Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÁSTA ÞORSTEINSDÓTTIR + Ásta Þorsteins- dóttir frá Ölvers- krossi var fædd 15. ágúst 1933. Hún lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 4. september síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjdn- in Þórdís Ólafsdóttir, f. 26.8. 1893 á Hamri f Borgarbyggð, d. 27.1. 1970 og Þor- steinn Gunnlaugs- son, f. 11.3. 1885 í Vífilsdal í Hörðudal, d. 14.10. 1958. Þau bjuggu lengst af á Öl- verskrossi í Kolbeinsstaðahreppi í Snæfells- og Hnappadalssýslu. Af níu börnum þeirra sem upp kom- ust var Ásta sjöunda í röðinni. Systkini hennar eru: Olgeir, f. 1917; Arndís, f. 1918; Inga Jenný, f. 1921, d. 1997; Fríða, f. 1925; Halldóra Ágústa, f. 1928; Ólafía, f. 1932; Sesselja Þorbjörg, f. 1936; og Ragnheiður Lilja, f. 1938. Ásta giftist árið 1964 Guð- mundi Albertssyni frá Heggsstöð- um í Hnappadal, f. 16. október ,1, Það var erfið stund þegar fjöl- skyldunni var tilkynnt að hún Ásta tengdamóðir mín væri haldin ill- kynja sjúkdómi og engin leið væri fyrir læknavísindin að koma henni til hjálpar. Asta hafði verið lasin áð- ur en hafði alltaf tekist að rífa sig upp og komast aftur á fætur - en í þetta sinn leit út fyrir að þetta væri henni ofviða. En það var ekki henn- ar háttur að kvarta og hún kveinkaði sér aldrei. Ef Ásta var spurð að því hvernig hún hefði það svaraði hún alltaf því til að hún hefði það ágætt. Hugur Ástu var ávallt heima á Heggsstöðum og þegar hún þurfti að vera á spítalanum vegna veikind- anna lagði hún sig alla fram um að verða heilsubetri til að komast heim. Öll fjölskyldan sem og vinafólk lagð- ist á eitt til að þessi ósk hennar gæti orðið að veruleika - heimilið var út- búið sérstaklega og það var ávallt einhver heima til að sjá um hana. Allir lögðu hönd á plóginn og voru boðnir og búnir að hjálpa. Það var komið að því að endurgjalda Ástu alla þá ástúð og þann kærleika sem hún hafði ávallt sýnt öðrum. Það var Ástu dýrmætt að geta verið heima þrátt fyrir veikindin og hún naut þess að fylgjast með bústörfunum - og öllu því umstangi sem fylgir því “^'að reka búið. Það var henni mjög sárt að þurfa að leggjast að lokum aftur inn á spítalann, en það er þó huggun harmi gegn að hún hafði fjölskyldu sína hjá sér þar til yfir lauk. í þann stutta tíma sem ég hef þekkt Ástu, hef ég fengið að kynnast einstakri manneskju. Hún var hjartahlý og opin, enda laðaði hún að sér fólk úr öllum áttum sem naut oft gestrisni þeirra hjóna. Hún tók mig strax inn í fjölskylduna og varð undireins sem mín önnur móðir. í fyrstu átti ég erfitt með að átta mig á tengslum Ástu og Guðmundar við þann aragrúa af fólki sem var í kringum þau - þau voru kölluð Guð- "mundur afi og Ásta amma af fólki sem var ekki einu sinni skylt þeim. Þegar ég fór að kynnast þeim betur skildi ég að þetta fólk hafði allt tekið ástfóstri við þessi hjón eftir að hafa dvalið á Heggsstöðum sem börn, verið nágrannar þeirra til einhvers tíma eða voru börn þeirra sem höfðu dvalið sumarlangt á Heggsstöðum. Þetta fólk heldur tryggð við Heggsstaði því þar líður því vel og það er fyrir löngu orðið hluti af fjöl- skyldunni. Hjá Ástu og Guðmundi var alltaf pláss fyrir nokkra í viðbót .pg stundum var svo gestkvæmt að ’það var sofið í öllum krókum og kim- um. Ásta hafði yndi af börnum og hún gerði ekki upp á milli sinna eig- in barnabarna eða börnum „sumar- barnanna sinna“. Hún hafði yndi af því að gefa þeim gjafir og jólagjaf- irnar frá Ástu ömmu voru alltaf góð- ar. Hún hafði þann einstaka hæfi- ..,?leika að kaupa alltaf fatnað sem féll 1933. Ásta og Guð- mundur eignuðust fjögur börn en áður átti hún einn son, Sigurþór Jónasson, f. 14.5. 1956, maki Galina Holujanova, þau búa í Reykjavík. Börn Ástu og Guðmundar eru: 1) Helga, f. 3.8. 1964, maki Þröstur Gunn- laugsson, f. 12.4. 1961, þau búa í Stykkishólmi. Börn þeirra eru: Sigrún, f. 1982, og Ásmundur, f. 1991. 