Morgunblaðið - 20.09.2000, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNB LAÐIÐ
Fjölskyldan í Borgarkoti á Skeiðum sér fyrir endann á bið eftir húsnæði
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Svefnstaður fjölskyldunnar í Borgarkoti, flatsæng, í gámnum á hlaðinu.
Ann Winter við gröfuna á hlaðinu þar sem undirstöður nýja hússins eru.
Fegin að losna úr
næturgámunum
Selfossi. Morgunblaðið.
BYRJAÐ var í gær að grafa fyrir
undirstöðum undir bráðabirgða-
húsnæði fjölskyldunnar í Borgar-
koti á Skeiðum sem hefur haft
tvo íbúðargáma sem svefnstað
eftir sólstöðujarðskjálftann í sum-
ar. „Það var ansi kalt í morgun
að fara úr gámnum og yfir í hús-
ið,“ sagði Ann Winter sem er
barnshafandi og býr í Borgarkoti
ásamt þremur börnum sínum.
Hún segist horfa björtum augum
fram á við nú þegar sér fyrir
endann á biðinni eftir húsnæði og
úrbótum en hún gerir ráð fyrir
að flytja í 75 fermetra kanadískt,
innflutt hús um miðjan október.
Hún sagðist fegin að sjá fram á
að losna úr gámnum þar sem fjöl-
skyldan hefði sofið, það væri erf-
itt að nota hann til lengdar.
íbúðarhúsið í Borgarkoti
skemmdist illa í jarðskjálftanum
og þörf er á verulegum endur-
bótum og styrkingum. „Mér þykir
vænt um þetta hús,“ sagði Ann
Winter og ennfremur að hún
gerði ráð fyrir að hægt yrði að
hefjast handa við endurbætur
strax og þau hefðu flutt yfir í
nýja húsið sem sett verður niður
á hlaðinu í Borgarkoti. Hún sagð-
ist gera ráð fyrir að endur-
bæturnar á gamla húsinu tækju
um tvo mánuði, það yrði styrkt
eftir ráðgjöf frá verkfræðingum
og lagað. Hún sagði að mat á
tjóninu næmi 4,5 milljónum en
hún ætlar að láta fara aftur yfir
matið þar sem henni hefði verið
bent á að láta gera það.
Ann Winter, sem er finnsk að
uppruna, sagðist hafa fengið boð
um aðstoð og góðar kveðjur frá
fjölda fólks frá því jarðskjálftarn-
ir dundu yfir, meðal annars frá
finnska sendiherranum. Og nú
þegar málin væru komin á hreyf-
ingu horfði allt betur við og fjöl-
skyldunni liði betur.
80-90 manns sýktir af salmonellu og búist við að tilfellum fjölgi
16 manns lagðir inn
vegna sýkingarinnar
Bresk heilbrigðisyfírvöld fylgjast grannt
með rannsðkn á upptökunum hérlendis
TÍU manns hafa verið lagðir inn á
Landspítala - háskólasjúkrahús í
Fossvogi og sex á Landspítala - há-
skólasjúkrahús við Hringbraut til
lengri dvalar og auk þess hafa fjöl-
margir verið undir eftirliti yfir nótt
á spítölunum vegna salmonellusýk-
ingar. Von er á niðurstöðum á rann-
sókn á jöklasalati í dag sem grunur
beinist að í tengslum við salmonellu-
sýkinguna sem nú hefur lagst á um
80-90 manns. Haraldur Briem sótt-
varnalæknir kveðst eiga von á því að
íleiri tilfelli bætist við út alla vikuna
og jafnvel lengur. í máli Haraldar
kemur fram að grunur beinist einn-
ig að salati í Bretlandi þar sem
salmonellusýking geisar, af svipuðu
tagi og komið hefur upp hér á landi.
Haraldur segir að bresk heilbrigðis-
yfirvöld fylgist grannt með niður-
stöðum rannsókna á upptökum sýk-
ingarinnar hér á landi.
Dole Fresh Vegetables, framleið-
andi jöklasalats sem selt er m.a. hér
á landi, ákvað strax að dreifa ekki
meira jöklasalati úr uppskeru sem
barst hingað til lands. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá Dole.
Þar segir að íslenskir fjölmiðlar
hafi undanfarna daga flutt fréttir
um að verið sé að rannsaka hvort
salmonellusýking sé í jöklasalati frá
Dole Fresh Vegetables sem selt hafi
verið til Islands. Engar skýrslur
hafi hins vegar borist enn frá heilsu-
gæsluyfirvöldum á íslandi um rann-
sóknir í þessa veru.
