Morgunblaðið - 31.08.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 31.08.2000, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Um aðalfund NAUST í Snæfellsskála MÉR barst til eyma fimmtudaginn 24. ágúst sl. að nokkrir fé- lagar mínir hér á Reyð- arfirði ætluðu sér að ganga í Náttúruvernd- arsamtök Austurlands, NAUST. Ég ákvað að ganga í samtökin og slóst því í för með þeim upp í Snæfellsskála þar sem aðalfundur NAUST skyldi haldinn sunnu- daginn 27. águst. I stuttu máli var fjórum af tíu tillögum GunnarTh. stjórnar hafnað á þess- Gunnarsson um aðalfundi. Hinar voru samþykktar samhljóða. Auk þess voru 6 nýjar tUlögur samþykkt- ar. Viðbrögð stjórnarmanna NAUST hafa verið athyglisverð í kjölfar þessarar uppákomu, svo og aðal málpípna samtakanna á opinberum vettvangi. í ræðum þingmanna vinstri grænna, Þuríðar Bachmann og Hjörleifs Guttormssonar vara- þingmanns, á fundinum í Snæfells- skála kom fram að þau teldu að hinir nýju félagar, sem gengu í samtökin fyrir þennan aðalfund, væru þar á „röngum forsendum" og að „vett- vangur þessara nýju félaga ætti að vera í samtökunum Afli fyrir Austur- land“. Þarna var skýringin komin á því, sem ég hafði heyrt á skotspónum, hvers vegna nokkrir „eldri“ félagar í samtökunum hafa verið hraktir í burtu úr þeim vegna þess að þeim sem pólitískar línur leggja í þessum Náttúrverndarsamtökum þóknast ekki að farið sé út af flokkslínunni. Allir sem hyggjast ganga í NAUST skulu gjöra svo vel að hafa þá pólitísku sýn á náttúr- una og auðlindir henn- ar sem v-grænir segja fyrir um og/eða aðrir öfgasinnar í náttúru- vernd. Einkennileg náttúruvemdarsamtök það! Einnig em afar at- hyglisverð ummæli for- manns NAUST, Höllu Eiríksdóttur, þar sem hún segir í fréttatíma Ríkisútvarpsins daginn eftir aðalfundinn, að þrátt fyrir að aðalfund- ur hafi samþykkt tillög- ur sem gangi þvert á stefnu og markmið félagsins, muni stjórnin starfa áfram að markmiðum sínum. Einnig sagði hún að hún teldi að hin- Náttúruvernd Ég vil að náttúru- verndarhugtakið fái á sig trúverðugan og vangi. Ég legg til að það komi heið- arlega fram við almenning í landinu, og ekki síst við sjálft sig, og stofni sérstök samtök fyrir markmið sín, t.d. And-virkjunarsamtökin, eða fari með baráttumál sín inn í einhvern stjórnmálaflokkinn og vinni að þeim þar, en láti vera að draga argaþras og dægurmál inn í jafngöfug samtök og náttúruverndarsamtök eru alla jafnan. Er það ekki umhugsunarvert að nokkrir tugir fólks í NAUST skuli hafa komið sér fyrir í skjóli samtak- anna til að pólitískar áróðursraddir þeirra heyrðust hærra, fengju þá umfjöllun í fjölmiðlum sem þau ann- ars aldrei fengju ef þessi 20-30 manna leshringur stofnaði samtök um hugðarefni sín? Ég er fæddur og uppalinn borgar- búi en hef búið á Reyðarfirði frá ár- inu 1989. Einn af mörgum kostum þess að búa á Reyðarfirði er nálægðin við náttúruna og víðemið, fugla og dýra- lífið, auk þess losna ég við ys og þys borgarlífsins, hraðann og flýtinn í hinu daglega lífi sem einkennir mannlífið gjarnan í borgum eins og Reykjavík. Ókostimir era fábreytni í atvinnulífinu, sem þó er með betra móti hér á Reyðarfirði en víða ann- arsstaðar í sambærilegum sjávar- plássum. En við stöðuga fólksfækkun fer gjarnan keðjuverkun af stað. Með færri íbúum verður æ erfiðara að halda úti þjónustu á ýmsum sviðum, fólkið sem veitir þjónustuna gefst upp og heldur á önnur mið, og svo koll af kolli. Ég vil gjarnan sjá fjölbreyttara at- vinnulíf á Austurlandi. Að rennt sé styrkum stoðum undir iðnað af hvers kyns tagi og ég tel að sú vítamín- sprauta