Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
EYVINDUR
ÁRNIÁRNASON
+ Eyvindur Árni
Ániason fæddist
á Grímsstöðum,
Grímsstaðaholti 25.
nóvember 1911. For-
eldrar hans voru
Guðrún Eyvindsdótt-
ir, f. 18.1. 1886 á
Stóru Drageyri í
Skorradal, en ólst
upp í Reykjavík, hún
lést 21.11. 1973, og
Árni Jónsson, f. 12.7.
1866, á Krossnesi í
* Eyrarsveit, Snæfells-
nesi, en fluttist með
foreldrum sinum að
Grimsstöðum. Hann lést 27.9.
1950. Systir Eyvindar er Guðný, f.
9.12. 1918, hennar maður er Sig-
urður Steinsson.
Hinn 16.10. 1938 kvæntist Ey-
vindur fyrri konu sinni, Jónu Guð-
laugu Guðjónsdóttur, f. 1.3. 1919,
d. 26.10. 1948. Þeirra sonur er
Árni, f. 13.2. 1940, verkstjóri hjá
Orkuveitu Reykjavfkur.
Eftirlifandi konu sinni, Önnu
Maríu Guðmundsdóttur, f. 28.12.
1910 á Feijubakka, Borgarhr.,
Mýrasýslu, kvæntist Eyvindur
21.10. 1950. Dóttir þeirra er
Hanna, f. 17.2.1959. Synir hennar
eru Eyvindur Ámi, f. 27.3. 1993,
og Ólafur Ægir, f.
19.2. 1994. Faðir
þeirra var Jökull
Ægir Friðfinnsson,
d. 8.4. 1999. Sambýl-
ismaður Hönnu er
Gunnar B. Gunnars-
son, stýrimaður.
Dóttir þeirra er
Sæunn Birta, f. 15.4.
1998.
Eyvindur og Anna
bjuggu lengst af á
Grfmsstöðum, nú
Ægisíðu 62, Rvk., en
fluttu árið 1989 í
Breiðholtshverfi til
dóttur sinnar og bjuggu þar uns
þau fluttu á Elli- og hjúkrunar-
heimilið Grand fyrir rúmum
tveimur árum, þar sem Eyvindur
Iést hinn 4. september siðastlið-
inn.
Eyvindur stundaði ýmis störf,
var sjómaður framan af ævi og
síðar vörubílstjóri á Vörubflastöð-
inni Þrótti. Árið 1966 hóf hann
störf hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur og starfaði þar sem verk-
stjóri þar til hann lét af störfum
árið 1984.
Útför Eyvindar verður gerð frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Kafla er lokið í lífsins bók, þú far-
inn ert og á andartaki er allt breytt.
Eftir ég sit og á kveðjustund hugsa
til þín:
Þín, sem ég á svo margt að þakka.
Þín, sem aldrei brást og hafðir á
öllu gætur.
Þín, sem líf mitt fylltir með kær-
leik og hlýju.
Þín, með útbreiddan faðminn í
gleði sem og neyð.
Þín, með geislandi góðvild í huga
og sál.
Þín og glettni þinnar er bætti skap
og létti.
Þín sem ekkert dapurt né aumt
gast séð án þess helst að bæta eða
laga.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
arhug við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MUNDÍNU VALGHRÐAR
SIGURÐARDÓTTUR,
Siglufirði.
Ásbjörn Þór Pétursson,
Hanna Guðrún Pétursdóttir, Bjarni Þorgeirsson,
Halldóra Ragna Pétursdóttir, Björgvin Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur
hlýhug og samúð vegna fráfalls
ÁSTU ÁSMUNDSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Kristján Símonarson,
Bragi Stefánsson og fjölskylda.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og samúð
við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
fósturmóður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGRÍÐAR ÞÓRU ÁRNADÓTTUR,
Gullsmára 7,
Kópavogi.
Sofffa Einarsdóttir,
Anna R. Einarsdóttir, Þórir E. Magnússon,
Arnar Gunnarsson, Guðrún Gísladóttir,
Einar Ingi Magnússon, Sigrún Guðmundsdóttir,
Gunnar Magnússon, María Palma Rocha,
Sigrún Magnúsdóttir, Jón Helgason,
Ása Magnúsdóttir,
Anna Þóra Aradóttir, Karl V. Karlsson,
Jóhannes Ari Arason, Sigrún Hallgrfmsdóttir,
Árni Alvar Arason, Elsa Ævarsdóttir,
Sigrún Arna Aradóttir, Jóhannes G. Ólafsson
og barnabarnabörn.
í samfylgd þinni var ætíð andblær
friðar.
Tryggðar þinnar og gæsku margir
nutu, því sérhlífni þekktir þú ekki.
Ævislóð okkar saman ég þakka.
Megi friður Guðs sveipa þig helgri
ró og milda okkur sem eftir eru á
sorgarstund.
Hanna.
Nú ertu dáinn, elsku afi minn,
ástúð þín ei gleymist nokkurt sinn.
Það var svo Ijúft að halla höfði á kinn
og hjúfra sig í mildan faðminn þinn.
