Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 80
Síðan 1972 Leitið tilboða! Traust, íslenska murvoru: !■ steinpi MORGUNBLAÐIÐ, KRlNGLUNNll, 103REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJlSMBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Lífeyris- sjóðir herða innheimtu- aðgerðir Á NÆSTUNNI munu lífeyrissjóðim- ir í landinu senda tilkynningu þeim einstaklingum sem ekki hafa sldlað ið- gjaldi vegna tekna ársins 1999. Þar verður farið fram á að lögboðnu ið- gjaldi verði skilað til sjóðanna. Samkvæmt nýjum lögum um skyld- utryggingu lífeyrissjóða, sem tóku gildi á árinu 1998, ber öllum einstakl- ingum á aldrinum 16-70 ára að greiða iðgjald í lífeyrissjóð af þeim tekjum C‘-Tfem þeir hafa. Greiðsluskyldan kom raunar inn í lögin árið 1981, en í nýju lögunum var eftirlit með greiðslum aukið. Ástæðan fyrir því að eftirlit með greiðsluskyldunni var hert var m.a. sú að talið er að talsvert hafi verið um að verktakar og sjálfstætt starfandi ein- staklingar skiluðu ekki lífeyrisiðgjaldi. Samkvæmt 6. grein laganna eiga þeii’ sem hvergi greiða í lífeyrissjóð eða til- greina engan lífeyrissjóð að greiða í Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda. Sigur- . bjöm Sigurbjömsson, framkvæmda- ^stjóri Söfnunarlífeyrissjóðsins, sagði að í nokkur ár hefðu upplýsingar frá lí- feyrissjóðum um greiðslur iðgjalda verið samkeyrðar við upplýsingar frá ríkisskattstjóra um skattgreiðslur einstaklinga. „Nú er farið að nota þessar upp; lýsingar til að innheimta iðgjöld. I fyrra sendi ríkisskattstjóri bréf til ein- staklinga sem ekki höfðu skilað rétt- um iðgjöldum. Það komu upp ákveðin tæknileg vandamál sem leiddu til þess að formleg innheimta vegna tekna ár- sins 1998 er ekki hafln. Það verður far- ið í að innheimta ógreidd iðgjöld vegna ársins 1999 núna á næstunni,“ sagði Sigurbjöm. Sigurbjöm sagði að þau bréf sem -rQdsskattstjóri sendi út í fyrrahaust vegna ársins 1998 hefðu skilað þeim árangri að um 30-40% þeirra sem fengu bréf hefðu komið málum sínum í lag. Hann sagði að í einhverjum tilvik- um væri um það að ræða að sjóðimir hefðu ekki bókað iðgjöld með réttum hætti. Málum þeirra sem enn ættu eft- ir að gera upp sín mál fyrir árið 1998 yrði fylgt eftir á næstunni. Sigurbjöm sagði að upphæðir væra mjög mismunandi. Sumir hefðu ekki skilað iðgjaldi af hluta tekna, en aðrir hefðu ekki greitt neitt. Hann sagði að sjóðimir myndu reyna að innheimta iðgjöldin með þeim ráðum sem menn hefðu. Sigurbjöm sagði að þessi mál vörðuðu alla lífeyrissjóði í landinu. Uinstaklingar sem hefðu greitt eitt- Tivað í tiltekinn lífeyrissjóð fengju til- kynningu frá honum. Söfnunarlíf- eyrissjóðurinn innheimti í samræmi við gildandi lög hjá þeim sem hvergi væra skráðir. Ferðaþjónustan hugi betur að tryggingum FYRIRTÆKI í ferðaþjónustu á Islandi huga ekki nægjanlega vel að tryggingamálum sínum og gætu átt á hættu að þurfa að greiða háar skaðabætur til er- lendra ferðamanna. Þetta er með- al þess sem kom fram á ráðstefnu um slys í ferðaþjónustu sem Sam- tök ferðaþjónustunnar, SAF, stóðu fyrir í gær. Til ráðstefnunn- ar var boðað vegna hinna fjöl- mörgu slysa sem orðið hafa á ferðamönnum í sumar. Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri SAF, telur ekki að slysin muni draga úr aðsókn er- lendra ferðamanna. Það sé hins- vegar brýnt að fyrirtæki sem skipuleggi ferðir um landið geri sér grein fyrir því að þau kunni að verða dregin til ábyrgðar fyrir slys á ferðamönnum sem ferðast á þeirra vegum. Engu skiptir þó slysið verði í ferð á vegum annars fyrirtækis, t.d. í rútuferð. Ferða- skrifstofan sem skipuleggi ferðina teljist ábyrg samkv. lögum um al- ferðir. Erna segir því afar mikil- vægt að ferðaskrifstofur gangi úr skugga um að þjónustufyrirtæki sem þau skipta við séu vel tryggð. Guðmundur Sigurðsson, lög- fræðingur hjá Tryggingamiðstöð- inni, sagði að ferðaþjónustufyrir- tæki á íslandi yrðu að taka tryggingamál sín til rækilegrar endurskoðunar. Þau gætu í raun hrósað happi yfir því að hafa til þessa sloppið við háar skaðabóta- kröfur. Hann benti á að samkv. tilskipun frá Evrópusambandinu geta ferðamenn frá aðildarlönd- um þess sótt skaðabótamál á hendur íslenskum fyrirtækjum á grundvelli laga í heimalandi sínu verði þeir fyrir slysi hér á landi. Skaðabótalög í löndum ESB eru mjög mismunandi en ferðaþjón- ustufyrirtæki hér á landi gæti jafnvel orðið bótaskylt fyrir lækn- iskostnaði ferðamanns sem slas- ast hér á landi. Guðmundur segir ekki mögu- legt fyrir ferðaþjónustufyrirtæki að semja sig frá þessari tilskipun ESB og það væri í raun alls ekki víst að þau gætu tryggt sig fyrir slíku. Tryggingaskilmálar hér á landi fælu í sér að bætur væru greidd- ar sem hefðu verið dæmdar samkv. íslenskum lögum. Því gætu ferðaskrifstofur sjálfar þurft að greiða skaðabætur sem væru dæmdar samkv. erlendum lögum. Hægt væri að koma í veg fyrir að ferðamenn frá löndum ut- an ESB gætu beitt fyrir sig lög- um síns heimalands, en ferða- þjónustufyrirtækin yrðu þá að geta þess í sölusamningum. Morgunblaðið/Þorkell Nýr Goðafoss til ANNAÐ af tveimur nýjum syst- urskipum Eimskipafélagsins, Goðafoss, kom til landsins í fyrra- kvöld. Hitt systurskipið, Detti- foss, er væntanlegt til landsins í lok október. Skipin voru smíðuð í Dan- mörku fyrir fimm árum og kosta saman 3,5 milljarða króna. Þetta eru stærstu og fullkomnustu skip sem Eimskip hefur verið með í rekstri. Burðargeta þeirra er 1.457 gámaeiningar og leysa þau fjögur skip af hólmi, þar af þrjú leiguskip. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, segir að markvisst hafi verið unnið að því að auka hag- kvæmni í flutningakerfi félagsins með stærri skipum á síðustu tveimur áratugum. Sú hagræðing sé liður í því að lækka flutnings- gjöld en þau hafi lækkað að raun- virði um 50% á síðasta áratug. Hann segir að með nýju skip- unum breytist siglingaáætlunin til Evrópu, en áætlun í Ameríku- siglingum og strandsiglingum haldist óbreytt. Nýju skipin tvö muni sigla þá leið sem kallast Norðurleið en fjögur skip hafi sinnt þeirri leið áður. ■ Aukin hagræðing/D2 heimahafnar Engdbert Engilbertsson, skipstjóri Goðafoss, til vinstri og Gunnar Ólafsson yfirvélstjóri. Hinn nýi Goðafoss Eimskipafélagsins í Sundahöfn í gær. Bjargað af þaki bfls í Skyndi- dalsá MAÐUR á fjallabíl af gerðinni Unimog komst í hann krappan þegar hann lenti úti í Skyndi- dalsá skammt frá Lónsöræf- um um níuleytið í gærmorgun. Betur fór þó en á horfðist og slapp maðurinn ómeiddur. Bj örgunarsveitarmönnum frá Höfn, sem komu mannin- um til aðstoðar, tókst að ná bílnum úr ánni er leið á dag- inn. Flytja átti bílinn til Reykjavíkur í gærkvöldi. Vegurinn þarna er allgóður, að sögn björgunarsveitar- manna á Höfn, en engin brú er hins vegar yfir ána og verð- ur vegurinn því ófær í miklum vatnavöxtum. Mun áin hafa verið í miklum vexti í gær eft- ir rigningar undanliðna nótt. Maðurinn, sem var einn á ferð, hafði hugsað sér að fara norður yfir ána en síðan hætt við. Rann bíllinn þá út í ána en bílstjórinn komst upp á þak og hann sakaði ekki. Bíll- inn er nokkuð skemmdur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.