Morgunblaðið - 20.09.2000, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 20.09.2000, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 M------------------------------ MORGUNB LAÐIÐ MINNINGAR + María Ester Þórðardóttir var fædd í Reykjavík hinn 1. desember 1930. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut hinn 12. september síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Þórður Ás- * mundur Jóhannsson, f. 24. nóvember 1906, d. 27. septem- ber 1974 og Auð- björg Gissurardótt- ir, f. 28. febrúar 1905, d. 2. janúar 1978. Systur hennar eru: Ólafía Guðný, f. 3. ágúst 1935, Klara Ingibjörg, f. 9. janúar 1941 og Anna Auður f. 11. júní 1951. Ester eignaðist eina dóttur, Guðrúnu Agústu. Faðir hennar er Arne Magnússon, búsettur í Reykjavík. Eiginmaður Guðrún- ar er Guðjón Kristjánsson, bóndi í Stekkjarholti í Skagafirði. Börn þeirra eru fimm: Kristján Aust- Elsku amma mín, það er sárt að missa þig en ég veit að þér líður vel þar sem þú ert núna. Enginn veit hversu langan tíma við höfum til umráða í lífinu en ég hélt hann yrði lengri. Stundirnar sem við áttum saman voru mjög dýrmætar. Það var lengi vel langt á milli okkar, ég í Skagafirði og þú í Reykjavík, en þú komst alltaf til okkar um jól og páska og í sumar- fríinu þínu. Það var ekki fyrr en ég flutti suður haustið 1993 og bjó hjá Tþér einn vetur að við kynntumst betur og urðum mjög nánar. Það var þá sem ég sá hvað þú varst ung í hjarta þínu og lífsglöð, þegar þú varst nálægt var alltaf stutt í bros- ið. Þegar ég bjó hjá þér fór ég á táknmálsnámskeið á kvöldin til að dal, barn hans er Agnes Rut. Sólborg Indi'ana, Auðbjörg Ósk, Hjördfs Ester og Guðjón Ólafur. Fyrir átti Guðrún dótturina Þórhildi Maríu Jónsdóttur. Ester ólst upp að Baldursgötu 10 í Reykjavík hjá syst- kinunum Guðrúnu Einarsdóttur, f. 25. júlí 1893, d. 24. september 1976 og Ágústi Einarssyni, f. 3. mars 1888, d. 14. ágúst 1967. Síðar fluttu þau að Skúlagötu 64. Hún stundaði sína skólagöngu við Málleysingjaskólann að Stakkholti 3. Ester starfaði við bókband alla starfsævi sína eða í yfir fimmtíu ár, fyrst hjá Arnar- felli og síðan Bókfelii er si'ðar sameinaðist Félagsbókbandinu. Útför Maríu Esterar fer fram frá Grensáskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. eiga auðveldara með að tala við þig. Það var alltaf gaman að koma heim og sýna þér hvað ég hafði lært í það skiptið og stundum gat ég meira að segja kennt þér ný tákn, eins og þú hafðir svo oft kennt mér. Ég man þegar ég var lítil og var að láta þig heyra hljóð sem ég heyrði en þú heyrðir ekki, þá brostirðu til mín og kinkaðir kolli. Mér fannst þú alltaf geta heyrt það sem ég heyrði og sagði, manstu hvernig ég hvíslaði alltaf að mömmu þegar ég var að rella um eitthvað sem ég vildi ekki að þú heyrðir? Við hittumst alltaf reglu- lega, fórum í leikhús, í bæinn að skoða í búðir eða út að borða og þótti okkur þá best að fá okkur kjúklingabita. Þegar við hittumst komst þú alltaf á réttum tíma en ég kom alltaf aðeins of seint, þú lést það ekki á þig fá og beiðst eftir mér, sennilega farin að þekkja mig. Eftir að þú fluttir á Hrafnistu hafðir þú nægan tíma til að sinna handavinnunni þinni, þú varst sí- fellt að sauma út, mála og prjóna, alveg til síðasta dags. Þú veiktist haustið 1997 en þrátt fyrir erfiða baráttu varstu alltaf sterk og dugleg að yfirstíga veik- indin og lyfjameðferðina. Þegar þú veiktist aftur núna í haust hélt ég að þú myndir sigrast á veikindun- um eins og áður, en sú varð ekki raunin. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa getað verið hjá þér þessa síðustu daga. Þú varst alltaf falleg með svo falleg augu sem sáu meira en flest önnur. Ég mun aldrei gleyma síðasta brosinu sem þú sendir mér. í litlu bókinni sem þú gafst mér, amma mín, stendur við afmælis- daginn þinn: „Þegar við höfum af heiðarleika reynt að fylgja því besta sem í okkur býr lifum við líf- inu rétt og endum það á réttan hátt.“ (M. Tambs Lykke úr bókinni Listin að lifa.) Mér finnst þessi orð eiga vel við líf þitt. Amma mín, ég þakka þér fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman. Ég mun ætíð geyma þig í hjarta mér. Þórhildur María. Elsku amma. Nú ertu farin frá okkur. Þú komst alltaf í heimsókn til okkar um jól og páska með fullt af gotteríi og fallega pakka. Svo varstu líka alltaf brosandi og hlóst að ærslaganginum í okkur. Það verður skrýtið að koma til Reykja- víkur og geta ekki heimsótt þig. Við munum sakna þín og dillandi hlátrinum þínum. Takk fyrir allt sem þú færðir okkur og allar góðu minningarnar, elsku amma. Megi góður Guð geyma þig. Kristján, Sólborg, Auðbjörg, Hjördís og Guðjón Ólafur. Ég vil minnast í fáum orðum vin- konu minnar, Esterar, eins og hún var alltaf kölluð. Kynni okkar hóf- ust þegar ég, smástelpa, kom með móður minni vestan úr Önundar- firði til að hefja nám í Málleys- ingjaskólanum, eins og skólinn hét þá. Á þessum aldri eru börn fljót að kynnast og innan tíðar vorum við Ester orðnar góðar vinkonur. Hún var glaðlynd að eðlisfari í hópi skólafélaga þó að hún ætti skap til ef henni þótti á sig hallað. Hún var þó ætíð fljót til sátta. Við sem vor- um utan af landi urðum að vera í heimavist skólans ef við áttum ekki ættmenni í bænum til að gista hjá eða fara heim til þegar helgarfrí var í skólanum. Það var því ekki laust við að ég öfundaði Éster að geta farið heim til sín að loknum skóladegi. I rishæð gamla skóla- hússins var einn salur með svefn- bekkjum þar sem við stúlkurnar vorum, en drengirnir gistu í kjall- ara skólabyggingarinnar. Heldur þætti þetta ófullkomin aðstaða í dag fyrir kröfuþjóðfélag nútímans. En þrátt fyrir þrengsli og aðstöðu- leysi fyrir einkalíf var furðu lítið um ósætti meðal nemenda. Við lærðum svo sannarlega að sýna hvort öðru tillitssemi sem var góð- ur undirbúningur fyrir skóla lífs- ins. Nokkru eftir að ég kom í skól- ann kynnti Ester mig fyrir fóstur- foreldrum sínum, systkinunum Guðrúnu Einarsdóttur og bróður hennar Ágústi Einarssyni sem þá héldu heimili á Baldursgötu 10 og síðar á Skúlagötu 64. Til þessara systkina kom Ester á þriðja ald- ursári frá föðurömmu sinni Ólöfu Þórðardóttur. Ester ólst upp við mikið ástríki Guðrúnar og Gústa sem voru nokkuð við aldur er þau tóku Ester að sér. Á heimili þeirra vorum við skólafélagar Esterar au- fúsugestir, hvernig sem á stóð og segir það nokkuð um hjartalag systkinanna. Þar kynntist ég einn- ig Auðbjörgu Gissurardóttur, móð- ur Esterar, sem kom stöku sinnum í heimsókn til að líta eftir með dóttur sinni og spjalla við systkin- in. Á þessum tíma átti Auðbjörg þess ekki kost að sjá um uppeldi dóttur sinnar. Engu að síður voru þarna miklir kærleikar á milli sem MARIA ESTER ÞÓRÐARDÓTTIR Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blað- inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. + í dag eru liðin 130 ár frá fæð- ingu Jðnasar Krist- jánssonar læknis, brautryðjanda nátt- úrulækningastefn- unnar og helsta hvatamanns að stofnun Náttúru- lækningafélags Is- lands, en það var að hans frumkvæði sem Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, áður Heilsuhæli NLFÍ, tók til starfa í júlí 1955. Jónas Kristjánsson fæddist á Snæringsstöðum í Svfnadal 20. september 1870 og lést í Heilsuhæli NLFÍ í Hvera- gerði 3. aprfl 1960. Það var árið 1881 