Morgunblaðið - 20.09.2000, Side 46
46 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Fella- og Hólakirkja.
I DAG
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Bíóferð
í Horsens
PAÐ mátti heyra saumnál
detta í stórum og notaleg-
um bíósalnum í Horsens í
Danmörku 3. september sl.
þegar Dancer in the dark
var frumsýnd í Danmörku.
Það var með töluverðri eft-
irvæntingu sem við tvær ís-
lenskar hreiðruðum um
okkur í rúmgóðum sætum
með kampavínsglas í hendi
sem boðið var upp á í tilefni
dagsins. Þvílík upplifun,
leikur Bjarkar er svo gríp-
andi og gengur svo nálægt
sálinni í manni, að maður
fær gæsahúð og fáir réðu
við ekkasogin og grátinn
sem braust út þegar leið á
myndina. Margra vasa-
klúta mynd og Björk gerir
þetta snilldarlega, engin
væmni né tilgerð.
Myndin er heldur lang-
dregin á parti og söguþráð-
urinn dálítið skrýtinn og
féll ekki að mínum smekk,
ekki heldur þessi svakalega
myndataka, oftast í nær-
mynd og mikið á hreyfíngu,
allt þetta gleymist vegna
Bjarkar. Hvernig hún vinn-
ur úr sínu hlutverki. Það
var stórkostlegt! Eg hvet
alla til að sjá þessa mynd,
upplifa tónlistina og frá-
bæran leik Bjarkar.
Erla Óskars.
Góður orðstír
deyr aldrei
MIKIÐ söknum við, sem
erum á leiðinni niður stig-
ann, góða gamla tímans,
fyrir tíma tölvu, Nets og
farsíma. Islendingasögurn-
ar gengu frá manni til
manns, orð fyrir orð, allt
frá upphafí Islandsbyggð-
ar, burt séð frá því hver
steig hér niður fæti í fyrstu.
Kristur, sem við almennt
trúum á og er enn þá eldri,
á enn verra uppdráttar.
Rekinn út á gaddinn á
kristnihátíð. Fjöldi fagnaði
flugeldasýningu. Sagan
endurtekur sig. Góður orð-
stír deyr aldrei. Engin
trúarbrögð komast með
hælana þar sem Kristur
hefur tærnar. Það ér vegna
kærleiksboðskapar hans og
allra þeirra umboðsmanna
sem gegnum tíðina hafa
vitnað um hann, í orði, tón-
um og málverkum sem
Kristur hefur komist í
gegn.
Guðrún Jacobsen.
Pennavinur óskast
Velvakanda barst bréf frá
James Kofi Arhu en hann
er að leita sér að pennavini
á Islandi. James er 33 ára
gamall og hefur áhuga á
skrifum við bæði kynin.
James hefur áhuga á ferða-
lögum, safnar myntum og
myndum. Vinsamlega
skrifíð til:
James Kofí Arhu,
Provita Specialist
Hostpital,
Box 406, Tema Ghana.
Áfengi og eiturdóp
ANNA bað Velvakanda um
að koma eftirfarandi á
framfæri:
Afengi og eiturdóp/ eru
hvers manns skaði og böl/
er veit ei hverjum sálina
hann seldi./ Því ógnun þá sá
eini skóp/ sem alheims
stjórnar miklu kvöl/ and-
skotinn í öllu sinu veldi.
Spænska boltann í
sjónvarpið
ÖRVAR hafði samband við
Velvakanda og langaði að
koma eftirfarandi á fram-
færi. Ég er mikill áhuga-
maður um fótbolta og mig
langar til þess að sjá
spænska fótboltann á
skjánum. Ég á þar mitt
uppáhalds Iið og mér þætti
gaman að geta fylgst með
mínum mönnum í beinni.
Ég veit að ég tala fyrir
munn margra. Það er fullt
af fólki út um allt land sem
fylgist vel með fótboltanum
á Spáni. Mig langar til þess
að skora á Stöð 2 eða Ríkis-
sjónvarpið að hefja sýning-
ar frá spænsku úrvalsdeild-
inni. Það myndi gleðja
mörg fótboltahjörtun að
geta séð „sína menn“ á
skjánum.
Tapað/fundið
Svört hjólataska
tapaðist
SVÖRT hjólataska tapaðist
U.september sl., sennilega
á Bústaðavegi, Vatnsmýi':
arvegi eða á Njarðargötu. I
töskunni var mosagræn
flíspeysa. Skilvís finnandi
er beðinn að hafa samband
í síma 552-7666 eða 860-
8866.
