Morgunblaðið - 20.09.2000, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
>
Eitthvað
íslenskt
„Leikskáld á þrítugsaldri eiga
tiltölulega erfitt meb að finna sig
í leikhúsinu... “
m-
ISLENSK atvinnuleikhús
með Þjóðleikhús og
Leikfélag Reykjavíkur í
broddi fylkingar voru
um langt skeið haldin
þeii'ri þjóðernislegu þráhyggju
að til þess að íslenskt leikhús
stæði undir nafni væri nauðsyn-
legt að allt að helmingur verk-
efna á hverju leikári væri ís-
lenskur. Erlendir áhugamenn
um leikhús sem fregnuðu þessa
ofrausn sáu ekki nema tvær
mögulegar skýringar; annars
vegar að hér væru ekki sviðsett
VIÐHORF
Eftir Hávar
Sigurjónsson
nema svo
sem fimm
eða sex leik-
rit ái'lega í
það heila
tekið og væri þá smáþjóðin lík-
lega fær um að setja saman 2-3
verk sjálf, eða að Islendingar
væru slíkir rembingsmenn að
fyrr skyldi vanta annan fótinn
áður en sæi helti á nokkrum
manni. Islenskur skyldi helming-
urinn vera hvað sem það kostaði.
Nú er farið að sjatna í okkur
enda tengsl við aðrar þjóðir
meiri og reglulegri og alþjóðleg
menning nærtæk, hámenning,
lágmenning og póstmódernísk
menning, sem er víst hvort-
tveggja í senn og allt hitt líka. í
öllu falli virðist sem stefnan í ís-
lenskum leikhúsum sé að breyt-
ast þannig að „stóru“ leikhúsin
telja sig ekki lengur sliguð af
þeirri leiðu skyldu að sviðsetja
íslensk leikrit sama hvort þau
eiga erindi upp á svið eða ekki;
og hinsvegar að upp eru sprottn-
ir bústnir leikhópar - sjálfstæð
leikhús - sem gefa sig út fyrir að
sviðsetja ekkert annað en íslensk
leikrit. Hið ágæta Hafnarfjarð-
arleikhús (stofnað 1995) hefur
oft verið nefnt sem fordæmi um
þetta en þar á undan voru bæði
Möguleikhúsið (1990) og Banda-
menn (1992) og þar á eftir
Draumasmiðjan og íslenska leik-
húsið sem einnig hafa lagt sig
eftir íslenskum verkum. Meira
að segja nýríku hjónin, L,oft-
kastalinn og Leikfélag Islands,
þau musteri markaðshyggjunnar
í íslensku leikhúsi hafa tekið þá
„markaðslegu áhættu “ að svið-
setja „ný íslensk leikverk". Und-
irritaður hefur orðið var við það
á undanförnum vikum að viss
viðkvæmni er ríkjandi fyrir þess-
um ágæta frasa „markaðs-
ieikhús". Skilgreiningar er
greinilega þörf. Markaðsleikhús
er leikhús sem leggur sig fram
um að framfylgja því göfuga
markmiði að sýna það sem „fólk
vill sjá“. Markaðsleikhús eltir
uppi ríkjandi smekk, hefur ekki
sjálfstæða skoðun á nokkrum
hrærandi hlut, vekur ekki til um-
hugsunar um eitt eða neitt, veitir
engan innblástur til annarra
verka en það er andskotanum
SKEMMTILEGRA. Það er hið
yfirlýsta markmið markaðs-
leikhússins og hefur verið um
langan aldur og er sannarlega
gaman að verða vitni að því að
hið íslenska markaðsleikhús hef-
ur á þessu hausti uppgötvað
sjálft sig að þessu leyti.
Fleiri sjálfstæð leikhús mætti
nefna sem hafa ekki sviðsett
neitt annað en ný íslensk leik-
verk þótt hvert og eitt þeirra
hafi kannski ekki lifað nema eina
uppsetningu. Hún var þó íslensk.
