Morgunblaðið - 25.10.2000, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Geysir líflegur og skvettir úr sér á hverjum degi
Forðuðu
sér undan
GEYSIR hefur verið mjög lfflegur í
haust eða allt frá því að stóru jarð-
skjálftamir riðu yfir í júní. Þórir
Sigurðsson í Haukadal segir að ekki
sé um stórgos að ræða heldur
skvettur. Hann segir að Geysir
skvetti úr sér daglega. Oft Ííði ekki
nema innan við klukkutími á milli
skvetta. Hverinn sé injög lfflegur.
Ferðamenn hafa sýnt Geysi mik-
inn áhuga frá því hann vaknaði aft-
ur til lífsins eftir áratuga hvíld. Al-
exander Ochsner, jarðfræðingur frá
Sviss, varð vitni að gosi í Geysi í
fyrradag. Hann var staddur við
hverinn við þriðja mann í fyrradag.
Hann segir að þeir hafi orðið að
hlaupa sem snarast undan heitu
vatninu. Geysir skvetti úr sér tveim-
ur gusum sem stóðu fáeinar sekúnd-
ur hvor.
„Mér þótti Ijóst hvað var að gerast
þegar ég sá vatnsborðið lækka um
30 til 40 cm,“ sagði Alexander
Oschner í samtali við Morgunblaðið
og kvaðst þá hafa hlaupið frá.
Ótrúlega snöggt
„Fyrst kom gos f kannski tvær eða
þijár sekúndur sem náði í 15 til 20
metra hæð en svo annað öflugra, í 3
til 4 sekúndur sem náði áreiðanlegra
30 metra hæð. Það var ótrúlegt að
sjá hversu snöggt þetta gerðist."
Þórir Sigurðsson sagði að frá því
að jarðskjálftamir riðu yfir í sumar
hefðu Blesi og Konungshver einnig
færst í aukana. Enginn breyting
hefði hins vegar orðið á Strokk. Það
væri hins vegar Geysir sem vekti
mesta forvitni ferðamanna.
Morgunblaðið/KZ
Geysir gaus tveimur gosum síðdegis á mánudag og hér eru Alexander
Ochsner og Per-Ame Hillström við gosið.
Akærður fyrir
morð, nauðgun
og líkamsárás
RÍKISSAKSOKNARI hefur gefið
út ákærur á hendur Rúnari Bjarka
Ríkharðssyni fyrir manndráp,
nauðgun og líkamsárás. Auk refs-
ingar fyrir þessi brot er krafist um
15 milljón króna bóta. Ákærurnar
voru þingfestar í Héraðsdómi
Reykjaness í gær.
Rúnar Bjarki, sem er 22 ára, er
ákærður fyrir að hafa banað As-
laugu Óladóttur á heimili hennar í
Keflavík 15. apríl sl. með fjölmörg-
um hnífsstungum í síðu, brjósthol,
höfuð og víðar á líkama hennar.
Áslaug var þá 19 ára gömul. Hann
er og ákærður fyrir líkamsárás á
sama stað með því að hafa í átök-
um við sambýlismann Áslaugar
veist að honum með hnífi með
þeim afleiðingum að hann hlaut
nokkra grunna skurði og rispur á
bringu, báða framhandleggi og
vinstri kinn.
Rúnar Bjarki braut sér leið inn
á heimili Áslaugar og sambýlis-
manns hennar í gegnum útihurðina
aðfaranótt laugardagsins 15. apríl.
Lögreglan handtók hann skömmu
eftir morðið en hann hafði þá leitað
til Sjúkrahússins í Keflavík vegna
áverka sem hann hafði hlotið.
Rúnar Bjarki játaði á sig morðið
á Áslaugu Óladóttur skömmu eftir
verknaðinn.
Sambýlismaður Áslaugar fer
fram á tæplega 11 milljónir í bæt-
ur auk kostnaðar við gagnaöflun
og lögmannskostnaðar.
Foreldrar Áslaugar fara samtals
fram á um 2,2 milljónir í miska-
bætur auk greiðslu á öðrum kostn-
Nokkrir athafnamenn vilja byggja samfélag fyrirtækja í hátækniiðnaði
Hafa átt í viðræðum um
leigu á landi í Garðabæ
HUGMYNDIR eru uppi um að
byggja á höfuðborgarsvæðinu sér-
stakt samfélag fyrirtækja er tengj-
ast hátækniiðnaðinum, eða eins
konar Sílíkon-dal svo vísað sé til
miðstöðvar hátækniiðnaðarins í
Bandaríkjunum. Hafa könnunar-
viðræður staðið yfir um leigu á
landi í Garðabæ sem er í eigu Odd-
fellow-reglunnar og þykir líklegt
að á allra næstu vikum skýrist
hvort viðsemjendur nái saman.
Aðstandendur verkefnisins eru
þeir Ólafur Daðason og Ingvar
Kristinsson hjá Hugviti hf. og Ós-
land ehf., fjárfestingarfélag í eigu
bræðranna Sigurðar Gísla og Jóns
Pálmasona. Var ákveðið að koma á
fót sérstöku fyrirtæki, Þekkingar-
húsi ehf., til að vinna að hugmynd-
unum.
Tryggvi Jónsson, stjórnarfor-
(Sj Landslagsráðgjöf
BMVAUÁ
Söludeild í Fornalundi
Brciðhöfða 3 • Sími 585 5050
Landslagsarkitekt hjálpar þér að
útfæra hugmyndirnar. Kynntu
þér ókeypis landslagsráðgjöf
á www.bmvalla.is
www.bmvalla.is
maður Þekkingarhúss ehf., sagði í
samtali við Morgunblaðið að það
hefði sýnt sig að mikil þörf væri á
aðstöðu eins og þeirri sem hér um
ræðir. Fjölmörg hugbúnaðarfyrir-
tæki séu dreifð hér og þar um
bæinn og með þessu yrði þeim því
skapað tækifæri til að safnast sam-
an á einum stað. Af slíkri sambúð
gæti hlotist margs konar hagræði.
