Morgunblaðið - 14.09.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
_________________________FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 53
UMRÆÐAN '
BSRB vill samstarf um
framtíð heilbrigðiskerfisins
LJÓST er að enn
eina ferðina eru heil-
brigðismálin komin í
brennidepil þjóðfélags-
umræðunnar. Tvennt
hefur gerst á undan-
förnum vikum sem vert
er að gefa gaum að.
Nýjar áherslur úr
læknastétt
í fyrsta lagi heyrast
nú nýjar áherslur úr
læknastéttinni. Enda
þótt ályktun Lækna-
samtakanna á nýafstöð-
unum ísafjarðarfundi
sé um margt loðin er
þar að flnna endur-
ómun af kröfum og tillögum sem þar
komu fram um einkavæðingu heil-
brigðiskerfisins. Hér kveður við
nokkuð nýjan tón úr læknastétt sem
þegar á heildina er litið hefur fram
til þessa verið því
fylgjandi að heilbrigð-
isþjónustan sé rekin á
vegum samfélagsins
en ekki einkaaðila eins
og tíðkast í Bandaríkj-
unum. Þar er tilkostn-
aðminn aðeins að htl-
um hluta eða rúmlega
fjörutíu af hundraði
rekin fyrir skattfé.
Allar rannsóknir á
bandaríska heilbrigð-
iskerfinu eru á einn
veg. Þar er að finna
mikla félagslega mis-
munun og peningalega
sóun. I yfirlýsingu
Læknafélagsins er
engan veginn hvatt til þess að
hverfa yfir í bandaríska heilbrigðis-
kerfið. En í ljósi umræðna á fundin-
um um einkavæðingu heilbrigðis-
þjónustunnar er vert að spyrja hvað
Heilbrigðiskerfið
BSRB hefur óskað eftir
viðræðum um framtíð-
arskipan heilbrigðis-
mála, segir Ögmundur
Jónasson, og telja
samtökin sig ekki síður
eiga erindi að slíku
viðræðuborði en
Læknasamtökin.
sé átt við með því orðalagi í ályktun
fundarins að heilbrigðiskerfið
„þarfnist endurskoðunar" og boðið
upp á viðræður við stjórnvöld um
það efni.
Islandsbanki-FBA vill einka-
væða heilbrigðisþjónustuna
Enginn þarf að velkjast í vafa um
hvað fjármálamarkaðurinn vill í
þessum efnum. Skilaboðum hefur
bæði leynt og ljóst verið komið til
íTkisstjórnarinnar um að opna
gróðaöflum leið að heilbrigðisþjón-
ustunni. Fjármálamenn vita sem er
að hér er á ferðinni nær óþrjótandi
auðlind. Samfélagið og einstaklingar
munu um ókominn tíma láta mikla
fjármuni af hendi rakna til heil-
brigðismála. Þá fjármuni vilja þessir
aðilar ná í. í frétt í Morgunblaðinu
af morgunfundi Verslunarráðsins er
meðal annars vitnað í ræðu Bjarna
Armannssonar, forstjóra íslands-
banka-FBA. í fréttinni sem birtist
18. ágúst sl. er haft eftir forstjóran-
um að „ríkið væri með starfsemi á
mörgum sviðum sem það yrði að
koma sér út úr. Bjarni nefndi sér-
staklega fjármála-, orku-, heilbrigð-
is- og menntageirana og sagði heil-
brigðisgeirann velta hátt í þriðjungi
af útgjöldum ríkis og sveitarfélaga."
Ráðherra boðar
stefnubreytingu
Engum þarf að koma það á óvart
að þessar raddir skuli heyrast. Rík-
isstjórnin hefur sýnt í verki að hún
er tilbúin að ganga æði langt í einka-
væðingarátt og má þar til dæmis
nefna nýgerðan samning við fyrir-
tækin Aðalverktaka og Securitas um
að reisa og reka elliheimili í Reykja-
vík. Samningurinn við þessi fyrir-
tæki, sem koma fram undir hinu
smekklega heiti Öldungur hf., var
sannanlega mjög óhagstæður fyrir
skattborgarann. Hefur vakið furðu á
hvern hátt var mismunað við útboð-
ið - kom hugtakið einkavinavæðing
þá upp í hugann hjá mörgum - en
steininn tók þó úr þegar í ljós kom
að ekki mátti samnýta þjónustu á
stofnunum sem voru til staðar þótt
sýnt væri að það kæmi betur út fyrir
skattborgarann. Þessu máli hefur
verið skotið til rannsóknar hjá Rík-
isendurskoðanda og verður fróðlegt
að sjá niðurstöður eftir þá athugun.