Við skulum vera ömmu ósköp góð,
hún á svo bágt og er svo mild og hljóð.
Og góðvildin og gæskuhugur þinn,
gleymist aldrei, hjartans afi minn.
(Þ.G.)
Með virðingu og hjartans þökk
fyrir allar okkar
samverustundir. Guð geymi þig.
Eyvindur Ámi, Olafur
Ægir og Sæunn Birta.
Látinn er öðlingurinn Eyvindur
Árni Árnason, svili minn. Margar
minningar hrannast upp af 45 ára
viðkynningu. Það segir e.t.v. dálítið
um manninn að hann virtist alltaf að-
lagast vel þeim breytingum sem
hann þurfti að ganga í gegnum. Má
segja að æðruleysið hafi fylgt honum
fram í andlátið. Eyvindur var
dagfarsprúður og vann sín störf af
dugnaði og samviskusemi. Einnig
var hann hjálpsamur og greiðvikinn,
sem reyndi oft á þegar ekki var hægt
að fara með allt á verkstæði eða kalla
á fagmenn ef eitthvað bilaði eða fór
úrskeiðis. Þá var gott að leita til Ey-
vindar. Gestkvæmt var á heimili
Önnu og Eyvindar. Voru þau sam-
taka í því að taka vel á móti gestum,
eins og í öllu sem þau tóku sér fyrir
hendur. Oft var glatt á hjalla á heim-
ili þeirra. Sérstaklega kom mér á
óvart hvað Eyvindur gat hermt og
leikið eftir fólki. Var það stundum á
við að fara á revíu, einkum þegar Páll
Kristinsson, vinur þeirra tók þátt í
gamninu. Eyvindur var mikill úti-
vistarmaður. Hann byggði sumar-
bústað við Þingvallavatn þar sem
fjölskyldan dvaldi þegar tækifæri
gafst. Þar plöntuðu þau trjám og
hlynntu að gróðri. Eyvindur var fisk-
inn og renndi oft fyrir fisk í Þing-
vallavatni og víðar. Hann stundaði
einnig hrognkelsaveiðar úr Gríms-
staðavör í frístundum í mörg ár.
Aðstandendum Eyvindar votta ég
samúð og bið honum Guðs blessunar.
Helga Daníelsdóttir.
Kæri Eyvindur frændi.
Nú á kveðjustundu fara í gegnum
hugann ljúfar endurminningar. Ég
man fyrst eftir þér þegai' ég, strák-
polli, sat tímunum saman á fram-
brettinu á gamla Chevrolet-vöru-
bílnum og fylgdist hugfanginn með
þegar þú varst að gera við vélina.
Eftir á að hyggja held ég að þar hafi
bíladellan kviknað hjá mér.
Eftir að ég flutti í Vogana beið ég
oft eftir þér á Suðurlandsbrautinni
og fékk að sitja í vörubílnum meðan
þú sóttir sand í gryfjurnar og
keyrðir í alls kyns uppfyllingar.
Þetta var mikið sport fyrir strák
eins og mig.
Ógleymanlegar eru ferðirnar á
Þingvöll, bæði í sumarbústaðinn og í
Vatnsvíkina, þar sem við veiddum
murtu. Þú sýndir okkur Árna hvern-
ig átti að bera sig að við veiðiskapinn.
Þú veiddir oft meira en aðrir, enda
mjög fiskinn og veiddir oft þótt aðrir
yrðu ekki varir. Aldrei man ég eftir
að hafa bragðað annað eins hnoss-
gæti og fiskinn sem Anna tilreiddi á
staðnum og steikti í smjöri á pönnu.
Oft fékk ég að róa með ykkur
Árna, ýmist til að leggja eða vitja um
grásleppu- og rauðmaganet. Tilfínn-
ingin að fara í dagrenningu, klukkan
fimm til sex á morgnana, þegar sólin
var að koma upp var stórkostleg og
koma svo að landi um níuleytið og fá
kaffi og „með því“ hjá Önnu, það var
lífið.
Ég vil þakka þér og Önnu það að
ykkar heimili stóð mér alltaf opið og
var Ægisíða 62 mér næstum eins og
annað heimili. Ekki má gleyma bíl-
skúrnum sem ég fékk að nota hve-
nær sem ég vildi og fékk að ganga í
verkfærin að vild og þar smíðaði ég
minn fyrsta bfl.
Eyvindur, þú varst jafnvígur til
allra verka og allt lék í höndunum á
þér, hvort heldur var vélaviðgerðir
eða hvers konar smíðar. Þú varst
mjög fjölhæfur á allt sem þú tókst
þér fyrir hendur og er víst að margur
nútímamaðurinn mætti sín lítils í
samanburði við þig í almennri verk-
lagni. Eyvindur, þú hafðir til að bera
einstaka hugprýði og ljúfmennsku
og man ég ekki til að þú hafir nokk-
urn tíma reiðst eða sagt styggðar-
yrði til nokkurs manns og er lýsing-
arorðið öðlingur varla nógu sterkt
umþig.