I fréttatilkynningunni segir að
innan við 2.000 kálhausar hafi verið
sendir til íslands úr 2,4 milljóna kál-
hausa uppskeru. Hvergi annars
staðar hafi borið á kvörtunum um
sjúkdóma sem tengjast jöklasalati
frá Dole. Fyrirtækið ráðleggur ís-
lenskum neytendum sem kynnu að
hafa áhyggjur af jöklasalati sem
þeir hafa undir höndum að skila því í
verslunina þar sem það var keypt og
fá það endurgreitt að fullu eða end-
urbætt með nýrri framleiðslu.
Spurningum neytenda um þetta mál
svarar Dole með rafpósti á vefsíð-
unni www.dole.com.
Grunur beinist að samlokum
Haraldur Briem segir að salmon-
ellusýkingin sé að mestu leyti bund-
in við höfuðborgarsvæðið en þó hafi
nokkrir einstaklingar á Suðurlandi
veikst sem ekki hafa haft tengsl við
höfuðborgarsvæðið og einnig nokkr-
ir Akureyringar sem þó voru stadd-
ir á höfuðborgarsvæðinu. Haraldur
segir að jöklasalatinu sé dreift víða
um land. Hann segir að grunur bein-
ist einnig að samlokum þar sem
salatið er að finna sem seldar eru á
bensínstöðvum og söluturnum út
um allt land. Margir hafi þá sögu að
segja að þeir hafi neytt samloku en
einnig eru dæmi um einstaklinga
sem hafa veikst sem hafa greint frá
neyslu á jöklasalati í heimahúsum.
Um þá fullyrðingu sem kemur
fram í fréttatilkynningu Dole að
hvergi hafi verið kvartað undan
sjúkdómum vegna jöklasalatsins
nema á Islandi, segir Haraldur:
„Það er ekki víst að menn átti sig á
því að sjúkdóma sem eru í gangi
megi rekja að því. Það er stór far-
aldur í Bretlandi og þeir hafa ekki
hugmynd um hvaðan þetta kemur.
Þeir hafa þó ákveðnar grunsemdir
um að þetta geti verið salat en hafa
átt í miklum erfiðleikum að rekja
þetta. Þótt Bretar hafi ekki fengið
mikið fleiri tilfelli en við líta þeir
málið mjog alvarlegum augum. Þeir
fylgjast grannt með útkomunni hér
á landi. Það er því sterkt að orði
komist að sjúkdómurinn hafi hvergi
annars staðar greinst því það vita
þeir ekkert um,“ sagði Haraldur.
Engir alvarlegir
kvillar komið upp
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur salmonellusýk-
ing í Bretlandi dregið táning til
dauða og 249 manns veikst. Har-
aldur segir að bakteríur geti komist
út í blóðrásina og þá myndist mikið
hættuástand með hættu á blóð-
þrýstingsfalli, útsáningu í önnur líf-
færi, beinasýkingum, sýkingum í
hjarta og heila. „Það er vitað að ör-
lítill hluti þeirra sem veikjast fá
svona alvarleg einkenni,“ segir
Haraldur.
Magnús Gottfreðsson, læknir á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi,
segir að nokkuð margir hafi komið á
bráðamóttöku spítalans og þurft að
liggja yfir nótt. Þá hafi líklega um
sex manns þurft að liggja í lengri
tíma á spítalanum vegna salm-
onellusýkingar. Hann segir að enn
sem komið er hafi engir alvarlegir
kvillar komið upp í tengslum við
sýkingarnar. „Stundum koma fylgi-
kvillarnir ekki fram strax og stund-
um ekki fyrr en eftir að niðurgang-
urinn er genginn um garð. Mér er
því ekki kunnugt um neina af þess-
um svæsnu fylgikvillum þegar sýk-
ingin berst í blóð, liði eða bein. Það
hef ég ekki séð í þessum faraldri. í
langflestum tilvikum hristir fólk
þetta af sér með tímanum sem er
sæmilega hraust og er ekki að taka
mikið af lyfjum. Það eru helst þeir
sem eru veikburða fyrir og eru á
lyfjum sem eiga erfiðara með að
takast á við það aukaálag sem fylgir
svona mikilli sýkingu. Sjúklingarnir
eru flestir ungt fólk sem mestan-
partinn hefur smitast á skyndibita-
stöðum. Það er greinilegt að það er
talsvert lágur aldur þar meðal við-
skiptavina. Yfirleitt eru þetta því
það hraustir einstaklingar sem eru
að sýkjast að vonandi verða þeir
ekki fyrir neinum varanlegum
skaða,“ sagði Magnús.
