Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Davíð heilsar upp á frænkur sínar, sem fæddust í Kanada og voru meðal gesta í Árborg.
Barnakór Nýja íslands söng fyrir gesti á Gimli og í Árborg.
Islensk
menning í
Vesturheimi
Davíð Oddsson forsætisráðherra og
föruneyti hans kynntust vel íslenskri
menningu í Manitoba-fylki í Kanada í
heimsókn sem lauk um helgina. Steinþór
Guðbjartsson blaðamaður og Kristinn
Ingvarsson ljósmyndari voru með í för.
NEIL Bardal, kjörræðismaður ís-
lands í Manitoba-fylki, segir að
áætla megi að um 200.000 manns
af íslenskum ættum séu í Norður-
Ameríku og þar af um helmingur
í Kanada og langflestir þeirra í
Manitoba. Vítt og breitt um landið
eru félög sem tengja sig við Island
og er starfið víða mjög öflugt.
Magnús fór á kostum
Félagið Frón í Winnipeg hélt
móttöku í „skandinaviska“ húsinu
í Winnipeg, sem Neil vill kalla
Norræna húsið, fyrir Davíð og
fylgdarlið og var þar boðið upp á
íslenska dagskrá, en meðal við-
staddra var John Harvard, þing-
maður á kanadíska þinginu, og
Bill Norrie, fyrrverandi borgar-
stjóri í Winnipeg, en þegar Davíð
var borgarstjóri 1989 sótti hann
Winnipeg heim í boði Norries.
Sessunautur Davíðs var Magnus
Eliason, erindreki Nýja dem-
ókrataflokksins um áratugaskeið
og borgarfulltrúi flokksins um
árabil. Magnus, sem er um nírætt,
talar íslensku eins og innfæddur
en hann flutti langa kvæðið Winn-
ipeg Icelander eftir Guttorm J.
Guttormsson blaðalaust við mikla
hrifningu viðstaddra, sem flestir
skildu vel íslensku, þótt margir
hefðu aldrei til íslands komið.
Magnús fór á kostum í veisl-
unni. „Ég kann vel að meta Davíð
þótt við séum á öndverðum meiði í
pólitíkinni,“ sagði hann. „Hins
vegar vildi ég að ég væri um 40
árum yngri, byggi á íslandi og
væri á fullu í pólitikinni - á móti
Davíð.“
Skemmtikraftar frá íslandi
í ár eru 1000 ár frá því íslend-
ingar komu fyrst til Kanada og
125 ár frá landnámi þeirra við
Winnipeg-vatn. í tilefni tímamót-
anna hafa verið haldnar um 200
skemmtanir í Kanada í ár og hafa
hjónin Svavar Gestsson, sendi-
herra og aðalræðismaður íslands í
Winnipeg, og Guðrún Ágústsdóttir
verið miklir drifkraftar í því starfi
en Svavar áréttar að sjálfboða-
starf fslensku félaganna hafi vegið
gríðarlega þungt. Margir fslenskir
listamenn hafa skemmt á þessum
skemmtunum og þar á meðal
djassbandið Halla’s Travel marg-
sinnis. Félagarnir voru áberandi í
heimsókn Davíðs til Manitoba og
vöktu mikla lukku enda miklir
snillingar á ferð. Víða mátti heyra
að þetta væri besta hljómsveit
sem fólk hefði heyrt í og eftir að
hafa troðið upp á Gimli um helgi-
na var sagt að þessir strákar yrðu
að vera á þorrablótinu í Áborg í
vetur.
Skyldfólk vestra
Kanadamenn af íslenskum ætt-
um reyna að láta drauminn um að
heimsækja gamla landið rætast en
í tilfelli Ástríðar Thorarensen,
eiginkonu Davíðs, snerist dæmið
við að sumu leyti. Sigurbjörg F.
Hannesson, langamma hennar,
fæddist 14. október 1854. Hún
varð ekkja með fjögur börn
skömmu fyrir siðustu aldamót og
átti ekki í neitt hús að venda. Hún
vildi samt ekki gefast upp. Þrjú
systkini hennar höfðu flutt til
Kanada og hún ákvað að fylgja
þeim eftir en varð að skilja tvær
dætur sínar eftir í þeirri von að
geta náð í þær síðar. Það varð
aldrei en önnur þeirra, Guðrún,
sem var fjögurra ára, þegar móðir
hennar hélt til Vesturheims 1897,
er móðuramma Ástríðar. Ástríður
vissi af Ieiðinu í Selkirk skammt
fyrir norðan Winnipeg og þar var
hátíðleg stund sl. sunnudag. Ást-
ríður lagði blóm að leiðinu og
þijú kerti en síðan las íslenska
sendinefndin nokkur vers upp úr
44. Passíusálmi.
Davíð Oddssyni var alls staðar
vel tekið á yfirreið sinni og hafði
hann á orði að þetta væri eins og
á kosningaferðalagi. í Árborg
biðu hans m.a. tvær systur, Anna
Morgunblaðið/Kristinn
I Selkirk við leiði Sigurbjargar F. Hannesson, langömmu Ástríðar Thorarensen, eiginkonu Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra. f.v. Skarphéðinn Steinarsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, Guðrún Ágústsdóttir,
Guðjón Guðmundsson, varaforseti Alþingis, Guðný Jóna Ólafsdóttir, eiginkona hans, Svavar Gestsson, sendi-
herra og aðalræðismaður íslands í Winnipeg, Ástríður Thorarensen og Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Magnús Eh'asson og Davíð Oddsson hittust í Norræna húsinu í Winnipeg.
Hljómsveitin Halla’s Travel skemmti gestum á dansleik á Gimli sl. laug-
ardagskvöld. Frá vinstri: Ásgeir Óskarsson, Gunnar Hrafnsson, Björn
Thoroddsen og EgiII Ólafsson.
Johnson og Jónína Benson, sem
sögðust vera skyldar for-
sætisráðherra í gegnum ömmu
sína, Steinunni Jónsdóttur frá
Núpsstað.
Ég bið að heilsa
Alls staðar þar sem Kanada-
menn af í'slenskum ættum koma
saman eru islenskur sögur í há-
vegum hafður. „Hvað er svo glatt
sem góðra vina fundur” hefur
ldjómað vestra í 125 ár og sömu
sögu er að segja af öðrum perlum.
Sólye söngmenn kalla bændum-
ir Bragi Simundson, Melvin
Eyjolfson og David Gislason sig
þegar þeir koma saman og syngja
á íslensku í Árborg og nágrenni.
Þar er líka starfræktur íslenski
bamakórinn og það sem er einna
merkilegast við hann er að börnin
tala ekki íslensku að einni stúlku
undanskilinni. En þau syngja hana
og gera það vel. Hins vegar er
textinn prentaður á enskan máta
svo börnin nái betur réttum fram-
burði. Krakkarnir sungu m.a. Ég
bið að heilsa fyrir forsætis-
ráðherra og fóruneyti og var það
vel við hæfi. Þau hugsuðu heim til
gamla landsins og kvöddu með
eftirfarandi orðum:
Vore bothinn lyoofi, fuglinn troor sem fer
meth fyathra bliki how a vega leysu
ee sumar dal ath kvetha kvie thinn Theen
hale sathu anekum ef ath firir ber
Engill meth hoov og röthann skoovee,,
ee paysu
THröstur minn goathur, THath er stoolkan
meen/
THröstur minn goathur, THath er stoolkan
meen.