Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ | HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Golli Ibúar við Jórsali í Kópavogi vilja að strætisvagnastoppistöð fyrir fraraan Jórsali 4 og 6 verði flutt. Bæjaryfírvöld taka vel í erindi Gróttu um að byggður verði gervigrasvöllur á Seltjarnarnesi Framkvæmdir ættu að geta hafíst árið 2002 Seltjarnarnes s Ibúar vilja biðstöðina burt Kópavogur ÍBÚAR við Jórsali 2 til 8 í Kópavogi hafa farið þess á leit við bæjaryfirvöld að strætisvagnastoppistöð við Jórsali 4 og 6 verði flutt eða að reistur verði um 2 metra hár hljóðeinangrandi skjól- veggur á lóðarmörkum við- komandi húsa. Siguijón Stefánsson, íbúi í Jórsölum 6, sagði að íbúarnir væru fyrst og fremst að mót- mæla þessu vegna þess að hæðarmismunur á milli veg- arins og lóðanna væri svo mikill, eðaum 1,5 metrar. Hann sagði að þegar strætis- vagn stoppaði viö stoppistöð- ina gnæfði hann yfír lóðirnar og að því fylgdi sjónmengun og hávaði. Sigurjón sagði að íbúarnir vildu helst að stoppistöðin yrði flutt neðar í götuna, nær fjölbýlishúsum sem þar stæðu, en að einnig kæmi til greina að reisa skjólvegg. Bæjarráð Kópavogs tók erindið fyrir á fundi sínum í siðustu viku og visaði þvi til umsagnar bæjarverkfræð- ings. STJÓRN knattspyrnudeildar Gróttu hefur farið fram á það við bæjaryfirvöld á Seltjarn- arnesi að byggður verði gervi- grasvöllur við íþróttamiðstöð- ina, þar sem nú er malar- völlur. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri Seltjamarness, sagði að gervigrasvöllurinn væri á langtímaáætlun fyrir árið 2002 og að áætlaður heildarkostnarðu væri um 80 milljónir króna. Sigurgeir sagði gengið yrði frá hönnun vallarins á næsta ári og að framkvæmdir ættu að geta hafist ári síðar. Hægt verði að byggja yfir völlinn í bréfi sem knattspymu- deildin sendi bæjaryfirvöld- um vegna þessa er farið fram á það að öll hönnun og fram- kvæmdir miði að því að hægt verði að byggja yfir gervi- grasvöllinn í framtíðinni. Sigurgeir sagði að völlurinn yrði upphitaður og upplýstur og að gengið yrði þannig frá honum að hægt yrði að byggja yfir hann. Hann sagði hinsvegar að ekki væri ráð- gert að byggja yfir völlinn í bráð. Sigurgeir sagði að völlurinn yrði reistur á þeim stað þar sem malarvöllurinn er nú, en að hann yrði jafnvel látinn standa neðar, þannig að að- staða fyrir áhorfendur myndi skapast í brekkunni. Jónas Msár Fjeldsted, framkvæmdastjóri Iþróttafé- lagsins Gróttu, sagði að knatt- spyrnudeildin þyrfti á mun betri aðstöðu að halda ef ár- angur ætti að nást og að nýr gervigrasvöllur væri stórt skref í rétta átt. Heilsársvöllur Jónas Már sagði að malar- völlurinn væri ágætur en að grasvöllurinn á Valhúsahæð, þar sem félagið keppti sína leiki væri mjög illa farinn og að erfitt væri að bjóða knatt- spymumönnum, bæði félags- mönnum og öðmm liðum, upp á þá aðstöðu. Að sögn Jónasar Más er hugmyndin sú að þetta verði heilsársvöllur. Hann sagði að gervigrasvöllur myndi ekki aðeins hafa jákvæð áhrif á knattspyrnudeildina því sam- fara honum myndi aðstaða hinna deildanna batna, þar sem þær myndu líklega fá fleiri tíma í íþróttahúsinu. Jónas Már sagði að mikil- vægt væri að byggja gervi- grasvöllinn þannig að auðvelt yrði að byggja yfir hann í framtíðinni. Hann sagði að ef það yrði gert yrði jafnvel hægt að samnýta búningsað- stöðuna með íþróttamiðstöð- inni, þar sem aðeins tæki um eina til tvær mínútur að ganga þaðan og út á völlinn. Vanmátu álagið á götuna Laugavegur SLIT á tveggja ára gamalli hellulögn á Laugavegi er mun meira en gatnamálastjóri gerði ráð fyrir. Djúp hjólför em komin í hellurnar sem gera akstur um götuna erfið- an og segir Sigurður I. Skarphéðinssongatnamálast- jóri að verið sé að gera til- raunir með nýja gerð steypu til þess að búa til endingar- betri hleðslusteina. „Við vanmátum það álag sem gatan verður fyiár,“ sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að gatan væri mjög þröng þann- ig að allir bílar ækju í sömu hjólförum og ætti þar hið sama við um Laugaveginn neðan Barónsstígs, þar sem hellulagnir vom gerðar 1998 og á Hverfisgötu, gatan var hellulögð nokkm áður. „Efnin sem við eram með þola einfaldlega ekki það álag sem þarna er jafnlengi og við hefðum vænst.