Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 74
74 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Geimstöðin Mír væntanleg á skjáinn
Geimglópar
BLÁKALDUR raunveruleikinn hefur upp á
síðkastið verið það allra vinsælasta í sjónvarp-
inu með þáttum eins og Survivor og Big Broth-
er sem iaða milljónir áhorfenda að skjánum í
viku hverri. Aukið áhorf skilar sér í margföld-
um auglýsingatekjum og því keppast yfirmenn
erlendra sjónvarpsstöðva nú við að koma með
nógu frumlega hugmynd til að ná inn milljón-
unum. Eftir heilmiklar vangaveltur er töfra-
lausnin fundin, strandaglópar f geinmum.
„Næsta stopp Mír“ er vinnuheitið á hugmynd-
inni sem byggist á að senda hóp stjörnuóðra
amerískra meðaljóna til Rússlands í geimæf-
ingabúðir. Þar munu keppendur þurfa að
ganga í gegnum æfingaferli alvöru geimfara
þar með talinn flughermi og flest annað sem
rússnesku stjórnendunum flýgur í hug. Einu
sinni í viku verður svo einhver iiðleskjan send
heim uns einn sigurvegari stendur eftir. Þeim
„heppna" verður svo skotið upp á sporbaug
jarðar þar sem hann dvelur þá tíu daga sem
hringferðin með Mír tekur. NBC sjónvarps-
stöðin hyggst. greiða 40 milljónir dollara fyrir
þættina og þar af fer helmingur til Mír-
Reutcrs
Heimilislegar vistarverur.
samsteypunnar. Áætlaður sýningartími geim-
glópanna er haustið 2001.
MYNDBOND
---7*-----------
Operu-
ástríða
Hvíslarinn
(Suffösen)
Gamanmynd
★★★
Leiksljóri: Hilde Heier. Handrit:
Hilde Heier. Aðalhlutverk: Sigrid
Huun, Sven Nordin, Hege Schöyen,
Philip Zandén. (100 mín) Noregur
1999. Góðar Stundir. Ölíum leyfð.
r
■r,
Nú getur þú sent fréttir mbUs
í tölvupósti til vina og vandamanna
mbl.is kynnir nýjung. Nú getur þú sent fréttir mbl.is í töivupósti til vina og
vandamanna og iátiö skilaboö fyigja meö. Þaö eina sem þú þarft aö gera
er aö velja þennan möguleika sem fylgir nú öllum fréttum á mbl.is.
Láttu frétta af þér!
FRETTASENDINGAR A
MYNDIN fjallar um Siv, sem
vinnur sem hvíslari hjá óperuhúsi
einu. Hún hefur gífurlega mikla
ástríðu fyrir óperum og öllu því
sem tilheyrir þeim. Undirbúningur
fyrir mikla sýn-
ingu á Aida er í
fullum gangi og
hefur Siv nóg að
gera því hún er
einnig að fara að
giftast Fred sem á
tvö böm, en henni
finnst eins og hún
sé mikið í skugga
fyrrverandi eigin-
konu Freds. Hilde Heier hefur
hingað til unnið við leikhús í Nor-
egi og þetta er frumraun hennar í
kvikmyndalistinni og stendur hún
sig mjög vel bæði sem handrits-
höfundur og leikstjóri á þessari
skemmtilegu rómantísku gaman-
mynd. Það er enginn leikhúsbrag-
ur af myndinni og það er alltaf
eitthvað í gangi en atburðarásin
kæfir samt aldrei vel skrifaðar
persónurnar. Samleikur Hege
Schöyen og Sven Nordin er virki-
lega góður hvort heldur sem er í
gamansömum atriðum eða tilfinn-
inganæmum. Það er ekki oft að
norskar myndir komi á leigurnar
hér á landi og því er útgáfa þess-
arar myndar þeim mun meira
gleðiefni.
Ottó Geir Borg
WELEDA BOSSAKREMIÐ
- þú færð ekkert betra -
Þumalína, heilsubúðir, apótekin
£
01*11 III Df>v
okkar
Segjnm nei við
unglingadrykkju
mmsL
HAUSTLISTINN ER
KOMINN ÚT
PÖNTUNARSÍMINN
565 3900
ER OPINN TIL KL. 22 ÖLL KVÖLD
www.freemans.is