu um
verslunarlóðina á Kaupangi og fengu
hana eftir mikið stríð í bæjarstjórn
þar sem pólarnir voru Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur. Þá
var ástandið þannig að engir máttu
selja mjólk nema kaupfélagið og ég
hygg að Kaupangur hafi verið íyrsta
matvöruverslun í eigu einstaklings
sem fékk slíkt leyfi í umboðssölu.
Það var að byrja að rofa til í nýjum
verslunarháttum og hlýtur nafn
Bjarna A. Bjamasonar að bera á
góma þegar sú saga er rakin á Akur-
eyri.
Síðar hætti Bjai'ni verslunar-
rekstri, en lagði fyrir sig eigna-
umsýslu og var með umboðssölu
heima hjá sér. Síðustu árin hefur
hann unnið að verslunarrekstri Pét-
urs sonar síns á Akureyri.
Það er sjónarsviptir að mönnum
eins og Bjarna A. Bjarnasyni.
Reynsluskóli lífsins var hans skóli
og þar fékk hann ágætiseinkunn, var
sístarfandi og fylgdist með öllu, lipur
og greiðvikinn. Hann var drengur
góður, ákveðinn í skoðunum og
fygldi sjálfstæðismönnum fast að
málum. I samvinnubænum Akureyri
bar hann uppi merki einstaklings-
framtaks og einstaklingsfrelsis og
átti þátt í að ryðja burt þeim girðing-
um hafta og hagsmunagæslu sem
lukust um rekstur samvinnuhreyf-
ingarinnar á Akureyri. Ekki með
niðurrifshugsunarhætti, heldur með
því að skapa samkeppnisumhverfi
þar sem tillitið til viðskiptavinarins
var sett £ öndvegi. Ég þakka honum
samfylgdina að leiðarlokum, góðan
stuðning og vináttu.
Bjami hitti á óskastundina þegar
þau Jóna Baldvinsdóttir ákváðu að
efna til hjúskapar. Þau eignuðust fal-
legt heimili og áttu barnaláni að
fagna, voru samhent og það var gott
að sækja þau heim.
Nú er þungur harmur kveðinn að
þér, Jóna, og fjölskyldunni allri.
Það er oft svo um öfluga menn og
svipríka að þeir kunna sér ekki hóf
og að síðustu verður þeirra erfiðasta
glíma við sjálfan sig. Bjami gekk
ekki heill til skógar en minningin um
hann er hrein og tær. Líf hans fékk
snöggan endi. Guð sé með honum og
Guð sé með ykkur öllum.
Halidór Blöndal.
Mig langar að skrifa nokkur orð til
minningar um þann mæta mann
Bjarna Bjamason. Bjami var maður
sem ég bar mikla virðingu fyrir og
þótti ákaflega vænt um.
Fyrstu kynni mín af honum vora
þegar hann rak verslunina Brekku á
Byggðaveginum. Þegar ég var 11
eða 12 ára gömul, kom ég þar við og
sótti um vinnu. Eitthvað hlýtur hann
að hafa séð í mér því að ég fékk vinn-
una, þrátt fyrir ungan aldur.
Það var alltaf gaman að vinna hjá
Bjarna. Hann var bæði hress og
skemmtilegur en jafnframt kröfu-
harður og það var gott uppeldi fyrir
„stelpukjána" eins og mig. Enda
sagði hann seinna meir að hann hefði
alið mig upp til jafns við foreldra
mína og ég held að hann hafi bara
verið nokkuð stoltur af uppeldinu!
Bjarni var mikill vinnuþjarkur og
jafnframt stórhuga. Hann byggði
glæsilega matvöraverslun í Kaup-
angi og ég fylgdi með þangað. Þar
vann ég í eitt og hálft ár, eða þar til
ég fór burt í skóla. I nýju versluninni
var vinnugleðin í fyrirrúmi - mikil
vinna en alltaf skemmtilegt. Þar
unnu: Jóna, eiginkona hans, Sigrún
systir hans, öll börnin hans og mikið
af öðra góðu fólki.
Þegar ég hugsa til baka er það efst
í minningunni hvað Bjarni var alltaf
góður við mig og hvað hann sýndi
mér mikið traust, bæði í Brekku og
Kjörbúðinni. Alltaf hló hann jafn-
mikið þegar ég kom með uppgjör
fyrra dags í brúna bréfpokanum þar
sem allir seðlarnir vora vel pressaðir
- en ég svaf alltaf með pokann undir
koddanum!