“ Nagladekkjum um að kenna Sigurður sagði að í fyrstu hefði verið talið að hjólförin, sem myndast hafa í hellulagn- irnar mætti rekja til sam- blands af sliti og jarðvegssigi. „Við eram búnir að skoða það mjög ítarlega og þetta er nán- ast eingöngu slit; fyrst og fermst vegna aksturs á nagla- dekkjum,“ sagði hann. Hann sagði að verið væri að þróa steypu sem er mun sterkari en sú steypa sem notuð var. Á næstu vikum eða mánuðum komi í ljós hvort sú tilraun takist og þá verði væntanlega farið út í að skipta um steina þar sem hjólförin hafa myndast. Hjólför hafa einnig mynd- ast í malbikið á Laugavegin- um og sagði Sigurður að ekki væri völ á mikið sterkara mal- bili og því væri um lítið annað Morgunblaðið/Golli Hjólför hafa myndast í steinahleðslurnar á Laugavegi og Hverfís- götu og skarpar brúnir eru þar sem malbik og hleðslusteinar mætast. að ræða en malbika annað eða þriðja hvert ár. Hins vegar valdi léleg ending hleðslu- steinanna vonbrigðum. „Þessi steinn uppfyllir allar venju- legar kröfur og það malbik, sem við erum að framleiða, er síst lakara en hjá öðmm þjóð- um. Að mínu mati er skýring- in á þessu sliti sú að gatan er það þröng að menn þurfa að aka í sömu hjólföram og þar sem 75-80% bíla era á nögl- um að vetrarlagi er álagið það mikið að þetta er það slit sem við getum búist við.“ Hann sagði nagladekkjanotkunina hérlendis einsdæmi enda væri víða í norrænum borgum farið að setja skorður við notkun slíkra dekkja. Borgarstjórn samþykkti í sumar að gera könnun á möguleikum þess að nota steypu í stað malbiks á götur borgarinnar. Sigurður sagði að unnið væri að þessari skýrslu og væri stefnt að því að hún yrði tilbúin áður en farið verður að vinna að fram- kvæmdaáætlun borgarinnar fyrir næsta ár um miðjan október. Ný tónlistar-, ráðstefnu- og hótelbygging í miðbænum verður boðin út sem einkaframkvæmd Byggingin gæti teygt sig út yfir Geirsgötuna Miðborg SKIPULAGNING lóðarinn- ar við Hafnarstræti 17, þar sem veitingastaðurinn Svarta pannann var til húsa, tengist byggingu nýrrar tónlistar-, ráðstefnu og hótelbyggingar við höfnina. Þorvaldur S. Þor- valdsson, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar, sagði að vinna við útboð stæði nú yfir. Samkvæmt gildandi deili- skipulagi fyrir svæðið, svo- kölluðu Kvosarskipulagi frá árinu 1987, er gert ráð fyrir því að Tryggvagatan liggi í gegnum lóðina og tengist Hverfisgötunni. Þorvaldur sagði að borgin hefði keypt lóðina vegna þessa og því hefði alltaf staðið til að rífa húsið. Hann sagði að nú væri hins vegar verið að vinna að heildarskipulagi fyr- ir þetta svæði og svæðið við höfnina þ.e. austurbakkann þar sem Faxaskáli stendur. Einkaaðilar fá svigrúm til að móta hugmyndir Þoi-valdur S. sagði að verið væri að vinna að þvi að bjóða út tónlistar-, ráðstefnu- og hótelbyggingu á svæðinu, en gert er ráð fyrir því að um einkaframkvæmd verði að ræða. Hann sagði að ríki og borg myndu standa straum af kostnaði vegna byggingar tónlistarhússins og taka þátt í kostnaði við byggingu ráð- stefnumiðstöðvarinnar, en að hótelið yrði alfarið í eigu einkaaðila. Að sögn Þorvalds S. hefur verið gert ráð fyrir bíla- geymslu og strætisvagnamið- stöð á svæðinu við Tryggva- götu, en hann sagði að yfirvöld hefðu nú hug á að opna skipulagið svolítið. Hann sagði að hugmyndin væri sú að þeir sem byðu í verkið hefðu töluvert svigrúm til að móta sínar hugmyndir, hvað varðaði tónlistar-, ráð- stefnu og hótelbygginguna, umferð um svæðið og tengsl þess við miðborgina, sem og strætisvagnamiðstöðina og bílageymsluna. Bæjarins bestu verða á svæðinu Þorvaldur S. sagði að skipulagsyfirvöld hefðu hing- að til gert ráð fyrir þvi að tónlistar, ráðstefnu- og hótel- byggingin myndi rísa við austurbakkann, þar sem nú er Faxaskáli, en hann sagði Morgunblaðið/Golli Horft yfir svæðið þar sem fyrirhuguð tónlistar-, ráðstefnu- og hótelbygging mun rísa. að ef væntanlegir fram- kvæmdaaðilar hefðu aðrar skemmtilegri hugmyndir kæmi vel til greina að ganga að þeim. Hann sagði jafnvel koma til greina að grafa Geirsgötuna niður og láta bygginguna teygja sig yfir hana ef menn vildu, en hann lagði fyrst og fremst áherslu á að borgaryfirvöld vildu taka á þessu máli með opnum huga. Þorvaldur S. sagði að þrátt fyrir þessar áætlanir yrði pylsuvagni Bæjarins bestu leyft að vera áfram á sínum stað. Að sögn Þorvalds S. má búast við því að samstarfs- nefnd um tónlistar, ráðstefnu- og hótelbyggingu, sem skipuð var af ríki og borg, fari að undirbúa byggingu hússins strax á þessu ári og leita að fjárfestum bæði innanlands og utan. Hann sagði að nefnd- in hefði það hlutverk að at- huga hvernig hagkvæmast væri að standa að byggingu hússins og hvernig ríki og borg myndu koma til með að skipta með sér kostnaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.