2) Albert, f. 16.6. 1966, býr á Heggsstöðum. 3) Ingveldur, f. 22.8. 1968, maki Arnar Ey- steinsson, f. 8.2. 1968, þau búa í Stórholti í Dalasýslu. Börn þeirra eru: Kristján Ingi, f. 1988, Ásdís Helga, f. 1990, og Steinþór Logi, f. 1999. 4) Ágúst, f. 16.5. 1974, maki Ólöf Eh'sabet Þórðardóttir, f. 22.1.1973, þau búa í Kópavogi. Útfór Ástu fer fram frá Kol- beinsstaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. nákvæmlega að smekk og stærð barnabarnanna. En það var erfiðara að gefa henni gjafir því að hana vantaði aldrei neitt. Yfirleitt var hún búin að gefa einhverjum öðrum gjaf- irnar sínar - einhverjum sem hafði betri not fyrir þær að hennar mati en hún. Hún var hamingjusöm með það sem hún hafði, hún mat mann- leg gæði meir en þau veraldlegu og leið best heima á Heggsstöðum með fjölskyldu sína í kringum sig. Elsku Ásta mamma, ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fjölskyldu þinni, fengið að endur- gjalda þér alla þína ástúð þegar þú áttir erfitt og þakklát fyrir að þú gafst mér Gústa, eitt það besta í mínu lífi. Guð veri með þér. Ólöf Elísabet Þórðardóttir. Hjartkær fósturmóðir mín og frænka er látin. Hér sit ég og minningarnar streyma fram í hugann. Þær fara svo hratt því þær eru svo margar og góðar. Eg vil ekki slíta mig frá þeim því mér finnst hún vera hjá mér á meðan. Það eru algjör forréttindi að hafa átt hana að því ég veit að það er leit- un að annarri eins hetju og henni, og móður sem fórnaði sér fyrir börn og heimili eins og hún gerði. Sagt er að móðurást sé „leiðarljós fjölskyldunnar“ og átti það _svo sannarlega við um hana. Ásta kenndi mér ekki aðeins það góða og fallega heldur hvatti hún mig í flestu því sem ég tókst á við og það vantaði aldrei hrósið frá henni. Já, hún Ásta var sannur vinur sem ávallt var tilbúin að rétta hjálp- arhönd, en bað aldrei um neitt í staðinn. Það verða þung spor er við fylgj- um henni hinsta spölinn. Við felum hana Guði en í hjörtum okkar eigum við minningar sem munu gleðja okk- ur og styrkja í sorginni, því við grát- umyfir því sem var gleði okkar. Ég votta eiginmanni hennar, Guð- mundi, og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd og bind um sárin, kom, dögg og svala sálu nú, kom.sólogþerratárin, kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós og lýstu mér, kom, líf er ævin þver, kom, eilífð, bakviðárin. (Þýð. V. Briem.) Jakobi'na Óskarsdóttir. Elsku Ásta mín! Nú ert þú horfin okkur blessuð duglega og kraftmikla kona. Ég þakka þér aliar stundirnar sem við áttum saman. Þær eru ógleyman- legar stundirnar sem við lékum okk- ur og unnum saman frá því að við vorum litlar í foreldarhúsum. Alltaf síðan ég fór að búa annars staðar þá vantaði þennan sérstaka styrk og kraft sem fylgdi þér, blessuð mín. Við lékum alltaf saman, hvort sem var inni í gamla bænum heima á Krossi eða úti - að fjölskyldunni sem við bjuggum til úr pappa sem mamma okkar og Helga frænka kenndu okkur. Það var notað þegar ekki var hægt að fara út að renna sér á sleðanum sem bróðir okkar smíðaði handa okkur. Svo voru það hornin, leggirnir og kjálkarnir sem var útibúslóð á sumrin. Það var allt sérstakt og gaman. Svo kom að því að við fórum að hjálpa til við bú- skapinn þegar eldri systkini okkar fóru að heiman. Þá slógum við með orfi og ljá alltaf sinn skárann hvor á eftir annarri, rökuðum síðan og þurrkuðum heyið, settum í galta, drógum heim í hlöðu og notuðum hestana við það sem hétu Blesi og Faxi. Svo dönsuðum við eftir dans- lögunum á laugardagskvöldum. Þetta raðast upp í huga minn, elsku systir mín, og margt fleira. Ef eitt- hvað var að hjá mér í mínum búskap þá voru þú og maðurinn þinn tilbúin að hjálpa og gefa stórgjafir. Þetta er allt ógleymanlegt. Guð blessi þig og fjölskyldu þína á þessari stóru sakn- aðarstund. Ég bið Guð að blessa þig og halda verndarhendi yfir fjöl- skyldu þinni. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð bama þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda sem gefur þjóðum, ást til sinna landa og eykur afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda, að miðla gjöfum, eins og þú. (Davíð Stef.) Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Elsku Guðmundur og allur hópur- inn ykkar, við vottum ykkur dýpstu samúð. Ólafía Þorsteinsdóttir og Jón Finnsson. I dag kveðjum við Ástu Þorsteins- dóttur frá Heggsstöðum, móður- systur okkar. Ásta var sterk og dug- mikil kona en jafnframt hlý og traust. Ekkert virtist getað bugað Ástu, þar til hún varð að láta undan fyrir illvígum sjúkdómi. Ásta ólst upp í stórum systkina- hópi á Ölverskrossi í Hnappadals- sýslu. Hún var þriðja yngst af níu systkinum sem upp komust. Fyrstu árin bjó Ásta á Krossi með foreldr- um sínum og tveimur yngri systr- um. Hún flutti að Heggsstöðum í sömu sveit árið 1964 en þá hóf hún búskap með eftirlifandi eiginmanni sínum, Guðmundi Albertssyni, og bjó þar til æviloka. Ásta og Guð- mundur eignuðust fjögur börn, fyrir átti Ásta einn son. Við áttum því láni að fagna, að al- ast upp á næsta bæ við Heggsstaði. Mikill samgangur var á milli bæj- anna, ekki síst vegna tengsla á milli systranna (móður okkar og Ástu). Eins voru tengsl á milli okkar frændsystkina, enda öll á svipuðum aldri. Heimili Ástu og Guðmundar stóð okkur systkinum ætíð opið og alltaf var tekið hlýlega og vel á móti okk- ur. Við gleymum seint jólaheim- sóknunum að Heggsstöðum, sem var árviss viðburður og mikil til- hlökkun hjá okkur. Þá var hlaðið borð af alls kyns kræsingum að ógleymdum mömmukökunum og kakóinu. Það er margs að minnast á þess- ari stundu og hugurinn reikar um liðna daga. Minningin um þig Ásta mín verð- ur ætíð ljóslifandi í hugum okkar. Hafðu þökk fyrir allt. Guð geymi þig- Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð bama þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur afl og trú. En það er eðli mjúkra móður handa að miðia gjöfum - eins og þú. (Davíð Stef.) Elsku Guðmundur, Siggi, Helga, Albert, Ingveldur, Ágúst og fjöl- skyldur. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Guð gefi ykkur hugg- un og styrk. Systkinin frá Hraunholtum, Steinar, Sigríður, Ásdi's, Jódi's, Elísabet, Helgi og Guðmundur. Kæra Ásta frænka. Takk fyrir allt og þá sérstaklega fyrir að hafa hugsað um hana Monsu mína. Það var alltaf gaman að fá jólakort frá henni og einnig gaman að koma í heimsókn að Heggsstöðum en það hefði mátt vera oftar. Vertu nú sæl, Ásta mín, og megir þú hvíla í friði. Þín frænka, Snædís Mjöll. Elsku Ásta mín. Með örfáum orðum langar mig að kveðja eina bestu konu sem ég hef þekkt. Það er mér óbærileg tilhugsun að fá aldrei að hitta þig og tala við þig framar en eina huggun mín er sú að þú þurftir ekki að eiga lengi í veik- indum þínum og ert nú komin á æðri og betri stað, hjá Guði. Það er svo margt sem ég vil þakka þér Ásta mín og eitt af því er að leyfa Atla að vera hjá ykkur öll þessi sumur og verður það honum veganesti í framtíðinni. Þakka þér samverustundirnar í sveitinni og á Hraunbrúninni þegar þú komst suður í rannsóknir og þakka þér öll okkar samtöl símleiðis og sérstaklega það sem við áttum áður en Emil litli var skírður. Manni leið alltaf betur þegar maður var búinn að heyra í þér. Ég á engin orð yfir það hvað mér þótti vænt um þig og hvað mér finnst fráfall þitt engan veginn tíma- bært, en það er nú svona að við fáum engu um það ráðið hvenær kallið kemur. Eitt á maður þó eftir sem er mjög dýrmætt og það er minningin um þig. Þakka þér fyrir allt. Ég sá vers einu sinni og langar að láta það fylgja hér því mér finnst það segja allt sem mig langaði til að segja. Hver minning dýrmæt perla aá liðnum h'fsins degi, hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér, þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymisteigi og gæfa var það öllum, er fengu að kynnastþér. (Ingibj. Sig.) Að síðustu bið ég þann sem öllu ræður að styðja fjölskyldu þína í sorg sinni. Hvíl í friði. Þóra Einarsdóttir. STEFANIA SIGURVEIG SIGURÐARDÓTTIR + Stefanía Sigur- veig Sigurðar- dóttir fæddist á Ak- ureyri 8. ágúst 1933. Hún lést á Landspftalanum við Hringbraut 1. sept- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram Grensáskirkju 8. september. Haustið minnir á sig þessa dagana og oft er það svo að þeg- ar það nær yfirhönd- inni þá hverfur sumarið eins og í einni svipan. Alltaf þykir það sótímabært. Það er einnig ótíma- bært að kveðja hinstu kveðju þá einstöku sómakonu, Stefaníu Sig- urðardóttur, sem lést í Reykjavík 1. september. Minningarnar leita á og hugur- inn reikar um grundir genginnar tíðar. Staðnæmst er austur á Vopnafirði, nánar tiltekið í tvílyftu og reisulegu, járnklæddu timbur- húsi, sem var innarlega í þorpinu. Þetta hús var sjúkraskýlið Garður og jafnframt heimili Stefaníu og fjölskyldu hennar. Didda var hún ævinlega kölluð og stundum kennd við Garð, eins og títt er á smærri stöðum. Á Garði stjórnaði Didda af mikilli natni og umhyggju fyrir þeim sjúku og öðrum sem voru hjálpar þurfi og nýtt- ust þar mannkostir hennar, rík þjónustu- lund og hjartahlýja. Þeirra kosta nutum við í ríkum mæli, nokkrir drengir úr þorpinu, sem héldu til á Garði og í næsta ná- grenni fyrir hartnær fjórum áratugum. Á Garði voi'um við á vegum einkasonar Diddu og kærs æsku- vinar, Sigurðar Ragn- arssonar. Við vorum þarna öllum stundum við fjölbreytta leiki og ýmsar „framkvæmdir“ utan dyra eins og vegagerð, brúar- og bryggjusmíði. Þá voru stundaðar siglingar á fleka, skylmingar og margt fleira. Oft var mikill atgangur við leiki og störf utandyra eins og nærri má geta en þess var ævinlega gætt að sjúkraskýlið og umhverfi þess nyti tilhlýðilegrar friðhelgi og að leikir okkar, utan sem innan dyra, trufl- uðu ekki dvalargesti á sjúkraskýl- inu því friður og ró urðu að hafa forgang fram yfir uppátæki okkar. Svo var Diddu fyrir að þakka og orð hennar voru ævinlega sem lög í þessum efnum. Það var mikið ábyrgðarstarf að annast rekstur sjúkraskýlis og hlúa að veiku og lasburða fólki úr héra- ðinu. Auk þess hafði Didda eftirlit með „drengjunum sínum“ og gát á því að við færum okkur ekki að voða. Vinnudagur Diddu á Garði gat því oft verið býsna langur og ekki alltaf víst að möguleiki væri til eðlilegrar hvíldar að nóttu vegna dvalargesta sjúkraskýlisins og Vopnfirðinga sem fæddust á Garði á þessum árum. Mikið var spilað á spil við eld- húsborðið á Garði og oft mikill handagangur í öskjunni þegar keppt var í kappkapli. Slík keppni var mjög vinsæl og stóðu fáir Diddu á sporði við þá iðju enda var hraði hennar og leikni við spila- borðið engu lík. Á engan er hallað þegar fullyrt er að hún hafi borið höfuð og herðar yfir aðra keppend- ur á þessu sviði og sama hve ítrek- að reynt var að hnekkja veldi henn- ar og yfirburðum í kapli þessum. Didda lét sér annt um Vopna- fjörð, þar sem hún bjó lengst af ævi sinnar. Fyrir nokkrum árum flutti hún til Reykjavíkur og keypti sér snotra íbúð við Háaleitisbraut. Heimili hennar hefur ævinlega bor- ið vott um einstaka snyrtimennsku og smekkvísi. Um tíma starfaði Didda á Landspítalanum við Hringbraut og er ég viss um að við störf hennar þar hefur reynslan frá litla sjúkraskýlinu á Vopnafirði komið að góðum notum þótt störfin væru ekki hin sömu. Það eru eins og hver önnur for- réttindi að hafa kynnst konu eins og Diddu sem alltaf átti góð ráð í pokahorninu, hlýtt viðmót og gleði til að miðla til annarra. Með þeim orðum kveð ég Diddu og eru henni að leiðarlokum færðar kærar þakk- ir fyrir samfylgdina. Blessuð sé minning hennar. Fjölskyldu hennar votta ég mína dýpstu samúð. Jón Höskuldsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.