Morgunblaðið - 20.09.2000, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 25
_______LISTIR____
Harmóníkusvall
TOJVLIST
Hljómdiskar
THE INTERNATIONAL
REYKJAVIK ACCORDION
FESTIVAL 2000
Reykjavík European City of Cult-
ure in the Year 2000. Songs 5,6, 8,
12,13,15 & 17 recorded by Sigurð-
ur R. Jónsson (Diddi fíðla). All
songs mixed and mastered by Diddi
fíðla. Project Manager: Jonatan
Karlsson. Dreifing Skífan.
RÉTT er í upphafi að biðjast af-
sökunar á allri þessari ensku, en
upplýsingar (ef upplýsingar skyldi
kalla aftan á fátæklegu innslagi -
opnan auð!) sem fylgja plötunni
eru - fyrir utan tölustafi og íslensk
mannanöfn og einstök heiti laga,
ss. Norðannepja, Sestu hérna og
Stormurinn (Rendezvous mit
Gershwin) - á ensku, sænsku
(Finska valsen og Jámtgubben),
þýsku og frönsku (svosem hinn
danskættaði en alþjóðlegi tangó,
Jalousie). Maður gæti haldið að
sumir diskar sem gefnir eru út á
síðsumri séu eingöngu ætlaðir túr-
istum eða útlendu vinafólki og
(etv.) kollegum. Og ekki orð meira
um það! Eftir fína byrjun með
Kvartett Karls Jónatanssonar &
Neistum (Norðannepja eftir Karl)
og Hot Fingers með Garðari 01-
geirssyni var maður allt í einu
staddur á „gömlu dönsunum"
(Finska valsen með Harmonikufel-
ag Föroya og Griiss mir mein
Múnchen með Genu Churchill, og
gamla vangadanslaginu, Sestu
hérna hjá mér, með Asu, Ingunni
og Heklu Eiríksdætrum). Nú fór
aftur að lifna yfir lögunum og
spilamennskunni. Jóna Einarsdótt-
ir spilaði Jalousie rólega og með
fínlegum tangótilþrifum, og
„gömlu dansarnir" héldu áfram
með Jámtgubben (Berg & Jacobs-
en) og After the Ball með Margréti
Árnadóttur. Svo kom Kalli & Co á
frönskljúfum nótum (La vie en
rose). Og tilþrifin áttu eftir að auk-
ast. Jazz fra Russland er æsilega
leikið af Bjarke Mogensen og
L’imparfait du Coer með Accor-
déon Mélancolique er „einfalt", en
gullfallegt, tregafullt og seiðandi.
Matthías Kormáksson tekur upp
taktinn frá Bjarke Mogensen með
elegans í Flick Flack, og þá koma
Svanur B. Ulfarsson og Guðbjörg
Einarsdóttir í rólegri danstakti í
101 Kramer. Þá er eftir að nefna
Spring með Bornholms Musikskol-
es Accordeon Börneorkester,
hljómar einsog byggt á gömlum
húsgöngum; öðruvísi, vandað og
vel spilað hjá krökkunum. Og aftur
í dansinn: La Bourrasque m.
Sveini Rúnari Björnssyni er dálítið
skrítinn og fallegur vals, vel leik-
inn, og Eva hans Kalla Jónatans,
„léttdjössuð“ og ágætlega leikin
með góðum takti (KJ & Neistar).
Diskurinn endar á syrpu með til-
vitnunum í þekkt verk og melodíur
Georges Gershwins, þar sem H.R.
(væntanlega Harmóníkufélag
Reykjavíkur) fer á kostum. Glan-
sendir á þessu fjölþjóðlega har-
móníkusvalli og „algjört möst!“
(svo maður geri komprómí með
enskunni og ylhýra málinu) fyrir
unnendur harmóníkunnar. Diddi
fiðla hefur örugglega skemmt sér
vel, amk. á köflum.
Oddur Björnsson
Vasar
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18
11
UGGAKAPPARl
og Z-BRAIJTIR g
K
Smíðaöar eftir máli H"'
co
co
LT)
1,11 og 111 brautir
Mlt fyrirgluggann
I
Áttþú
viðskiptahugmynd?
Íf
íí
„Stofnun og rekstur smáfyrirtækja
hefst 30. september
Nánari upplýsingar og skráning hjá
Iðntæknistofnun í síma 570 7100 og á vefsíðu
Iðntæknistofnunar http://www.iti.is.
Iðntæknistof nun 11
Keldnaholti, 112 Reykjavík
Nýsköpun
heimsins
KVIKMYJVÐIR
K e g n b ti g i n n,
Sambfóin Álfabakka,
Borgarbíó Akureyri
„TITAN AE“** 'h
Leikstjórn: Don Bluth og Gary
Goldman. Handrit: Joss Whedon. Is-
lensk talsetning: Hilmir Snær
Guðnason, Pálmi Gestsson, Þórunn
Lárusdóttir, Þórhallur Sigurðsson,
Hjálmar Hjálmarsson, Theódór
Júlíusson, Egill Ólafsson o.fl. 20th
Century Fox. 2000.
