Morgunblaðið - 31.08.2000, Síða 66
66 FIMMTUDAGUR 31. ÁGUST 2000
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
KORTASALA
HEFST 1. SEPT.
ENDURNÝJUN áskríftarkorta er hafin
www.leikhusid.is-thorayOtheatra.is
5 LEIKFELAG \
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
SYNINGAR HEFJAST A NY
Stóra svið kl. 19.00
124. sýning
Sex í sveit
eftir Marc Camelotti
Sýn. lau. 2. sept.
sýn. fös. 8. sept.
sýn. lau. 9 sept.
Sýningum lýkur endanlega í
_________september.
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýningu
sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
f EIKFELAG ISLANDS
Leikhúskortið:
Sala í fullum gangi
552.3000
THRILLER sýnt af NFVÍ
lau. 2/9 kl. 20.00 nokkur sæti laus
Síðasta sýning
PAN0DIL FYRIR TV0
fös. 8/9 kl. 20.00
53O 303O
J0N GNARR. Ég var einu sinni nörd
___ . lau. 2/9 kl. 20 nokkur sæti laus
if)Hölau'9/9 kL 20
Miðasalan er opin í Iðnó frá kl. 11-19 en aðeins sýn-
ingardaga í Loftkastalanum. Opið er fram að sýningu
sýningarkvöld. Miðar óskast sóttir í Iðnó en á sýning-
ardegi í viðkomandi leikhús (Loftkastalann eða Iðnó).
Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
líafíiLeíKhúsið
Vesturgötu 3
Frumsýning í dag 31.8 kl. 17.00
Stormur og Ormur
barnaeinleikur
Leikstjórn: Thomas Ahrens.
Leikmynd/búningar:
Rannveig Gylfadóttir.
Einleikari: Halla Margrét Jóhannesd.
2. sýn. sunnud. 3. sept. kl. 15
3. sýn. lau. 9. sept. kl. 15
4. sýn. sun. 10. sept. kl. 15
. MIÐASALA í síma 551 9055
MÍ IFUIIRI ira
Sýnt í Tjarnarbfói
Sýningar hefjast kl. 20.30
lau. 2/9
lau. 9/9
Miðapantanir í síma 561 0280.
Miðasölusími er opinn alla daga kl. 12-19.
Miðinn gildir 2 fyrir 1 í Argentína steikhús.
Ath. ósóttar pantanir, seldar 2 dögum f. sýn.
isi.i:\siv \ oi'i itw
=Jlnl Simi sll 421)0
Vínartónleikar
lau. 2/9 kl. 20.30
Vínarhljómsveit
Einsöngvari
Unnur Astrid
Wilhelmsen
iwASDILj.i
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
fös 1/9 kl. 20 UPPSELT
lau 9/9 kl. 20
Miðasölusími 551 1475
Miðasala opin kl. 15—19 mán—lau.
og fram að sýningu sýningardaga.
Símapantanir frá kl. 10.
Tryggið ykkur forkaupsrétt
Forkaupsréttur áskrifenda
síðasta starfsár rennur út
1. september 'm*** «****,
Sfmi 545 2500
www.sinfonia.is
www.m bl.is
________________________MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
■ ÁLAFOSS FÖT BEZT: Gildran
og Eiríkur Hauksson með stórdans-
leik í risatjaldi tengdu Álafoss föt
bezt laugardagskvöld.
■ ÁSGARÐUR, Glœsibæ: Dansleik-
ur með Caprí-tríó sunnudagskvöld
kl. 20:000101:00.
■ BREIÐIN, Akranesi: Hljómsveit-
in Sóldögg leikur laugardagskvöld.
■ BROADWAY: Bee
Gees sýning og stór-
dansleikur með vin-
sælustu hljómsveitum
8. áratugarins á ís-
landi laugardagskvöld.
