Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 63 Hannes Hlífar í heims- meistaraslaginn Stórmeistararnir Margeir Pétursson og Hannes Hlífar Stefánsson nið- ursokknir í úrslitaskákina um sæti á heimsmeistaramótinu. SKAK llellisheímílíð í M j ó d d SVÆÐISMÓT NORÐURLANDA 5.-14. sept. 2000 LIKT og í annam umferð Svæð- ismóts Norðurlanda í skák voru það íslensku stórmeistararnir Margeir Pétursson og Hannes Hlífar Stef- ánsson sem héldu áhorfendum hug- föngnum í þriðju umferð mótsins, þar sem barist var um réttindi til þess að taka þátt í heimsmeistara- mótinu í skák. Fyrri einvígisskák þeirra Mar- geirs og Hannesar var svo flókin og óvenjuleg, að jafnvel sterkir skák- menn áttu í erfiðleikum með að skilja þá baráttu sem þar fór fram. Margeir, sem hafði svart, kom mörgum áhorfandanum á óvart þeg- ar hann fórnaði drottningunni í 18. leik. Drottningarfórnin var þó engin yfirsjón og þegar skákáhugamenn fóru að glugga í fræðin eftir skákina kom í ljós að þetta hafði verið teflt áður, t.d. í skák þeirra Topalov og Anand í Dos Hermanas 1997. Þótt Margeir fengi ekki mikla sigur- möguleika í skákinni tókst honum að halda sínu alveg fram í 33. leik. Hann hafði þá tvo hróka og riddara auk þriggja peða gegn drottningu, hróki og biskupi Hannesar. í 33. leik lék Margeir hins vegar leik sem skildi alla menn hans eftir óvaldaða, sem Hannes gat samstundis nýtt sér til þess að vinna riddarann af Margeiri. Þetta voru svo sannarlega dramatísk lok á mikilli baráttuskák. Hannes var þar með kominn með þægilega stöðu í einvíginu. Margeir hafði hvítt í seinni skákinni og tefldi byrjunina kröftuglega. Hannes hafði þó sýnt það fyrr á mótinu, að hann kann þá list að tefla upp á jafntefli þegar nauðsyn krefur og eftir 25 leiki var ljóst að honum hafði tekist að gera frumkvæði hvíts að engu. Margeir sá þá ekki ástæðu til að reyna frekar á þolrifin í Hann- esi og samið var um jafntefli. Hannes Hlífar Stefánsson hefur þar með tryggt sér sæti á heims- meistaramótinu í skák, sem hefst á Indlandi 25. nóvember. Hannes hef- ur sýnt það á Svæðismóti Norður- landa, að hann er verðugur fulltrúi Islands á mótinu og þegar hann er í jafnmiklum ham og á þessu móti standast fáir honum snúning. Með góðum undirbúningi getur hann því leyft sér að setja markið hátt á heimsmeistaramótinu. Frammistaða Margeirs á Svæðis- mótinu var einnig gleðiefni fyrir skákáhugamenn. Hann sýndi ósjaldan frábæra hæfileika sína, sem komu keppinautunum í opna skjöldu. Gott dæmi um þetta var mannsfórn hans 26. ...Ha3 í síðari atskákinni gegn stigahæsta kepp- anda mótsins, Curt Hansen. Þótt leikurinn leiddi ekki beint til unnins tafls var hann svo óvæntur, að segja má að hann hafi tryggt Margeiri sigurinn í skákinni og þar með ein- víginu. Það var óheppilegt að þeir Mar- geir og Hannes skyldu lenda saman í undanúrslitum mótsins, þar sem að öðrum kosti hefðu þeir báðir átt góða möguleika á að tryggja sér sæti í heimsmeistarakeppninni. Urslit þriðju umferðar urðu ann- ars þessi: 1. Hannes H. Stefánss. (2557) - Margeir Péturss. (2544) V/2-V2 2. Lars Schandorff (2520) - Evgenij Agrest (2554) 1-1 3. Einar Gausel (2492) - Sune Berg Hansen (2545) V2-IV2 Þeir Hannes og Sune Berg Han- sen hafa því unnið sér rétt til þátt- töku í heimsmeistaramótinu, en Lars Schandorff og Evgenij Agrest tefldu til úrslita í gær um það hvor þeirra hreppti þriðja sæti Norður- landa á heimsmeistai'amótinu. í dag, 14. september, verður teflt um efstu sætin á mótinu og hefst keppnin klukkan 13 í Hellisheimil- inu, Þönglabakka 1 í Mjódd. Hann- es Hlífar stefnir að sjálfsögðu á efsta sætið og spennandi verður að fylgjast með hvort honum tekst að ná því. Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson Svart: Margeir Pétursson 3. umferð, íyrri skák Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 dxc4 5. a4 Bf5 6. Re5 e6 Margeir er óhræddur við að fara út í vel þekkt fórnarafbrigði, en önnur flókin leið er 6. - Ra6 7. f3 Rd7 8. Rxc4 e5 9. e4 exd4 10. Re2 Bb4+ 11. Kf2 Bc5 o.s.frv. Svartur þarf ekki að láta svona illa í byrjuninni, hann á rólegri leið: 6. -- Rbd7 7. Rxc4 Dc7 8. g3 e5 9. dxe5 Rxe5 10. Bf4 Rfd7 11. Bg2. f6 12. 0-0 Be6 13. Rxe5 fxe5 14. Be3 Bc5 15. Dcl Bxe3 16. Dxe3 með þægi- legra tafli fyrir hvitan. 7. f3 Bb4 Svartur leikur stundum 7. - c5 í stöðunni, t.d. 8. e4 cxd4 9. exf5 Rc6! 10. Rxc6 bxc6 11. fxe6 fxe6 12. De2 Bb4 13. Dxe6+ De7 14. Bxc4 dxc3 15. 0-0 Dxe6 16. Bxe6 með betra tafli fyrir hvítan. 8. e4 Bxe4!? 9. fxe4 Rxe4 10. Bd2 Dxd4 11. Rxc4 Dxe4+ 12. De2 Bxd2+ 13. Kxd2 Dd5+ 14. Kc2 Ra6 15. Rxc4 b5 Allt hefur þetta sést margoft, en 15. leikur Margeirs er gamall, tví- eggjaður leikur, sem skaut upp aft- ur í skák á milli stórlaxanna Kramn- ik og Shírov í Línares, snemma á þessu ári. Öruggasta leiðin er 15. -- 0-0 í þessari stöðu, sem hvítur getur svarað með 16. De5 eða 16. Df3 o.s.frv. 16. axb5 Rb4+ 17. Kc3 cxb5 18. Hdl bxc4!? í fyrrnefndri skák varð framhald- ið 18. - Dc5 19. De5 Rd5 20. Hxd5 b4+ 21. Kb3 Dxd5 22. Be2! 0-0 23. Dxd5 exd5 24. Ra5 Hfe8 25. Bf3 Hac8 26. Hdl He3+ 27. Ka4 b3! 28. Hxd5 með flókinni stöðu, sem hvít- ur vann um síðir. 19. Hxd5 Rxd5+ 20. Kc2 - Betra er talið að hafa kónginn ekki á c-línunni heldur leika 20. Kd2 o.s.frv. 20. - 0-0 Svartur hefur aðeins hrók og þrjú peð fyrir drottninguna, sem varla er nægilegt lið. Möguleikar hans liggja í tveim atriðum, hann á sóknarfæri gegn berskjölduðum hvítum kóngi og svo verður erfitt fyrir hvítan að brjótast í gegn á kóngsvæng, eftir að hvíta peðið á b-línunni hverfur af borðinu. 21. De4 Hfc8 22. Be2 Hab8 23. Hal Hb4 24. De5 Hb5 25. Kcl a5 26. Ha3 Hbc5 27. Hh3 c3 28. De4 Rf6 29. Da4 cxb2+ 30. Kxb2 He5 31. Ba6 Hd8 32. Dc2 g6?! Tekur valdið af riddaranum á f6, að því er virðist að óþörfu, og það hefnir sín í næsta leik. 33. Ka3 Hd4?? Snubbóttur endir á harðri bar- áttuskák. Nú eru of margir menn hjá svörtum óvaldaðir, sem leiðir til þess að riddarinn á f6 fellur. Svart- ur hefði líklega átt að leika 33. - Hdd5 og bíða átekta. 34. Df2! Hee4 35. Dxf6 Hf4 36. De5 Ha4+ 37. Kb2 Hae4 og svartur gafst upp. Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson FRÉTTIR Stúdentadag- ur í Háskóla Islands FÖSTUDAGINN 15. september fer fyrsti stúdentadagurinn fram við Háskóla íslands. Gefið verður frí frá kennslu eftir kl. 11.00 og þá hefst margvísleg skemmtidagskrá á háskólasvæðinu. Meginmarkmið dagsins er að færa nemendur hinna ólíku deilda saman og búa til sameiginleg dag allra stúdenta, en slíkan dag hefur vantað. Fyrir framan Háskólann verður skemmtidagskrá, í Aðalbyggingu verður fyrirlestraröð frá deildun-* um, Pétur Blöndal og Össur Skarp- héðinsson alþingismenn segja sög- ur frá stúdentsárum sínum og nemendur munu reyna með sér í margvíslegum greinum. Deginum lýkur með dansleik um kvöldið. Undirbúningur dagsins hefur staðið frá því í apríl í samvinnu Stúdentaráðs, nemendafélaganna og háskólayfirvalda. Stefnt er að því að Stúdentadagurinn verði ár- legur viðburður