Söludeild í Fomalundi flokks vöru. Kynntu þér
Brciðhafða 3 • Símí 585 5050 sérstöðu okkar á www.bmvalla.is
www.bmvaila.is
Lára Margrét Ragnars-
dóttir í Tsjetsjníu
Almenning-
ur þrýstir á
stjórnvöld
LÁRA Margrét Ragnarsdóttir al-
þingismaður er þessa dagana á ferð
um Rússland ásamt sendinefnd
Evrópuráðsþings-
ins til að ræða við
þarlend stjórnvöld
og afla gagna um
ástand mannrétt-
indamála. Gögnin
verða svo lögð fýrir
haustþing ráðsins í
Strassborg í næstu
viku. Lára Margrét
fór einmitt svipaða
ferð í mars sl. á
þessar slóðir. I gær kom hún til
Moskvu eftir ferð um norðurhluta
Tsjetsjníu, þar sem átökin hafa
reyndar verið minnst. Skoðaði sendi-
nefndin aðstæður í flóttamannabúð-
um á svæðinu og sagði Lára Margrét
í samtali við Morgunblaðið að að-
stæður þar hefðu verið svipaðar og í
fyrri ferðinni.
Lára Margrét sagði að sérlegur
fulltrúi Pútíns í málefnum Tsjetsjníu,
Kalomanov, væri áhugasamur um að
ná saman öllum upplýsingum um þá
sem væru horfnir eftir átökin.
„Þeir hafa náð 800 nöfnum yfir
horfna einstaklinga á sinni skýrslu en
það er auðvitað langt í land. Vinnan
er að komast af stað og maður er að
vona að fylgt sé eftir þeim vilja sem
við finnum hjá þingmönnum og em-
bættismönnum hér í Moskvu,“ sagði
Lára Margrét.
Varðandi þiýstinginn sem Evrópu-
ráðsþingið hefur beitt Rússa um um-
bætur í Tsjetsjníu sagði Lára Mar-
grét viðbrögð yfirvalda vera misjöfn.
Álmenningur fylgdist hins vegar vel
með og veitti stjórnvöldum aðhald.
„Við vonum að eitthvað sé verið að
gera í málum. Við erum að lifa merki-
lega tíma hér og Rússamir segja það
sjálfir. Gjörbylting í hugsunarhætti á
sér stað í átt til meira lýðræðis og op-
innar umræðu. Ég finn mun á að-
stæðum frá því í ferðinni í mars og
það er gaman að taka þátt í verkefn-
um sem okkur finnst að horfi til batn-
aðar,“ sagði Lára Margrét.
Yfirheyrslur í Dúmunni
Lára Margrét mun ásamt sendi-
nefndinni eiga fleiri fundi með ráða-
mönnum í Moskvu í dag og á morgun.
Á föstudag verður fulltrúi nefndar-
innar svo viðstaddur yfirheyrslur í
Dúmunni, rússneska þinginu, vegna
átakanna í Tsjetsjníu. Að sögn Láru
Margrétar er þetta í fyrsta sinn sem
Dúman hefur yfirheyrslur sem þess-
ar opnar öllum þingmönnum. Jafn-
framt mun starfsmaður Evrópuráðs-
ins fá tækifæri til að spyrja
spuminga í yfirheyrslunum, sem
taldar eru afar þýðingarmiklar. Lára
Margrét sagði það t.d. áhugavert að
heyra hvemig Rússar spyrðu sjálfa
sig.
Lára Margrét
Ragnarsdóttir
----------------
Harður
árekstur við
Grindavík
HARÐUR árekstur varð á Nesvegi
við Grindavík um klukkan sjö í
gærkvöld. Tveir bílar lentu saman
með þeim afleiðingum að ökumaður
annars bílsins, maður um áttrætt,
slasaðist nokkuð og var hann fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild Land-
spítalans - háskólasjúkrahúss í
Fossvogi, en samkvæmt upplýsing-
um þaðan er hann ekki alvarlega
slasaður.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu er ekki vitað nákvæmlega um
tildrög slyssins, en aldraði maðurinn
ók bíl sínum á röngum vegarhelm-
ingi með fyrrgreindum afleiðingum.
Báðir bílarnir vom óökufærir og
vom þeir fluttir af slysstað með
dráttarbifreið.
I