Morgunblaðið - 20.09.2000, Qupperneq 1
215. TBL. 88. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Háu olíuverði áfram mótmælt í Evrópu
Hvatt til sam-
ræmdra aðgerða
í gær þær ríkisstjórnir ESB-ríkja
sem hafa að einhverju leyti látið
undan kröfum mótmælenda og
sögðu að olíuverðið væri vandamál í
öllum Evrópuríkjunum og því yrði
að samræma viðbrögð við því. Verð-
ur það m.a. umræðuefnið á fundi
samgönguráðherra ESB-ríkjanna í
Lúxemborg í dag og þá ekki síst
eldsneytisskattarnir, sem eru mis-
munandi mOli ríkja.
Michael Mussa, helsti hagfræð-
ingur IMF, sagði í Prag í gær að
hugsanlega myndi spá sjóðsins um
4,2% hagvöxt í heiminum á næsta ári
ekki reynast rétt vegna olíuverðsins.
Þá gagnrýndi hann einnig lágt gengi
evrunnar og sagði að hátt gengi
jensins gagnvart henni gæti bundið
enda á vonir um nýtt hagvaxtarskeið
í Japan.
Litlar breytingar urðu á olíuverð-
inu í gær en þó lækkaði það heldur.
Bandaríska
öldungadeildin
Eðlileg
viðskipti
við Kína
Washington. AP.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti í gær að taka upp
eðlileg viðskiptatengsl við Kína en
í hálfa öld hefur gengið á ýmsu í
samskiptum ríkjanna á þessum
vettvangi.
Tillagan um eðlileg viðskipta-
tengsl var samþykkt með miklum
meirihluta, 83 atkvæðum gegn 15.
Verður aðgangur bandarískra fyr-
irtækja og bænda að kínverska
markaðinum auðveldari en áður
enda þrýsti atvinnulífið mjög á, að
tillagan yrði samþykkt. Voru for-
setaefnin, þeir A1 Gore og George
Bush, hlynntir henni og hefur
henni verið fagnað sem merkasta
áfanga í samskiptum ríkjanna frá
1972 er Kína opnaði gluggann fyr-
ir umheiminum.
Ymis verkalýðsfélög og íhalds-
samir hópar börðust gegn tillög-
unni og einnig mannréttinda-
samtök en þau vilja, að Banda-
ríkjastjórn geti áfram haft við-
skiptin að vopni í baráttunni gegn
mannréttindabrotum í Kína. Það
verður trauðlega gert héðan af og
alls ekki ef Kínverjar fá aðild að
Heimsviðskiptastofnuninni, WTO.
MORGUNBLAÐIÐ 20. SEPTEMBER 2000
5 690900 090000
Stefnir í sigur danskra evruandstæðinga?
Rasmussen hyggst
ekki segja af sér
Morgunblaðið, Kaupmannabðfn.
POUL Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, ætlar ekki að
boða til nýrra kosninga eða segja af
sér þó að aðild að evrópska mynt-
bandalaginu verði hafnað í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni 28. september
næstkomandi.
Á fundi í gærkvöld sagði Rasmus-
sen að gjaldeyrisbraskarar gætu
stefnt bæði danska velferðarkerfinu
og krónunni í hættu höfnuðu Danir
evrunni. Þá tilkynnti hann einnig, að
hann væri hættur við að senda
stjórnmálaleiðtogum hinna Evrópu-
sambandsríkjanna bréf og biðja þá
að ábyrgjast, að ekki yrðu gerðar
neinar breytingar á reglugerðum
ESB sem gætu stefnt danska ellilíf-
eyriskerfinu í voða.
Efuðust um aðferðina
Andstæðingar evrunnar hafa
hamrað á því, að danska velferðar-
kerfinu verði hætta búin með aðild að
myntbandalaginu vegna þess að fyrr
eða síðar verði reynt að samræma
skatta- og félagsmál í aðildarríkjun-
um. Rasmussen hefur ávallt neitað
því að evran stefni velferðarkerfinu í
hættu en ætlaði með bréfaskriftun-
um að sannfæra kjósendur sem hefðu
látið blekkjast af áróðri andstæðing-
anna. Aðrir flokkar sem fylgjandi eru
evrunni höfðu þó látið í ljós efasemdir
um að þetta væri rétt leið til þess.
Forsætisráðherrann sagði fjöl-
miðlum í gærkvöld að þar sem flokk-
arnir sem andsnúnir eru evrunni
hefðu hafnað þeirri hugmynd að allir
stjómmálaflokkar á þinginu gengj-
ust í ábyrgð fyrir ellilífeyriskerfið
væri lítil ástæða til að trufla forystu-
mennina í hinum ESB-ríkjunum.