Grænt geisla-
diskaveski tapaðist
GRÆNT geisladiskaveski
úr taui, bryddað með
svörtu, tapaðist í vor. Það
stendur Compack disk á
veskinu. Veskið gæti hafa
tapast í Borgarfírði, þó er
það ekki víst. Eigandi vesk-
isins var á leiðinni frá Mýr-
um til Reykjavikur.
I geisladiskaveskinu
voru allir uppáhaldsdisk-
arnir. Ef einhver veit um
afdrif þess, vinsamlegast
hafið samband í síma 553-
6167.
Svartur leðurjakki
tekinn í misgripum
SVARTUR hnésíður leður-
jakki var tekinn í misgrip-
um úr fatahenginu á Hótel
íslandi fóstudaginn 8. sept-
ember sl. Skilvis finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 554-
6882.
Svört leðurlíkiskápa
týndist
Þriðjudaginn 12. sept. sl.
týndist svört leðurlíkiskápa
á Astró. Kápan var skilin
eftir í fatahengingu þar
sem númerið týndist. Ein-
hver gæti hafa tekið hana í
misgripum. Kápan er
glæný. Ef einhver hefur
kápu sem er ekki kunnug-
leg vinsamlega hafið sam-
band í síma 868-8738 eða
552-0601.
Dýrahald
Hálfstálpuð læða
hvarf að heiman
HÁLFSTÁLPUÐ læða
hvarf frá Hávallagötu 22 í
Reykjavik. Hún er bleik-
bröndótt með hvítan ki-aga.
Hún var ómerkt. Upplýs-
ingar í síma 866-4926 eða
552-7342.
Ljóska er týnd
LJÓSKA er geld læða, að
mestu hvít að lit en með
gula og brúna flekki á baki
og höfði. Seinast er sást til
hennar var hún með ól og
merki en hún er gjörn á að
ná sh'ku af sér. Hún er
eyrnamerkt R5H158 eða 9.
Ljóska er venjulega mann-
elsk, „ræðir“ mikið við fólk
og er gjörn á strjúka sér
upp við það. Hún er vís til
að leita inn til fólks ef hún
er hungruð, köld eða veik.
Vinsamlega látið vita af
ferðum hennar, ef vitað er, i
síma 862-0875.
Víkverji skrifar...
Paul Anderson
heimsækir
s
Islensku
kristskirkjuna
Safnaðarstarf
í KVÖLD kl. 20 mun séra Paul
Anderson, framkvæmdastjóri Int-
- A ernational Lutheran Renwal í St.
Paul/Minneapolis, tala á samkomu
Kristskirkjunnar á Bíldshöfða 10.
Fyrir áhrif náðargjafavakningar-
innar á sjöunda áratugnum stofn-
settu lútherskir prestar og leik-
menn í Bandaríkjunum samtök til
að stuðla að endurnýjun og vakn-
ingu í lútherskum kirkjum þar í
landi. Frumkvöðull þess starfs var
séra Larry Christenson sem heim-
sótt hefur Island og ýmsir hér á
landi þekkja. Séra Paul tók við
starfi hans fyrir nokkrum árum.
' Hann ferðast meðal annars reglu-
lega til Evrópu til að stuðla að end-
urnýjun í safnaðarstarfi í apda náð-
argjafahreyfingarinnar. I þetta
sinn kemur hann við hér á landi og
er fengur fyrir okkur að fá að
heyra í honum en hann er virtur í
heimalandi sínu og víðar fyrir gott
og uppbyggilegt starf. Samkoman í
kvöld er öllum opin.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með lítil börn sín. Samverustund
eldri borgara kl. 14. Biblíulestur,
bænastund, kaffiveitingar og sam-
ræður.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Fundur kl. 20 með fermingarbörn-
um sem hyggjast fermast í Hall-
grímskirkju næsta vor. Innritun og
upplýsingar um fermingarfræðsl-
una. Mikilvægt að fermingarbörn
komi með a.m.k. öðru foreldra
sinna eða forráðamanni.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir í dag kl. 18.
Langholtskirkja. Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12-12.30. Orgel-
leikur og sálmasöngur. Eftir kyrrð-
arstundina er létt máltíð (kr. 500) í
boði í safnaðarheimili kirkjunnar.