Annað mál er hvort þetta
skiptir sköpum um listræna
stefnu. Hvað þýðir það að ýta
undir íslenska leikritun? Hverju
er verið að halda fram? Hvaða
hlutverki gegna leikskáld yfii'-
leitt? Listamenn almennt ef út í
það er farið. Eiga þeir að auðga
mannlífið. Hin borgaralega skoð-
un á listinni er að hún sé fagur-
fræðileg afþreying. Upphafning
frá amstri hversdagsins. Til-
finningaleg örvun. Menning á
vorum tímum er samfléttuð
markaðnum og enginn getur
komið list á framfæri nema hafa
aðgang að markaði og útvöldum
markhópi. Giftar konur á sex-
tugsaldri sækja leikhús hlutfalls-
lega meira en giftir karlmenn á
fertugsaldri. Leikskáld á þrí-
tugsaldri eiga því tiltölulega erf-
itt með að finna sig í leikhúsinu
og leikhúsin hafa átt enn erfiðara
með að finna leikskáld á þrítugs-
aldri. Leikhúsin reyna sífellt að
höfða til þeirra hópa sem erfiðast
er að draga inn í leikhúsin og
merkilegt að markaðsfræðingar
leikhúsanna skuli ekki hafa kom-
ist að þeirri einföldu niðurstöðu
að heppilegast væri að leikrita-
höfundar væru konur á sextugs-
aldri. Þjóðleikhúsið hyggur
t.a.m. á kvennasýningu í vetur.
Astkonur Pieassos. Þar eru ein-
tómar konur í öllum hlutverkum
og á öllum póstum. Og væntan-
lega munu konur sækja þessa
sýningu. Leiki'it um konur fyrir
konur. Einföld uppskrift. Höf-
undurinn er reyndar karlkyns og
drifkraftur leikritsins sömuleið-
is. Sumir eru haldnir þeirri firru,
undirritaður þar á meðal, að leik-
hús eigi sér göfugri tilgang en
þann einan að drepa tímann á
skemmtilegan, menningarlegan,
listrænan hátt. Líklega er þetta
misskilningur. Og þess vegna
eiga íslensk leikskáld svona erf-
itt uppdráttar. Skáld eru flest
haldin þessum sama misskiln-
ingi, að sköpun þeirra hafi
merkilegra markmið en drepa
tímann. Skáld vilja eiga erindi
við samtíma sinn. Skáld vilja
segja eitthvað, þau vilja hafa
áhrif. Þau vilja vekja áhorfand-
ann, lesandann, hlustandann. Til
umhugsunar eða athafna nema
hvorttveggja sé. Og þá rekum
við okkur á fyrstu hindrunina.
Jú, þetta er allt saman gott og
blessað en það verður að vera
GAMAN að þessu líka. Áhorf-
andanum, lesandanum, hlustand-
anum má ekki LEIÐAST. Þetta
verður semsagt að vera bæði
SKEMMTILEGT og alls ekki
OF LANGT. Ef þessum skilyrð-
um er fullnægt er allt í lagi þótt
áhorfandinn, lesandinn, áheyr-
andinn sé vakinn til umhugsunar
eða athafna í leiðinni. Spurningin
sem þá kviknar er auðvitað
lymskulegri því ekki er sama
hvað áhorfandinn, lesandinn,
áheyrandinn er vakinn til um-
hugsunar um eða athafna til.
Þessi spurning á náttúrlega ekki
við í okkar lýðfrjálsa landi, á
hana er bara verið að benda sem
möguleika meðal þröngsýnni
þjóða sem búa við ritskoðun eða
strangari markaðsstýringu en
hér viðgengst. Málfrelsi okkar
takmarkast ekki af neinu nema
því helst að til lítils er að tjá sig
ef enginn hlustar, les eða horfir
á. Þá er best að gæta þess að
vera SKEMMTILEGUR og hafa
töluna ekki OF LANGA.
ÞAÐ hefur stundum
vakið undrun mína,
þegar ég fylgist með
hinni ýmsu „umræðu“ í
samfélaginu, hve mönn-
um er stundum ósýnt
um að notfæra sér þá
þekkingu, sem þeir þó
hljóta að búa yfir. Mér
dettur í hug „umræðan"
um fund Ameríku.