Viðræður hafa staðið yfir við
forystumenn Oddfellow-reglunnar
frá því í vor um leigu á hluta af
landi reglunnar við Urriðavatn í
Garðabæ en það þykir liggja vel
við þjóðbraut. Aðrir kostir hafa
hins vegar einnig verið skoðaðir,
m.a. land við Keldnaholt í Reykja-
vík og í Hafnarfirði.
Fóru á sínum tíma fram könnun-
arviðræður við bæði Reykjavíkur-
borg og yfirvöld í Hafnarfirði og
segir Tryggvi þessa kosti raunar
enn í skoðun þó að viðræður vegna
landsins í óarðabæ séu lengst
komnar.
Geir Zoéga hjá Oddfellow-reglu-
nni gat sér þess til að ástæða þess
að athafnamönnunum litist best á
Garðabæ væri sú að þar þyrftu
þeir aðeins að semja við einn land-
eiganda á meðan um fleiri en einn
eiganda væri að ræða á því landi
sem til tals hefði komið í Reykja-
vík og Hafnarfirði.
Kemur ekki til greina af hálfu
Oddfellow að selja landið
Oddfellow-reglan á alls 420 fer-
metra land í nágrenni Urriðavatns
í Garðabæ og þó að ekki sé enn
ljóst hversu stórt land Þekkingar-
hús ehf. ásælist sagði Geir að fyrir
lægi að athafnamennirnir hefðu
áhuga á að byggja upp í kringum
Urriðavatnsholt. Einungis yrði um
leigu landsins að ræða og segir
Geir að það hefði aldrei komið til
greina af hálfu Oddfellow-manna
að selja landið.
Fundur er ráðgerður milli við-
semjenda næstkomandi mánudag
og mun það skýrast á næstu vikum
hvort samningar takast eða ekki,
að sögn Geirs. Skili viðræðurnar
árangri má gera ráð fyrir að Þekk-
ingarhús ehf. þurfi að ganga til
viðræðna við bæjaryfirvöld í
Garðabæ því fara þyrfti út í heil-
miklar framkvæmdir í tengslum
við verkefnið, byggja gatnakerfi og
fleira.
aði s.s. vegna gagnaöflunar og lög-
mannsaðstoðar.
Hin ákæran sem ríkissaksóknari
hefur gefið út á hendur Rúnari
Bjarka er fyrir kynferðisafbrot
gegn stúlku fæddri árið 1980.
Hann er m.a. ákærður að hafa
nauðgað stúlkunni á heimili hans í
Keflavík í mars. Sú stúlka var vin-
kona Áslaugar Óladóttur en hún
kærði Rúnar Bjarka fyrir verknað-
inn í mars. Nokkru áður en Áslaug
Óladóttir var myrt hafði hún borið
vitni í því máli.
Þess er krafist að ákærði greiði
stúlkunni miskabætur að fjárhæð
einni milljón króna auk dráttar-
vaxta og greiðslu á kostnaði vegna
lögmannsaðstoðar.
------------------
Fjórir buðu
í kerfiráð
fyrir Lands-
virkjun
FJÖGUR tilboð bárust eftir forval í
svonefndan kerfiráð fyrir stjórnstöð
Landsvirkjunar, en hann tekur á
móti upplýsingum um ástand raf-
orkukerfisins um land allt og fjar-
stýrir raforkukerfinu.
Kostnaðaráætlún ráðunauta
Landsvirkjunar var rúmar 286 millj-
ónir króna og lægsta tilboðið var
167,3 milljónir frá Alstom, T&D í
Frakklandi. Næst lægst bauð ABB
Automation System í Svíþjóð, eða
264,2 milljónir, Siemens í Þýskalandi
bauð 289,3 milljónir og GE Harris
Energy Contron Systems í Banda-
ríkjunum bauð 311,8 milljónir. Síð-
astnefnda fyrii'tækið framleiddi
kerfiráðinn sem nú er í notkun hjá
Landsvirkjun, en hann er frá 1989.
Forval fór fram á liðnu vori og í
framhaldi af því var áðurnefndum
fjói'um . aðilum gefinn kostur á að
gera tilboð. Gert er ráð fyrir að nýr
kerfiráður verði tekinn í notkun
sumarið 2002.
------♦-♦-♦-------
Flugslysanefnd
Fjórir sækja
um stöðu
formanns
FJÓRIR sóttu um stöðu formanns
rannsóknarnefndar flugslysa en um-
sóknarfrestur rann út 20. október.
Stöðunni gegnh- nú Skúli Jón Sig-
urðarson.
Umsækjendur eru: Helga Hall-
dóra Þórarinsdóttir flugsálfræðing-
ur, Karl Alvarsson flugumferðar-
stjóri, Þormóður Þormóðsson
flugrekstrarstjóri og Þorsteinn Þor-
steinsson verkfræðingur.
------^4-4------
Skilorðsbundið
fangelsi fyrir
fíkniefnabrot
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær tvítugan pilt í 15 mán-
aða skilorðsbundið fangelsi. Piltur-
inn var handtekinn í Breiðholti í apr-
íl í fyrra með rúmlega 40 g af hassi
og 4,46 g af amfetamíni.
Með broti sínu rauf pilturinn skil-
orðsbundna fangelsisdóma. Fram
kom að pilturinn hefur verið til með-
ferðar vegna áfengis- og fíkniefna-
vandamála. Hann hefur nú verið án
slíkra efna í 8 mánuði og stundar
fasta vinnu.