sem markar upp- haf að félagslífi vetrarins, segir í fréttatilkynningunni. Fyrirlestur um skapandi lífsstil JÓHANN Breiðfjörð flytur fyrir- lestur um skapandi Ufsstíl í sal 101 í Odda í Háskóla Islands klukkan átta í kvöld. Meðal efnis á fyrirlestrinum er eftirfarandi: Lykillinn að undir- meðvitundinni. Hvernig er hægt að auka afköst hugans? Hver er okkar stærsta hindrun og mesti ótti? Ein- faldar aðferðir til að auka sköpun og velgengni á öllum sviðum. Hvernig lítur sá töfraheimur út sem við get- um stigið inn í? í fréttatilkynningu kemur fram að Jóhann Breiðfjörð hefur starfað sem hönnuður og tæknilegur ráðgjafi hjá Lego í fimm ár og nú séu sjö módel, sem hann hefur hannað, til sölu í leikfangabúðum um allan heim auk fjölda nýrra kubba og framleiðslu- lína. ■ HIÐ árlega áhugamannamót í knattborðsleik (pool) verður haldið á Rauða ljóninu fjögur kvöld. Fyrst verður leikið sunnudaginn 24. september og úrslitin verða sunnudagskvöldið 1. október. Leikir hefjast öll kvöldin kl. 21:00. Veitt verða þrenn aðalverðlaun auk auka- vinninga. Mótsgjald er 1.500 kr. og skráning er á staðnum. KENNSLA I [ 1_' I IIIIIIIIIIIIIÍfTiin t | n Barna- og unglinga- kórar Bústadakirkju Innritun Innritun í barna- og unglingakóra Bú- staðakirkju fer fram í kirkjunni í dag, 14. september, kl. 17—19. Kóræfingar eru á eftirtöldum dög- um: Englakór fyrir 5—6 ára, mánudaga kl. 16. Barnakór fyrir 7—9 ára, þriðjudaga kl. 16. Bjöllukór, miðvikudaga kl. 17. Stúlknakór fyrir 10 — 16 ára, þriðjudaga kl. 17 og fimmtudaga kl. 16.30. Kammerkór, fimmtudaga kl. 17.30. Stjórnandi Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Námskeið í listmeðferð Art therapy fyrir almenning og fagfólk verður haldið laugardaginn 16. september kl. 10 — 18 á Grand Hótel. Kennarar eru tveir þekktir fræði- menn á þessu sviði, dr. Janek Dubowski, frá University of Hertfordshire,( Art Therapy) og Richard Hougham, frá Central School of Speech and Drama í London, (Movement Drama Therapy). Námskeiðið fer fram á ensku. Skráning í síma 553 2070 og á netfangi: unnur_listm@mmedia.is. AT VINNUHÚSNÆÐI Skrifstofuhúsnæði Til leigu er skrifstofuhúsnæði í Bíldshöfða. Um er að ræða herb. af ýmsum stærðum með síma- og tölvulögnum. Malbikuð bílastæði. Leigist í einu lagi eða smærri einingum. Sann- gjörn leiga. Agnar Gústafsson hrl., símar 551 2600 og 552 1750. NAUÐUNGAR5ALA Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Gránugötu 6, Siglufirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Eyrargata 18, efri hæð, þingl. eig. Guðni Rafnsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Siglufirði, mánudaginn 18. september 2000 kl. 13.30. * Eyrargata 20, neðri hæð, Siglufirði, þingl. eig. Magnús Kristinn Ásmundsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður sjómanna, mánudaginn 18. september 2000 kl. 13.30. Eyrargata 3, íbúð á 2. hæð, þingl. eig. Jónína Halldórsdóttir, gerðar- beiðendur Ibúðalánasjóðurog Islandsbanki hf., útibú 563, mánudag- inn 18. september 2000 kl. 13.30. Hólavegur 10, neðri hæð og 1/2 lóð, þingl. eig. Db. Björns V. Jónsson- ar, gerðarbeiðandi Dánarbú Björns Valbergs Jónssonar, mánudaginn 18. september 2000 kl. 13.30. Lindargata 5, Siglufirði, þingl. eig. Sigurður Fanndal, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og íslandsbanki hf., útibú 563, mánudaginn 18. sept- ember 2000 kl. 13.30. Sýslumaðurinn á Siglufirði, 11. september 2000. Björn Rögnvaldsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.