ÓÞOKKAR úr geimnum, svo-
kallaðir Drejar, ráða yfir nægri
orku til þess að gereyða jörðinni á
andartaki. Rétt áður en það gerist
sleppur frá jörðinni geimfar sem
inniheldur búnað er endurskap-
að getur bústað mannanna en far-
ið týnist í víðáttum geimsins.
Fimmtán árum síðar leggur
jarðarbúinn Cale í mikla hættuför
um útgeim ásamt félögum sínum
Akimu og Korso til þess að hafa
uppi á vélinni miklu en á hælum
þeirra eru hinir illræmdu Drejar.
Teiknimyndin „Titan AE“ er
heilmikil ævintýramynd í leik-
stjórn Dons Bluths og Garys
Goldmans. Hún gerist við upphaf
fjórða árþúsundsins og tekur ým-
islegt að láni frá öðrum útgeims-
myndum, Stjörnustríði til dæmis,
og reiðir sig kannski um of á þær
en er engu að síður oftast hröð og
spennandi og skemmtileg. Frá-
sögnin missir nokkuð dampinn um
miðbikið en nær fljótt hraða aftur
og myndin reynist á endanum
prýðileg afþreying.
Teikningarnar eru vandaðar og
er útgeimur gerður að sérstaklega
ævintýralegum stað með litfögrum
sviðsmyndum er gagnast ævintýr-
inu vel. Persónusköpunin er mjög
á kunnuglegum nótum. Aðalpers-
ónan, Cale, er eins og Logi geim-
gengill, unglingspiltur sem verður
að skilja að hann hefur heimssögu-
legt hlutverk, kærastan hans, Ak-
ima, fellur fyrir honum eftir nokk-
ur átök og skipstjórinn Kelso er
Han Solo endurfæddur.
Það er svolítið forvitnilegt að sjá
hvernig íslenska talsetningin virk-
ar í hasarmynd af þessu tagi. Yfir-
leitt, en ekki alltaf, eru teikni-
myndirnar ævintýralegar fantasíur
með einskonar alþjóðlegt tungu-
mál sem alls staðar getur átt við,
líka á Islandi. I mynd eins og „Tit-
an“ er nokkuð sérhæft hasarmál á
ferðinni, stælgæjaháttur ýmiss
konar, meitlaðar setningar og
húmor í bland. Islensku leikararn-
ir hiksta lítið á því í talsetning-
unni. Standa sig með prýði svona
langt að heiman frá sér.
Arnaldur Indriðason
Freyjukettir
á heimasíðu
FREYJUKETTIR gefa út sögur
Guðrúnar Kristínar Magnúsdóttur á
Netinu. Heimasíðan geymir nýjar
edduskýringar og kynnir bókina
Óðsmál sem útskýrir vísindi í heiðni.
Edduskýringar eru á ensku í því
skyni að veita erlendum mönnum að-
gang að fornri norrænni menningu,
en nú hafa bæst við ýmis handrit og
bækur á íslensku. Að sögn útgáfunn-
ar eru sögurnar gjöf til þeirra sem
eru að læra íslensku og til allra sem
vilja lesa góð íslensk skáldverk og
myndskreyttar sögur.
Meðal þess sem er að finna á
heimasíðunni eru handrit að helgi-
leikjum og handrit fyrir krakka að
uppfærslu á Skírnismálum, bæði á
íslensku og ensku.
Skýringar á launsögn Skírnismála
fylgja handritunum á báðum málun-
um.
Netslóðin er http://www.mmedia.
is/odsmal.
Framtíðin hefst ....ÍIUÍ
TOSHIBA
heimabíó
Nýjasta og fullkomnasta
tækni á einstöku verði!
Önnur TOSHIBA tæki fást í
Super-5 Digital Blackline myndlampi
• 180-300W magnari
• 3 Scarttengi að aftan
• 2 RCA Super VHS/DVD
tengi að aftan
Super VHS, myndavéla- og
heyrnartækjatengi að framan
• Barnalæsing á stöðvar
• Glæsilegur skápur á hjoium
með 3 hillum
• 6 framhátalarar
• 2 bassahátalarar
•2x2 bakhátalarar
verð m/öllu þessu
frá aðeins
134.900,
stærðunum frá 14"-61"
TOSHIBA DVD • SD 100
er af 5. kynslóð DVD mynddiskaspilara, með betri
myndgæðum og mun fullkomnari en aðrir bjóða!
TOSHIBA eru fremstir í tækniþróun. Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins, Pro-Drum mynd-
bandstækjanna og DVD mynddiskakerfisins. *staðgrei8siuafsiáttur er s%
Einar Farestveit&Cothf.
Borgartúni 28 • S: 562 2901 8t 562 2900 • www.ef.is