Allir hljóta að vita,
enda kennt í barna-
skóla, að Grænland er í
heimsálfunni Ameríku.
Fyrsti Evrópumaður-
inn, sem nam land í Am-
eríku hlýtur því að hafa
verið Norðmaðurinn Eiríkur rauði, en
ekki sonur hans, Leifur. Það er m.a.s.
hugsanlegt, þótt það sé ekki sérlega
líklegt, að Leifur heppni hafi beinlínis
verið fæddur í Ameríku (þ.e. á Græn-
landi). Víst er, að hann ólst upp í
þeirri heimsálfu, sem hann er sagður
hafa uppgötvað á fullorðinsárum.
Þetta vita allir, en þó þrjóskast
menn við að telja ferð Leifs til megin-
landsins árið 1000 hafa verið „fund
Ameríku". Grænland er, og hefur allt-
af verið, alveg óumdeilanlegur hluti
Norður-Ameríku og ekki síður amer-
ískt en þær eyjar Kaiibahafs, sem
Kólumbus heimsótti 1492. Menn vita
þetta án þess að vita að þeir viti það.
Sama verður uppi á teningnum,
þegar kemur að fjölmörgu í „um-
ræðu“ heimsendaspámanna um ósón-
gatið (sem ég skrifaði um 15.8.’99) og
„gróðurhúsaáhrifirí1, sem svo eru
nefnd. Þótt undirstöðuatriði í sögu,
veðurfræði, eðlisfræði, náttúrufræði
og landafi'æði hafi verið kennd í
grunn- og framhaldsskólum um ára-
tuga skeið, virðast hinir erlendu
blaðamenn, sem ráða þessari „um-
ræðu“ almennt hafa verið tossar í
skóla, og stjórnmálamennimir, sem
ákvarðanir taka að mestu út frá skrif-
um fávísra æsifréttablaðamanna,
virðast hafa verið álíka grænir í flest-
um námsgreinum.
Loftslag á jörðinni nú er afbrigði-
lega kalt. Það eru engin sérstök tíð-
indi, að mesti óvinur alls sem lifir, er
frost og kuldi. Þetta vita allir. Skyn-
lausar skepnur, fuglar, fiskar, skor-
dýr, grös og jurtir vita þetta og leita
því ávallt í hlýjuna. Þeir fáfróðu er-
lendu æsifréttablaðamenn, sem eru
hinir raunvenilegu upphafsmenn
„umræðunnar" um ósóngatið og
„gróðurhúsaáhrifin“, vita þetta hins
vegar augljóslega ekki.
Þeir, og margir stjóm-
málamenn, t.d. A1 Gore
forsetaframbjóðandi,
hafa fengið þá flugu í
höfuðið að hlýjan, vinur
alls sem lifii', sé vond.
Hin meinlokan er þó
enn undarlegri, en hún
er sú, að heimurinn
muni farast, ef hlýnar
agnarhtið aftur á næstu
hundrað áram.
Ég sjálfur, og öragg-
lega allir aðrir, sem
gengið hafa í gegnum
grann- og framhalds-
skólakerfið hér, vita
enda kennt í grannskólum, að við lif:
um nú á ísöld, þótt hlýviðrisskeið sé. I
raun er loftslag nú afar kalt, sé miðað
við jarðsöguna í heild, og raunar einn-
ig á mælikvarða núverandi hlýviðris-
skeiðs, sem hófst fyrir eitthvað um tíu
þúsund áram, en síðan þá fer loftslag
Veðurfar
Við lifum nú á ísöld,
segir Vilhjálmur
Eyþórsson, þótt
hlýviðrisskeið sé.
hægt kólnandi. þessi kólnun er ekki
jöfn, heldur skiptast á hlýrri og kald-
ari tímabil, lengri og skemmri, en
þrátt fyrir að hitakúrfan sé hlykkjótt,
liggur hún afdi'áttarlaust niður á við
og hefur svo verið í tíu þúsund ár,
mönnunum og öllu lífríkinu til ómæl-
anlegs tjóns.