sem byggðir á Mið-Austur- landi þurfi, sé að vatnsfallsauðlindir norðan Vatnajökuls séu nýttar á skynsamlegan hátt, en þó að sjálf- sögðu að undangengnu lögbundnu mati á umhverfisáhrifum. Innkoma okkar nokkurra Reyð- firðinga, auk annarra af svæði Mið- Austurlands í NAUST fyrir aðal- fundinn, var mér vitanlega ekki skipulögð á nokkurn hátt. Sá orðrómur kvisaðist út að ein- hverjir ætluðu að gera þetta og ég slóst í hópinn. Mér er fullljóst að inn- koma í félagið á þennan hátt, þ.e. að tilgangurinn sé að hafa áhrif á at- kvæðagreiðslu á aðalfundi, orkar tví- mælis, en ég vil með því vekja at- hygli á því að þarna fara fram pólitískir „sellufundir" í nafni frjálsra óháðra náttúraverndarsam- taka. Stríðshanskanum var fyrir löngu kastað af hálfu þessara úlfa í sauðagæram. Ég tel að hagsmunum almennings sé best borgið með heilbrigðum vinnubrögðum og hlutlausu og vís- indalegu mati á skynsamlegri nýt- ingu náttúraauðlindanna. Ég vil að náttúraverndarhugtakið fá á sig trúverðugan og heiðarlegan blæ á ný og ég vil ekki að fólk eins og Hjörleifur Guttormsson og Þuríður Bachmann komi óorði á hugtakið. Ég mæli eindregið með að núver- andi stjóm NAUST segi af sér með von um að til forystu fáist skynsamt og kreddulaust fólk sem setji mál- efnin og markmiðin ofar eigin póli- tíska hag. Að gefnu tilefni er ég ekki í félag- inu Afl fyrir Austurland, og ég vil ekki að á nokkurn hátt verði þessi tvenn frjálsu félagasamtök spyrt saman í umræðunni enda ekki nokk- ur ástæða til. Höfundur er garðyrkjufræðingur á Reyðarfirði. heiðarlegan blæ á ný, segir Gunnar Th. Gunnarsson, og ég vil ekki að fólk eins og Hjörleifur Guttormsson og Þuríður Bachmann komi óorði á hugtakið. * BRÚÐARGJAFIR *SÖFNUNARSTELL *GJAFAKORT ^erÍ ir nýju félagar yrðu ekki lengi í fé- laginu. (!!) Það er sérkennilegt að formaður NAUST skuli ekki þekkja þau lög sem henni qg samtökunum ber að starfa eftir. í 2. grein laganna, lið b, segir svo: „Að stuðla að því að nátt- úralegar auðlindir verði nytjaðar skynsamlega, landsmönnum til heilla í nútíð og framtíð." Ég óska hér með eftir því að formmaður NAUST sýni fram á hvernig sam- þykktir á nýafstöðnum aðalfundi brjóti í bága við markmið félagsins. Það er sorglegt til þess að vita að náttúravemdarsamtök á borð við NAUST, sem að öllu eðlilegu ættu að njóta virðingar og trausts almenn- ings, skulu vera „menguð“ af örfáum öfgasinnum og pólitískum harðlín- umönnum. Þetta fólk er að starfa að sínum hugðarefnum á röngum vett- Tapar Baugur á sölu mjólkurvara? JÓN Ásgeir Jóhann- esson, forstjóri Baugs, heldur því fram í Morg- unblaðinu 27. ágúst sl. að verslunin stórtapi á því að selja mjólkur- vörur því álagningin sé innan við 14%. Þessi fullyrðing gefur tilefni til að skoða viðskipti með mjólkurvörur að- eins nánar. Fyrst er rétt að benda á að smásölu- álagning mjólkurvara er frjáls og því Baugi í sjálfsvald sett hvað lagt er á hverja vöra- tegund. Sé álagning í verslunum Baugs skoðuð nánar kemur í ljós að algeng álagning á ferskvörar er væntanlega töluvert hærri en Jón lætur í veðri vaka, og ljóst að álagn- ing á osta og viðbit er á bilinu 15- 20%, sennilega nær 20% og álagning á ýmsa sérvöra allt að 40%. Að auki fá stærstu verslanir magnafslátt, þó annað megi ráða af ummælum Jóns Ásgeirs. Af framansögðu má ætla að meðalálagning mjólkurvara í versl- unum Baugs sé ekki fjarri meðal- Ari Teitsson álagningu verslunar- samsteypunnar, sem að sögn Jóns Ásgeirs var 21% árið 1999. í viðtali sínu nefnir Jón Ásgeir athygh- verðar samanburðar- tölur frá Noregi og þvi upplagt að