Morgunblaðið - 20.09.2000, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
-4
Handverk
og hátækni
mætast
Kaup Marel hf. á danska fyrírtækinu
Carnitech A/S eru af hinu góða fyrir bæði
fyrirtækin að mati forsvarsmanna þeirra.
Sigríður B. Tómasdóttir var viðstödd form-
lega opnun nýs húsnæðis Carnitech A/S
í síðustu viku og komst að því að mikill
hugur er í þeim sem hlut eiga að máli.
ÞAÐ ER rúmur mánuður síðan
starfsemi hófst í nýju húsnæði
Carnitech hf. sem er í Stevring, 25
km suður af Álaborg. Húsnæðið er
12.000 m2 og er þegar fullnýtt, fyrr
en forsvarsmenn fyrirtækisins áætl-
uðu en auk Camitech A/S er Marel
Europe til húsa í byggingunni. 280
manns starfa hjá Camitech, þar af 50
í dótturfyrirtækjum þess í Seattle í
Bandaríkjunum og í Alasundi í Nor-
egi. Fyrirtækið er langstærsta
danska fyrirtæki í íslenskri eigu en
Marel hf. festi kaup á Camitech A/S
fyrir þremur ámm. Þá störfuðu 250
manns hjá fyrirtækinu en fram-
kvæmdastjórinn, Thorkild Christen-
sen, sagði í samtali við Morgunblaðið
að bætt hefði verið við starfsmanni
fjórðu hverju viku að meðaltali síðan
fyrirtækið var stofnað árið 1981. Þá
vom starfsmennirnir tólf og var
Thorkild einn þeirra, en hann er einn
af tveimur sem eftir em af upphaf-
legu starfsliði Carnitech. Thorkild
segir að kaup Marel hf. á Camitech
A/S hafi haft mikla og jákvæða þýð-
ingu fyrir fyrirtækið en Marel hf.
keypti það af Sabroe Refrigeration
A/S.
„Fyrirtækin spretta úr ólíkum
jarðvegi upphaflega. Carnitech á
rætur sínar að rekja til handverksins
en Marel er hátæknifyrirtæki. í sam-
starfinu njótum við því góðs af styrk-
leika hvors fyrirtækis fyrir sig.“
Thorkild segir að þegar litið er til
framtíðar sé ekki hægt að draga í efa
mikilvægi samstarfs fyrirtækjanna.
„Það er alveg ljóst að hátækni mun fá
meira vægi innan matvælaiðnaðar-
ins. Fyrirtæki sem ekki taka há-
tækni í sína þjónustu munu eiga erf-
iðara með að starfa."
Carnitech A/S framleiðir tækja-
búnað fyrir fisk- og kjötiðnað og
meðal helstu framleiðsluvara þess
em kerfi til rækjuvinnslu, bein-
hreinsunarvél fyrir laxaflök og ýmis
búnaður úr ryðfríu stáli. Marel fram-
leiðir eins og kunnugt er m.a. hug-
búnað, skurðarvélar auk eftirlitsbún-
aðar og voga sem upphaflega voru
það sem framleiðsla fyrirtækisins
sneristum.
Góð ákvörðun að
kaupa Carnitech
Hörður Amarson, forstjóri Marel
hf., segir að sú ákvörðun að kaupa
Carnitech A/S á sínum tíma hafi
reynst afar góð og tekur undir með
Thorkild Christensen að hún komi
vel út fyrir bæði fyrirtækin, sem rek-
in era alveg sem tvö sjálfstæði fyrir-
tæki. „Kaupin hafa skilað miklu og
samlegðaráhrif hafa orðið góð. Fyr-
irtækin hafa bæði hagnast á þeim.
Camitech er að fá ýmsa tækni frá
Marel og Marel er að nýta sér ýmis-
legt í sambandi við framleiðslu og
skipulagningu og innkaup frá Carni-
tech. Svo vinnum við saman að vöm-
þróun og markaðssetningu.“
Hörður segir að nýja húsnæðið
gefi Camitech A/S mikla möguleika í
hagræðingu þar sem það er sérhann-
að undir starfsemina. „Þetta er í
fyrsta skipti sem Camitech kemst í
sérhannað húsnæði og það gefur
mikla hagræðingarmöguleika. Það
skapar fyrirtækinu mikla möguleika
á að auka framleiðni. Húsið er reynd-
ar þegar fullnýtt þrátt fyrir vemlega
stækkun frá gamla húsnæðinu. En
það em möguleikar á stækkun þess
síðar meir.“
Thorkild Christensen tekur undir
það að mikill munur hafi verið að
komast í nýja húsnæðið. Aðspurður
segist hann búast við frekari stækk-
un Carnitech A/S.
