Morgunblaðið - 14.09.2000, Side 62
52 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
SIIMGAR
ATVINNU-
AUGLÝ S IIM G A R
Frá Háskóla íslands
Líffræðistofnun
og líffræðiskor
Við Líffræðistofnun og líffræðiskor Háskóla
íslands er laust til umsóknar starf fulltrúa.
Starfið felst í almennum skrifstofustörfum,
s.s. móttöku, símsvörun, tölvuvinnslu, skjala-
vörslu, aðstoð við skorarformann og forstöðu-
mann auk almennrar upplýsingamiðlunartil
kennara og nemenda.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
skrifstofustörfum og þekkingu á Word og Excel.
Góð íslensku- og enskukunnátta er áskilin.
Um er að ræða fullt starf og þarf umsækjandi
að geta hafið störf sem fyrst. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og
hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 28. september nk.
Umsóknir er greina frá menntun og fyrri störf-
um, skal skilað til starfsmannasviðs Háskóla
íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101
Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað
og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfs-
ins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Eva Benediktsdóttir
í síma 525 4584 (netfang: http://www.starf.hi.is).
plaripmM&líií*
Hvammstangi
| - umboðsmaður óskast
Umboðsmaður óskast frá og með
1. október. Leitað er að ábyrgðar-
I fullum einstaklingi til að sjá um
dreifingu, akstur og aðra þjónustu-
þætti við áskrifendur á svæðinu.
Umsóknareyðublöð fást hjá nú-
verandi umboðsmanni, Dagbjörtu
Jónsdóttur, Hvammstangabraut
28, Hvammstanga, og sendist til
skrifstofu Morgunblaðsins,
b.t. Bergdísar Eggertsdóttur,
Kringlunni 1, 103 Reykjavík, fyrir
20. september.
Hjá Morgunblaðinu starfa rúmlega 350
starfsmenn. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins
eru í Kringlunni 1 i Reykjavík err einnig er
starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1
á Akureyri. Árvakur hf. er útgefandi
Morgunblaðsins.
STEYPUSTÖÐIN.
Steypubílstjóra
vantar
Mikil vinna.
Góð vinnuaðstaða.
Mögulegt framtíðarstarf.
Laun: Grunnkaup + bónus.
Gistiaðstaða möguleg.
Upplýsingar gefur verkstjóri, Þorsteinn,
sími 567 4001.
Embætti fangavarða
við fangelsið Litla-Hrauni
Fangelsismálastofnun ríkisins auglýsir laus
til umsóknar fjögur embætti fangavarða við
fangelsið Litla-Hrauni.
Um er að ræða þrjár stöður aðstoðarvarðstjóra
og eina stöðu deildarstjóra.
Skilyrði er að umsækjendur hafi lokið prófi frá
Fangavarðaskóla ríkisins.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðherra og Starfsmannafélags ríkisstofnana.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattartil að sækja
um.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist Fangelsismálastofnun
ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, fyrir
28. september nk.
Fangelsismálastofnun ríkisins.
TÍLBDÐ / ÚTBDÐ
Þakviðgerðir
Húsfélagið Síðumúla 22 óskar eftir áhugasöm-
um aðilum til að gera tilboð í endurbætur á
ca 450 fm þaki í Síðumúla 22, Reykjavík. Verk-
efnið felur í sér að fjarlægja núverandi þakstál,
pappaklæða þakið, koma fyrir lektum og end-
urklæða með nýju þakstáli ásamt viðeigandi
frágangi.
Verki skal lokið fyrir 15. nóvember 2000.
Áhugasamir aðilar hafi samband við Sigmund
Hannesson c/o Lögmenn við Austurvöll í síma
595 4545, Pósthússtræti 13, Box476, 121 Rvík,
póstfang: sigmundur@logmenn.com fyrir 22.
september nk.
Húsfélagið Síðumúla 22.
TILKYNNINGAR
Menntun til framtíðar
— athafnir í stað orða
Kjaramálarádstefna Kennarasambands
íslands, Grand Hótel Reykjavík, laugar-
daginn 16. september 2000 kl. 9.30—
12.30
Ráðstefnustjórar: Sigfús Grétarsson, Skóla-
stjórafélagi íslands, Magnús Þorkelsson, Félagi
stjórnenda í framhaldsskólum.
Dagskrá:
Ávarp: Eiríkur Jónsson, formaður Kennara-
sambands íslands.