■ Bíðja ekki/21
Ottast
kosn-
ingasvik
MIKILL mannfjöldi tók þátt í úti-
fundi, sem stjórnarandstaðan í
Serbíu boðaði til í borginni Nis í
gær. Benda allar skoðanakannan-
ir til, að forsetaefni hennar, Voj-
islav Kostunica, hafi mikið for-
skot á Slobodan Milosevic,
núverandi forseta Júgóslavíu, en
samt er því spáð, að Milosevic
muni lýsa yfir sigri sinum nærri
strax og kjörstöðum verður lokað
á kjördag, nk. sunnudag.
Stjórnarandstaðan skoraði í gær
á júgóslavneska herinn og lög-
regluna að beita ekki almenna
borgara ofbeldi jafnvel þótt Milo-
sevic skipaði fyrir um það.
Ólgan í Perú
Kosning-
ar ráð-
gerðar
1 mars
Lima. AP, AFP.
STJÓRNARANDSTAÐAN í Perú
krafðist þess í gær að mynduð yrði
bráðabirgðastjóm og Alberto Fuji-
mori forseti segði af sér tafarlaust
vegna mútumáls yfirmanns leyni-
þjónustunnar, Vlademiros Montesin-
os, sem hefur verið áhrifamesti
bandamaður forsetans síðustu tíu ár-
in.
Alberto Bustamante dómsmála-
ráðherra sagði að Fujimori hygðist
ekki láta af embætti strax þótt hann
hefði lýst því yfir á laugardag að hann
ætlaði að boða til forsetakosninga
sem fyrst og ekki sækjast eftir endur-
kjöri. Dómsmálaráðherrann sagði að
stjómin gengi út frá því að kosning-
arnar yrðu haldnar í mars og að Fuji-
mori yrði við völd til 28. júlí á næsta
ári.
Francisco Tudela forsætisráðherra
sagði að enginn fótur væri fyrir orð-
rómi í Lima um að stuðningsmenn
Montesinos í hemum kynnu að reyna
að taka völdin í sínar hendur.
Stjórnarandstæðingar og stjómmála-
skýrendur sögðu ólíklegt að valdarán
yrði reynt en bættu við að óvissan
væri svo mikil að allt gæti gerst.
■ Örlög njósnaforíngjans/20
ar með því að „lúsast" eftir götun-
um. Talið er, að um 100.000 bændur
hafi komið á dráttarvélum inn í
spænskar borgir og stærstu bænda-
samtökin á Spáni hafa hótað að lama
allt samfélagið verði ekki búið að
bæta þeim að einhverju leyti olíu-
kostnaðinn í október.
Miklar biðraðir voru í gær við
bensínstöðvar í Bretlandi og var
ástæða þeirra orðrómur um að búist
væri við öðmm mótmælum eins og
þeim sem lömuðu mestalla olíudreifi
ingu í landinu í síðustu viku. I
Þýskalandi var einnig nokkuð um
mótmæli en fátt benti til að ríkis-
stjórn Gerhards Sehröders hygðist
verða við kröfum um lægri skatta á
eldsneyti. Hún hefur þó til athugun-
ar að auka skattafrádrátt þeirra,
sem verða að sækja vinnu um langan
veg, og einnig flutningabílstjóra.
Þýskir embættismenn gagnrýndu
Skriðuföll í
Færeyjum
GÍFURLEGT úrfelli olli í gær og
fyrrinótt mestu skriðuföllum, sem
orðið hafa í Færeyjum í manna minn-
um. Urðu mestu skaðamir á norður-
eyjunum, t.d. í Klakksvík. Engan
sakaði þó og er það þakkað því, að 30
manns höfðu verið fluttir úr húsum
sínum kvöldið áður. Á Kallsey eru
tvær byggðir einangraðar en þar
eyðilögðu skriður veginn. Hurfú 30
metrar af honum í sjóinn. A mynd-
inni er verið að ryðja burt aur og
grjóti frá húsi í Klakksvfk.
London, Bcrlín, Brussel. AFP, AP, Reuters.
MÓTMÆLI gegn háu olíuverði
héldu áfram í gær í mörgum
Evrópulöndum og til nokkurra mót-
mæla kom einnig í Israel. Hafa sam-
gönguráðherrar Evrópusambands-
ríkjanna boðað til skyndifundar í
Lúxemborg í dag til að ræða ástand-
ið en Þjóðverjar hafa hvatt til þess
að viðbrögð við því verði samræmd.
Talsmaður IMF, Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sagði í gær, að hætt væri
við að spá sjóðsins um góðan hag-
vöxt í heiminum á næsta ári reyndist
ekki rétt, héldist olíuverðið áfram
jafn hátt og nú. Forseti OPEC, Sam-
taka oh'uútflutningsríkja, sagði í
gær, að hugsanlega yrði framleiðsl-
an aukin um 500.000 föt á dag lækk-
aði verðið ekki á næstu 20 dögum.
Bændur, sjómenn og vöruflutn-
ingabílstjórar héldu víða mótmælun-
um áfram í gær og í Haifa og Ashdod
í ísrael mótmæltu flutningabflstjór-