I Bee Gees sýningunni
syngja fimm strákar og
tvær stelpur undir
styrkum leik Hljóm-
sveitar Gunnars Þórð-
arsonar. Hljómsveitim-
ar sem koma fram síðar
um kvöldið eru: Eik,
hljómsveit ársins 1975,
Paradís, hljómsveit árs-
ins 1976, Pelican, hljóm-
sveit ársins 1973 og 1974
og Póker, súperbandið
sem fékk tilboð frá Ameríku, ásamt
söngvurunum Pétri Kristjánssyni,
Jóhanni Helgasyni, Björgvini
Ploder o. fl.
■ CAFÉ AMSTERDAM: Bé Pé og
þegið leikur um helgina föstudags-
og laugardagskvöld.
■ CAFÉ ROMANCE: Lifandi tón-
list öll kvöld. Enski píanóleikarinn
og söngvarinn Miles Dowley
skemmtir gestum á Café Romance
og Café Operu alla daga nema
mánudaga frá kl 20-1 virka daga og
21-3 um helgar.
■ CATALINA, Hamraborg: Þotu-
liðið er komið úr sumarfríi og leikur
fyrir dansi föstudags- og laugar-
dagskvöid.
■ DÚSSA-BAR, Borgamesi: Gleði-
gjafinn Ingimar leikur harmonikku-
tónlist föstudagskvöld.
■ GAUKUR A STÖNG: Hljóm-
sveitin Skítamórall leikur fimmtu-
dagskvöld til 1. Sumarstúlkan 2000
verður valin föstudagskvöld en und-
ankeppnir hafa verið haldnar um
allt land í sumar á vegum Eskimo
models. Sjö fulltrúar af öllu landinu
mæta til leiks. Húsið opnar kl. 21
með fordrykk og hefst keppnin sjálf
kl. 22. Skítamórall sér svo um að
halda fólki í góðum gír fram eftir
nóttu. Alvöru sveitaball í borginni
með strákunum í Á móti sól laugar-
dagskvöld.
■ GRANDHÓTEL REYKJAVÍK:
Tónlistarmaðurinn Gunnar Páll leik-
ur og syngur öll fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagskvöld frá 19:15-
23:00. Gunnar leikur hugljúfa og
rómantíska tónlist. Allir velkomnir.
■ GULLÖLDIN: Stuðboltamir í
hljómsveitinni Jóni forseta leika
föstudags- og laugardagskvöld.
Boltinn á breiðtjaldi og tilboð á öli
til kl
■ KÁFFI REYKJAVÍK: Hljóm-
sveitin Sófarnir verður í miklu stuði
föstudagskvöld með góða blöndu.
Hljómsveitin Hálft í hvom með Eyj-
ólf Kristjánsson í broddi fylkingar
leikur föstudagskvöldið. Aðgangs-
eyrir 1.000 kr. Jazzhátíð Reykjavík-
ur laugardagskvöld kl. 20:30 til
01:00. Kl. 20:30-22 spilar Tómas R.
Einarsson með Jens Winther. Frá
kl. 22-1 verður leikin dmm & bass.
Jazzhátíð Reykjavíkur sunnudags-
kvöld kl. 22:00 til 01:00. Kvartett
Reynis Sigurðssonar leikur ásamt
strengjaleikurum.
■ KRIN GLUKRÁIN: Hermann
I. Hermannsson og Birgir J. Birgis-
son leika létta og þægilega tónlist
fimmtudagskvöld kl. 22:00 til 01:00.
Hljómsveitin Hot ’n’ Sweet leika
fyrir dansi fram á rauða nótt föstu-
dags- og laugardagskvöld.
■ LEIKHÚSKJALLARINN:
Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns
Ieika laugardagskvöld til 03:00.
Sveitin hefur nýlokið upptökum á
nýrri hljómplötu sem væntanleg er
á markað í októbermánuði.
■ NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur
fyrir matargesti kl. 22:00 til 03:00.
Naustið er opið alla daga frá kl. 18.
Stór og góður sérréttaseðill.
■ NELLY’S CAFÉ: Dj. Le Chef sér
um tónlistina föstudagskvöld. Til-
boð alla daga til kl. 1. Dj. Sprelli sér
um tónlistina laugardagskvöld.