skoða aðeins betur norskar álagn- ingartölur. í könnun sem norski mjólkuriðn- aðurinn (Tine) hefur látið gera, hefur komið í ljós að í verslunum með breitt vöruúrval (líkt og Hagkaup og Nýkaup), er meðal- álagning á drykkjarmjólk 11,4%, en í lágvöraverslunum (líkt og Bónus) er álagningin 6,7%. Álagningarhlutfall- ið er lágt vegna þess að þessar vörur era eftirsóknarverðar, með mikinn veltuhraða og seljast oft samdægurs, á meðan önnur vara, s.s. niðursuðu- vara, er marga daga í hillum versl- ananna. í dag era mjólkurvörur keyrðar í verslanir eftir óskum, jafnvel oft á dag. Mjólkuriðnaðurinn leggur til grindurnar sem neytandinn tekur Verslun Jón Ásgeir þarf, segir Ari Teitsson, að útskýra fyrir neytend- um þá fullyrðingu sína að verslanir Baugs stórtapi á því að selja mjólkurvörur. mjólkina úr og í fjölmörgum verslun- um era framstillingarkælar sem era í eigu mjólkuriðnaðarins. Af þessu má ætla að álagningarþörf á hverja selda einingu af mjólkurvöram sé veralega lægri en meðalálagningar- þörf, eins og verslunareigendur í Noregi hafa áttað sig á. í ljósi ofangreindra atriða, og ég minni enn á að smasöluálagningin er frjáls, þarf Jón Ásgeir að útskýra fyrir neytendum þá fullyrðingu sína að verslanir Baugs stórtapi á því að selja mjólkurvörur. Er vandi Jóns Ásgeirs ef til vill sá að hann þarf að skila kröfuhörðum eigendum arði af milljarða fjárfestingum, en hefur jafnframt á sama tíma lofað að lækka verð í verslunum Baugs? Höfundur er formaður Bændasamtaka íslands. Hálstöflur Mýkjandi fyrir hálsinn með ómótstæðilegu lakknsbragði Halstabletter med frisk lakridssmag 40 stk./24 g Prófaðu - fæst í apótekum Sólarhringssala á matvöru hjá Select hófst vorið 1997 UNDANFARNA daga hefur spunnist nokkur fjölmiðlaum- ræða um þá ákvörðun stjómenda verslunar- keðjunnar 10-11 að auka þjónustu við neyt- endur með því að hafa eina af verslunum keðj- unnar opna allan sólar- hringinn. Af umfjöllun fjölmiðla hefur mátt skilja að hér sé á ferð- inni talsverð frétt því nú geti íslenskir neytendur í fyrsta skipti nálgast matvöra í verslun sem er opin allan sólarhring- inn. Fréttin er hins veg- ar liðlega þriggja ára gömul, því frá því fyrsta Select-verslunin var opnuð vorið 1997 í Shellstöðinni á Vestur- landsvegi hafa næturhrafnar í höfuð- borginni getað keypt matvöru og aðr- ar heimilisvörur allan sólarhringinn. í dag er boðið upp á sólarhrings- afgreiðslu í fjórum af sex Select-verslunum á höfuðborgarsvæðinu en þær era auk verslunar- innar á Vesturlands- vegi, á Shellstöðinni á Bústaðavegi, í Suður: felli og í Smáranum. í öllum þessum verslun- um er hægt að kaupa matvöru og skyndibita hvort sem er á nóttu eða degi. Select-versl- anirnar á Birkimel og í Hraunbæ era hins veg- ar minni hverfisversl- anir þar sem opið er til kl 23:30 enn sem komið er. Þess má geta að Select-verslanirn- ar á íslandi era hannaðar að erlendri fyrirmynd og er langur afgreiðslutimi mikilvægur hluti í markaðssetningu á Select. I Select-verslununum er auk matvöraverslana lítið bakarí þar sem hægt er að fá nýbakað bakkelsi allan Matvara ✓ I Select-verslununum er auk matvöruverslana, segir Margrét Guðmundsdóttir, lítið bakarí þar sem hægt er að fá nýbakað bakkelsi allan sólarhringinn. sólarhringinn. Reynslan hefur sýnt að vaktavinnufólk og aðrir nætur- hrafnar kunna vel að meta þessa þjónustu sem hefur staðið þeim til boða í Selelct-verslunum Skeljungs hf. undanfarin þrjú ár. Höfundur er framkvæmdastjóri markaðssviðs smásölu hjá Skeljungi hf. Margrét Guðmundsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.