Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 6

Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Þess minnst að 25 ár voru í gær liðin frá kvennafrídeginum Konur fundu að saman „Konur neituðu að fara heim“ gætu þær áorkað miklu Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Talið er að nærri 25 þúsund konur hafi verið saman komnar á Lækjartorgi 24. október 1975. í gær voru 25 ár liðin frá því tugþús- undir íslenskra kvenna lögðu niður vinnu til að minna á hve mikilvægt vinnuframlag kvenna er í þ.jóð- félaginu. Arna Schram rifjar upp kvennafrídaginn og ræðir við konur sem lögðu leið sína á baráttufundinn á Lækjartorgi. „KVENNAFRÍDAGURINN er daguiinn sem íslenskar konur lögðu niður vinnu tugþúsundum saman til að vekja athygli á því hve mikilvægt vinnuframlag kvenna er í þjóðfélag- inu,“ sagði Hólmfríður Sveinsdóttir, starfandi formaður Kvenréttindafé- lags íslands, á hádegisverðarfundi félagsins á Grand Hótel í Reykjavík og Fiðlaranum á Akureyri í gær. Fundurinn var haldinn á báðum stöðunum, með aðstoð fjarfundar- búnaðar, í tilefni þess að 25 ár voru liðin frá kvennafrídeginum. Hólmfríður minntist þess að að dagurinn hefði hlotið heimsathygli og að myndir af um 25 þúsund „bar- áttuglöðum konum“ á Lækjartorgi hefðu birst í fjölmiðlum víða um heim. í frásögn Morgunblaðsins af framtaki kvennanna tveirnur dögum eftir kvennafrídaginn segir: „Ljóst er að kvennaverkfallið[...]hefur vakið mikla athygli víða erlendis. í Fíla- delfiu lýsti formaður stærstu kvennasamtaka í Bandaríkjunum yf- ir því að bandarískar konur ættu að fylgja fordæmi íslenskra kvenna, á Norðurlöndum birtust mjög ítarleg- ar fréttir um atburð föstudagsins og sama er að segja um blöð í Bret- landi.“ Hólmfríður greindi frá því að dagurinn hefði skipað stóran sess í huga þeirra kvenna sem tóku þátt í honum og að yngri kynslóðin minntist hans sem þess dags „þegar mamma fór í bæinn og skildi okkur eftir heima.“ Vilborg Harðardóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, rifjaði upp aðdrag- anda kvennafrídagsins á hádegis- verðarfundinum í gær og sagði að það væri býsna mikill munur á kvennabaráttunni þá og jafnréttis- baráttunni núna. „Konur voru á botninum," sagði hún. „Karlar stjómuðu og launamunurinn var hrikalegur." sagði hún. Skýrði hún frá því að á sjöunda áratugnum hefði óánægjan smám saman brotist út meðal kvenna. „Ég býst við að margr ar ykkar getið rifjað upp með mér ástandið[...]þegar reiðin fór að sjóða hvar sem konur hittust nokkrar sam- an. Þegar þær ræddu um vinnustað- inn, mismunandi laun, verkaskipt- inguna, aðstöðuleysið, skortinn á bamaheimilum, námið sem ekki tókst að komast í, karlana sem ekk- ert gerðu heima fyrir, ótímabærar barneignir og karlana sem stjórnuðu öllu.“ Sagði Vilborg að allt í einu hefði orðið eins og sprenging. Kon- um hefði verið nóg boðið. „Hér heima stofnuðum við Rauðsokkahreyfing- una og á sama tíma risu upp sam- svarandi hreyfingar annars staðar í hinum vestræna heimi.“ Bætti Vil- borg því við að konur hefðu farið að láta til sín taka. Þær hefðu vitað að engin breyting yrði nema þær vökn- uðu sjálfar og stæðu á rétti sínum. Skemmtilegur dagxir Vilborg greindi frá því að hug- myndin um kvennaverkfallið hefði upphaflega komið frá Rauðsokka- hreyfingunni. I fyrstu hefði hún ekki hlotið hljómgmnn meðal annarra kvennasamtaka á landinu en eftir nokkrar umræður hefðu æ fleiri kon- ur fallist á hugmyndina. „Kvenrétt- indakonan mikla, Valborg Beng- tsdóttir, hjó svo endanlega á hnútinn þegar hún lagði til að kalla aðgerðina kvennafrí. Það gátu allir samþykkt," sagði Vilborg og skýrði frá því að upp frá því hefðu konur staðið saman um frídaginn og það þvert á allar flokks- línur. Akveðið var að dagurinn yrði haldinn á degi Sameinuðu þjóðanna, hinn 24. október árið 1975, en það ár var kvennaár Sameinuðu þjóðanna. Á sjálfan kvennafrídaginn lögðu svo konur niður vinnu tugþúsundum saman, eins og áður segir, og þyrptust niður á Lækjar- torg eða á aðra viðlíka kvennafundi sem haldnir voru víða um land. „Kon- ur lögðu líka niður vinnu á vinnustaðnum sem heitir heimili," sagði Vilborg. „Og karlarnir urðu að taka bömin sín með í vinnuna eða vera heima þvi engir kennarar voru í skólanum og engar fóstrur á leik- skólunum. Engin pössun, engin þjónusta.