„Það er mjög mikið að gera hjá
okkur núna. Það er t.d. mikið fjárfest
í rækjuiðnaðinum núna, en um tíu ár
em síðan mikið var fjárfest í honum
síðast. Svo hægist kannski eitthvað á
honum en þá fer annar iðnaður af
stað.“ Thorkild segir rekstur Carni-
tech A/S hafa gengið vel síðan 1992
en velta fyrirtækisins var 2,3 millj-
arðar ísl. kr. á síðasta ári. Ekki var
aðgreint í milliuppgjöri fyrri hluta
ársins 2000 milli afkomu Marel og
dótturfyrirtækja þess, en að sögn
forsvarsmanna fyrirtækisins er mik-
ill gangur í Camitech A/S núna sem
hefur undanfarna mánuði skilað
meiri hagnaði en Marel á íslandi.
„Það er eðlilegt þegar fyrirtæki
vaxa jafn mikið og Marel gerði á síð-
asta ári, en þá varð 50% innri vöxtur í
fyrirtækinu á Islandi og í Danmörku,
að vöxturinn verði ekki jafn mikill ár-
ið á eftir,“ segir Hörður en hagnaður
Marel og dótturfyrirtækja þess var
98 milljónir á fyrri hluta ársins, sam-
anborið við 225 fyrir sama tímabil í
fyrra.
Að sögn Benedikts Sveinssonar,
stjórnarformanns Marels og Carni-
tech, hafa kaupin á Camitech skilað
Marel meiri hagnaði en gert var ráð
fyrir upphaflega. „Þegar á allt er litið
hafa samlegðaráhrif fyrirtækjanna
verið mjög góð. Samstarfið hefur
verið mjög gott, fyrirtækin era ekki
alveg á sama sviði en þó að hluta til
og því bæta þau hvort annað upp.
Samstarfið við starfsmennina geng-
ur líkamjögvel."
Samstarf f yrirtækjanna
gengið vel
Thorkild er sama sinnis. „Við kom-
um úr sömu menningu og höfum
sama húmor, það skiptir ekki svo
litlu máli. Það er líka sami metnaður
hjá báðum fyrirtækjum að gera vel.“
Thorkild væntir líka mikils af fram-
haldinu. „Marel hafa verið duglegir
að nota tæknina til að skila meiri arði
í fiskiðnaðinum. Saman geta fyrir-
tækin unnið mikið starf í kjötiðnaðin-
um en þar getum við tekið mikið á.“
Thorkild telur að næstu tvö árin
eigi mikið eftir að gerast á þeim víg-
stöðvum. „Við viljum nota þá tækni
sem Marel hefur þróað í fiskiðnaðin-
um og þá reynslu sem við höfum hér
til að koma sterkari inn í á markaði í
kjötvinnslu,“ segir Thorkild. „Annað
sem við emm að þróa núna er fryst-
ing matvæla, sem felst í því að hrá-
efni er fryst í hlutum þannig að
mögulegt er fyrir neytendur að taka
eingöngu hluta úr umbúðum til
neyslu. Þetta viljum við þróa fyrir
alla matvöra, ekki bara rækju og
fisk.“
Hörður tekur undir með Thorkild
að þróunarvinna muni halda áfram
og Marel hf. og dótturfyrirtæki
stækka og eflast á næstu ámm.
Hann segir að þó ekki liggi fyrir hve-
nær húsnæði Marel hér á landi verði
stækkað þá sé það ljóst að það muni
verða gert.
Hlutabréf til sölu
í Norðurljósum hf.
HLUTABRÉF í Norðurljósum hf.
eru samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins til sölu hjá bandaríska
fjárfestingarbankanum Donaldson,
Lufkin & Jenrette, sem er með
skrifstofur í 14 borgum í Banda-
ríkjunum og 11 skrifstofur í
Evrópu, S-Ameríku og Asíu.
Herma heimildir Morgunblaðsins
að fyrirtæki á Norðurlöndum hafi
lýst vissum áhuga á bréfunum.
