Morgunblaðið - 20.09.2000, Page 21

Morgunblaðið - 20.09.2000, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVTKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 21 Fjármál Verkamannaflokksins Blair og Brown neita ásökunum um ósannindi London. AP. TALSMENN Tony Blairs, forsætisráðherra Bret- lands, og Gordon Brown fjármálaráðherra vísuðu í gær á bug fullyrðingum um að þeir hefðu sagt fjölmiðlum ósatt um millj- ón punda framlag til V erkamannaflokksins. Því er haldið fram í nýrri bók eftir Andrew Rawnsley, blaðamann á The Observer, að ráðherr- arnir hafi sagt fjölmiðlum ósatt er þeir voru spurði um framlag frá Bernie Ecclestone, er stjórnar Fomúlu 1-kappakstrinum, í sjóði Verkamannaflokks- ins. Rawnsley segir þá Blair og Brown hafa verið sannfærða um að það gæti orðið þeim að falli ef í ljós kæmi að þeir hefðu vitað um framlögin frá Ecclestone. Sam- kvæmt bókinni á Brown að hafa lýst því yfir á fundi með sam- starfsmönnum, skömmu eftir út- varpsviðtal þar sem hann neitaði allri vitneskju að ef þetta kæmist í hámæli væri hann búinn að vera. Charlie Whelan, fyrrum tals- maður Browns, hélt því hins vegar fram í gær að fundur þessi hefði aldrei átt sér stað. Ráðherrann hefði farið úr bænum strax að við- talinu loknu. Þá segir Rawnsley í bókinni að Blair hafi sagt trúnaðar- vini sínum: „Þetta eru endalokin. Þeir negla mig út af þessu máli.“ Skrifstofa Blairs gaf í gær út yfirlýsingu þar sem sagt er að fullyrðing- arnar í bókinni séu ein- ungis samsuða af gömlu ásökunum, sem enginn fótur hafi verið fyrir. fhaldsmenn krefjast afsagnar Browns William Hague, leiðtogi íhaldsflokksins, krafðist þess að forsætisráðherr- ann gæfi út opinbera yfir- lýsingu um málið. „Alvar- legri ásakanir hafa ekki verið bomar á sitjandi for- sætisráðherra í seinni tíð,“ sagði Hague. Ihaldsmenn hafa þá krafist þess að Brown segi af sér embætti fjármálaráðherra vegna ásakananna, auk þess að hafa ósk- að eftir að rannsókn fari fram á málinu. Fjárframlag Ecclestone hefur valdið Verkamannaflokknum tals- verðum vandræðum, en stjórnin hefur m.a. sætt ásökunum um að framlagið hafi haft áhrif á þá ákvörðun breskra stjórnvalda að óska eftir undanþágu frá banni við tóbaksauglýsingum í Formúlu 1- kappakstrinum. Gordon Brown AP Jolo-eyja Mannskæð flóð í Mekong-fljóti MIKLIR vatnavextir hafa verið í Mekong-fljóti í Kambódíu og kostað allt að 119 Kambódíumenn lifið frá því í júlí. 31 hefur einnig beðið bana af völdum flóða í árósum Mekong í grannríkinu Víetnam í mánuðinum og óttast er að manntjónið aukist þar sem spáð er frekari vatnavöxt- um á svæðinu. 120-140.000 manns hafa flúið heimili sín á árósasvæð- inu vegna flóðanna og talið cr að alls þurfi að flytja þaðan 300- 400.000 manns. Að minnsta kosti 28 manns hafa einnig farist í flóðum í Taílandi síð- ustu vikur og varað hefur verið við frekari flóðum í miðhluta landsins. Eru þetta mestu flóð f þessum heimshluta í áratugi. Börn sjást hér vaða vatnselg á vegi á árósasvæðinu í Víetnam á leiðinni f skóla. Ekkert vitað um örlög gíslanna Jolo. Reuters, AFP. Forsætisráðherrann segir ellilífeyriskerfíð ekki í hættu Biðja ekki um ábyrgð Evrópu- leiðtoga Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Danir deila þessa dagana um það hvort Danmörk skuli gerast aðili að evrópska myntbandalaginu og