Morgunblaðið - 14.09.2000, Síða 66
66 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Dýraglens
HVERT ER LEYND-
ARMÁLID ?
0 I w ~
Hundalíf
Nú fengu ÞEIR að
< kenna á því!
Tilbúnir ? Nú
VOOOFFF!
>JUT/ v/3 , !
©Associated New:
DisL by Trftxjne i
A. faRAM»' uru.
Services, Inc. All rights reserved.
Ljóska
ACCORPINé TO THE LATEST
5URVEY, 5IXTY PERCENT OF
THE GIRLS5AIPTHEVPLAV
5P0KT5 6ECAU5E IT'5 RJN..
Samkvæmt síðustu skoðanakönnun
scgjast 60 prðsent stúlkna taka þátt f
íþróttum veg-na þess að það sé gaman.
Horft til framtíðar
Frá Hans Jörgenssyni:
JÁ, NÚ eru skotveiðimenn að óska
eftir því að fá að drepa hrossagauk-
inn, - einn sérkennilegasta og
skemmtiiegasta vorboða farfuglanna.
Nú sést varla jaðrakaninn lengur,
það er búið að reka hann burtu með
því að þurrka upp allar mýrar, sem
víða eru svo einskis nýttar sem nytja-
land, og rjúpan er drepin vægðar-
laust... Nú er ekki lengur „gengið á
rjúpu“ eins og áður var gert og þá
vegna bjargarskorts víða. - Nú er
vaðið um landið á vélbúnum tækjum
með margskota byssur og rjúpan
drepin í margföldu því magni, sem
áður þekktist - og það án þess að þörf
sé á þeirri fæðu, sem þannig fæst.
Haft er eftir fuglaíræðingi að stofn
hrossagauksins þoli nokkurra hundr:
aða dráp. Hvað er átt við með því? I
fréttinni er látið í það skína að hann
sé drápinu fylgjandi og ef svo er telur
hann sig þá vera fulltrúa fólksins í
landinu með þeirri túlkun?
Væri ekki athugandi fyrir skot-
veiðimenn að skjóta veiðibjöllur og
slíka vargfugla, með því gerðu þeir
landi og þjóð gagn um leið og þeir
njóta þess að drepa fugla og æfa
hittni sína? Ég þekki af eigin raun að
það má matreiða góðan mat af kjöti
þessara fugla. Það er enginn matur í
hrossagauknum, bringan er varla
munnbiti, svo að engin veiði er að
drepa hann, heldur aðeins dráps-
árátta. Nú er kostað milljónum í það
að klæða landið skógi og öðrum
gróðri, flestum eða öllum til yndis og
ánægju. Það er ekki langt síðan sú
vakning hófst að nokkru ráði. En
vakning í þá átt að vernda fuglalífið
og stuðla að fjölgun þess er ekki langt
undan. Það er byijað á þessu í Hrísey
í Eyjafirði og eyjan er þegar farin að
verða eftirsótt af ferðamönnum
vegna fuglalífsins þar. Þetta er byrj-
unin og framhaldið er að gera allt
landið að fuglaparadís. Næsta spor er
að friða rjúpuna, það má gera það í
áföngum t.d. stytta veiðitímann um
helming næstu tvö árin og friða hana
svo alveg. Það þarf að gera ráðstafan-
ir til að vernda fuglalífið, með stór-
átaki í því að reyna að útrýma minkn-
um, og einnig að fækka vargfuglum
og villiköttum. Einstaklingar þurfa
líka að velja á milli fugla við hús sín
eða katta sem gæludýra.
Bóndi einn, sem ég þekkti, neitaði
að hafa kött á sveitaheimili sínu, hann
sagðist heldur vilja hafa fúgla við
húsið, og hann varð ekki fyrir von-
brigðum, því að fuglasöngurinn og
það, að fylgjast með fuglalífinu þar,
var öllum til yndis. Ég hef trú á því að
vakning um að gera Island að fugla-
paradís verði orðin að veruleika með
samtökum fólksins í landinu um
miðja þessa öld, - flestum eða öllum
landsmönnum til yndis og unaðar og
góð landkynning fyrir fjölgun ferða-
manna svo um munar. Landið elds og
ýsa, þar sem allir fuglar, utan varg-
fugla, eru friðaðir fyrir skotveiði-
mönnum, með aðeins undanþágu fyr-
ir söfn og líffræðirannsóknir.