Það var ótal margt sem Bjarni
gerði fyrir mig, sem kannski enginn
veit um! Mig langar að segja frá einu
atriði. Ég var nýbúin að fá bílpróf og
langaði í bfl. Það fyrsta sem mér datt
í hug var að tala við Bjarna. Ég fór til
hans og sagði: „Heyrðu Bjarni, getur
þú kannski lánað mér 100.000 kall!“ -
sem voru allmiklir peningar í þá
daga. Hann svaraði: „Ja, hvenær
þarftu peningana Stína mín?“ „Það
væri fínt á morgun," svaraði ég. Það
kom nú svolítið á hann, en auðvitað
fékk ég peninginn daginn eftir og
mér „stelpukjánanum" fannst það al-
veg sjálfsagt! Ég veit ekki hvernig
hann reddaði þessu og hugsaði aldrei
um það. Síðan var dregið af launun-
um £ áföngum og eitt er vist að það
vora engir vextir teknir af þessu láni.
Það er hægt að segja frá ótal mörg-
um atriðum sem of langt yrði að telja
upp hér. Þau verða áfram til £ minn-
ingunni og munu ylja i framtiðinni.
Ég trúi því að núna líði honum
Bjarna mínum vel og fylgist bros-
andi með öllu og öllum. Elsku hjart-
SIGURBJÖRN
FANNDAL
ÞOR VALDSSON
+ Sigurbjörn
Fanndal Þor-
valdsson fæddist á
Blönduósi 5. október
1969. Hann lést í
Reykjavík 13. ágúst
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Víðistaðakirkju 22.
ágúst.
Elsku Bjössi frændi,
það er með miklum
söknuði sem ég kveð
þig, í bili því ég veit að
við hittumst aftur. Við
ræddum ekki mikið um
trúmál, en mér heyrðist á þér í sið-
asta skipti sem við töluðum saman að
þú sért því ekki mótfallinn því að það
sé líf hinum meginn.
Veist þú að þú ert mér fyrirmynd
um hugrekki, kjark og þor? Þótt þú
værir veikur varstu glaðlyndur og
kátur tilbúinn að rétta öðram hjálp-
arhönd ef þess þurfti.Þú hafðir þann
hæfileika að fólki varð mun léttara
um hjartaræturnar eft-
ir að hafa hitt þig.
Kærleikurinn sem
þú sýndir Ásu og fjöl-
skyldu þinni sýndi best
hvaða persónu þú hafð-
ir að geyma.
Elsku Ása, Ema
systir.Valdi, Haddý og
Jonni. Ég votta ykkur
innilega samúð mína og
bið Guð að blessa minn-
ingu um góðan dreng.
Þín frænka,
Dóra, Selfossi.
Þegar þú varst sex ára hittumst
við, urðum strax vinir, allt til loka.
Minningamar sækja á mig bæði
súrar og sætar, góðar og slæmar, við
upplifðum jú svo margt saman, að
ætla að taka einhverja eina eða tvær
er ekki einfalt, en eitt er víst að í
huga mínum eru þær allar prentaðar
og vel geymdar, en teknar fram
reglulega, ekki er ég í vafa um að það
ans Jóna mín og fjölskylda. Ég er
sannfærð um að’það verður vakað yf-
ir ykkur á þessu erfiða tímabili. Ég
kveð að sinni, með virðingu og þakk-
læti, Bjarna Bjarnason.
Kristín Sigvaldadóttir.
Þá er hann Bjarni Mogga farinn.
Hver man ekki eftir Bjarna á Eyr-
inni? Hver man ekki eftir þessum
hressa og fjörlega dreng, sem vildi
öllum vel? Það var gott að eiga hann
sem mjög góðan félaga, eftir að hann
kom á Eyrina. Vitið þið að taskan
sem Mogginn var í var alltaf svo
þung? Munið eftir kæknum sem
hann hafði, lyfti upp hægri öxlinni og
sneri höfðinu. Bjarna féll aldrei verk
úr hendi, hann var alltaf sístarfandi.
Ég hef frá svo mörgu að segja, að
það væri efni í heila bók - kannski
tvær.
Alltaf komstu austur að Skógum
eftir að við Böggý keyptum þar jörð
og dvöldum þar á sumrin. Þar naustu
þín vel í beinum tengslum við náttúr-
una, þar fannstu frið og endurnærð-
ist. Við ætluðum austur í sumar, en
það varð ekkert af þvi. Ég var með
þér um verslunarmannahelgina og
ég veit að þá varstu orðinn lasinn.
