Morgunblaðið - 14.09.2000, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELÍN ÓLAFSDÓTTIR,
frá Burstafelli í Vopnafirði,
Naustahlein 5,
Garðabæ,
lést aðfaranótt þriðjudagsins 12. septi
Sjúkrahúsi Reykjavfkur, Fossvogi.
Útförin auglýst síðar.
Ástkser eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR PÉTURSSON,
Tómasarhaga 51,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þriðjudaginn
12. september.
Hlín Sigfúsdóttir,
Pétur Orri Þórðarson, Krístín Bernhöft,
Sigfús Gauti Þórðarson, Miyako Þórðarson,
Ásgeir Þórðarson,
Einar Ingi Einarsson, Svanhvít Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
MARGRÉT LÁRA RÖGNVALDSDÓTTIR,
Gullsmára 10,
áður Áifheimum 48,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 12. september.
Jarðsett verður frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 20. september kl. 15.00.
Sigurður Sveinsson,
Rögnvaldur Guðmundsson, Helga Björg Stefánsdóttir,
Ásiaug Guðmundsdóttir, Guðmundur Sölvi Ásgeirsson,
Sigríður Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Ásrún Tryggvadóttir,
Hallfríður Tryggvadóttir,
Margrét Tryggvadóttir, Ingþór Friðriksson,
Þóra Tryggvadóttir, Lárus Ragnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir mín,
1 JENNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis á Brekkugötu 25,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn
13. september.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigrún Skúladóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
ÓLAFS M. PÁLSSONAR
fv. pípulagningameistara,
Boðahlein 21,
Garðabæ.
Guðrún Björnsdóttir,
Björn Ólafsson, Jóhanna Guðnadóttir,
Gunnhild Ólafsdóttir, Finnbogi G. Kristjánsson,
Edda Ólafsdóttir, Ágúst Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúð við andlát og útför þróður okkar,
GESTS GUÐNASONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi
fyrir góða umhyggju og hjúkrun.
Systkini hins látna.
HALLDORINGI-
BERGUR ÓLAFSSON
Halldór Ingi-
bergur Ólafsson
fæddist í Reykjavík
16. desember 1948.
Hann andaðist á
Landspítalanum
Fossvogi 7. septem-
ber siðastliðinn. For-
eldrar hans voru Ól-
afur Auðunsson, f.
1925, og Salome
Loftsddttir, f. 1926.
Halldór var eina
barn þeirra. Salome
kvæntist Gunnari Ól-
afssyni, f. 1917, og
gekk hann Halldóri í
föðurstað. Gunnari og Salome
varð ekki barna auðið. Salome
eignaðist Elísabetu Guðmunds-
dóttur, f. 1946, maki Erlendur
Björgvinsson, f. 1944, og eiga þau
tvö börn. Ólafur kvæntist Ingu
Jóhannsdóttur, f. 1930. Börn
þeirra eru: 1) Auðunn Bjarni Ól-
afsson, f. 1950, maki Siguijóna
Högnadóttir, f. 1954, eiga þau
þrjú börn. 2) Bryndís Þorbjörg
Ólafsdöttir, f. 1953, maki Jón
Bergmann Jónsson, f. 1952, eiga
þau fjögur börn. 3) Kristmar Jó-
hann Ólafsson, f. 1959, maki íris
Bjarnadóttir, f. 1961, eiga þau
þijú börn. 4) Magnús Þórarinn
Ólafsson, f. 1961, ók-
væntur. 5) Ólafur
Ingi Ólafsson, f.
1964, maki Björk
Guðbjörnsdóttir, f.
1977. Ólafur á eitt
barn. 6) Þröstur Þór
Ólafsson, f. 1965,
maki Eydís L. Finn-
bogadóttir, f. 1971,
eiga þau eitt barn.
Halldór kvæntist
Heigu Elínu Bjarna-
ddttur árið 1970.
Þau bjuggu alla sína
tíð í Hafnarfirði.
Þau eignuðust tvö
börn: a) Kristínu Sigríði, f. 1969,
maki Stefán Gunnar Svavarsson,
f. 1968. Börn þeirra eru: Helga
Katrín, f. 1988, Svavar Skúli, f.
1990, Elva Björg, f. 1994, og Ósk-
ar Ingi, f. 1996; b) Gunnar Geir, f.
1973, maki Kristín Inga Sigvalda-
dóttir, f. 1972.
Hallddr ólst upp með Gunnari
og Salome á ísafirði til 16 ára ald-
urs er þau fluttu til Hafnarfjarð-
ar. Halldór tók til starfa hjá Isal
árið 1978 á flutningadeildinni þar
sem hann vann alla sína tíð.
títfór Halldórs fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
Mig langar til að kveðja kæran
tengdason, sem leystur hefur verið
frá þrautum þessa lífs langt fyrir ald-
ur fram.