Menn hafa fundið merki um ein 15-
20 hlýviðrisskeið á núverandi ísöld og
hafa sum þeirra augljóslega verið
miklu hlýrri en það sem nú ríkir. Um
ástæður þeirra, og sjálfrar ísaldarinn-
ar, er ekkert vitað með vissu. Fundist
hafa merki um nokkrar aðrar ísaldir á
fyi-ri tímaskeiðum jarðsögunnar, en
þær hafa verið tiltölulega stuttar sé
miðað við heildarlengd jarðsögunnar.
Menn hljóta að hafa lært það í
skóla, að mestalla sögu jarðarinnar
hefur hiti verið a.m.k. 10-20 stigum
hæni en nú, og lítill eða enginn ís við
heimskautin. Mest alla sögu íslands,
þ.e. fyrstu 17 milljón árin þar til
núverandi ísöld hófst fyrir um þrem
milljónum ára, var loftslag og gróður
hér svipaður og nú er í Norður-
Kalifomíu. Slíkt loftslag er íslandi og
jörðinni allri eðlilegt, en ekki ís-
aldarkuldinn, sem nú ríkir.
Flóðið mikla
Síðasta jökulskeiði lauk í nokkrum
áföngum, en lokabráðunin virðist hafa
tekið tiltölulega skamman tíma.
Henni fylgdu óhjákvæmilega miklai'
náttúrahamfarir, stormar og flóð svo
mikil, að minningin um þau hefur
varðveist fram á þennan dag. Alls
hafa varðveist um 20Ó sagnir um
þetta mikla flóð í öllum heimshomum,
en sagnirnar um Nóaflóð, Atlantis og
Gilgamesh era e.t.v. frægastar. Mér
sýnist að menn, jafnvel lærðir sagn-
fræðingar, geri sér stundum varla
grein fyrir því hve stutt er síðan „ís-
öldinni", þ.e. jökulskeiðinu lauk. Reki
menn söguna aftur að ritun Gilg-
amesh-kviðunnai' eða byggingu pýra-
mída Egyptalands, era þeir þegar
komnir hálfa leið aftur á, Jsöld“. Þessi
tími kann að virðast langur, en er þó
svo stuttur, að hann mælist alls ekki á
mælikvarða jarðsögunnar, sem mæl-
ist í milljónum og milljörðum ára.
Ég held enn áfram að rekja það,
sem ég sjálfur lærði og aðrir hljóta
líka að hafa lært í grann- eða a.m.k.
framhaldsskóla: Fyrstu árþúsundin
eftir flóðið mikla var loftslag á norð-
urslóðum a.m.k. 4-5 stigum hlýrra en
nú er, miklu heitara en jafnvel hörð-
ustu spámenn heimsendafræðinga
nútímans, þ.e. svokallaðra „umhverf-
isvemdarsinna“ gera ráð fyrir í
„svörtustrí'jspám sínum.
Þá var Island nánast paradís á
jörðu í samanburði við það sem nú er,
enginn Vatnajökull, aðeins fáeinar
jökulhettur á hæstu tindum og landið
allt grænt óg gróðri vafið. Allt lífríkið
tók við sér. Gífurleg landflæmi víða
um heim, sem áður höfðu verið lítt
byggileg vegna kulda eða þurrka,
urðu nú aftur byggileg mönnum, dýr-
umogjurtum.
Loftslag var miklu rakara vegna
hlýindanna. Sahara-eyðimörkin var
t.d. grasi gróin og þéttbyggð mönnum
og skepnum. Síðan kólnaði hægt og
hægt og þornaði því jafnframt smám
saman, svo byggðin færðist til strand-
ar og í Nílardalinn. Enn á tímum
Rómverja vora þó Timgad og fleiri
borgir reistar í blómlegum landbún-
aðarhéraðum Norður-Afríku, þar
sem nú era sandöldur einar.