þegar Jónas var 11 ára gamall, að móðir hans dó, aðeins 40 ára að aldri, frá átta börnum og eiginmanni. Móður- missirinn varð til þess að Jónas hét því að verða læknir og verja lífi og kröftum til líknar og hjálpar öllum þeim sem þjást. Með dugnaði og þrautseigju lauk hann ætlunar- verki sínu en hann lauk læknanámi 1901 en það sama ár giftist hann Hansínu Benediktsdóttur, dóttur séra Benedikts Kristjánssonar á Grenjaðarstað, sem studdi hann með ráðum og dáð til mennta en Jónas var bróðursonur Benedikts. Læknishjónin settust fyrst að á Austurlandi og bjuggu lengst af að Brekku í Fljótsdal. Jónas ávann sér fljótt virðingu og hylli fyrir störf sín, en hann var talinn ein- hver fremsti skurðlæknir sinnar samtíðar. Jónas var skipaður hér- aðslæknir á Sauðár- króki 1911 og var vel látinn af samferðafólki sínu og minnast marg- ir aldnir íbúar Sauðár- króks hans með hlýju og virðingu. Honum voru öll framfararmál hugleikin og lagði hann víða hönd á plóg til góðra verka. Þá sat hann á Alþingi um skeið en þann tíma taldi hann tímasóun og leiðinlegasta tíma- bil ævinnar. Jónas kom víða við, hann átti þátt í því að vatnsveita var lögð til Sauðárkróks, hann var einn af stofnendum Framfararfélags Sauðárkróks og forseti þess meðan hans naut við, hann stóð að stofnun skátafélagsins Andvara 1922 og stofnaði Tóbaksbindindisfélag Sauðárkróks 1929 og var því frum- kvöðull í tóbaksvörnum hér á landi, eins og í svo mörgum öðrum mál- um. Mesta afrek Jónasar á þessum árum var þó framganga hans í því að koma á samgöngubanni yfir Holtavörðuheiði þegar spænska veikin gekk yfir landið. Jónas lét af embætti héraðs- læknis 1938 og fluttust þau hjónin þá til Reykjavíkur en börn þeirra Qögur voru þá flutt að heiman en tvær dætur þeirra hjóna eru enn á iífi, Ásta og Guðbjörg Birkis. Því hefur verið haldið fram, að hið eiginlega ævistarf Jónasar hafi byijað eftir að hann lauk störfum sem embættismaður tæplega sjö- tugur að aldri og fluttist suður. Síðustu 20 ár ævinnar vann hann að því að kynna náttúrulækn- ingastefnuna, sem hann hafði heill- ast af á ferðum sínum erlendis, en stefnunni kom hann fyrst á fram- færi á fundi Framfarafélags Sauð- árkróks 1923. Jónas stóð að stofn- un Náttúrulækningafélags Islands á Sauðárkróki 5. júlí 1937. Hann vildi bæta heilsu og auka lífsgæði þjóðarinnar með heilbrigðum lífs- háttum. Hann boðaði engar flóknar aðferðir en gerði grein fyrir ýms- um valkostum í mataræði, hreyf- ingu og almennum lífsháttum. Áll- ar áherslur hans snerust um heilbrigði og hvernig auka mætti mótstöðu líkamans gegn sjúkdóm- um. Hann talaði oft fyrir daufum eyrum og mátti þola harkalega gagnrýni, m.a. frá starfsbræðrum samtímans sem gerðu lítið úr hug- myndafræði hans um samspil heilsufars og heilbrigðra lífshátta. Til gamans má geta þess að þetta var á þeim tíma þegar tóbak var auglýst í Læknablaðinu. í dag les- um við orð Jónasar Kristjánssonar læknis í stefnu Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar um heilbrigði fyrir alla árið 2000. I minningargrein um Jónas sagði Björn L. Jónsson, náinn sam- starfsmaður hans og síðar yfir- læknir Heilsuhælisins m.a.: „Hefði Jónas Kristjánsson farið troðnar slóðir, mundi nafn hans hafa geymst sem eins vinsælasta og besta læknis síns tíma og sem öðl- ings í hvívetna. En nú hverfa þess- ir kostir í skuggann fyrir því brautryðjandastarfi, sem hann helgaði síðari hluta langrar starfs- ævi.