Við fóram saman út á golfvöll og ég
hvatti þig til að fara að slá bolta, en
þú treystir þér ekki í það og þá sá ég
hvað veikindi þín höfðu tekið mikinn
toll. Daginn eftir fóram við í bíltúr,
við komum við í Nesti og þú keyptir
þér tvo pakka af vindlum. Á eftir fór-
um við niður að Bót og settumst á
stein og þar reykti ég með þér vindil,
jafnvel þó að ég sé hættur að reykja.
Og ég hlustaði á þig.
Núna þegar þú ert farinn hugsa
ég um margt af því sem við ræddum
um þar. Ég held að það sé gott að
hvflast, þegar menn era yfir sig
þreyttir.
Elsku Jóna, Nonni, Immý, Pétur
og Lilja. Við Böggý biðjum algóðan
Guð að gefa ykkur styrk í sorg ykk-
ar. Minning Bjama Bjamasonar
mun lifa.
Hinrik Lárusson.
Sjö unglingsstúlkur, prinsessan
og vinkonurnar, era samankomnar á
heimili Bjama og Jónu. í miðri viku,
um helgi, að nóttu og degi, í eitt ár,
tvö, þijú, tíu ár...
Og enn líða árin, orðin hartnær
tuttugu. Alltaf stendur heimili þeirra
okkur opið, hvort heldur í gráum
hversdagsleikanum eða yfir helgar
hátíðir. Fyrir það þökkum við
Bjama. Og fyrir allt hitt líka. Hvíl í
friði, elsku Bjarni.
Elsku Jóna, Lilja, Immý, Pési,
Nonni og fjölskyldur, megi guð og
góðar vættir fylgja ykkur.
Inga, Ása, Anna Hildur,
Maria, Sigrún (Systa) og
Kristrún (Strúila).
verði oft því að ekki þarf annað en
eitt lag eða smámúsík, þá ertu kom-
inn í huga mér Ijóslifandi.
„Vertu þú sjálfur" er sungið á
plötu sem við hlustuðum svo oft á og
það minnir mig óneitanlega á einn af
þínum stóra kostum nefnilega að
vera maður sjálfur, vera hreinskilinn
nánast hvass oft á tíðum ekki vora
allir sem þoldu þig fyrir vikið en þar
kom enn einn af þínum kostum fram
nefnilega að halda áfram að vera þú
sjálfur segja eins og þér fannst og
standa við það að koma til dyranna
eins og þú varst klæddur.
Það er óhætt að segja að þín sé
saknað, en þangað til leiðir okkar
liggja saman aftur, bara seinna, þá
er gott að vita að maður á góðan vin
hvert sem maður fer, Kæri vinur,
partur af mér dó með þér, vinátta
sem okkar á sér marga líka en fyrir
mér var hún einstök, stórkostleg.
Oft er spurt hvers vegna fólk er
tekið burt í blóma lífsins, og oft er
svarað að þeirra sé meiri þörf annars
staðar en á henni jörð.
Eitt er víst að verkið er brýnt, þar
sem kallað er á mann sem þig.
Bjössi, takk fyrir að ég fékk að
vera vinur þinn.
Elsku Ása, Valdi, Erna, Haddý og
Jonni, Guð gefi ykkur styrk i sorg-
inni
Kveðja,
Þórarinn.
GUÐNIÞORARINN
GUÐMUNDSSON
+ Guðni Þórarinn
Guðmundsson
fæddist í Vestmanna-
eyjum 6. október
1948. Hann varð
bráðkvaddur á heim-
ili sínu 13. ágúst síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Bú-
staðakirkju 22.
ágúst.
Mér var líkt farið og
Njáli forðum, að ég
þurfti að heyra það
þónokkram sinnum,
áður en ég trúði því al-
mennilega, að Guðni væri farinn á
vit feðra sinna. Þessi atorkumikli
maður.
Ég kynntist honum á áranum
1986-89, þegar ég sótti messur í
Bústaðakirkju. Áhugi minn á tónlist
varð til þess að kynni okkar hófust,
auk þess sem hann spurði það, að
ég hefði verið að dunda mér við að
setja saman lög, sem honum lék for-
vitni á að sjá og langaði að flytja í
messum í kirkjunni, og minnist ég
margra góðra stunda með honum
við rafmagnsorgelið í æfingaher-
bergi kórsins i kirkjunni, þar sem
ég lék fyrir hann lögin mín, áður en
hann fór i að útsetja þau.