Ég minnist gömlu daganna þegai-
Dóri og Elín dóttir mín komu á heim-
ili okkar hjóna. Þá var oft kátt í kot-
inu og gert að gamni sínu því hann
var orðheppinn. Þegar Kristín dóttir
þeirra fæddist bjuggu þau hjá okkur.
Þá naut ég þeirrar ánægju að passa
hana þegar mamma hennar og pabbi
voru að vinna. Elín vann vaktavinnu
og var gaman að sjá þegar Dóri tók
við litlu stelpunni sinni á kvöldin þeg-
ar hann kom heim. Þá kom í ljós hvað
hann hafði mikla ánægju af börnum,
þau áttu alla tíð stóran sess í lífi hans.
Ég vil þakka Dóra fyrir þær stundir,
sem voi-u mér mjög ánægjulegar.
Dóri var staðfastm’, ákveðinn og
vildi hafa sitt á hreinu. Hann hugsaði
alla tíð vel um fjölskylduna sína.
Barnabörnin hans áttu ekki síður hug
hans og hjarta og var gaman að sjá
hvað hann naut þess að vera afi.
Elsku Elín mín, söknuður þinn og
sorg eru mikil. Ég vil biðja góðan Guð
að styrkja þig, Kristínu, Gunnar og
fjölskyldur ykkar og gefa ykkur kraft
til að takast á við erfiða og breytta
tíma.
Ó, þá náð að eiga Jesúm
einkavin í hverri þraut
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu’ í Drottins skaut
Ó, það slys því hnossi’að hafna,
hvflíkt fár á þinni braut,
ef þú blindur vilt ei varpa
von og sorg í Drottins skaut.
Eigir þú við böl að búa,
bíðir freistni, sorg og þraut,
óttast ekki, bænin ber oss
beina leið í Drottins skaut.
Hver á betri hjálp í nauðum?
Hver á slíkan vin á braut,
hjartans vin, sem þjartað þekkir
höllum oss í Drottins skaut
Ef vér berum harm í hjarta,'
hryggilega dauðans þraut.
Þá hvað helst er Herrann Jesús
Erfisdrykkjur
P E R L A N
Sími 562 0200
tírx im iiiiiiiiii
hjartans fró og líknar skaut.
Vilji bregðast vinir þínir,
verðirðu’ einn á kaldri braut,
flýt þér þá að halla’ og hneigja
höfuð þreytt í Drottins skaut.
(Matt. Joch.)
í Guðs friði,
Kristín.
í dag verður jarðsunginn minn ást-
kæri tengdafaðir.
A svona erfiðum stundum verður
maður hljóður og rifjar upp allar þær
góðu minningar sem fjölskyldan hef-
ur átt saman í gegnum árin og þá er
ekki annað hægt en að brosa í gegn-
um tárin. Ég vildi bara óska þess að
þær hefðu orðið fleiri.
Dóri var mjög rólegur maður að
eðlisfari en þó fastur fyrir og ákveð-
inn þegar þannig bar undir. Hann var
mjög iðinn og duglegur við öll þau
verk sem hann tók sér fyrir hendur
og skilaði þeim með sóma. Hann var
mikið náttúrubarn og naut hann sín
best þegar þau hjónin dvöldu fyrir
austan í sumarbústaðnum. Þar gat
hann dvalið í tíma og ótíma og farið
hreint hamförum um lóðina, smíðað,
gróðm’sett og hlúð að staðnum. Það
verður virkilega gaman fyrir okkur
sem eftir stöndum að sjá eftir nokkm’
ár árangur erfiðis hans.
Hver hrísla og hver þjöl hefur nú
enn meira tilfinningagildi fyrir okkur
en okkur grunaði fyi’ir svo stuttu.
Ég er svo glöð yfir því að hafa
kynnst þessari fjölskyldu sem ég nú
tilheyri. Mér var strax vel tekið af
Dóra og Ellu. Og þó Dóri færi ekki
mörgum orðum um hvað honum
fannst tilfinningalega þá varð mörg-
um það vel ljóst sem til hans þekktu
að hann tók mér opnum örmum. Það
lét hann í ljós í verki í stað orða. Mér
var það ekki ljóst þá hversu mikils
virði það yrði mér nú nokkrum árum
síðar og hlýnar mér um hjartarætur í
hvert sinn er ég hugsa til þess. Það er
minning sem aldrei gleymist.
Það er mjög erfitt að sjá á eftir
Dóra og ég mun ætíð sakna hans.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga’ognæturyfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
Berhannþigífaðmisér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldreihannáburtufer.