“ Boðskapur Jónasar Kristjáns- sonar átti ekkert skylt við óraun- hæfa draumóra. Heilsutrúboð hans, en það orð var stundum not- að um kennningar hans í niðrandi merkingu, var trúin á það eða öllu heldur fullvissan um það að með ábyrgum og heilsusamlegum lífs- háttum öðlist menn heilbrigt og JONAS KRISTJÁNSSON Ester uppskar ríkulega við fráfall Auðbjargar. Einnig kynntist ég þar Geira frænda, trésmið, sem var mikill heimilisvinur og hjálparhella. Ef eitthvað fór úrskeiðis var venjan að kalla hann til enda úrræðagóður maður. Margir fleiri góðir heimilis- vinir vöndu komur sínar til systkin- anna og aðstoðuðu þegar þörf var. Eftir að skólanámi lauk fór Est- er að vinna við bókband sem varð hennar ævistarf. Fyrir nokkrum árum fór heilsu hennar að hnigna og fluttist hún á Hrafnistu þar sem hún undi hag sínum vel og naut þar góðrar umönnunar starfsfólks. Þar var hún í samfélagi heyrnarlausra vina sinna sem áttu jafnframt heimili þar. Ester eignaðist dóttur sem heitir Guðrún Ágústa Arnesdóttir. Þessi stúlka var augasteinn fjölskyldunn- ar og auðgaði líf Esterar og fóstur- foreldra hennar á efri árum. I dag er kominn fjöldi myndarlegara af- komenda frá Guðrúnu Ágústu sem er gift Guðjóni Kristjánssyni bónda. Þau búa í Stekkjarholti í Skagafirði. Guðrún Ágústa á stór- an barnahóp, alls 6 börn. Á seinni árum átti Ester margar ánægju- legar ferðir til Gunnu Gústu sinnar eins og hún nefndi hana jafnan þegar frí gafst frá vinnu að sumri til eða á stórhátíðum til að geta verið í návist hennar og barnanna. Ester átti eitt barnabarnabarn sem hún hafði nýlega séð og glaðst yfir. Það var venja hjá okkur skólafé- lögum Esterar að heimsækja hana reglulega á Skúlagötu 58 þar sem hún bjó í eigin íbúð í mörg ár og undi hag sínum vel. Eigum við margar hugljúfar minningar frá þeim dögum. Við minnumst gestr- isni hennar og hversu glöð hún var í vinahópi. Það gat því dregist í tíma að gestirnir kveddu og kannski síðasti strætisvagninn farinn þegar sam- komunni lauk. Ég veit að ég mæli fyrir munn okkar allra sem tóku þátt í þeim heimsóknum þegar ég flyt þakklæti fyrir áratuga vináttu og votta aðstandendum samúð mína. Hervör Guðjónsdóttir. farsælt líf. Þessi sannfæring hans studdist við sterk rök og einnig órækar sannanir. Og hér voru þær bornar fram af heilsteyptum mannvini, af hugsjónamanni í sönnustu merkingu þess orðs. I ávarpi Jónasar sem birtist í fyrsta hefti Heilsuverndar, tíma- rits NLFÍ, árið 1946 segir hann m.a.: „Náttúrulækningastefnan lít- ur svo á, að flestir sjúkdómar stafi af því, að vér brjótum lögmál þau eða skilyrði, sem fullkomnu heil- brigði er háð. Vísindi framtíðarinn- ar eiga án nokkurs vafa eftir að sýna fram á þessa staðhæfingu þegar vísindamönnum þjóðanna ber sú gæfa til, að leita orsaka sjúkdóma í stað þess að huga nær eingöngu að meinunum sjálfum. Til þess að skapa heilbrigt og dugandi þjóðfélag, þarf andlega og líka- mlega heilbrigða þegna. Undir- staða heilbrigðinnar eru réttir lifn- aðarhættir og rétt fræðsla. En heilsurækt og heilsuvernd þarf að byrja, áður en menn verða veikir. Æsku landsins á að uppfræða um lögmál heilbrigðs lífs. I þessu starfi þurfa allir hugsandi menn að taka þátt, allir góðir synir og dæt- ur fósturjarðar vorrar verða að telja það sína helgustu skyldu að vernda heilsu sína ættjörðinni til handa. Og takmark allra þarf að vera það, að deyja frá betri heimi þeir fæddust í.“ Jónas Kristjánsson læknir var langt á undan sinni samtíð þegar hann barðist fyrir heilbrigðum lífs- háttum landsmanna. Hann lagði sín lóð á vogarskálarnar í því skyni að gera fólki Ijóst að heilsuna beri að virða og öllum sé skylt að líta í eigin barm og tileinka sér einkunn- arorð Náttúrulækningafélags ís- lands: „Berum ábyrgð á eigin heilsu.“ Blessuð sé minning Jónasar Kristjánssonar læknis. Gunnlaugur K. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.