Hvenær svo sem ég þurfti á þvi
að halda, þá var Guðni blessaður
alltaf boðinn og búinn að veita mér
aðstoð. Það fór heldur enginn bón-
leiður til búðar, þar sem Guðni var
annars vegar. Alltaf jafn ljúfur,
elskulegur, hjartahlýr og indæll,
hvenær sem við hitt-
umst, og ég man aldrei
eftir ;því að hafa
nokkra sinni hitt hann
í vondu skapi, hversu
mikið sem hann hafði
að gera. Hann var ein-
faldlega ekki þannig
gerður að geta neitað
neinum um neitt.
Það kom fyrir að við
hittumst, eftir að ég
hætti að sækja Bú-
staðakirkju, m.a.
nokkrum sinnum á'
orgelhátíðum í Hall-
grímskirkju, og a.m.k.
einu sinni í Dómkirkjunni. Þá urðu
jafnan fagnaðarfundir.
Ég hafði samt ekki séð hann í
lengri tíma, þegar ég hitti hann í
vor við jarðarför, sem ég þurfti að
sækja. Áð það yrði í allra síðasta
sinn, sem ég ætti eftir að sjá bless-
aðan vininn og tala við hann á þess-
ari jörð, hafði ég ekki hugmynd um.
Þó fannst mér hann eitthvað lasleg-
ur og þreytulegur að sjá án þess að
ætla, að dagar hans yrðu taldir nú
að áliðnu sumri, enda of ungur til
þess.
Ég kveð hann nú að leiðarlokum
með þakklátum huga fyrir sína«í
góðu og traustu vináttu og allar fal-
legu útsetningarnar sinar og flutn-
inginn á þeim. Guð blessi minningu
hans og varðveiti hann, þar sem
hann er nú, og veri með konu hans
og sonum, sem hafa misst svo mik-
ið, og ég votta mína dýpstu samúð.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
EMIL
HALLFREÐSSON '
+ Emil Hallfreðs-
son var fæddur á
Bakka í Geiradal 12.
júní 1916. Hann lést
14. ágúst síðastliðinn
og fór útför hans
fram í kyrrþey.
Það var að vori til að
okkur hjónin langaði að
létta á heimilishaldinu,
komin með þrjú böm
og mikil vinna við að
halda heimilinu gang-
andi. Við sáum auglýs-
ingu í blaði frá fólki
sem vildi taka bam í
sveit. Svo vildi til að góður vinur okk-
ar var náskyldur þessu fólki og sagði
okkur að betra fólk gætum við ekki
fundið, sem reyndist svo sannarlega
rétt. Við höfðum samband og fóram
með eldri drenginn vestur. Emil og
Gulla bjuggu þá á Bakka sem var
æskuheimili Emils. Þegar við kom-
um vestur og ég sá bæinn þá hugsaði
ég „Hvað er ég að gera?“ en skildi
samt drenginn eftir og sá ekki eftir
því. Hann bar svo með sér mislinga í
sveitina og smitaði að
ég held flesta. Emil og
Gulla byggðu sér svo
nýtt hús í landi Bakka,
Stekkjarholt. Síðan era
liðin mörg ár. Við eign-
uðumst þrjá drengi og
allir nutu þeir þess að
vera í faðmi Emils og
Gullu á meðan þeir voru
ungir. Það gerðist svo
margt á þessum áram
að það væri efni í heila
bók, svo ég ætla ekki að
hafa þetta lengra en allt
er það geymt og gleym- jc
ist aldrei.
Emil var ekki margmáll en hann
var traustur og góður vinur. Hann
var Ijúflingur.
Kæri Emil, þakka þér fyrir allt og
ég veit að Guð er með okkur og vakir
yfir og allt um kring.
Kæra Gulla og fjölskylda. Innfleg-
ar samúðarkveðjur sendum við ykk-
ur öllum. Blessuð sé minning Emils.
Kristín, Ólafur Sigurðsson,
Sigurður Ásgeir, HaUdór
Gunnar og Ólafur Kristinn.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fyígi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða^-
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sfn en ekki stuttnefni undir greinunum.
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
rnL
Prestur
Kistuiagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.