Morgunblaðið - 31.08.2000, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000 65
I DAG
BRIDS
Ilnisjón Guðmundur Páll
Arnarson
SVÍAR hafa alltaf verið
framarlega í kerflsþróun og
eru alls óhræddir við til-
raunastarfsemi við spila-
borðið.
Gulrótarlaufið hans Mor-
aths er löngu heimsþekkt,
en ein af lykilhugmyndum
þess er að opna á laufi með
sterk spil (17+ HP) eða 10-
12 punkta og jafna skipt-
ingu. Nýjasta vopn Svíanna
er töfratígullinn (Den Mag-
iska Diamanten), en í því
kerfi er opnað á tígli með
sterk spil (17+), en laufi
með allar 12-16 punkta
hendur. Aðrar opnanir eru í
kringum 10 punktana, frá 8-
11. Spilið hér að neðan kom
upp í sýningarleik Islend-
inga og Svía í Stokkhólmi
fyrr í þessum mánuði, sem
Islendingar unnu.
Norður + K ¥ G42 ♦ 752 + AKG1076
Vestur Austur
♦ 97642 +ÁG53
»975 ¥10863
♦ Á98 ♦ G1063
+52 +8 Suður +D108 ¥ÁKD ♦ KD4 +D943
í lokaða salnum spiluðu
Anton og Sigurbjörn Har-
aldssynir þrjú gi’önd í NS
og tóku 11 slagi: 460. Á hinu
borðinu opnaði norður á
sterkum töfratígli og það
teymdi þá félaga Gullberg
og Göthe framhjá þremur
gröndum upp í heldur verra
geim - fimm lauf. Magnús
Magnússon og Þröstur
Ingimarsson voru í AV:
Vestur Norður Austur Suður
Magnús Gullberg Þröstur Göthe
- - - ltígull
Pass 2 tíglar Pass 3 lauf
Pass Pass 4 lauf 51auf Pass Allirpass 4 hjörtu
Tígullinn er sterkur, sem
fyrr segir, en svar Gull-
bergs á tveimur tíglum sýn-
ir a.m.k. 8 punkta og lauf!
Göthe tekur undir laufið og
hækkun Gullbergs í fjögur
lofar góðum spilum. Göthe
sýnir þá fyrirstöðu í hjarta,
en Gullberg hrökklast í
fimm lauf, því hann býst
ekki við að makker stoppi
tígulinn.
Kemur þá til kasta Magn-
úsar í vestur. Hann taldi
líka einsýnt að suður ætti
ekki tígulfyrirstöðu og
ákvað að koma út með tígul-
áttuna, undan ásnum!
Magnús var að vonast eftir
KG í borði, eða jafnvel að
makker ætti KG eða KD.
Þegar Göthe drap fyrsta
slaginn heima á kóng leit út
fyrir að útspilið hefði verið
hálf misheppnað. En ekki
aldeilis. Göthe tók tvisvar
tromp og spilaði spaða.
Þröstur drap og hitti á að
spila tígli til baka í gegnum
D4 suðurs. Þannig fékk
vörnin tvo slagi á tígul og
spilið fór einn niður.
E.S. Að sjálfsögðu er
þetta eina útspilið sem ban-
ar fimm laufum, því ella hef-
ur sagnhafi tíma til að fría
spaðadrottninguna og losa
sig við einn tígul úr borði.
Um spilið var fjallað í
mótsblaðinu, en ekki kom
þar skýrt fram hvers vegna
Göthe valdi að fara framhjá
tígulfyrirstöðunni, en Ant-
on Haraldsson telur sig
hafa heimildir fyrir því að
fjórir tíglar hefðu verið lyk-
ilspilaspurning í stöðunni.
Hins vegar virtist Gullberg
ekki hafa munað það, sem
betur fer, því þá hefði
Magnús tæplega fundið
þetta eitraða útspil.
www.mbl.is
Arnad heilla
Q pf ÁRA afmæli. í dag,
*J t) fimmtudaginn 31.
ágúst, verður 95 ára Guð-
björg Hassing, Krumma-
hólum 4, Reykjavík. Eigin-
maður hennar var Michael
Hassing, sem lést 1968. Guð-
björg tekur á móti gestum í
safnaðarsal Fella- og Hóla-
kirkju sunnudaginn 3. sept-
ember milli kl. 15-18.
A ÁRA afmæli. í dag,
OU fimmtudaginn 31.
ágúst, verður sextugur Jd-
hannes Jónsson, Bás-
bryggju 51, Reykjavík.
■ Hann dvelur erlendis á af-
mælisdaginn.
P A ÁRA afmæli. í dag,
ÖU fimmtudaginn 31.
ágúst, er fimmtug Magnea
Asdís Árnadóttir, Arnar-
heiði 20, Hveragerði. Eigin-
maður hennar er Sveinn
Steindór Gíslason, smiður.
Þau eru að heiman.
r A ÁRA afmæli. í dag,
t)U fimmtudaginn 31.
ágúst, verður fimmtug
Ragnhildur Magnúsdóttir,
Seiðakvísl 37, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Jd-
hann Steinsson. í tilefni af-
mælisins taka þau á móti
gestum á heimili sínu laug-
ardaginn 2. september kl.