hafa nýlegar skoðanakannanir bent til þess að andstæðingar evrunnar muni hafa betur í þjóðaratkvæða- greiðslunni sem efnt verður til 28. þessa mánaðar. Evrudeilunni hafa síðan tengst umræður um danska ellilífeyriskerfið. POUL Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, sem hafði boð- að að hann myndi senda fjórtán leið- togum Evrópusambandsríkjanna bréf og biðja þá um að lofa því að þeir stæðu ekki fyrir neinum breytingum á reglugerðum ESB sem kynnu að hafa áhrif á danska ellilífeyriskerfið, hætti á síðustu stundu við að senda bréfin. Með þessu hugðist Rasmus- sen svara andstæðingum aðildar Danmerkur að evrópska mynt- bandalaginu, sem segja að ellilífeyr- irinn sé í hættu verði Danmörk hluti af evrusvæðinu. Holger K. Nielsen, formaður Sósíalíska þjóðarflokksins, sem berst gegn aðild, hafði áður sagt að þessi tilraun forsætisráðherrans til að tryggja á síðustu stundu hag- stæða útkomu úr þjóðaratkvæða- greiðslunni 28. september nk., væri ótrúverðug og ábyrgðarlaus. Nielsen hefur einnig hafnað ósk Rasmussen um að Sósíalíski þjóðarflokkurinn og allir aðrir stjórnmálaflokkar sem eiga fulltrúa á þinginu gangist í ábyrgð fyrir því að ellilífeyriskerfinu verði ekki breytt. Hann segir að flokkurinn áskilji sér rétt til að breyta kerfinu síðar með því að lækka lífeyri hinna betur stæðu og hækka lífeyri hinna fátæku, sem ekki eigi kost á séreignarlífeyrissparnaði eða sérstökum lífeyrissamningum við atvinnurekendur. Helstu forystu- menn Jafnaðarmannaflokksins hafa lofað því að ellilífeyriskerfið verði óbreytt um langt skeið, jafnvel næstu kynslóðirnar, og forystumenn Vinstriflokksins og íhaldsmanna hafa gefið svipuð loforð. Hagfræð- ingar og aðrir fræðimenn sem rætt hefur verið við í fjölmiðlum efast þó stórlega um að hægt sé að ábyrgjast að kerfið verði óbreytt svo langt fram í tímann. Leiðtogar ungmenna- hreyfinga Vinstriflokksins og íhalds- manna segjast einnig vera óbundnir af þessum loforðum. Fjármálamenn og fyrirtæki óttast ekki niðurstöðuna Sífellt fleiri velta því nú fyrir sér hvaða áhrif það muni hafa á Evrópu- sambandið í heild hafni Danir aðild að myntbandalaginu. Dönsk fyrir- tæki virðast lítið kippast sér upp við skoðanakannanir sem sýna aukna andstöðu við evruna. Efnahagurinn stendur vel, og flestir trúa því að rík- isstjórnin muni eftir sem áður tengja gengi krónunnar við evruna. Fjár- málamenn gagnrýna jafnvel forsæt- isráðherrann fyrir svartnættisspár á framtíðina fari svo að aðild verði hafnað og segja að með því auki hann óróleikann á fjármálamörkuðum. Ummælum hans þess efnis að danski seðlabankinn hafi þurft að kaupa krónur fyrir 100 milljarða íslenskra króna í síðustu viku er kennt um að danska krónan lækkaði enn á mánu- daginn. Vextir á dönskum ríkis- skuldabréfum hækkuðu einnnig töluvert í fyrradag, en á sama tíma lækkuðu þeir lítillega á evrusvæðinu. Sérfræðingar telja að líklega muni danski seðlabankinn hækka vexti innan skamms. Bankar spá engum stóráföll- um verði niðurstaðan sú að Danir hafni evrunni. Unibank spáir því að atvinnuleysi muni aukast um 0,3 prósentustig til ársins 2004, sem samsvarar um tíu þúsund störfum. Jyske Bank er farinn að gera ráð fyr- ir því í ráðgjöf til viðskiptavina sinna að aðildinni verði hafnað en spáir litl- um áhrifum til skemmri tíma. Danir græða á