“ Síðan sagði Vilborg: „Skemmtilegri dag hafði engin okk- ar upplifað. Munið’i þegar við sung- um saman Áfram stelpur? Samstað- anvar dásamleg." í Morgunblaðinu, daginn eftir, er greint frá dagskrá útifundarins, sem stóð yfir í um tvær klukkustundir. Er m.a. vitnað í ávarp Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur verkakonu sem vakti athygli á því að „konur hefðu aðeins 73% af launum karla fyrir sömu vinnu.“ Kvað hún víða muna um 30 þúsund krónum á mánuði. Þá sagði hún konur ekki sækjast eftir neinum forréttindum umfram karla - aðeins jafnrétti - hvorki meira né minna. í Morgunblaðinu er ennfrem- ur greint frá því að á sjálfu Lækjar- torgi hefði verið staðið svo þétt að ógemingur væri að komast yfir torg- ið. „Fundarmenn héldu á borðum og skiltum með vígorðum í tilefni dags- ins og baráttunnar, sem verið var að leggja áherslu á. Sem dæmi má nefna örfá vígorð: „Ást er sameigin- leg barátta", jafnrétti „strax í dag...“ Daginn fyrir kvennafrídaginn var jafnframt greint frá því að loka þyrfti nokkrum stórverslunum vegna frídagsins sem og flestum bamaheimilum. Þá mætti búast við að þjónusta í bönkum yrði stirðari vegna þess að karlar þyrftu að ganga í störf kvenna og að símaþjónusta hjá flestum fyrirtækjum landsins yrði lakari en dags daglega svo dæmi séu nefnd. Hver voru áhrif dagsins? Þess má til gamans geta að tæp- lega helmingur fastráðins starfsfólks Morgunblaðsins á þessum tíma var konur og lögðu þær flestar niður störf á kvennafrídaginn. Meðal þeirra vom setjarar blaðsins, en það var eingöngu sett af konum. Ekkert var sett í blaðið á frídeginum en um miðnætti mættu setjaramir til vinnu í þeim tilgangi að koma út fréttum blaðsins af baráttu- fundinum á Lækjartorgi. Var gefið út þynnra blað en ella eða sextán síðna blað daginn eftir sem að mestu var fyllt með fréttum af frídeginum. Vilborg velti því fyrir sér á fundinum í gær hver áhrif kvennafrídagsins hefðu verið. Sagði hún að fyrstu áhrifin hefðu verið sú heimsathygli sem beinst hefði að ís- landi og íslenskum konum. „Gagn- legri áhrif vom hins vegar þau að konur fundu að stæðu þær saman gætu þær áorkað rniklu," sagði hún. „Það held ég að hafi orðið býsna áhrifaríkt í mörg ár á eftir. Konur fóm að styðja hver aðra í verkalýðs- félögunum, á vinnustöðunum, í póli- tísku flokkunum og þvert á pólitískar línur þegar mikið lá við.“ Varanleg áhrif, sagði Vilborg, að væm íyrst og fremst breytt viðhorf. „Nú dettur engum í hug að kona geti ekki staðið sig á hvaða sviði sem er til jafns við karla. Konumar sjálfar hafa öðlast áræði og sjálfstraust." Sagði hún að svo margt hefði áunnist síðan að það væri líkt því að lifa í öðra þjóðfélagi. „Konur em í meiri- hluta þeirra sem stunda háskólanám og annað framhaldsnám. Þær láta eiginmenn og barneignir ekki stöðva sig í námi eða vinnu. Börnin hafa rétt á plássi á dagheimilum og engin er neydd til að eignast barn gegn vilja sínum. Þá gegna æ fleiri konur stjórnunarstöðum í atvinnulífinu og áhrifastöðum í stjórnun samfélag- ins.