Opið hús fyrir eldri borgara kl. 11-
16. Kaffísopi, spjall, heilsupistill,
létt hreyfing, slökun og kristin
íhugun. Gengið er til bænagjörðai- í
kirkjunni kl. 12. Að henni lokinni er
sameinast yfir kærleiksmáltíð. Síð-
an er spilað, hlustað á upplestur
eða málaða á dúka og keramik.
Eldri borgurum sem komast ekki
að öðrum kosti til kirkjunnar er
boðið upp á akstur heiman og heim
þeim að kostnaðarlausu. Hafið
samband við Svölu Sigríði Thom-
sen djákna í síma 530-1314.
Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar
‘~Í (6-7 ára) kl. 14.30. Fermingar-
fræðslan hefst kl. 19.15. Unglinga-
kvöld Laugarneskirkju, * Þrótt-
heima og Blómavals kl. 20 (8.
bekkur).
Neskirkja. Bænamessa kl. 18. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12. Léttur málsverð-
‘ ur á eftir í safnaðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13-16.
Handmennt, spjall og spil. Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 16. Bænar-
efnum er hægt að koma til presta
safnaðarins.
Breiðholtskirkja. Kjrrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu eftir stundina.
Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9
ára börn kl. 16. TTT-starf fyrir 10-
12 ára kl. 17.15.
Digraneskirkja. Æskulýðsstarf
KFUM&K og Digraneskirkju kl.
20.
Fella- og Hólakirkja. Kyrrðar- og
bænastund kl. 12 í umsjón Lilju G.
Hallgrímsdóttur djákna. Organisti
kirkjunnar leikur á orgelið frá kl.
12. Kl. 12.10-12.25 er helgistund
þar sem m.a. þakkar- og bænarefni
eru lögð fram fyrir Guð. Eftir
stundina í kirkjunni er léttur há-
degisverður í safnaðarheimilinu
gegn vægu gjaldi. Samvera fyrir
fullorðna (opið hús) er svo í fram-
haldinu til kl. 15. Keyrsla til og frá
kirkju stendur til boða fyrir þá sem
þurfa. Þeir láti vita í síma 557-3280
fyrir kl. 10 á miðvikudagsmorgn-
um. Þakkar- og fyrirbænaefnum
má koma til presta, djákna og ann-
arra starfsmanna kirkjunnar. Starf
fyrir 9-10 ára stúlkur kl. 15-16.
Helgistund í Gerðubergi á fimmtu-
dögum kl. 10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir. Boðið er upp á léttan há-
degisverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Allir velkomnir. KFUM
ídagkl. 16.30-17.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
17.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúk-
um, allir velkomnir. Tekið á móti
fyrirbænaefnum í kirkjunni og í
síma 567-0110.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Hugleiðing, altaris-
ganga, fyrirbænir, léttur málsverð-
ur á eftir í Ljósbroti, Strandbergi
kl. 13.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Samband íslenskra kristniboðsfé-
laga. Samkoma í kvöld kl. 20.30o.
Þáttur úr kristnisögu. Gunnar J.
Gunnarsson segir frá Bjarna Eyj-
ólfssyni. Kjartan Jónsson flytur
hugleiðingu. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Boðunarkirkjan. I kvöld kl. 20
heldur áfram námskeið þar sem dr.
Steinþór Þórðarson kennir þátttak-
endum að merkja biblíuna og
hvernig á að leita í henni. Eftir
slíkt námskeið verður biblían að-
gengilegri og auðveldara að fletta
upp í henni. Allir eru hjartanlega
velkomnir og aðgangur kostar ekk-
ert.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 18 fundur með foreldrum ferm-
ingarbarna og fermingarbörnunum
sjálfum í safnaðarheimilinu. Stutt
kynning á fermingarfræðslu vetr-
arins og fermingarmessum vorsins.
Kl. 20-22 opið hús fyrir unglinga í
KFUM&K-húsinu við Vestmanna-
braut.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
IKJÖLFAR slysaöldu síðustu
vikna hefur spunnist mikil um-
ræða um akstur og almenna umferð
á vegum úti. Fólk tjáir sig í ræðu og
riti og reynir að finna skýringu á
þessum skelfilegu slysum, en næst-
um daglega bætast við nýjar frá-
sagnir af ökuníðingum og fantaskap
í umferðinni.
