Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 15
Fríkirkjan í Hafnarfírði kallar Sigríði Kristínu Helgadóttur til starfs
Forréttindi að fá að
starfa í kirkjunni sinni
FRIKIRKJAN í Hafnarfírði hefur
kallað séra Sigríði Kristínu Helga-
dóttur til að gegna hlutastarfi með
séra Einari Eyjólfssyni fríkirkju-
presti og var hún sett formlega inn í
embættið síðastliðinn sunnudag. Sr.
Sigríður lauk guðfræðiprófi í árs-
byrjun og hlaut prestsvígslu hjá
biskupi Islands í Dómkirlqunni
sunnudaginn 15. október.
Séra Sigríður Kristín Helgadóttir
sagði í samtali við Morgunblaðið að
það væru forréttindi að fá að taka við
starfi í þeirri kirkju sem hún hefði
kynnst í heimabyggð sinni og verið
viðloðandi síðustu árin. Hún var í
fyrsta fermingarbamahópi séra Ein-
ars og var spurð hvort hún hefði
strax þá tekið stefnuna á guðfræði-
nám. „Nei, það var nú ekki, það gerði
ég þegar ég eignaðist fyrstu dóttur
mína og fór að íhuga skírnina," segir
séra Sigríður Kristín. „Ég hóf námið
1992 og tók ársfrí enda eignaðist ég
tvær dætur í viðbót á þessum tíma,“
segir hún og kveðst hafa notið þessa
tíma, að lesa bækur og ala upp börn-
in. „Guðfræðinámið er nátengt lífinu
og tilverunni og ánægjulegt að geta
sökkt sér í þetta hvort tveggja.“
Kynntist starfínu í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði
Sigríður segir að Einar hafi fljót-
lega eftir að hún hóf guðfræðinámið
boðið sér að kynnast starfinu í
kirkjunni og sagði hann hafa stutt sig
í gegnum námið. Hún stundaði til-
skilda þjálfun fyrir námið hjá Frí-
kirkjunni og sinnti einkum barna-
starfi þar. Sigríður útskiifaðist í
febrúar á þessu ári og fjallaði loka-
ritgerð hennar um trú og siðfræði í
bama- og unglingabókum. „Ég
kannaði þessi efni í söluhæstu bók-
unum á þriggja ára tímabili og þar
kom nú ýmislegt í ljós,“ sagði Sigríð-
ur. Hún segir verkaskiptingu þeirra
Einars ekki fastákveðna en hún sjái
einkum um sunnudagaskóla og síðan
Fornleifafræðistofan
sendir Samkeppnis-
stofnun erindi
Spurt hvort
samkeppnis-
lög gildi ekki
um Þjóð-
minjasafn
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur
borist erindi frá Fomleifafræðistof-
unni þar sem úthlutun verkefna á
vegum Þjóðminjasafns Islands tO
einkaaðila er gerð að umtalsefni.
Vilja aðstandendur Fornleifafræði-
stofunnar vita hvort ákvæði sam-
keppnislaga um útboð verkefna á
vegum ríkisstofnana eigi ekki einnig
að gOda um Þjóðminjasafnið.
Bjarni F. Einarsson, fomleifa-
fræðingur hjá Fornleifafræðistof-
unni, sagðist hafa falið lögfræðingi
sínum að rita Samkeppnisstofnun er-
indið að gefnu tilefni. „Þetta er
spuming um eðlOega og heiðarlega
samkeppni," sagði hann. „Það er
komið nýtt landslag í þessum málum
á íslandi og menn verða að sætta sig
við það og fylgja þeim leikreglum
sem yfirvaldið hefur sett okkur.“
Sagði Bjami að sér fyndist nokkuð
hafa vantað upp á að þessar leik-
reglur væru hafðar í heiðri.
Þjóðminjasafni og Fomleifastofn-
un Islands mun nú þegar hafa verið
sent afrit af erindi Fomleifafræði-
stofunnar. Kom fram í máli Bjama að
hann teldi málið vera komið í eðlileg-
an farveg og hann biði nú einfaldlega
niðurstöðu Samkeppnisstofnunar.
skipti þau með sér almennri þjón-
ustu í söfnuðinum.
Séra Einar Eyjólfsson kom til
starfa hjá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
eftir að hann lauk guðfræðinámi
haustið 1984. „Þá voru um 1.800
manns skráðir í Fríkirkjusöfnuðinn
en núna era þeir kringum 3.500 og
umfang starfsins hefur farið vaxandi.
Þess vegna var orðið nauðsynlegt að
fá aðstoð og stjórn safnaðarins ákvað
fyrir nokkru að kalla Sigríði Kristínu
til starfans." Hann minnist Sigríðar
Kristínar úr fyrsta fermingarbama-
hópnum. „Hún var ein af mörgum í
þessum glaðværa hópi sem veitti
mér eldskírn í starfinu og fannst þau
kannski bera nokkra ábyrgð á mér
fyrstu skrefin," segir hann. En era
verkefni prestanna að aukast fyrir
utan það sem gerist með fjölgun
safnaðarmeðlima?
Leitað fyrr eftir
þjónustu kirkjunnar
„Mér finnst ýmislegt benda til
þess að fólk leiti meira til kirkjunnar
en verið hefur. Það á við alls kyns sál-
moi^umuúuiu/uoii utavaioouu
Sr. Einar Eyjólfsson, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfírði, les hér vígslu-
bréf sr. Sigríðar Kristínar Helgaddttur þegar hún var sett í embætti.
gæslu, það þarf að fylgja fólki vel eft-
ir í sorginni og mér finnst við vera
kölluð fyrr til en áður þegar eitthvað
bjátar á hjá fólki. Þetta og margt
annað kallar á aukna þjónustu
kirkjunnar og það er því mikilvægt
að geta fengið prest í hlutastarf í
þessum vaxandi söfnuði.“
NYTT ANDLIT - FERSKUR BLÆR
Astir unglinga
42. tbt. W
62. árg. H
24. okt., V
2000, \
VERÐ 498 kr.
m. VSK.
tJ «á
Leioinleflu
Siúsverkm!
•4-4
JjJJJJJJ JJj1
Kanntu að
mmwÁ
Melkorka Tekia - Efgnaðist tvö börn á einu ári - Negiur
Gestahancfkiæði - Stella McCartney - Heílsumolar
Snyrting stjarnanna - Barnaherbergi - Hefnd nauðgarans