Morgunblaðið - 20.09.2000, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 20.09.2000, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2000 49 FÓLK í FRÉTTUM Breiðskífan Play með Moby er á toppi Tónlistans Stígvélaði Þegar hugsað verður aftur til þessara alda- móta mun tónlist Mobys án efa skjóta upp í hugann. Lögin hafa ómað í ómældu magni allt í kringum mann - á dansgólfínu, í út- varpinu og í sjónvarpsauglýsingum undan- farið árið og því varð Ólafur Páll Gunnars- son forvitinn að kynnast þessum sérvitringi þegar hann rakst á hann á Glastonbury- hátíðinni fyrr í sumar. s G HELD að það sé alveg óhætt að slá því föstu að á sama hátt og miður síð- asti áratugur í tónlist var tími nýrómantíkur, stráka með „stórt“ hár, naglalakk og appelsínugular grifflur á höndunum verði talað um árið 2000 í framtíðinni sem árið hans Moby. Tónlist þessa sér- kennilega tónlistar- manns sem býr í iðn- aðarhúsnæði á Manhattan er búin að vera allt í kring- um okkur allt þetta ár hvort sem við gerum okkur grein fyrir því eða ekki. Oll lögin af síðustu plötu hans, sem heitir Play, hafa verið fengin að láni í alls kyns auglýsingar og kvikmyndir og það er eitthvað sem Moby sjálf- ur átti alls ekki von á að myndi gerast þegar hann smíðaði plötuna í svefnherberginu sínu. Moby heitir fullu nafni Richard Melville Hall og er af sömu ætt og Herman Melville sem skrifaði bók- ina um Moby Dick. Hann er sann- kristinn, borðar ekki kjöt og notar ekki neitt sem búið er til úr afurðum dýra, hann gengur t.d. ekki í leður- skóm og hefur sterkar skoðanir á ýmsum pólitískum málum eins og dauðarefsingum fanga sem hann er andvígur. Moby er lítill maður og magm-, hefur gott sem ekkert hár á höfðinu og notar gleraugu. Þegar ég rakst á hann baksviðs á Glastonbury-tónlistarhátíðinni í sumar vai- hann líka í stígvélum - gúmmístígvélum! Hvaðan ertu að koma og hvenær komstu? „Ég kom fyrir nokkrum klukku- stundum. Ég var í Los Angeles í fyrradag, í New York í gær og nú er ég kominn til Glastonbury og tónleikarnir mínir hérna í kvöld eru liður í tónleikaferð um Evrópu.“ Ertu þreyttur? „Ég þjáist örlítið af flugþreytu, ég er búinn að vera á stöðugu ferðalagi í 16 mánuði þannig að líkaminn veit orðið aldrei hvað klukkan er - en það er allt í lagi.“ Hefurðu spilað hérna áður? „Ég spilaði hérna fyrir tveimur árum í rigningunni og drull- unni þannig að það verð- ur góð til-breyting fyiir mig að spila í góða veðrinu í kvöld.“ Á hvaða sviði spilarðu í kvöld? „Ég spila á næststærsta sviðinu sem er kallað „Other Stage“ en það er aðeins minna en allra stærsta sviðið. Ég held að stærsta sviðið sé hugsað fyrir 30.000 manns en það svið sem ég spila á fyrir 20.000“ Moby spilaði næstsíðastur á und- an Nine Inch Nails og ég held að þeir hafí nú verið örlítið fleiri sem mættu til að sjá Moby en 20.000 manns. Hvað hafa mörg eintök af „Play“ selst tilþessa? „Rúmar 3,2 milljónir eintaka held ég og það sem er skrýtnast er að hún selst betur í dag en nokkru sinni fyrr mmtmmmmm Morgunblaðið/ÓPG Moby var luralegur á Glastonbury-hátíðinni í sumar. þó svo það sé liðið eitt og hálft ár síð- an hún kom út.“ Hvernig heldurðu að standi á þessu? „Ég veit það ekki. Þegar platan kom út seldist hún strax þokkalega í Bandaríkjunum, Þýskalandi og Ástralíu en í mörgum öðrum löndum byrjaði hún ekki að seljast fyrr en löngu síðar og í dag er hún komin í gull- eða platínusölu í 15 löndum. Þetta kemur mér gjörsamlega í opna skjöldu vegna þess að ég gerði plöt- una í svefnherberginu mínu og átti aldrei von á að hún yrði vinsæl." Veistu hvernig hún hefur selst þar sem ég bý, á íslandi? „Það eina sem ég veit er að hún er langsöluhæsta platan mín á íslandi en veit ekki hvort hún er komin í gull. Ein mestu leiðindin í sambandi við tónleikaferðina um heiminn eru þau að ég hef ekki komist til Islands en ég á vini sem hafa verið þar og sagt mér hversu stórkostlegt landið er og mig langar mikið til að koma. Ég gæti vel hugsað mér að reyna að breyta ferðaáætluninni vegna þess að mig langar svo mikið til að koma.“ Þekkirðu einhverja íslenska tón-, Ust? „Eina íslenska tónlistin sem ég þekki er tónlist Sykurmolanna og Bjarkar - og svo Gus Gus. Ég þekki bara þetta sem allir þekkja." Þú getur auðvitað flogið með Ice- landair þegar þúertað fara yfir haf- ið og stoppað hér í tvo til þrjá daga fyrir sama pening og ef þú myndir fljúga beint frá Evrópu til Banda- ríkjanna. „Heyrðu, því miður held ég að ég þurfi að fara núna strax í annað við- tal, þakka þér fyrir spjallið." i<- MEÐAL EFIMIS: • Gagnagrunnstækni og rekstrarkerfi: Fjallað um nýjustu strauma í gagnagrunnstaekni og rekstrarkerfum fyrirtaekja • Netið: Farið í saumana á því hvernig Netið hefur breytt aðstæðum íslenskra fyrirtækja, fjðlgað sóknarfærum og dregið úr kostnaði • Farsímatækni: Sagt frá nýjum hugmyndum í farsímatækni, væntanlegum GPRS-kerfum og staðsetningar- möguleikum sem þau gefa • Kerfisveitur • Stórtöh/ur: Fjallað um aukna stórtölvuvæðingu • Þróun í orgjörvatækni og skammtatölvur • Linux: Þróun Linux innan fyrirtækja •O.fl. Pantið fyrir kl. 12 föstudaginn 22. september! Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild í síma 569 1111. AUGLYSINGADEILD Simi: 569 1111 • Bréfasimi: 569 1110 • N’etfang: nuglPmbl.is BLAÐAUKIININ TÖLVUR OG TÆKNI í MORGUNBLAÐINU LAUGARDAGINN 30. SEPTEMBER

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.