Nýtt árangurstengt launakerfi í Englandi
— er lausnin fundin?
Arthur Jarman, Assistant Secretary, National
Union of Teachers í Englandi.
Hefjum kennarastarfið til vegs og virðingar
Jónína Benediksdóttir, forstjóri Planet Esja,
heilsulind.
Tónlist holl sem lýsi
Gunnar Kvaran, sellóleikari.
Bætt kjör kennara — allra hagur
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formaður Félags
grunnskólakennara.
Kaffi
Hvernig fóru hjúkrunarfræðingar að?
Ásta Möller, alþingismaður.
Eru skólakennarar óþarfir í upplýsinga-
samfélagi nútímans?
Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskól-
ans á Akureyri.
Fjárframlög til menntamála, samanburður
við önnur lönd
Ágúst Einarsson, prófessor við Háskóla
íslands.
Hvert stefnir í kennarasamningum?
Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Félags fram-
haldsskólakennara og varaformaður Kennara-
sambands íslands.
Ráðstefnuslit: Sigrún Grendal, formaður Fé-
lags tónlistarskólakennara.
Félagsmenn, sýnum samstöðu
og mætum öll.
Kennarasamband íslands.
Landbúnaðarráðuneytið
Tollkvótar vegna innflutn-
ings á ostum frá Noregi
Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með
síðari breytingum og með vísan til reglugerðar
nr. 435/2000, er hér með auglýst eftir umsókn-
um um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning:
Vara Tímabil Vörum. Verðtollur Magnt.
Tollnr. kg % kr./kg
0406.3000 Smurostur 01.07.-
31.12.00 13.000 0 0
Úthlutun er ekki framseljanleg. Berist umsóknir
um meira magn innflutnings en auglýstum
tollkvóta nemur, skal láta hlutkesti ráða úthlut-
un tollkvóta vörunnar. Innflutningur verður
því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði aug-
lýsingar vegna innflutnings á landbúnaðarvör-
um nr. 483/1995, þó skal innflutningur einungis
heimilaður frá Noregi.
Skriflegar umsóknir skulu sendar með bréfi
eða með símbréfi til landbúnaðarráðuneytis-
ins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík, og skulu
hafa borist fyrir kl. 15.00 föstudaginn 22. sept-
ember nk.
Landbúnaðarráðuneytinu,
13. september 2000.
Tilkynning frá
utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, sam-
tökum, stofnunum og einstaklingum viðtals-
tíma við sendiherra íslands til þess að ræða
hagsmunamál sín erlendis, viðskiptamöguleika
og önnur málefni þarsem utanríkisþjónustan
getur orðið að liði.
Kornelíus Sigmundsson, sendiherra íslands
í Finnlandi, verðurtil viðtals í utanríkisráðu-
neytinu mánudaginn 18. september nk. kl. 14
til 16 eða eftir nánara samkomulagi.
Umdæmi sendiráðsins nær einnig til Eistlands,
Lettlands og Úkraínu.
Nánari upplýsingar og tímapantanir eru veittar
í síma 560 9900.
ÝMISLEGT
Hross í óskilum
í Biskupstungnahreppi
Rauðstjörnótt hryssa, ca 6—8 vetra, með folaldi
frá því í vor. Jörp hryssa, ca 7 —10 vetra, með
folaldi frá því í vor. Jörp hryssa, ca 8 vetra.
Mark hófbiti aftan bæði.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Einarsson á
Torfastöðum í síma 486 8864.
Einnig fullorðinn jarpur hestur, taminn og
ómarkaður.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Skúlason í
Bræðratungu í síma 486 8844.
Verði hrossanna ekki vitjað innan 3ja vikna
frá birtingu auglýsingar þessarar verður óskað
eftir uppboði hjá sýslumannsembættinu.
Sveitarstjóri
Biskupstungnahrepps.
fomhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00.
Vitnisburðir. Ræðumaður: Guðni
Guðnason frá Kirkjulækjarkoti.
Fjölbreyttur söngur. Kaffi að lok-
inni samkomu.
Allir velkomnir.
www.samhjalp.is.
Landsst. 6000091419 VIII GÞ
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
I kvöld kl. 20.30
Lofgjörðarsamkoma í umsjón
Miriam Óskarsdóttur.
Allir hjartanlega velkomnir.