ESB-aöild Ein aðalrök andstæðinga aðildar að myntbandalaginu eru þau að vel- ferðarkerfið, sem að mati margra Dana er hið besta í heimi, verði þá í hættu. Dagblaðið Politiken velti því fyrir sér í gær hversu mikið sé hæft í þessari trú Dana. Það leitaði til tveggja stjórnmálafræðinga við Kaupmannahafnar- og Arósahá- skóla. Niðurstaða þeÚTa er sú að danska velferðarkerfið geri vel við barnafjölskyldur, ellilífeyrisþega og fatlaða, en sinni atvinnulausum ein- staklingum, heimilislausum og eitur- lyíjaneytendum verr en sum hinna Evrópusambandsríkjanna. í nýlegu viðtali í einu dagblaðanna sagði útlenskur blaðamaður sem starfað hefur í mörg ár í Danmörku að þjóðaratkvæðagreiðslumar um Evrópumálin þar í landi hefðu í raun lítið að gera með þau málefni sem spurt væri um hverju sinni, þær væru fremur mælikvarði á vinsældir Evrópusambandsins hverju sinni. Reynist það rétt ættu fréttir af greiðslujöfnuði Dana og ESB að auka fylgið við evruna. Samkvæmt uppgjöri ársins 1999, sem nú hefur verið birt, fengu Danir meiri peninga í styrki frá ESB heldur en þeir greiddu til þess. Þar er Danmörk í hópi með Spáni, Grikklandi, írlandi og Portúgal, sem allt em ríki sem hafa mun minni þjóðartekjur á mann heldur en Danmörk. Danir græddu samtals um 3,7 milljarða króna í beinhörðum peningum á Evr- ópusambandsaðildinni. Langstærst- ur hluti þeirrar fjárhæðar sem Danir fengu greidda fór í landbúnaðar- styrki. Reyndar má búast við að þeir lækki mjög á næstu áram áður en ný aðildarríki í Austur-Evrópu, þar sem landbúnaður er stór hluti af hagkerf- inu, verða tekin inn í sambandið. YFIRVÖLD á Filippseyjum sögðu í gær, að múslimsku uppreisnarmenn- irnir og mannræningjarnir á Jolo- eyju reyndu nú að bjarga sér á flótta, en filippseyski herinn hóf stórsókn gegn þeim fyrir fjómm dögum. Uppreisnarmennirnir hafa á valdi sínu um tuttugu manns, þar af sex útlendinga, þijá Malasíumenn, tvo Frakka og Bandaríkjamann, en hafa nú ílúið búðir sínar vegna stórskota- liðs- og sprengjuhríðar stjórnarhers- ins. Hafa um 4.000 stjórnarhermenn girt af átakasvæðið á Jolo-eyju og af þeim sökum hefur ekki verið unnt að koma særðu fólki, mörgum óbreytt- um borgurum, til hjálpar. Þar er einnig farið að skorta mat og aðrar nauðsynjar. Filippseyskir embættismenn segja, að ekkert bendi til, að gíslun- um hafi verið unnið mein, en aðrir óttast, að mannræningjamir, sem kenna sig við Abu Sayyaf, muni hafa þá sér að skildi. Hafnar gagnrýni Chiracs Joseph Estrada, forseti Filipps- eyja, neitar að skipa hernum að hætta sókninni gegn uppreisnar- mönnum en vinsældir hans meðal landsmanna, sem vom litlar, hafa stóraukist eftir að hann ákvað að beita hernum. Hefur þeirri ákvörðun hans verið sýndur skilningur í Mal- asíu og Bandaríkjunum en Jacques Chirac, forseti Frakklands, hefur gagnrýnt hana. Estrada vísaði þeirri gagnrýni á bug í gær og sagði, að Frakkar hefðu engan íhlutunarrétt á Filippseyjum. Flestum ber saman um, að sókn hersins gegn uppreisnarmönnum verði að bera skjótan árangur eigi hún áfram að njóta stuðnings al- mennings á Filippseyjum. Er haft eftir óbreyttum borgurum, sem tek- ist hefur að flýja átakasvæðin, að ástandið þar sé ömurlegt. Margir séu alvarlega særðir, matvæli víða þrotin og mikil skelfing meðal fólksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.