Víkverji er dálítið uggandi yfír því
í hvaða átt þessi umræða virðist
vera að þróast. Þær raddir eru orðn-
ar nokkuð háværar sem telja að
bæta megi umferðarmenningu Is-
lendinga með því að beita ökumenn
einskonar sjokkmeðferð. Þessi
sjokkmeðferð felur m.a. það í sér að
klessukeyrðum farartækjum er
stillt upp við fjölfarna staði og sett
eru upp skilti með slagorðum sem
ætlað er að vekja fólk til umhugsun-
ar um ábyrgð sína undir stýri. Oft-
ast eru þetta frekar neikvæð slag-
yrði, eins og t.d. „Akstur er dauðans
alvara", og „Hraðann eða lífið“ og
fleira í þeim dúr. Auglýsingar og
fræðsluefni í sjónvarpi og blöðum
eru sama marki brennd: Slys, dauði,
líkkista, svört gröfin!
XXX
* NÝÚTKOMINNI skýrslu frá
Landsspítala - háskólasjúkra-
húsi í Fossvogi kemur fram, að fólki
sem naut aðhlynningar á slysa- og
bráðamóttöku í Fossvogi eftir um-
ferðarslys hafi fjölgað um 31% á
milli áranna 1998 og 1999, og fari
enn fjölgandi árið 2000. Þetta er
uggvænleg þróun.
Af þessu mætti draga þá ályktun
að þær aðgerðir, sem hingað hefur
verið beitt í umferðarfræðslu, hafi
ekki skilað tilætluðum árangri.
Þessi neikvæði hræðsluáróður virð-
ist a.m.k. ekki skila sér til þeirra
sem helst þyrftu að taka hann til sín.
Einna helst virðist fólk verða tauga-
veiklað og stressað af þessari nei-
kvæðu mynd sem upp er dregin, en
allir geta væntanlega verið sammála
um það að taugaveiklun og akstur er
ekki góður kokkteill.
xxx
INHVERJU sinni var Víkverji
að spjalla við vinnufélaga og
umræðuefnið var fjölskylduferðir út
á land í bíl. Kunninginn segir eitt-
hvað í þessum dúr: „Ég er löngu
hættur að nenna að vera að sperrast
þetta til að græða einhverjar mínút-
ur. Ég fer mér bara rólega, slappa
af og nýt þess að skoða landið." Þá
hnykkti Víkverja við. Hvað gal'
kunningja Víkverja leyfi til að
„slappa af og skoða landið“ þegar
hann var að aka úti á þjóðvegum?
Var það minni hraði ökutækisins
sem veitti honum þessi forréttindi?
Þarna fannst Víkverja kristallast sá
misskilningur að akir þú rólega þá
þurfirðu ekki að hafa hugann eins
mikið við aksturinn.
Gáleysi og sofandaháttur valda
Víkverja meiri áhyggjum og eru að
hans mati hættulegri óvinir en hrað-
ur akstur. En það eru atriði sem erf-
itt er að festa fingur á og margir
veigra sér við að nefna.
xxx
SIGURÐUR Hreiðar blaðamaður
gerir þessi atriði að umræðu-
efni í ritstjóraspjalli sínu í tímarit-
inu Úrvali fyrir nokkru. Þar segir
hann m.a.: „Hæpið er að segja að
slys hljótist af hröðum akstri eða af
vondum umferðai-mannvirkjun.
Flest verða af aðgæsluleysi og sof-
andahætti." Og síðar: „Því miður er
það svo að lögleyfður hámarkshraði
íslenskrar umferðar getur virkað
svæfandi. Margir bflar nú til dags
eru hannaðir fyrir 100 km jafnan
hraða og sumir meira og þjóðvega-
hraði langt undir því marki er þreyt-
andi og svæfandi. Áríðandi er að
menn geri sér þetta ljóst til þess að
þeir geti varað sig á þeirri lúmsku
hættu sem það hefur í för með sér
þegar værðin sígur á bílstjórann.11
Víkverji er að mörgu leyti sam-
mála þessu og vildi því gjarna sjá
aðrar áherslur í umferðarfræðslu.
Þeir, sem eru i forsvari fyrir
þennan málaflokk, mættu gjarna
íhuga hvort ekki væri hægt að höfða
meira til skynsemi fólks og hætta að
nota þennan neikvæða hræðsluáróð-
ur.