Eg vil þakka þér Eyvindur minn
fyrir samfylgdina alla tíð. Ganga þín
í gegnum lífið var árekstralaus við
menn og tilveruna og er okkur eftir-
lifandi til eftirbreytni.
Mínar samúðarkveðjur til Önnu,
Árna, Hönnu, Gunnars, Eyvindar
Árna, Ólafs Ægis og Sæunnar Birtu.
Steinn Sigurðsson.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í
tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/
sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
ol, W T| 11 :i||| Baldur
ék JM Einarsson Sverrir pS Frederiksen
útfararstjóri, Olsen iflL M útfararstjóri,
ÍLs_JPsím’896 8242 útfararstjóri. W&Æfsími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
Safnaðarstarf
Skeiðflatar-
kirkja 100 ára
SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal
á 100 ára vígsluafmæli um þessar
mundir. Af því tilefni verður hátíðar-
guðsþjónusta í Skeiðflatarkirkju nk.
sunnudag, 17. september og hefst
hún kl. 14. Séra Óskar H. Óskarsson,
sóknarprestur í Ólafsvík, predikar,
en séra Haraldur M. Kristjánsson,
sóknarprestur Skeiðflatarkirkju,
þjónar fyrir altari.
Kór Skeiðflatarkirkju syngur und-
ir stjóm Kristínar Björnsdóttur org-
anista. Einnig taka þátt í tónlistar-
flutningi; kór eldri nemenda
Gmnnskóla Mýrdælinga undir stjórn
Önnu Bjömsdóttur, Krisztina
Szklénár organisti og nemendur Tón-
skóla Mýrdælinga undir stjóm Zolt-
án Szklénár. Að guðsþjónustu lokinni
býður kirkjan til kaffidrykkju í
Ketilsstaðaskóla þar sem Sigþór Sig-
urðsson í Litla-Hvammi flytur ágrip
af sögu Skeiðflatarkirkju og eldri
nemendur í kór gmnnskólans syngja
undir stjóm Önnu Bjömsdóttur við
undirleik Krisztinu Szklénár.
Afmælishátíðin er liður í hátíðarhöld-
um Skaftafellsprófastsdæmis vegna
1.000 ára kristni á Islandi.
Skeiðflatarkirkja væntir góðrar
þátttöku heimamanna og velunnara
kirkjunnar í hátíðardagskrá nk.
sunnudag.
Sóknamefnd.
Barnastarf
Landakirkju
BARNASTARFIÐ, sem svo mörg
böm hafa spurt eftir í sumar, er að
hefjast í Landakirkju í Vestmanna-
eyjum.
Fastir liðir í bama- og foreldra-
starfinu verða Tíu til tólf ára starf
(TTT) á fimmtudögum og verður
fyrsti fundur í dag, fimmtudaginn, 14.
september kl. 17-18. Sunnudaginn
17. september hefst sunnudagaskól-
inn með nýjum söngvum, fallegum
kirkjubókum, Jesúmyndunum og
frænda fuglsins Dindils, að ógleymd-
um Silla sem verður fastur liður í
bamastarfinu með öllum sínum kost-
um og kynjum. Við sýnum gleðina í
söng og dansi í vetur.
Krakkaklúbburinn Kirkjuprakk-
arar (KKK) verður á þriðjudögum kl.
16:30-17:30 og byrjar 19. september.
Foreldramorgnar verða á fimmtu-
dagsmorgnum kl. 10 og verður fyrsti
fundur 5. október. Þar er vettvangur
fyrir heimavinnandi foreldra að koma
með böm sín, njóta samvista og fá
barnaefni við hæfi allra yngstu bam-
anna. Æskulýðsfundir em á
sunnudagskvöldum kl. 20:30 í Landa-
kirkju og opið hús fyrir unglinga í
KFUM&K-húsinu kl. 20 á miðviku-
dögum.
Barnaefnið í vetur er vandað og
spennandi. Öflugir leiðtogar em í öllu
bamastarfinu og lítum við fagnandi
til vetrarins. Markmiðið með bama-
starfi kirkjunnar er að styðja for-
eldra í kristilegu uppeldi og siðgæði.
Starfsfólk Landakirkju vonast til
góðrar samvinnu við foreldra í sókn-
inni, að saman styðjum við börnin til
góðs og uppbyggÚegs þroska.
Prestar Landakirkju.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17.
Háteigskirkja, Jesúsbæn kl. 20. Ta-
ize-messa kl. 21. Fyrirbæn með
handaryfirlagningu og smuming.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin til
bænagjörðar í hádeginu. Foreldra-
og bamamorgnar kl. 10-12. Svala les
fyrir bömin. Söngstund með Jóni
Stefánssyni.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45-7.06. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Orgelleikur í upphafi stundar og
léttur málsverður á kostnaðarverði í
safnaðarheimilinu.
Digraneskirlqa. Leikfimi aldraðra á
neðrihæðkl. 11.
HafnarQarðarkirkja. Opið hús fyrir
ung börn og foreldra þeirra kl. 10-12
í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús
fyrir 8-9 ára böm í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Bænastund kl. 22.