18.
SKAK
llinsjón Ilelgi Áss
Grótarsson
«A ÁRA afmæli. í dag,
I fimmtudaginn 31.
ágúst verður sjötug Ruth
Krisljánsdóttir, Sæviðar-
sundi 100, Reykjavík. Eig-
inmaður hennar er Óskar
Hjartarson. Þau hjónin eiga
gullbrúðkaupsafmæli síðar á
árinu. í tilefni afmælanna er
þeim hjónum ánægja að
taka á móti ættingjum og
vinum í dag kl. 16.30 í safn-
aðarheimili Langholts-
kirkju, Sólheimum 13. Þeir
sem vilja gleðja afmælis-
börnin með blómum eða öðr-
um gjöfum láti andvirði þess
góðfúslega renna til Gigtar-
félags Islands, sími 530-
3600.
Hvítur á leik.
Staðan kom upp á minn-
ingarmóti Rúbinsteins í Pol-
anica Zdroj er lauk fyrir
stuttu.
Hollenski stórmeistarinn
Loek Van Wely (2643) hafði
hvítt gegn heimamanninum
Mikhaíl Krasenkov (2702).
61.c6! bxc6 62,d6 Re6
63.Bb6! Kc4 64.d7 Kd5
65.d8=D+ Rxd8 66.Bxd8
Kxe5 67.Bc7+ Kf5 68.Kd2
c5 69.g3! f3 70.Bb6 Ke5
71.Bxc5 Kd5 72.Bb6 og
svartur gafst upp.
LJOÐABROT
DRAUMALANDIÐ
Ó, leyf mér þig að leiða
til landsins fjallaheiða
með sælusumrin löng.
Þar angar blómabreiða
við blíðan fuglasöng.
Þar aðeins yndi fann ég,
þar aðeins við mig kann ég,
þar batt mig tryggðaband,
því þar er allt, sem ann ég;
það er mitt draumaland.
Guðmundur Mugnússon.
STJÓRIVUSPA
eftir Frances Drake
‘A»
MEYJA
Afmælisbarn dagsins
Þótt þú sért sléttur og felld-
ur á yfírborðinu skyldi eng-
inn vanmeta þrautseigju
þína.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Ef þú ert alltaf að búast við
vandræðum, leita þau þig
uppi. Brostu og líttu frekar á
jákvæðu hliðarnar og þá mun
allt ganga þér í haginn.
NdUt
(20. apríl - 20. maí)
Það er engin ástæða til þess
að láta sér leiðast í vinnunni.
Ef þú ert í þeirri stöðu,
skaltu endurskoða hlutina og
breyta svo til.
Tvíburar t ^
(21. maí - 20. júní) n-rt
Þú átt í vandræðum með að
komast yfir öll þau boð, sem
til þín streyma. Sumt eru nú
ósköp innantóm tækifæri
sem þú gætir auðveldlega
sleppt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sýnist þér annað ráðlegt en
samstarfsmenn þínir vilja,
skaltu leggja málin vandlega
niður fyrir þér. Ef þú ert enn
sama sinnis skilur í milli.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki tungulipran ná-
unga slá ryki í augun á þér.
Það er betra að halda kyrru
fyrir en hlaupa upp til handa
og fóta út af tómum loftból-
um.\
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu vera að skrifa undir
nokkurn skapaðan hlut, sem
ráðgjafi þinn hefur ekki
saumfarið og gefið grænt
ljós á. Farðu varlega í um-
ferðinni.
'lCVX
(23. sept. - 22. okt.)
Þú heldur forystunni svo
lengi sem þú ert maður fyrir
þinn hatt. Ef þér verða á ein-
hver mistök, skaltu reikna
með að gjalda fyrir þau dýru
verði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tilfinningar eiga fullan rétt á
sér, þegar þær eru viðeig-
andi. Varastu samt að blanda
þeim inn í starf þitt því þá
áttu ýmislegt á hættu.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) iftCr
Það getur létt álagið að bera
málin undir náinn vin. Aðal-
atriðið er þó að halda sjálfum
sér í jafnvægi og tilbúnum til
að takast á við hlutina.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Ef þér reynist öðrugt að
finna taktinn í vinnunni,
skaltu feta veginn rólega og
auka svo hraðann eftir því
sem þér vex ásmegin.
Vatnsberi . ,
(20. jan. -18. febr.)
Það er rangt að telja að allt
viðgangist bara ef það kemst
ekki upp. Rangt er alltaf
rangt. Vendu þig á heiðar-
lega framkomu og vinnu-
brögð.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars) - __
Flýttu þér hægt, þegar laga
leg atriði eru annars vegar.
Það er sjálfsagt að leita sér
aðstoðar og láttu frýjunarorð
annarra fram hjá þér fara.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Brunaútsalan
í fullum gangi
Vöruhúsið
Faxafeni 8
Utsala
Verslunin hættir
Allt á að seljast
Hverfisgötu 50 O Sími 551 5222
Tilboðsdagar
hefjast
Úrval afrúmfatnaði
Myndefni í metratali
Ungbarnafatnaður o.fl.
Njálsgötu 86, sími 552 0978
Haust
vetur
t í's k u v e r s 1 u n
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077