Morgunblaðið - 14.09.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 23
SLYSIN I UMFERÐINNI
Þrjár vikur í öndunarvél eftir þriggja bfla árekstur
Aþreifanlega minntur
á hverfulleika lífsins
4
Cartíse
o:
ÚlpurA frakkar, dragtir o.fl.
Stærðir 36-52
Hamraborg 1
sími 554 6996
Garðarsbraut 15
Húsavík sími 464 2450
EYJÓLFUR Pálsson, 35 ára, var
áþreifanlega minntur á hverfulleika
lífsins þegar hann var ásamt tveimur
félögum sinum á leið til vinnu föstu-
dagsmorguninn 26. maí síðastliðinn.
Eyjólfur er búsettur í Reykjavík en
vinnur í Krýsuvík og því keyrðu þeir
félagarnir saman til vinnu á hverjum
morgni og heim aftur síðdegis. Þeir
skiptust á að keyra bílinn en þennan
morgun sat Eyjólfur í farþegasætinu
við hlið bílstjórans þegar bíll ók
framan á bíl félaganna hægra megin.
Þrír bílar lentu í árekstrinum, sex
karlmenn voru fluttir á slysadeild en
Eyjólfur slasaðist langmest.
A nokkrum klukkustundum
breyttist ósköp venjulegur föstudag-
ur í eitthvað sem Eyjólfur átti síst
von á, margra vikna sjúkrahúsvist
en hann vonast til að útskrifast eftir
viku þó svo að endurhæfingunni sé
ekki lokið þegar heim er komið. Eyj-
ólfur segir slysið hafa verið sér
áminning um það hve gæfan er fall-
völt.
Á löglegum hraða
með beltin spennt
Hann segir að þeir félagarnir hafi
vanið sig á að keyra ávallt á lögleg-
um hraða og með bílbeltin spennt og
svo hafi einnig verið þennan morgun.
Ekki er ljóst hvers vegna bíllinn
lenti framan á bílnum þeirra,
kannski dottaði hinn bflstjórinn und-
ir stýri, kannski var hann að taka
fram úr.
Eyjólfur hlaut margvíslega
áverka. Hægri handleggur þríbrotn-
aði, 10-15 sentímetrar af lærlegg
hægri fótar brotnaði í mél og þess
vegna er hægri fótur 2,5 sentímetr-
um styttri en sá vinstri. Hann
mjaðmagrindarbrotnaði einnig og
rifbeinsbrotnaði eftir allri hægri síð-
unni. Þá féllu lungun saman og lifrin
rifnaði. Hann er með nagla í hægri
fótlegg og handlegg og af þeim sök-
um er hreyfigetan mjög takmörkuð.
Honum var haldið sofandi í öndunar-
vél í þrjár vikur.
Hann man íyrst eftir sér í jarð-
skjálftanum 17. júní. Hann segist þó
ekki hafa orðið hræddur í skjálftan-
um enda hafi sér verið gefin róandi
lyf-
Tíminn mjög lengi að líða
Þó svo að Eyjólfur láti mjög vel af
endurhæfingunni og starfsfólkinu á
Grensásdeildinni segir hann tímann
mjög lengi að líða og endurhæfing-
una vera mjög mikla þolinmæðis-
vinnu. Sjúkraþjálfuninni sé lokið um
þrjúleytið og fram til miðnættis,
þegar hann fer að sofa, sé lítið við að
vera nema þá helst að horfa á sjón-
varpið.
Endurhæfingin hefur gengið mjög
vel. í upphafi var honum sagt að
hann þyrfti að vera inniliggjandi á
deildinni fram til jóla en til stendur
að hann útskrifist bráðlega. Hann
vonast til að geta farið aftur að vinna
sem blikksmiður. Hann saknar þess
að hafa ekki getað umgengist átta
ára dóttur sína um aðra hverja helgi
líkt og hann gerði áður en hann lenti
í slysinu. Þó hafa feðginin hist af og
til frá því slysið varð.
Maður veit aldrei hvað bíður
Eyjólfur lenti í slysi fyrir fjórum
árum en þá datt hann á hjóli í Heið-
mörkinni. Gaffallinn á fremra hjól-
inu gaf sig þegar hjólið var á tals-
verðri ferð. Við þetta steyptist
Eyjólfur fram fyrir sig, höfuðkúpu-
brotnaði, kinnbeinsbrotnaði, nef-
brotnaði, hlaut slæman skurð í and-
litið sem sauma þurfti saman með 42
sporum. Hann segir þetta slys hafa
verið sér mun meira andlegt áfall en
slysið í maí, sérstaklega þar sem
áverkarnir á andlitinu hafi skilið eft-
ir sig varanleg merki. Þá hafi slysin
tvö orðið til þess að sér hafi fundist
enn mikilvægara en áður að nota
Li-iraerira
sji\Y's\z\'sni\'íi\y
Morgunblaðið/Sverrir
Eyjólfur Pálsson sat í farþegasæti við hlið bflstjóra þegar bfll lenti fram-
an á bflnum hægra megin.
tímann vel. „Maður getur verið far-
inn héðan eftir hádegi. Maður veit
aldrei hvað bíður.“
Eyjólfur segist ekki vera bitur,
það verði bara að taka þessu eins og
hverju öðru áfalli. Það sé þó erfitt að
halda sér jákvæðum því það sé auð-
velt að sökkva niður í þunglyndi.
„Það er rosalegt að vera á leið í
vinnunna einn daginn og enda svo
bara uppi á gjörgæslu."
HafPP
Bragð náttúrxmnar
-og ekkert annað
Niko heildverslun hf, sfmi 568 0945
Engin aukaefni.
Enginn viðbættur sykur.
Eins og heimatilbúinn matur.
Fyrirbörn á öllum aldri.
Gott og spennandi hráefni.
Maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT
Fasteignir á Netinu víS> mbl.is
ALLTAf= eiTTH\SA£> AÍÝTl
HELLUSTEYPA JVJ
Vagnhöfða 17
112 Reykjavík
Sfmi: 587 2222
Fax: 587 2223
Gerið verðsamanburð
Tölvupústur: sala@hellustBypa.is
TRAMA7]
Barnarúm
Hlíðasmára 17
s. 564 6610