■ NJALLINN, Dalshrauni 13, Hf.
Danski trúbadorinn Soren Spgaard
leikur blús föstudags- og laugar-
dagskvöld frá kl. 24-3.
■ NJÁLSSTOFA, Smiðjuvegi 6:
Danski trúbadorinn Sören Sögaard
blúsari ieikur föstudags- og laugar-
dagskvöld frá kl. 3.30-6.
■ NÆSTI BAR: Tríó Björns Thor
leikur föstudagskvöld kl. 21:00.
Meðlimir eru Gunnar Hrafnsspn,
kontrabassi, Björn Thor, gítar, Ás-
geir Óskarsson, trommur og söngv-
ari er Egill Ólafsson. Tónleikamir
standa til kl. 23. Frítt inn.
■ NÆTURGALINN: Hljómsveitin
Léttir sprettir leika föstudags- og
laugardagskvöld kl. 23 til 3. Frítt
inn föstudagskvöld til kl. 23:30.
Hilmar Sverrisson og Anna Vil-
hjálms ieika fyrir dansi sunnudags-
kvöld kl. 22 til 1.
■ ORMURINN, Egilsstöðum: Dj.
Sóley leikur um helgina föstudags-
og laugardagskvöld. Aðgangseyrir
er 500 kr.
■ PUNKTURINN, Laugavegi: Á
fimmtudagskvöld leikur hljómsveit-
in Penta og á laugardags- og mánu-
dagskvöld leikur Dúett Sveins.
Bjarni Tryggva leikur síðan þriðju-
dags- og miðvilpidagskvöld.
■ RÉTTIN, Úthlíð: Hljómsveitin
Skítamórall heldur stórdansleik
laugardagskvöld. Þetta er síðasta
ballið í Réttinni í sumar og verður
sérstakur gestur kvöldsins Gassi
Tuborg en hann hefur lagt hljóm-
sveitinni mikið lið þegar sveitin tek-
ur lagið „Tell me“.
■ SJALLINN, ísafirði: Hljóm-
sveitin Buttercup leikur föstu-
dags- og iaugardagskvöld. Þess
má geta að hljómsveitin er um
þessai- mundir að taka upp
þriðju plötu sína, sem kemur út
í október. Síðdegis á laugardag
verður haldinn dansleikur fyrir
yngstu aðdáendui-na.
■ SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ,
Akureyri: Hljómsveitin Sálin
hans Jóns míns leikur föstu-
dagskvöld.
■ SKUGGABARINN: Dj. Áki
Pain í búrinu föstudags- og
laugardagskvöld. Báða
dagana opnar húsið á mið-
nætti vegna sýningarinnar
Strákarnir á Borginni, sem er að
gera allt vitlaust. 500 kr inn til 2 og
1.000 kr eftir það. 22 ára aldurstak-
mark. Gallabuxur eru ekki vel séð-
ar.
■ SPOTLIGHT: Dj. Droopy í bana-
stuði fimmtudagskvöld til 1. Á föstu-
dagskvöld hitar Dj. Droopy upp fyrir
laugardagskvöld. , „Uniform“-
kvöld og Dj. Páil Óskar laugardags-
kvöld.
■ UNDIRHEIMAR FB: Tónleika-
röðin Gubbaðu ástin mín föstudags-
kvöld kl. 21:00. Kanada og Mínus
halda áfram með tónleikaröðina
Gubbaðu ástin mín og verða þetta
þriðju og síðustu tónleikarnir í þess-
ari seríu. Þær hljómsveitir sem hita
upp eru Úlpa og Fídel. Miðaverð er
500 kr. og ekkert aldurstakmark.
■ VALASKJÁLF EGILSSTÖÐUM:
Dj. Fest 2000 laugardagskvöld. Þeir
sem sjá um tónlistina eru Dj. Le
Chef, Dj. Finger og Dj. Jobe.