Síðan þá hefur loftslagi áfram hægt
og sígandi verið að hraka, þ.e. það er
að kólna og þorna, öllu lífríkinu til
tjóns og stefnir óhjákvæmilega í nýtt
jökulskeið eftir nokkur þúsund ár.
Kílómetraþykkur jökull mun þá aftur
leggjast þar yfir, sem ýmsar helstu
borgir Vestur-Evrópu og Norður-
Ameríku standa nú.
„Gróðurhúsaáhrifin", ef einhver
era, gætu hugsanlega hægt á þessari
þróun eða stöðvað hana.
Vonandi fer svo.
Höfundu r stundar ritstörf.
Vonandi verða
groður-
húsaáhrif
Vilhjálmur
Eyþórsson
Ertu enn að kenna?
„ERTU enn að
kenna?“ Þetta er það
fyrsta sem ég er spurð-
ur að þegar ég hitti fólk
á fömum vegi, bæði
kunningja og gamla
nemendur. Margir virð-
ast hissa en aðrir fullir
samúðar. Þegar ég hef
svo lýst mig sekan fylg-
ir oftast í kjölíárið: „Er
ekki ástandið í skólun-
um ferlegt og miklu
verra en það var?“ Við
þeirri spumingu er ekki
til neitt einfalt svar því
skólahald hefur breyst
mjög mikið frá því ég
steig mín fyrstu spor í
kennslu fyrir liðlega fjórðungi aldar.
Skólarnir vora þá að kljást við mörg
og oft illleysanleg vandamál. Vanda-
mál núna endurspegla væntanlega
þær breytingar sem orðið hafa á
þjóðfélaginu, era öðra vísi en áður og
kalla á aðra meðhöndlun. Nú era t.d.
komnir inn í almennu grannskólana
nemendur sem sáust þar ekki áður,
vora í sérskólum eða á heilbrigðis-
stofnunum. Grannskólunum er ætlað
að koma til móts við þarfir þessara
nemenda en mikið
skortir á að þeim sé
búin sú umgjörð sem
gerir það mögulegt.
Þessi vandi eða úrræða-
leysi gerir það að verk-
um að kennarastarfið
er orðið svo krefjandi
og erfitt að fjöldi hæfra
kennara hefur horfið til
annarra starfa. Er því
von að spurt sé: „Ertu
ennaðkenna?"
Eins og áður segir
hef ég verið grann-
skólakennari býsna
lengi og ekki fer hjá því
að maður velti stundum
fyrir sér hvað orðið hafi
úr nemendunum, hvar þeir séu stadd-
ir núna því vissulega hefur verið mis-
jafn sauður í mörgu fé. Flugmaður,
kennari, skipstjóri, lyfjafræðingur,
læknir, framkvæmdastjóri, frétta-
maður, þáttagerðarmaður hjá er-
lendri sjónvarpsstöð, framámaður í
ungliðahreyfingu stjórnmálaflokks,
leikskólakennari, bankastarfsmaður,
fallhlífastökkvari-lögreglumaður,
verkamaður, sjómaður, endurskoð-
andi, hjúkranarfræðingur, lögfræð-
Kennsla
Kennarastarfíð er orðið
svo krefjandi og erfítt,
segir Finnbogi
Sigurðsson, að fjöldi
hæfra kennara hefur
horfíð til annarra starfa.
ingur o.s.frv. Ekki fer hjá því að það
gleðji mitt gamla hjarta að fylgjast
með velgengni þessara gömlu nem-
enda minna sem sumir hverjir hafa
þurft að klífa þrítugan hamarinn til
að ná þangað sem þeir era nú. Og
ekki síður að hitta þá á förnum vegi
því glaðlegt brosið og hlýlegt viðmót
þeirra er mér meira virði en nokkrar
krónur í budduna. Þess vegna er ég
enn að kenna.
Höfundur er grunnskólakennari,
formaður Kennaraféiags Rcykjavik-
ur, varaformaður Félags grunn-
skólakennara og grunnskólakennari
( Fellaskóla.
Finnbogi
Sigurðsson