Ræktum fuglalífið á íslandi og ger-
um landið að fuglaparadís með sam-
éiginlegu þjóðarátaki.
HANS JÖRGENSSON,
Aflagranda 40, Reykjavík
Hvers virði er
umhverfi Elliðavatns?
Frá Jóni Baldri Þorbjömssyni:
SKIPULAGSYFIRVÖLD í Kópa-
vogi hafa ákveðið að gerast málsvari
breytinga á fyrirliggjandi aðalskipu-
lagi fyrir Vatnsendasvæðið í tengsl-
um við eignarnám 90,5 hektara
byggingarspildu í SV-hlíð Vatns-
endahvarfs. Þessi breyting mun
heimila fyrrverandi eigendum spild-
unnar, eignarnámsþolum, að halda
eftir 5 hektara svæði í nánd við vatn-
ið til að byggja og selja 113 íbúðir í
allt að 6 hæða fjölbýlishúsum. Til
viðbótar þessu fá eignarnámsþolar
byggingarleyfi á 32 lóðum nálægt
vatnsbakkanum. Gróflega áætlað
mun sala lóða og húsnæðis á þessum
reitum geta fært eignarnámsþolum
300-500 milijónir króna í tekjur. í
stað þess fær Kópavogsbær um-
rædda byggingarspildu á góðum
kjörum, borgar fyrir eignarnámið
tæpar 300 milljónir króna. Þetta
gerist samkvæmt samningi, svo kall-
aðri sátt um eignarnám, sem undir-
ritaður var 1. ágúst sl. Ennfremur fá
eignarnámsþolar ýmsar sporslur til
viðbótar byggingarsvæðunum, s.s.
rétt til að byggja 8 hesthúsalengjur
á Heimsenda að viðbættum öðrum 7
„strax eftir að vatnsverndarlína á
svæðinu fæst færð“.
Ekki dettur mér í hug að sjá of-
sjónum yfir þeim hagnaði fyrrver-
andi landeigenda sem fenginn er
með eignarnámi og sölu á eftirsóttu
landi á höfuðborgarsvæðinu. En ég
get ekki annað en lýst vonbrigðum
mínum með skammsýni ráðamanna
Kópavogsbæjar í þessu sambandi. I
stað þess að greiða ríflega fyrir eign-
arnám alls byggingarlandsins og
hafa með því tök á að fá upp í hluta
kostnaðar með sölu á mjög verð-
mætum viðbótarlóðum undir dreifða
og lágreista byggð eru þeir með
þessum samningi beinlínis að stuðla
að því að dýrmætasta útivistarsvæð-
ið og fegursta landið innan bæjar-
markanna verði varanlega skaddað.
Auk þess að sýna tilfinningum íbúa
sem fyrir eru á þessum svæðum
mikla vanvirðingu er bærinn einnig
að kalla yfir sig kostnaðarsama
þjónustu við lítinn byggðarkjarna.
Undirritun áðurgreinds samnings
án fyrirvara, áður en fyrirhugaðar
breytingar höfðu verið kynntar íbú-
um á svæðinu og áður en afstaða
íbúa og Skipulagsstofnunar til óhjá-
kvæmilegra breytinga á aðalskipu-
lagi var fengin, var algjörlega ótíma-
bær. I ljósi þess hlýtur að mega
endurskoða þennan gjörning. Ef það
er ekki inni í myndinni er hreinlega
verið að hafa þá sem settu landslög
um skipulagsmál og náttúruvernd,
ásamt umsagnaraðilum og Skipu-
lagsstofnun, að fífli.
Ég hvet íbúa höfuðborgarsvæðis-
ins, og reyndar sem flesta lands-
menn, að ganga, hjóla eða aka
Vatnsendamegin upp að Elliðavatni.
Kynnið ykkur aðstæður og leitið
upplýsinga um fyrirhugaðar skipu-
lagsbreytingar hjá íbúum svæðisins
eða Bæjarskipulagi Kópavogs. Látið
síðan skoðun ykkar í Ijós með því að
skrifa nafn ykkar á lista samtaka um
vernd náttúru Elliðavatns ef þið er-
uð mótfallin breytingu svæðisins úr
„Sveit í bæ“ í „Sveit á bak við blokk".
JÓN BALDUR ÞORBJÖRNSSON,
Fögrubrekku við Vatnsenda.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.