■ VEITINGAHÚSIÐ 22: Dj. Panik
á Breakbeat is miðvikudagskvöld til
01:00. Hinn breski Dj. Panik sér um
tónlistina á næsta Breakbeat is
kvöldi ásamt þeim Dj. Adda, Dj.
Eldari og Dj. Reyni. Kvöldið hefst
kl. 21 og kostar 300 kr. inn en 500
kr. eftir kl. 23. Aldurstakmark 18 ár.
■ VIÐ POLLINN, Akureyri: Tón-
leikar með KK og Magnúsi Eiríks-
syni fimmtudagskvöld kl. 21:30 til 1.
Utgáfutónleikar Dægurlagapönk-
sveitarinnar Húfa föstudagskvöld
kl. 22. Hljómsveitin kynnir sína
fyrstu geislaplötu, sem ber heitið
Illa farið með góð hnífapör, auk þess
sem farið verður með gamanmál og
gjöfum dreift til tónleikagesta.
Hljómsveitin Bylting leikur fyrir
dansi. Hljómsveitin Bylting leikur
fyrir dansi laugardagskvöld.
■ VÍKIN, Höfn: Hljómsveitin Tóp-
az frá Keflavík leikur föstudags- og
laugardagskvöld. Sveitin hefur ný-
lega sent frá sér lagið „Ef þú vilt
mig“, sem þegar er farið að hljóma á
öldum ljósvakans.
Verðlaunaafhending þungarokkstímaritsins Kerrang!
Slipknot stálu senunni
HINIR grimuklæddu Slipknot
komu, sáu og sigmðu á hinni árlegu
verðlaunaafhendingu þungarokks-
tímaritsins Kerrang! sem haldin
voru á þriðjudagskvöldið. Sveitin
fékk þrenn verðlaun; fyrir bestu tón-
leikaframmistöðu, besta lag ársins,
„Wait And Bleed“, og síðast en ekki
síst var sveitin útnefnd Besta hljóm-
sveitin í heiminum. Og það vantaði
ekki hamaganginn þegar þessir
óstýrilátu huldumenn sóttu verðlaun
sín - á leiðinni upp á svið brutu þeir
bæði stóla og glös og þegar á sviðið
kom í London Hammersmith Palais,
þar sem verðlaunaafhendingin fór
fram, héldu þeir áfram að svala
skemmdarfýsn sinni og hófu að
brjóta það sem brotna gat þar.
Það varð síðan allt vitlaust af fögn-
uði í þéttsetnum salnum síðar um
kvöldið þegar drengirnir héldu upp-
teknum hætti og rústuðu gjörsam-
lega borðinu sem þeir sátu við og
fóru að kenna matnum sínum að
niannasiði. Sa
fljúga. Upp frá því braust út einn
allsherjar matarslagur í virðulegum
salarkynnunum þar sem fáir létu sitt
eftir liggja. Eitthvað varð undan að
láta í öllum handaganginum og á
endanum reyndist það vera ökkl-
inn á gömlu kynbombunni Britt
Ekland þegar hún rann til á há-
hæluðu skónum sínum er hún
steig í vatnsmelónuleifar á leið
sinni upp á sviðið til þess að inn-
lima Marilyn Manson í heiðurs-
flokk Kerrang! Aumingja Ekland
harkaði þetta þó af sér og var studd
á sviðið þar sem hún heiðraði Man-
son sitjandi í stól.
Aðrir vinningshafar á verðlauna-
hátíðinni voru Queens Of The Stone
Age sem voru valdir bestu alþjóð-
legu nýliðarnir, Deftones fengu
verðlaun fyrir bestu plötu ársins,
White Pony, Stereophonies var valin
besta hljómsveitin (en þó ekki í
heiminum því sá heiður féll í skaut
Slipknot, skrýtið!), Foo Fighters
fengu verðlaun fyrir klassalagasmíð-
ar í gegnum árin og síðast en ekki
síst var Lemmy og sveit hans Motör-
head afhent hið silfraða K fyrir þjón-
ustu sína í þágu þungarokksins.