Bylting
í
Fjölnota byggingaplatan
sem allir hafa beðið eftir!
VIROC byggingaplatan er fyrir veggi, ioft og gólf.
VIROC byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin,
höggþolin, frostþolin og hljóöeinangrandi.
VIROC byggingaplatan er umhverfisvæn.
VIROC byggingaplatan er platan sem
verkfræðingurinn getur fyrirskrifað nánast blint.
Staðalstærð: 1200x3000x12 mm.
Aðrar þykktir: 8,10,16,19, 22, 25,32 & 37 mm.
Mesta lengd: 305 cm. Mesta breidd: 125 cm
Viroc utanhússklæðning
PP
&co
Leitiö upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÍILA 29 S: 553 86401 568 6100
Ögmundur
Jónasson
Nú bregður hins vegar svo við að
heilbrigðisráðherra boðar stefnu-
breytingu varðandi einkavæðing-
una. Það gerði Ingibjörg Pálmadótt-
ir í yfirlýsingu sem birtist í Degi en
þar lýsti ráðherrann því afdráttar-
laust yfir í viðtali við blaðið að ekki
yrði um frekari einkavæðingu að
ræða. Ljóst er þó að þetta mun ekki
ganga átakalaust fyrir sig og má til
marks um það nefna að tveir þing-
menn Sjálfstæðisflokksins, Asta
Möller og Katrín Fjeldsted, sendu í
kjölfarið frá sér grein þar sem hvatt
er til frekari einkavæðingar.
Ráðherra sent erindi
Viðhorf markaðssinna virðast
hins vegar ganga þvert á vilja meiri-
hluta þjóðarinnar. Mjög mikilvægt
er að fram fari kröftug umræða
þjóðfélaginu um framtíðarskipan
velferðarkerfisins áður en ráðist er í
grundvallarbreytingar á því. Það er
afleitt þegar framkvæmt er án slíkr-
ar umræðu. Verst af öllu er þegar
reynt er að ná settu marki með því
að fara bakdyramegin, láta hlutina
einfaldlega „gerast“. Samtök launa-
fólks hafa látið sig þessi mál mjög
skipta á undangengnum árum og
hefur BSRB staðið þar fremst í
flokki. Kemur þar margt til. Innan
vébanda bandalagsins starfa margir
starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar
og skiptir allt skipulag hennar þá að
sjálfsögðu máli en ekki er síður á
það að líta að kjör fólks ráðast mjög
af kostnaði sem það hefur af heil-
brigðisþjónustu, bæði sem notendur
hennar og sem skattgreiðendur.
BSRB hefur því ritað heilbrigðis-
ráðherra bréf og óskað eftir viðræð-
um um framtíðarskipan heilbrigðis-
mála og telja samtökin sig ekki síður
eiga erindi að slíku viðræðuborði en
Læknasamtökin.
Höfumlur er alþingismaður og for-
maður BSRB.
um allt
Borgarnes
Bílasala Vesturlands - Borgarbraut 58
Sími 437 1577
Akranes
Bjöm Lárusson - Bjarkargrund 1 2
Sími 431 1650
ísafjörður
Bílasalan ísafjarðarflugvelli
Sími 456 4712
Sauðárkrókur
Bifreiðaverkstæðið Áki
Sæmundargötu 1 6 - Sími 453 5141
Akureyri
Bifreiðaverkstæði Sig. Valdimarssonar
Óseyri 5a - Sími 461 2960
Reyðarfjörður
Bílasalan Fjarðarbyggð - Búðareyri 25
Sími 474 1199
Egilsstaðir
Bílasala Austurlands - Fagradalsbraut 21
Simi 471 3005
Höfn í Hornafirði
Bílverk - Víkurbraut 4
Sími 478 1 990
Selfoss
Betri Bílasalan - Hrísmýri 2a
Sími 482 3100
Keflavík
Bilasala Reykjaness - Brekkustíg 38
Sími 421 6560
tsala
á notuðum bílum
Opilð; tkl M.. 2tl
alla virka daga
þÆSsa viku
án útborgunar við afhendingu
lánum í allt að 60 mánuði
fyrsta afborgun í mars 2001
ill iAH LJ Si3
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bíiheima) Sævarhöfða 2-112 Reykjavík
Símar: 525 8096 - 525 8020 - Símbréf 587 7605
BORGARBÍLASALAI1! di@nðáðvðg|i 11 - Sírtii ððð ððöö