Talsmaður Donaldson, Lufkin &
Jenrette á skrifstofu bankans í
New York vildi í samtali við Morg-
unblaðið ekki staðfesta að svo væri
og sagðist hann hvorki geta játað
því né neitað að bréf í Norðurljós-
um væru til sölu hjá bankanum.
Við stofnun Norðurljósa hf. um
mitt síðasta ár var því lýst yfir að
markaðsverðmæti félagsins væri
um sjö milljarðar króna, en félagið
rekur Islenska útvarpsfélagið hf.,
Sýn hf. og Skífuna hf. og á auk
þess um 35% hlutafjár í fjarskipta-
fyrirtækinu Tali hf. Tekjur félags-
ins á síðasta ári voru um 4,1
milljarður króna og hagnaður af
rekstri félagsins nam 527 milljón-
um króna.
Kaupþing hf. er stór hluthafi í
Norðurljósum og við stofnun fé-
lagsins var tilkynnt að Kaupþing
myndi hafa umsjón með skráningu
og sölu hlutabréfa í félaginu á al-
mennum hlutabréfamarkaði á
þessu ári. Aðrir helstu hluthafar í
Norðurljósum eru Sigurjón Sig-
hvatsson og Jón Ólafsson sem fer
með meirihluta hlutafjár í félaginu
og er jafnframt stjórnarformaður
þess.
Næstmest
verðbólga
á Islandi
SAMRÆMD vísitala neysluverðs í
EES ríkjum var 106,6 stig í ágúst
síðastliðnum og var óbreytt frá
júlí. Á sama tíma lækkaði sam-
ræmda vísitalan fyrir Island um
0,7%.
í frétt frá Hagstofu íslands
kemur fram að frá ágúst 1999 til
jafnlengdar á þessu ári var verð-
bólgan, mæld með samræmdri
vísitölu neysluverðs, 2,0% að með-
altali í ríkjum EES, 2,3% í Evra-
ríkjum og 3,5% á Islandi.
Mesta verðbólga í Evrópu á
þessu tólf mánaða tímabili var á
Irlandi 5,7% og íslandi 3,9%.
Verðbólgan var minnst, 0,6%, í
Bretlandi, og 1,4% í Svíþjóð.
Samræmd vísitala neysluverðs
er reiknuð af hagstofum EES
ríkja í hverjum mánuði. Munurinn
á samræmdu vísitölunni og ís-
lensku neysluverðsvísitölunni er
fyrst og fremst sá að eigið hús-
næði er ekki með í samræmdu
vísitölunni.
Verðbólga í
nokkrum ríkjum
Breyting samræmdrar neysluverðs-
vísitölu frá ág. 1999 til ág.2000
írland 5,7%
SbJ Island 3,9%
Lúxemborg 3,7%
Spánn 3,6%
Portúgal 3,6%
Noregur 3,5%
Bandaríkin 3,4%
Belgía 3,4%
Finnland 2,9%
Grikkland 2,9%
Ítalía 2,6%
Holland* 2,5%
Danmörk 2,2%
Frakkland* 2,0%
Þýskaland 1,8%
Austurríki* 1,7%
Svíþjóð 1,4%
Sviss 1,3%
Bretland 0,6%
Japan -0,2%
Viðsk.lönd** pn 2,3%
Meðalt. EMU* smm 2,3%
Meðalt. ESB* 2,0%
Meðalt. EES* 2,0%
* Bráðabirgðatölur ** Skv. gengisvog Seðlab. ísl.
í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðs-
vísitölu en i Bandar., Japan og Sviss við neysluverðsvisitölur.
Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn
Lægri
hagvaxt-
arspá
ALÞJÓÐA gjaldeyrissjóður-
inn, IMF, spáir því að hag-
vöxtur verði 4% á Islandi á
þessu ári og 2,1% á því
næsta. Áður hafði sjóðurinn
spáð því að hagvöxturinn yrði
4,7% árið 2000 og 3,5% árið
2001. Þá spáir IMF að
neysluverð hækki um 4,9% á
þessu ári, en hækkunin nemi
3,5% á næsta ári. Atvinnu-
leysi hérlendis verður 1,8% á
þessu ári samkvæmt spá
IMF, og einnig á næsta ári.
Sjóðurinn spáir því að hag-
vöxtur verði að jafnaði 4,7% í
heiminum á þessu ári og 4,2%
á því næsta. Þetta er um-
talsverð hækkun frá síðustu
spá fyrir sex mánuðum, þegar
spáð var 4,2% hagvexti árið
2000 og 3,9% hagvexti árið
2001.