öaK5skom
v/ FossvoqsUirUjwgctrö
Slmit 554 0500
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér
Löng þá sjúkdómsleiðin verður,
lífiðhvergivægirþér,
þrautirmagnast, þrjóta kraftar,
þungt og sárt hvert sporið er,
honum treystu, hjálpin kemur,
hann af raunum sigur ber.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
daga’ognæturyfirþér.
(S. Kr. Pétursson.)
Kristín.
Látinn er vinur okkar og frændi í
Hafnarfirði, Halldór I. Ólafsson,
langt um aldui’ fram aðeins 51 árs
gamall. I upphafi þessa árs greindist
hann með illkynja sjúkdóm sem dró
hann til dauða 7. september sl. en
hafði nokkrum mánuðum áður fundið
fyrir talsverðum verkjum og óþæg-
indum. Þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm
tókst hann á við hann af æðruleysi og
yfirvegun.
Leiðir okkar hjóna hafa legið sam-
an með Dóra og Ellu allt frá því að
þau kynntust sem unglingar í kring-
um árið 1967. Það hefur alltaf farið
vel á með okkur öllum. Við höfum
ferðast mikið saman bæði innanlands
og erlendis. Síðastliðin ár höfum við
líka oft átt með þeim góðar stundir í
fallega og notalega sumarbústaðnum
þeirra, Bjai-narbóli í Villingaholts-
hreppi. Dóri hafði mikið yndi af því að
dvelja þar og dunda við smíðar og
gróðurrækt. Meira að segja nú í sum-
ar reyndi hann að dvelja sem lengst
fyrir austan. Hann var afar handlag-
inn og vandvirkur í öllu sem hann tók
sér fyrir hendur. Hann byggði t.d. tvö
falleg hús af mikilli kostgæfni, annað
í Hvömmunum og hitt í Setbergs-
landi, þar sem þau höfðu búið sér
notalegt og fallegt frambúðarheimili.
Dóri var frekar dulur og hlédræg-
ur og undi sér best í faðmi fjölskyldu
og vina. Hann var með afbrigðum
duglegur og féll aldrei verk úr hendi
- hvort heldur sem var heima við eða
á vinnustaðnum hjá Islenska álfélag-
inu í Straumsvík, þar sem hann hafði
starfað meira en tvo áratugi.
Fyrir nokkrum árum ferðust þau
hjónin mikið um landið á húsbíl sem
Dóri hafði útbúið. Eitt skipti fórum
við hjónin með þeim í Þórsmörk á
bílnum þeirra. Þessi ferð varð okkur
ógleymanleg í ótrúlegri veðurblíðu
þar sem íslensk náttúra skartaði sínu
fegursta. Við höfum oft minnst þess-
arar ferðar og þeirra góðu daga sem
við áttum þar saman.
Dóri kynntist föður sínum og
systkinum og þeirra fjölskyldum á
fullorðinsárum og tókst með þeim
góður vinskapur sem hefur haldist
síðan.
Ella og Dóri voru afar samrýnd
hjón og báru alla tíð djúpa virðingu
hvort fyrir öðru. Við biðjum góðan
Guð að blessa minningu Halldórs og
styrkja Ellu á þessum ei’fiðu tímum.
Við vottum Ellu, Ki’istínu og Gunn-
ari, mökum þeirra og börnum okkar
innilegustu samúð.
Elín og Júlíus Bess.
Okkur langar með nokkrum orðum
að minnast góðs vinar okkai’, Hall-
dórs Ingibergs Olafssonar, sem lést
hinn 7. september sl. á Landsspítal-
anum í Fossvogi eftir mjög erfið veik-
indi. Dóra kynntumst við fyrir rúm-
um 30 árum eða um það leyti sem
hann kynntist eftirlifandi eiginkonu
sinni, Elínu Bjarnadóttur. Oft áttum
við skemmtilegar samverustundir,
bæði í ferðalögum og þegai’ kíkt var í
kaffi. Það var alltaf gott að vera í ná-
vist hans og alltaf var maður velkom-
inn á heimili þeirra hjóna, hvort sem
var í Hafnarfirði eða í sumarbústað-
num, þar sem hann undi sér vel og
átti hann þar mörg handtökin bæði
við smíðar og garðrækt. Dóri var
mjög iðinn og vinnusamur, hann
kvartaði aldrei og féll aldrei verk úr
hendi. Við þökkum honum fyrir allar
góðar stundir.
Elsku Elín frænka, Kristín, Gunn-
ar og fjölskylda, okkar innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum við guð að
veita ykkur styrk á þessum erfiðu
tímum.
Minningin um góðan mann lifir.
Esther og Ágústa
Guðmundsdætur.