“ Vilborg minnti þó á að þrátt fyr- ir þennan árangur væri jafnrétti kynjanna ekki fullkomlega náð. Sagði hún ástæðuna m.a. vera þá að þótt konur hefðu tekið að sér æ fleiri störf í þjóðlífinu hefðu karlar ekki tekið á sig meiri ábyrgð og störf fyrir fjölskylduna og heimilið. Jafnrétti gæti með öðmm orðum ekki náðst þegar konur bæm tvöfalda ábyrgð; í vinnunni og á heimilinu, á sama tíma og karlarnir væm lausir undan þeiri’i ábyrgð að sjá um börnin. Það mótaði afstöðu atvinnurekenda og ráða- manna til ráðninga, stöðuhækkana og launa. Valgerður Bjamadóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisstofu á Ak- ureyri, hélt einnig erindi á hádegis- verðarfundinum í gær. Sagði hún m.a. að þær sem þátt höfðu tekið í deginum hefðu líklega ekki gert sér grein fyrir því hvað þær hefðu verið að skapa. Hvaða jarðveg þær hefðu verið að plægja. „En við fundum að stundin var stór, stærri en hægt var að meðtaka að fullu," sagði hún og spurði. „En sáum við fyrir kjör Vig- dísar og áhrif hennar og virðingu í heiminum í dag? Sáum við fyrir Kvennafram- boðið, Kvennalistann, forseta bæjar- stjórna og borgarstjóra í karlaveldi stjórnmálanna, Kvennakirkju í hinu trúarlega karlaveldi, kvennaathvörf frá ofbeldi heimilanna, heiðursdokt- ora og deildarforseta í hinu aka- demíska kai’lveldi, forstjóra í karl- veldi iðnaðarins, kvennaráðgjafa, stangarstökkvara og Gullpálma- konu? Ég held ekki. Eg held við höf- um vænst og vonað en ekki vitað. Við voram tilbúnar að vinna, gera það sem þurfti, við þráðum breytingar, við þráðum jafnvægi, það var það sem knúði okkur. “ Síðan sagði Val- gerður: „Ég held að við höfum líka óttast og efast, en ekki verið þess vit- andi að þrátt fyrir allan okkar svita og öll okkar tár þá biði okkar samfé- lag með útsölu á kvenlíkamanum, aukningu ofbeldis og firrt ofur- markaðsöfl." Þær vissu að engin breyting yrði nema þær stæðu á rétti sínum Konur lögðu líka niður vinnu á vinnu- staðnum sem heitir heimili „ÞAÐ var mjög skrítið að vera niðri í bæ á þessum tíma. Þetta var eins og á 17. júní nema hvað þarna voru helmingi fleiri og nær engir karlmenn. Þetta var eins og að vera í einhverju furðulandi," segir Anna E. Ragnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Skref fyrir skref, þegar hún er beðin um að lýsa því hvernig hún upplifði baráttufund kvenna á Lækjartorgi fyrir 25 ár- um. Þá var Anna á þrítugsaldri, rit- ari hjá ísal og með tvö lítil börn, sjö og fjögurra ára. Þeim var komið fyrir í vinnunni hjá pabba sínum þennan dag sem þá vann hjá Sölustofnun lagmetis. Anna rifjar það upp að á mörgum vinnustöðum hefði verið búið að gera ráðstafanir til að taka á móti börnum sem kæmu með feðrum si'num í vinnuna þennan dag. Það sama átti við um vinnu- stað eiginmannsins. Mörgum börnum hefði verið komið fyrir á lagernum í umsjón lagerstjórans. Sælgæti var keypt til að halda börnunum góðum og skriffæri og bréfsefni fundið svo þau hefðu nóg að gera. Konur streymdu í bæinn á frídeginum Anna segir að mjög margar konur hafi ákveðið að taka sér frí á kvennafrídeginum; bæði konur sem voru að vinna á hinum al- menna vinnumarkaði sem og kon- ur sem störfuðu heima. „Konur streymdu niður í bæ og voru þar allan daginn enda var veðrið gott. Þar var boðið upp á uppákomur og sýningar en auk þess voru öll kaffihúsin opin. Bærinn var allur iðandi og svo gaman að konur neituðu að fara heiin.“ -------------------- Anna E. Ragnarsddttir Mikill kraftur á fundinum ÁSLAUG Thorlacius mynd- listarkona var tólf ára þegar hún fór á baráttufund kvenna á Lækj- artorgi hinn 24. október árið Í975. Áslaug segist muna eftir því að torgið hafi verið fullt af konum og að hún hafi staðið skammt frá klukkunni í mannþrönginni. „Ég var reyndar dugleg að fara á baráttufundi á þessum tíma,“ seg- ir Áslaug og bætir því við að skilningurinn hafi kannski ekki verið mjög djúpur á mikilvægi þess sem hún tók þátt í að berjast fyrir. Áslaug segist muna óljóst eftir fundinum en þó muni hún eftir því að konur hafi ávarpað fund- inn og sérstaklega man hún eftir því þegar Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir verkakona tók til máls. „Ég man líka að það var ótrúleg- ur kraftur á þessum fundi,“ segir hún. Áslaug telur aðspurð að fundurinn hafi verið mikilvægur fyrir kvenþjóðina en telur að svona verði ekki gert nema einu sinni. „Það er stórkostlegt að þetta skuli hafi tekist," segir hún. Áslaug Thorlacius

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.